Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 Frakkland og Mexíkó hóta að segja sig úr IBI Ástæðan er snarhækkandi útgjöld stofnunarinnar Róm, 7. des. AF. FRAKKLAND og Mexíkó hafa hótað að segja sig úr IBI, einni af undirstofn- unum UNESt'O. IBI (International Bureau of Informatics) hefur það að verkefni að efla tölvutækni í þriðja heiminum og eru yfir 40 þjóðir aðilar að þessari stofnun. Frakkar og Mexíkanar segjast nú vera að „endurmeta" aðild sína að þessari stofnun, sökum þess að samþykkt hafi verið 2 ára fjár- hagsáætlun fyrir árin 1985—1986, sem nemur 40 millj. dollara. Er hún 18 millj. dollara hærri en síð- asta 2 ára áætlun. Þessi nýja fjár- hagsáætlun var samþykkt með 26 atkvæðum gegn 4 á aðalfundi IBI á fimmtudag, en 2 fulltrúar sátu hjá. „Vegna þessar nýju fjárhags- áætlunar, þá munum við taka ákvörðun um það í lok mánaðar- ins, hvort við hættum aðild okkar," var haft eftir_ einum af frönsku fulltrúunum á aðalfundi IBI í gær. Sagði hann, að Frakkar væru búnir að hóta því í tvö ár að hætta aðild að IBI til þess að mót- mæla vaxandi útgjöidum stofnun- arinnar. Þá sagði hann ennfrem- ur, að IBI yrði að gera betri grein fyrir því, hvert fjármunir stofnun- arinnar rynnu. Frakkland er í hópi þeirra ríkja, sem leggja mest af mörkum til IBI eða um 30% af útgjöldum stofnun- arinnar. IBI var stofnað 1974 í því skyni að greiða fyrir aðgangi þjóða þriðja heimsins að tölvu- tækni nútímans. Er því haldið fram af hálfu stofnunarinnar, að 80% af útgjöldum hennar fari til þjálfunar í tölvutækni og til þess að fátæk lönd geti keypt tölvuút- búnað af Evrópuríkjum. Auk Frakkiands og Mexíkó greiddu Venesúela og Chile at- kvæði gegn fjárhagsáætlun IBI. Ronald Reagan Bandarlkjaforseti og suAur-afríski biskupinn og friðarverð- launahafi Nóbels, Desmond Tutu, ræðast við í Hvíta húsinu í Washington í gær. Desmond Tutu á fundi með Reagan Wwhinffton, 7. den. AP. DESMOND Tutu, friðarverð- launahafi Nóbels, ræddi í dag við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta um stjórnmálaþróunina í Suður- Afríku. Fór fundur þeirra fram í Hvíta húsinu í Washington og stóð hann í 40 mínútur. Að fundi þeirra loknum átti Tutu einnig fund með George Bush varafor- seta. Tutu hefur gagnrýnt stefnu Reagans forseta gagnvart Suður- Afríku og sagt, að hún yrði til þess að efla aðskilnaðarstefnu stjórn- arinnar þar. Hádegisjazz íBlómasalnum Vegna mikilla vinsælda mun Hótel Loftleiðir halda áfram með hádegisjazz fyrir alla fjölskylduna. Sambland af morgun- og hádegisverði með léttri og lifandi tónlist. Þeir sem koma og leika í sunnudagshádeginu: Kvartett Kristjáns Magnússonar. Gestur Björn Thoroddsen gítarleikari Hressið upp á sunnudagstilveruna með léttum jazz og Ijúffengum réttum í Blómasalnum. Borðapantanir í símum 22321 og 22322. Verið velkomin HÓTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA HÓTEL AP/Slmamynd. William J. Schröder gervihjartaþegi f gönguferð i sjúkrahúsi í Louisville í Kentucky. Um öxl sér hefur hann búnað þann sem knýr hjartað. Schröder farinn að ganga Loutsvillc, 7. deacmbcr. AP. WILLIAM J. Schröder, sem grætt var í gervihjarta 25. nóvember sl., fékk að fara á fætur og ganga einn og óstuddur í gær, að sögn lækna sem annast hann. Gekk Schröder ein 10 skref og hafði um öxl sér tækjabúnað þann, sem sér um að knýja gerfihjart- að, en alls vegur búnaðurinn um 5 kíló. Fer Schröder fram með degi hverjum og er óðum að komast eðlilegur hrynjandi á svefn og vöku. Áður en Schröder er leyft að standa á fætur er ganghraði hjartans aukinn úr 70 í 75 slög á mín- útu. Dumas tékur við starfi Cheysson Pmrís, 7. desember. AF. ROLAND Dumas tók í dag vid starfi utanríkisráðherra af Claude Cheysson er Laur- ent Fabius forsætisráðherra tilkynnti nokkrar breytingar á ríkisstjórn sinni. Dumas er lögfræðingur og ná- inn vinur Francois Mitterrand forseta um langt skeið. Dumas tók við ráðherrastarfi í júní er hann var gerður að aðstoðarut- anríkisráðherra. Var honum fal- in umsjón evrópskra málefna og gerður að stjórnartalsmanni. Við síðari starfanum tekur Georgina Dufoix, sem heldur stól sínum sem félagsmálaráð- herra. Catherine Lalumiere að- stoðarráðherra, sem fór með neytendamál, tekur við deild þeirri sem Dumas stýrði í utan- Austurríki: ríkisráðuneytinu áður en fær ekki ráðherratitil. Claude Cheysson hverfur aft- Roland Dumas ur til Evrópubandalagsins og tekur við starfi í framkvæmda- ráði þess í Brussel. Búist er við að hann verði settur yfir deild þá er fer með samskipti banda- lagsins og þróunarríkja. Veður víða um heim Akureyri 1 snjóói Ameterdam 10 heMskfrt Aþena 13 skýjsó Barcelona vantar Berlín vantar Brussel 10 heióskírt Chicago +10 skýjsð Dublin 10 skýjsð Feneyjar vantar Franklurt 3 skýjað Genf 5 skýjað Helsinki 2 rigning Hong Kong 21 heiósktrt Jerúsalem 9 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 skýjað Las Palmas vantar Lissabon 13 rigníng London 12 skýjað Los Angeles 25 akýjað Luxemborg vantar Malaga 17 akýjað MaHorca 16 akýjaO Miami 29 haiðskírt Montreal +4 snjókoma Moskva +2 skýjað New York 8 heiðskirt 0*16 6 skýjað París 0 skýjað Peking 6 akýjað Reykjavík 0 þokumóða Rio da Janeiro 30 skýjaó Rómaborg 18 heióskirt Stokkhólmur 5 skýjaó Sydney 20 rigning Tókýó 10 haióakirt Vínarborg 2 skýjaö Þórshöfn 7 rigning Pólitískar deilur um opnunartíma verzlana V ínarborg, 7. desember. AP. MIKLAR pólitískar deilur hafa blossað upp í Austurríki út af opnunartíma verzlana fyrir hátíöirnar. Ástæöan er sú að yfir- völd í Salzburg hafa heimilað verzlunareigendum að hafa búðir sínar opnar á morgun, laugardag. Mesta athygli vekur ágreining- því sem honum komi ekki við, og ur stjórnmálamanna í málinu og hafa blöð gert mikið úr honum. Hafa sumir stjórnmálamannanna gengið það langt að yfirvöld í Salzburg hafi með ákvörðun sinni framið stjórnarskrárbrot og farið langt út fyrir valdsvið sitt. Alfred Dallinger félagsmálaráð- herra, sem jafnframt er formaður samtaka starfsfólks sem vinnur hjá einkafyrirtækjum, hefur kraf- izt þess að yfirvöld í Salzburg dragi ákvörðun sína ti) baka og hótað mótmælaaðgerðum af hálfu samtaka sinna. Norbert Steger viðskiptaráð- herra hefur sagt opinberlega að Dallinger eigi ekki að skipta sér af varð það Alois Mock leiðtoga stjórnarandstöðunnar tilefni til að krefjast þess að Steger yrði settur af. Lög um opnunartíma verzlana í Austurríki eru mjög ströng, og að- eins er heimilt að hafa verzlanir opnar eftir kl. 12.30 á laugardög- um næsta laugardag á undan jól- um. Yfirvöld í.Salzburg töldu hins vegar alla aðila hagnast á því að bæta við einum opnunar-laugar- degi en sú ákvörðun hefur dregið mikinn dilk á eftir sér og sér ekki fyrir endan á þessari deilu. En hvað sem því viðvíkur bendir ekk- ert til þess að ákvörðuninni verði breytt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.