Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
Svíþjóð:
Langvarandi ofneysla hass
veldur andlegu heilsutjóni
AÐ ÖLLUM LÍKINDUM veldur langtímaneysla Ka.su enn meira tjóni en
vitaó hefur verið um. Nýjar sænskar rannsóknir sýna, að langvarandi of-
neysla efnisins getur valdið alvarlegu andlegu heilsutjóni. Fjöldi innlagðra
„hasssjúklinga“ á sænsk sjúkrahús hefur þrefaldast á fáum árum. Kr það ein
af afleiðingum hassbylgjunnar svonefndu, sem skall á Svíþjóð í lok 7.
áratugarins. Flestir þeirra sem nú fá meðhöndlun vegna geðrænna vanda-
mála eru á fertugsaldri og hafa verið ofneytendur hass í 10—15 ár.
Eftir því sem læknar á Hudd-
inge-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
segja er þetta aðeins það sem upp
úr stendur af ísjakanum og ber
fyrir augu.
Fyrrum var vitað að hassneysla
gæti leitt til tímabundinna and-
legra truflana, en menn gerðu sér
ekki grein fyrir, að alvarlegir og
þrálátir geðrænir sjúkdómar gætu
hlotist af.
Á Stokkhólmssvæðinu hefur
tala þeirra sem lagðir hafa verið
inn á sjúkrahús aukist frá 25 á ári
í lok 8. áratugarins í 95 árið 1982.
Alls leituðu 175 manns aðstoðar.
Af 17 manns sem meðhöndlaðir
voru á Huddinge-sjúkrahúsinu á
árinu 1982 vegna ofneyslu hass,
eru 9 haldnir geðsjúkdómum.
Þjást þeir af ofskynjunum og öðr-
um erfiðum meinum.
Flestir þeirra sem rannsakaðir
voru áttu við svo alvarlegan geð-
rænan vanda að stríða, að leggja
varð þá inn á sjúkrahús. í nokkr-
um þessara tilfella var hassið að-
alástæða þess, hvernig komið var
fyrir sjúklingnum, en að því er
flesta varðaði var hassneyslan
eina ástæðan.
Það reynist læknunum oft hið
mesta vandaverk að telja hass-
neytendur á að láta leggja sig inn
til meðferðar. Eftir langvarandi
ofneyslu hassins er líkami þeirra
orðinn svo gegnsýrður, að þeir eru
orðnir sinnulausir og kæra sig
kollótta um það sem gerast muni.
Oft eru eiturlyfjaneytendur sem
nota amfetamín og heróín mun
fúsari til að hætta, segja læknarn-
ir.
Emmanuelle
í sjónvarpinu á nýársnótt?
ZUrich, 7. des. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl.
AÐDÁENDUR kynlífsmynda hafa
rétt á kvikmyndum við sitt hæfi
eins og aðrir, yfirmenn frönsku-
mælandi sjónvarpsstöðvarinnar í
Sviss komust að þessari niður-
stöðu á fundi og ákváðu að sýna
kvikmyndina „Emmanuelle" í
sjónvarpinu i nýársnótt. Þegar
þetta fréttist varð uppi fótur og fit í
landinu og nú hafa 48 svissneskir
þingmenn skrifað útvarpsstjóra
bréf og farið fram i að hann komi
í veg fyrir þessa ákvörðun sjón-
varpsmannanna. Fæstir þingmann-
anna gangast við að hafa séð
myndina en hafa heyrt margt ósið-
samlegt um hana.
„Emmanuelle" hefur farið sig-
urför um heiminn síðan hún var
gefin út snemma á siðasta ára-
tug. Hún flokkast undir klám-
myndir en þykir með efnismeiri
og fallegri kynlífsmyndum sem
gerðar hafa verið. Almenningur
í Sviss virðist af stuttum blaða-
viðtölum að dæma frekar já-
kvæður í garð myndarinnar og
sér lítið athugavert við að hún
verði sýnd. „Af hverju má ekki
sýna ást og hlýju í sjónvarpinu
einu sinni í staðinn fyrir sífelld
morð og ofbeldi?", spurði einn
viðmælandi dagblaðsins Blick.
Þeir sem eru á móti því að
„Emmanuelle" verði sýnd segja
að börn og unglingar vaki langt
fram að nótt á gamlárskvöld og
það sé ein fárra nótta ársins
þegar fjölskyldur vilja gjarnan
sitja saman fyrir framan sjón-
varpið og skemmta sér yfir því.
Það þykir ekki rétt að bjóða upp
á klámmynd í sjónvarpinu, jafn-
vel þótt hún byrji ekki fyrr en
klukkan 2 um nóttina.
Eldisfiskur í Noregi:
Vélmennaiðnaður í
Bandaríkjunum eflist
Washington, 7. de*. AP.
FRAMLEIÐSLA á vélmennum í iðnaði jókst mjög í Bandaríkjunum á þessu
iri og fyrirtæki sem hafa lagt sig eftir að framleiða róbóta telja að framtíðin
blasi við björt því að eftirspurn fari stöðugt vaxandi. Þó að vélmennanotkun
hafi aukizt f Bandaríkjunum hafa þó Japanir enn forystuna í framleiöslu og
notkun á vélmönnum og hafa þeir tekið vélmenni í notkun í langtum fleirí
atvinnugreinum en reynt hefur verið annars staðar.
Bandaríkjamenn eru farnir að 194 milljónir dollara. Talsmaður
framleiða vélmenni til útflutnings
og á árinu 1983 voru um þrjú þús-
und bandarísk vélmenni flutt úr
landi. Söluverðmæti þeirra var um
framleiðenda vélmenna sagði að
Bandarfkjamenn hefðu einnig
flutt út varahluti í vélmenni fyrir
drjúga upphæð. Fyrri helming
ársins 1984 voru seld 2.200 vél-
menni úr landi og framleiðslu-
pantanir hafa borizt um 1.600 vél-
menni í viðbót.
Til samanburðar má geta þess
að japönsk fyrirtæki hafa 41 þús-
und vélmenni í störfum, en aðeins
9.400 vélmenni eru komin til
starfa i bandarískum atvinnu-
greinum. í Vestur-Þýzkalandi eru
þau 4.800 og i Frakklandi 3.600.
Okkar árlega Lúsíukvöld verður i Blómasal á sunnudagskvöld.
Hátíðin hefst kl. 20.00. Lúsíur úr æskulýðsdeild Bústaðakirkju
syngja jólalög og einnig syngur Skólakór Kársnesskóla
í anddyri hótelsins.
Matseöill
Grafið heiðalamb með dlonsósu
Fylltur kalkún að hættl hússins
Ferskur ananas Grand Marnier
fMatseðillinn gildir sem happdrættismiði,
aðalvinningur er flugferð til London.
Módelsamtökin kynna föt frá verslununum
v Endur og hendur, Herraríki og Viktoríu.
Borðapantanir í síma 22322 og 22321. Verið velkomin.
HOTEL LOFTLEIÐIR f
fLUGLEIOA
' HÓTEL
Nitze sér-
legur ráð-
gjafi í Genf
er viðræður hefjast
þar í janúar
WaKhinf'ton, 7. den. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
hefur skipað l'aul Nitze í stöðu sér-
legs ráðgjafa George Shultz utanrík-
isráðherra í könnunarviðræðum
þeirra Shultz og Andrei Gromykos,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
sem fram eiga að fara í Genf 7.-8.
janúar nk.
Talið er víst, að þetta hafi verið
gert samkvæmt ábendingu Shultz
sjálfs og geti orðið til þess að auka
að mun möguleika á, að samkomu-
lag um takmörkun á vígbúnaði ná-
ist milli Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna. Nitze, sem er 77 ára að
aldri, var aðalsamningamaður
Bandaríkjanna í umræðunum um
meðaldrægar kjarnorkueldflaugar
í Genf, sem Sovétmenn slitu seint
á síðasta ári.
Hryðjuverkamenn
dæmdir í ævi-
langt fangelsi
Mílanó, 7. de*ember. AP.
NÍTJÁN félagar í hryðjuverka-
samtökunum sem kölluöu sig
rauðu herdeildirnar á Ítalíu voru
dæmdir til lífstíöarfangelsis í
réttarhöldum sem haldin voru yf-
ir 112 grunuðum félögum. Um-
rieddir 19 voru sekir fundnir um
aðild að 8 morðum á árunum
milli 1978 og 1983.
Lífstíðarfangelsun er harð-
asti dómur sem hægt er að fá á
Itaiíu. Átta hinna ákærðu voru
dæmdir í 30 ára fangelsi og að
13 hinna frátöldum fengu aðrir
vægari dóma en stranga þó.
Hinir 13 voru sýknaðir og
sleppt. í hópi fórnarlamba
morðingjanna voru lögreglu-
menn, iðnrekendur og fram-
kvæmdastjóri eins stærsta
sjúkrahúss Mílanóborgar.
600—900 millj.
kr. árlegt tjón
Ósló, 7. drsember. Frá Jan Crik Laure. frétUriUra Mbl.
SJÚKDflMAR í eldisfiski valda
norskum fiskræktarfyrirtækjum
milli 600—900 milljóna króna tjóni
á hverju ári. Er nú verið að gera
heimildamynd um vandamál þetta.
Myndin á að sýna, hvernig
starfsmenn fiskræktarstöðva geta
sjálfir fundið sýkingarmerki á
fiskinum og dregið þar með úr
áhrifurn sjúkdóma og fjárhags-
tjóni.
Trygve T. Poppe dýralæknir
segir að norsk fiskræktarfyrir-
tæki hafi í stórum dráttum komist
hjá alvarlegum smitsjúkdómum.
Hins vegar sé mikið um það sem
kalla megi framleiðslukvilla sem
stafi af hinu geysimikla umfangi
ræktunarinnar.
Sjúkdómar höggva einnig nokk-
urt skarð í klakfisk, en það hefur í
för með sér að flytja verður inn
meira af smálaxi en annars þyrfti.
Slíkur innflutningur eykur svo
aftur hættuna á að sjúkdómar
berist til landsins erlendis frá.