Morgunblaðið - 08.12.1984, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.12.1984, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 Brauðrist JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF. 120 ár segir sínfl sögu 1.— ímeiraenöldhefur verið ífararbroddi í gerð heimilstœkja Fá fyrirtæki geta státað af. slíkri 'l OQ ÁT?A reynslu. Þess vegna getur þú treyst -L£AJ fXLYTi. því að þegar þú kaupir brauðrist REYNSLA frá GROSSAG þá kaupir þú vandaða XRYGGIRGÆÐIN veturþýska gæðavöru. Domus, Laugavegi 91 Glóey, Ármúla 28 H.G. Guðjónsson, Suðurveri Jón Loftsson, Rafdeild Mikligarður við Sund Rafbúð Dómus Medica, Egilsg. 3 Rafbúðin, Auðbrekku 18 Rafha, Austurveri Rafmagn, Vesturgötu 10 UTSOLUSTAÐIR: Rafviðgerðirhf., Blönduhlíð 2 Mosraf, Mosfellssveit Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi Rafblik, Borgarnesi Verzlunin Kassinn, Ólafsvík Húsið, Stykkishólmi Straumur h.f. ísafirði Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri Raftækjaversl. Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum Elías Guðnason, Eskifirði Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli Kaupfélag Árnesinga, Selfossi Reynir Ólafsson Rafbúð, Keflavík Gódan daginn! Fjallað um Suðurland í riti um íslenzka sögustaði ÚT ER komið hjá Erni og Örlvgi fyrsta bindi hins mikla ritverks Is- lenskir sögustaðir eftir Kristian Kalund í þýðingu dr. Haralds Matlhí assonar á Laugarvatni. Hér er á ferð- inni eitt hundrað ára höfuðheimild um íslenska sögustaði sem enn er í fullu gildi og sífellt er leitað til og því mikill fengur að fá verkið í vandaðri íslenskri þýðingu, segir í kynningu forlagsins. Peter Erasmus Kristian Kálund fæddist 19. júlí 1844 á einni dönsku PE. Kristian Kalund ÍSLENZKlR SögustaðiR surimiJiDiriGA rJÓRDUhCAJR eyjanna, Lálandi, prestssonur. Hann varð stúdent 1863 og magist- er í norrænum fræðum 1869. Hugur hans beindist snemma að íslenskum efnum, og haustið 1872 kemur hann til íslands, 28 ára gamall. Hér dvaldist hann tvö ár, ferðaðist bæði sumrin um landið og tókst að fara um mikinn hluta af byggðum lands- ins. 1 Danmörku vann hann síðan úr gögnum þeim er hann hafði safn- að, og á árunum 1877—82 kom út hið mikla rit hans: Bidrag til en historisk-topografisk Beskrivelse af Island. Nafnið bendir til lýsingar á sögustöðum, og hefur sá eflaust verið tilgangurinn. En þar er einnig almenn landlýsing, og er sá hlutinn stórum meiri fyrirferðar, enda var almenn lýsing nauðsynleg. Tengir hún saman og lýsir umhverfi sögu- staða. Auk eigin landskoðunar studdist Kálund við samningu bók- arinnar mjög við sóknarlýsingar Bókmenntafélagsins frá fyrri hluta 19. aldar, einnig margháttaða fræðslu frá íslenzkum mönnum, eiifkum prestum. Ennfremur rann- sakaði hann fjölda fornra heimilda, sem að gagni máttu koma. Þótt nú séu liðin full 100 ár frá útkomu bókar Kálunds, er hún enn í fullu gildi, einkum sögustaðalýs- ingarnar. Eru þær eina samfellda ritið um íslenska sögustaði og höf- uðheimild þeirra sem við sögustað- fræði fást. Rit Kálunds var í tveim bindum en hin fslenska þýðing dr. Haralds Matthíassonar verður i fjórum og er farið eftir hinni fornu fjórðungaskiptingu. Bókin íslenskir sögustaðir er sett, prentuð og bundin í Prent- smiðjunni Odda hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson. Menningar- aðventa í Gerðubergi NOKKRIR rithöfundar, tónlisUr- menn og leikarar munu skemmta í Gerðubergi á morgun, sunnudag, í menningaraðventu, sem þar verður haldin og hefst klukkan 15.30. Dagskráin fer fram í kaffiteríunni. Njörður P. Njarðvík les úr bók sinni. og sonar síns, „Ekkert mál“, Viðar Eggertsson les úr barnabók Auðar Haralds, „Elías í Kanada", Thor Vilhjálmsson les úr þýðingu sinni á „Rósinni" eftir Umberto Eco, Þórarinn Eldjárn les úr ljóðabók sinni „Ydd“ og Pétur Gunnarsson les úr nýjustu bók sinni. Þá leikur Kolbeinn Árnason á flautu og Páll Eyjólfsson á gítar. Húsið í Gerðubergi er að jafnaði opið mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 16 til 22 og laugardaga og sunnudaga frá 14 til 18. Kirkja óháða safnaðarins: Aðventukvöld og basar Á MORGUN, sunnudag, er aðventu- kvöld ■ kirkju Óháða safnaðarins og hefst það klukkan 20.30. Þí fer hinn árlegi basar kvenfélags safnaðarins fram í dag, laugardag, og hefst klukkan 14. í frétt frá Baldri Kristjánssyni sóknarpresti, sem Morgunblaðinu hefur borizt, segir, að á aðventu- kvöldinu muni séra Guðmundur Sveinsson skólameistari flytja hugvekju og Svanhildur Sigur- jónsdóttir lesa ljóð. Kór Fjöl- brautaskólans í Breiðholti syngur undir stjórn organista safnaðar- ins, Jónasar Þóris, og kór Mela- skólans syngur undir stjórn Helgu Gunnarsdóttur. Þá mun Jónas Þórir Dagbjartsson leika einleik. Á basar kvenfélagsins kennir að venju ýmissa grasa. Þar verður fatnaður, aðventukransar, jóla- skraut og kökur, auk fjölmargra annarra muna. Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.