Morgunblaðið - 08.12.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
7
Þöraiigavinnslaii i Reykhóhim.
Sjöstjarnan hf. í Njarðvík:
Nýjar pökkunarvélar teknar í notkun
Vojfum, 6. desember.
TEKNAR hafa verið í notkun nýjar vélar við pökkun sjávarafurða hjá
Sjöstjörnunni hf. í Njarðvík. Er Sjöstjarnan fyrst íslenskra fyrirtækja að
tileinka sér þessa nýjung, en framleiðsla fyrirtækisins er tilbúin beint í
verslanir erlendis.
Að sögn Einars Kristinssonar
framkvæmdastjóra Sjöstjörnunn-
ar bjóða vélarnar upp á mikjla
möguleika, það er hægt að fara út
i margar framleiðslutegundir,
fisk, grænmeti og hráefnið má
vera ferskt eða frosið. Gjörbylting
er í umbúðum, áður komu öskj-
urnar í heilu lagi, en nú annast
vélarnar allt pappírsbrot. Með
þessu nýja fyrirkomulagi getur
fyrirtækið pakkað undir hvaða
vörumerki og í hvaða stærðum
sem kaupandi óskar. En minnstu
pakkar mega vera 100 gr en þeir
stærstu 7 pund. Afkastageta vél-
anna er 60—120 öskjur á mínútu.
Einar sagði að með tilkomu vél-
anna mætti draga úr sveiflum í
atvinnu, því ef lítið er að gera má
vinna frosið hráefni. Sjöstjarnan
hf. framleiðir undir vörumerkinu
Iceland Harvest, en fyrirtækið
Ocean Harvest selur framleiðslu
þess. E.G.
SKAPLAKLJÚFUR
Þönmgavinnslan:
Þörungaseyðið
mjög betain-ríkt
Mun meira af þessu efnasambandi
en í öðrum sambærilegum seyðum
Miöhúmim, Reykhólasveit, 6. desember.
FRÉTTARITARI hitti nýlega Kristján Þór Kristjánsson forstjóra Þörunga-
vinnslunnar og bað hann að segja frá því helsta sem efst væri á baugi hjá
verksmiðjunni. Hann sagði, að verið væri að ljúka smíði á þarakló, sem er
hönnuð hér og er ekki nema Vs af þyngd þeirrar klóar sem nú er notuð og er
hún um 500 kg. Hún er hönnuð þannig, að ef aðaldráttarvél slitnar þá er tóg
fest í klóna, svo að auðvelt verður að ná henni upp aftur. Þessi kló er mun
auðveldari í notkun og fljótvirkari.
Breytingar hafa verið gerðar á
innmötun fyrir þarann, sem er til
hagræðis við skurð á rót. Fyrir
skömmu fóru fram viðræður milli
Þörungavinnslunnar og AIL í
Skotlandi um sölu á þangmjöli á
næsta ári og kom fram í þeim um-
ræðum, að þeir munu væntanlega
ekki kaupa nema W miðað við árið
1984 vegna offramleiðslu á þang-
mjöli til algenat-vinnslu. Síðan
var farið til viðræðna við pró-
fessor Blunden í háskólanum í
Portsmouth. Pr. Blunde hefur gert
miklar rannsóknir á áhrifum þör-
ungaseyðis á vöxt plantna og er
hann með fremstu vísindamönn-
um á þessu sviði í heiminum í dag.
Hann hefur m.a. fundið að það
efni í þörungaseyði sem cytokinin
nefnist og talið var að hefði áhrif
á vöxt jurta, er ekki eins ráðandi
og áður var haldið. Niðurstöður
dr. Blunden eru þær, að svokallað
betain-efnasamband sem fyrir-
finnst í þörungaseyði virki sem
hvati á vöxt jurta. í athugun dr.
Blunden kom fram, -að miklu
meira af betain-efnasambandinu
væri frá þörungaseyði frá Þör-
ungavinnslunni en öðrum sam-
bærilegum seyðum.
Nú er þörungaseyði víða um
heim notað sem plöntuáburður og
er það ætlun Þörungavinnslunnar
að hasla sér völl á þessum mark-
aði og er hún þegar byrjuð að und-
irbúa framleiðsluna af fullum
krafti.
Betain-efnasambandið virkar
örvandi á blaðagrænumyndun hjá
plöntum og um leið nýtir jurtin
mun betur hinar hefðbundnu
áburðartegundir. Þetta efni tekur
ekki þátt í vexti plöntunnar á
beinan hátt, en eykur aðeins hæfi-
leikann til meiri efnistöku. Einnig
eykur það frostþol, mótstöðuafl
gegn utanaðkomandi áhrifum og
geymsluþol ávaxta. Einnig verða
plöntur fyrir minni skemmdum af
saltáhrifum.
Nú hefur verið gert átak í sölu á
þðrungamjöli fyrir hesta en það
hefur sýnt sig, að það eykur þrótt
þeirra og þeir sem hugsa vel um
gæðinga sína kaupa það í auknum
mæli, sagði Kristján í lokin.
Sveinn.
Endurminningar
Þóris Bergssonar
BÓKAFORLAG Odds Björnssonar
hefur gefid út endurminningar Þóris
Bergssonar. Hannes Pétursson
skáld og Kristmundur Bjarnason
fræðimaður hafa umsjón með þess-
ari útgáfu. Formáli er eftir Guð-
mund G. Hagalín.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Meistari smásagnanna hét réttu
nafni Þorsteinn Jónsson, Magn-
ússonar prests á Mælifelli og Ríp í
Skagafirði og síðar í Bjarnarhöfn
á Snæfellsnesi. Frá mótun sinni á
æskuárum á þessum stöðum segir
Þórir Bergsson ljóslifandi. Hann
gerðist síðan opinber starfsmaður
í Reykjavík, en sinnti ritstörfum í
hjáverkum. Það kom þó ekki í veg
fyrir að bæði lærðir og leikir skip-
uðu honum á heiðursbekk rithöf-
unda okkar. Hann var sæmdur
riddarakrossi Fálkaorðunnar 1957
og kosinn heiðursfélagi Félags ís-
lenskra rithöfunda 1960.“
f bókinni eru ljósmyndir og
nafnaskrá. Bókin er 212 blaðsíður,
unnin hjá Prentverki Odds
Björnssonar hf.
Þórir Bergsson
-inn fór allt,
jepparnir þvœldust bara fyrir,"
sagði ánœgður UNO-eigandi
í ófœrðinni sl. vetur.
UNO sýndi aí sér afburðadugnað og hörku
1 óíœrðinni sem hrelldi margan bíleigandann í íyrravetur.
Framhjóladrifið, mýktin og seiglan gera FIAT UNO að hreinu undratœki
í vetrarakstri, sannkölluðum skaílakljúí.
Þetta er sú hliðin á FIAT UNO
sem algengast er að sjá
að vetri til í snjó og óíœrð.
Skaílakljúíurinn FIAT UNO er alltaf íyrstur gegnum þœíinginn,
þess vegna er skottið sú hliðin sem flestir sjá (nema kannske allir hinir
UNO eigendumir).
EGILL
VILHJÁLMSSON hf.
1
aaaa
Smidjuvegi. 4, Kópavogi Simar 77200 - 77202.