Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.12.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 33 Útgefandi tllltlfeifr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoóarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakið. Hvaða vaxtastefna? Ríkisstjórnin hefur mælst til þess að Seðlabankinn fresti aö minnsta kosti um viku að ákveða nýja vexti. Þessa frestbeiðni ríkisstjórnarinnar má rekja til þess að innan stjórnarflokkanna eru menn ósáttir við að vextir hækki. í því efni bera menn hag skuld- ara fyrir brjósti og vísa þá jafnan bæði til húsbyggjenda og útgerðarmanna. Astæðu- laust er að gera lítið úr vanda þeirra sem bera þunga skulda- bagga og auðvitað hijóta þeir að vera andvígir því að vextir hækki. Vaxtabyrði húsbyggj- enda geta stjórnmálamenn leyst með svonefndum félags- legum aðgerðum hafi þeir til þess vilja. Því miður verður að segja þá sögu eins og hún er, að Alexander Stefánsson, þing- maður Framsóknarflokksins og húsnæðismálaráðherra, hef- ur alls ekki tekist þannig á við húsnæðismálin að það sam- rýmist stefnuyfirlýsingum stjórnarflokkanna fyrir kosn- ingarnar. Og skuldbreytingar- stjórn Halldórs Ásgrímssonar í sjávarútvegsmálum ber þess ekki merki að fylgt sé mark- vissri stefnu á því sviði. Vandi skuldara eykst að sjálfsögðu við að vextir hækki, þó er í tillögum Seðlabankans að finna hugmyndir um að draga úr þessum vanda með því að lækka vexti á verð- tryggðum lánum. Hitt hefur verið bent á hér í blaðinu af dr. Sigurði B. Stefánssyni, að þrír fjórðu hlutar innlána í bönkum og sparisjóðum eru í eigu ein- staklinga. Aðeins fjórðungur innlána er í eigu fyrirtækja. Á hinn bóginn er aðeins fjórð- ungur útlána hjá einstakling- um og þrír fjórðu hjá fyrir- tækjum. Hag þeirra einstakl- inga sem eiga fé í bönkum mega stjórnendur landsins ekki gleyma. Þá mega þeir ekki heldur gleyma því að takist ekki að auka innlenda spari- fjármyndun verðum við alfarið háðir erlendu lánsfé og verðum að sæta kjörum sem hvorki ráðast af vilja þingflokka né ríkisstjórna á íslandi. Vaxta- greiðslur til útlanda nema nú nálægt átta þúsund krónum á mánuði á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Launa-kollsteypan í haust hefur sett stjórnarstefnuna úr skorðum. Fyrir kollsteypuna fylgdi ríkisstjórnin vaxta- stefnu sem miðaði að því að auka innlendan sparnað. Hefur ríkbistjórnfn horfíð frá þessari ; steljnu' )eftir ‘gengisfdlingar- samijSngatof írýgfeyi’ Páisson, fraWkvælndástjófi fjármála- sviðs 'Landsbankans,' sagði f Morgúnblaðinu í fyrradag, að yrðu vextir ekki hækkaðir þá væri hætt við auknum útlána- þrýstingi og minni hvata til sparnaðar: „Sparifjáreigendur fylgjast betur með en áður var og eru snöggir til viðbragða," segir Tryggvi Pálsson réttilega. Eins og áður sagði á ríkis- stjórnin að framfylgja stefnu sinni í húsnæðismálum og standa að lausn sjávarút- vegsvandans en hún verður einnig að fylgja markvissri vaxtastefnu. Hið versta sem fyrir stjórnmálmenn kemur er að tapa áttum, hætta að geta skipað málum í forgangsröð eftir mikilvægi þeirra. Verði haldið þannig á vaxtamálum að enginn hafi hag af því að ávaxta fé í bönkunum eru stjórnmálamennirnir að afsala sér í hendur erlendra banka- stjóra ákvörðunarvaldinu um þróun peningamála á íslandi. Hækkun söluskatts Þingflokkar stjórnarflokk- anna hafa nú samþykkt tillögu Alberts Guðmundsson- ar, fjármálaráðherra, um að hækka söluskatt um 0,5%. Með þessari hækkur og hertri inn- heimtu hyggst fjármálaráð- herra afla ríkissjóði 250 millj. kr. tekna á næsta ári. Engu að síður spáir fjármálaráðherra því að hallinn á fjárlögum næsta árs verði 600 til 700 millj. kr. Ríkisstjórnin ætlar að lækka tekjuskatt um 600 milljónir. Til að draga úr tekjumissinum er söluskatturinn hækkaður. Þessari staðreynd mega menn ekki gleyma þegar þeir rifja upp í huga sér kosningaloforð- in um að hækkun skatta sé fráleitt úrræði. Fróðlegt væri að stjórnmálamennirnir legðu fram yfirlit um það, hvernig þessi tilfærsla í skattkerfinu frá beinum skatti til eyðslu- skatts lendir á einstaklingun- um sem undir þessu öllu standa. Enginn fagnar því að sölu- skattur er hækkaður. Ekki eru þó miklar líkur á andstöðu við hækkunina á þingi. Hinn ný- kjörni formaður Alþýðuflokks- ins, Jón Baldvin Hannibalsson, vill til að mynda ganga mun lengra á söluskattsbrautinni og afnema allar undarþágur und- an skattinum, svo sém.á mat- væluyn. 'Skatthyggj ú-flekkajrn- ir. vingtrá nJegiri v|ð- AÍþýðu-' - floklyiírt ættu þýr síftur aþ^Ba andvjgir þgrt-i - tjUcjgtL ijjfeF-. i máiajráðhefra áejrt stjóCijBf- flokkarnir hafa nú samþýkkt: Álit nefndar menntamálaráðuneytisins: íslensk tunga í ríkisfjölmiðlum í maí 1978 ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni að sjá svo um, að kennsla og fræðsla í Kíkisút- varpinu í öllum greinum móður- málsins verði efld. Þá ályktaði Al- þingi í maí 1984 að fela ríkis- stjórninni að hlutast til um að í ríkisfjölmiðlum og í grunnskóla- námi verði aukin rækt lögð við málvöndun og kennslu í fram- burði íslenskrar tungu. Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, skipaði nefnd til að gera tillögur um mál- vöndun og kennslu í framburði ís- lenskrar tungu í ríkisfjölmiðlum. Til starfsins voru fengnir Árni Böðvarsson, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, Guðmundur Ingi Kristjánsson, dagskrárfulltrúi, og Guðmundur B. Kristmundsson, námstjóri. Hinn 16. nóvember síðastliöinn lögðu nefndarmenn fram álit, sem er afrakstur af starfi þeirra. Það birtist hér í heild. Inngangur Af sjálfu leiðir að mjög mikil samræming málfars hlýtur að koma í kjölfar svo öflugra fjöl- miðla sem útvarps og þá einkum sjónvarps. Við teljum það skipti verulegu máli hvernig sú sam- ræming verður og að unnt sé að hafa nokkra stjórn á henni með því að beita þessum fjölmiðlum i því skyni. Af ástæðum sem hér skulu ekki raktar erum við andvígir því að stefnt sé að einhvers konar sam- ræmdum ríkisframburði sem óhjákvæmilega yrði fljotlega tal- inn hinn eini rétti, eða að minnsta kosti besti. Þvert á móti teljum við einsýnt að stuðla beri að varð- veislu ýmissa sérkenna málsins og hlynna á fjölbreytni þess eftir landshlutum. Fjölbreytni vandaðs máls á að fá að njóta sín. Stóraukin eðlileg samskipti ís- lendinga við aðrar þjóðir breyta aðstöðu íslenskrar tungu verulega, en eiga jafnframt að gera hana hæfari til að gegna hlutverki sínu að vera tjáskiptamiðill menning- arþjóðar. Einkum er brýnt að unga kynslóðin fari ekki að líta á neitt erlent mál sem sjálfsagðan þátt í lífi sínu. Því þarf sterklega að varast of einhliða notkun eins erlends máls, eins og ensku á okkar dögum, við flutning menn- ingar- og skemmtiefnis í fjölmiðl- um. Við höfum unnið starf okkar í nefndinni með þessi viðhorf í huga, og í samræmi við ályktun Alþingis frá 22. maí 1984 stefna tillögur okkar að því: 1. að efla þau viðhorf almennings að telja vandað íslenskt mál óhjákvæmilegan þátt í kurteis- legri umgengni og sjálfsagðan hluta umhverfisins, 2. að beita í ríkisfjölmiðlum auk- inni og markvissari fræðslu til málræktar, 3. að allt sem frá ríkisfjölmiðlum kemur skuli vera til fyrirmyndar um viðeigandi málfar. Flestir munu sammála um að fyrr eða síðar verði fleirum en Ríkisútvarpinu leyft að útvarpa og sjónvarpa hérlendis. í því sam- bandi er rétt að hafa í huga að í upphafi íálértáltra* bláðamennsku 'voru fh!8tir>riíít|óJ-arrtiT o(j blaða- * mennirrtir .rjtsmlKdgar rtg skör- ungar um málfar. Þeir höfðu bæði kunnáttu og vilja til að vanda málfar sitt. Ekki er líklegt að söm verði viðhorf og geta allra semj- enda og flytjenda efnis á íslensku í nýjum útvarpsstöðvum nú, né heldur viðhorf þeirra sem fyrir stöðvunum standa. Með þetta í huga verður sú þörf enn brýnni að ríkisfjölmiðlar gangi á undan með fyrirmynd um málfar, bæði orðafar og framburð. Nauðsyn á fræðslu verður einnig ríkari eftir því sem áhrif fjölmiðla á málfar gerast meiri. Því miða hugmyndir okkar einkum að tvíþættu starfi, að fræðslu meðal starfsfólks ríkis- fjölmiðla og meðal almennings. Tillögur um fræöslu starfsfólks ríkisfjölmiöla 1. Haldin verði tvö námskeið ár- lega fyrir starfsfólk þar sem fjall- að sé um orðafar, framburð, orð- skipan og annað það sem að gagni getur komið. 2. Þá sé lausráðnu dagskrárgerð- arfólki séð fyrir nauðsynlegri fræðslu, annaðhvort í formi nám- skeiða eða einstaklingsfræðslu. 3. Fræðslan sé á ábyrgð mál- farsráðunautar. Ef slík fræðsla fer fram utan reglulegs vinnutíma viðkomandi starfsmanns fái hann greitt sérstaklega fyrir tímasókn- ina. 4. Málfarsráðunautur eða annar sérfróður maður sé á fréttastofum Ríkisútvarpsins a.m.k. klukku- stund fyrir útsendingu aðalfrétta. Skal hann vera fréttamönnum til halds og trausts og lesa yfir hand- rit. Tillögur um fræösluefni Að okkar mati hentar margvís- legt efni til fræðslu um íslenskt mál í útvarpi og sjónvarpi. Eftir- farandi skrá er um ýmsa þætti sem okkur virðast heppilegir f þessu skyni. í stutta sjónvarps- eða hljóðvarps- þætti, 5—10 mín., mætti hugsa sér m.a. þetta efni: 1. Hljóðmótun. Starfsemi talfær- anna skýrð, myndun einstakra hljóða. Við höfum gert sýnishorn af því hvernig mætti taka á slíku efni svo að til gagns yrði. f beinu sambandi við þennan efnisþátt eru 2. framburður samfellds máls, hrynjandi, áherslulotur og 3. framsögn, leiðbeiningar um ýmis atriði sem snerta flutning mælts máls. 4. Beygingafræði. Hlutverk beyg- inga í íslensku, samanburður við aðrar tungur. Nokkur undirstöðu- atriði í beygingafræði. Myndræn uppsetning sambærilegra atriða (afleiddar myndir sagna, fallbeyg- ing, sambeyging eða samræmi beyginga innan sömu setningar). 5. Orðmyndun. „Orð myndast af orði". Nýyrði, m.a. saga nokkurra kunnra orða (t.d. sími, þota, bíll), jafnvel kynning á nýyrðum. Um hvað skortir helst orð? 6. Orðaval. Gildi þess að nota fjöl- breyttan orðaforða. Hér mætti sýna hvernig sumt í „stofnana- máli“ hrynur saman þegar orðalag verður skýrara (t.d. inntakslaus tengisögn + nafnorð -► merk- ingarbær gögn: gera rannsókná á» e-u namtsáka eíð).* ’ * 7. Orðavaf eftir fahdshluturt^. éðá* starfsstéttum- ' • • * ' > 4 i / i fi i 4 8. Myndræn orðtök. Gömul og ný orðtök, bæði þau sem styðjast við nútímasamfélag (fara í kerfi, taka e-n á teppið) og þau sem varpa ljósi á veruleika íslensks samfé- lags fyrrum (fara yfrum, hlaupa undir bagga, sigla hraðbyri). 9. Myndrænir málshættir á svipað- an hátt. 10. Merkingarbreytingar af ýmsu tagi, bæði góðar og vondar frá sjónarmiði málræktar. Myndhvörf og fleira. 11. Leiðbeiningar um máluppeldi barna, ætlaðar öllum uppalendum. Við teljum brýna þörf slíks efnis sem fyrst. í lengri sjónvarps- eða hljóðvarps- þáttum, 20—30 mín., mætti t.d. hugsa sér þetta efni: 12. Máltaka. Hvernig læra börnin málið? íslenskar rannsóknir á ál- töku eru komnar vel á veg. Áhrif umhverfis á máltöku (sbr. 11. at- riði). 13. Saga íslenskrar tungu, sennilega allmargir þættir, því að þeir yrðu að miðast við almenning, ekki sér- fræðinga. Hvernig varð íslenskan til? Heimildir um málfar fyrri tíma (rúnir, handrit, rímskorður). Hvernig var málfar landnáms- manna? Tengsl við önnur mál að fornu og nýju. Atriði sem hafa skipt sköpum um örlög tungunnar (ritunarhneigð manna, kveðskap- ur, þýðingarstarf manna eins og Guðbrands Þorlákssonar). Breyt- ingar á orðavali og merkingum. Breytingar á beygingum. Breyt- ingar á framburði. 14. Skáldamál. Hefðbundinn kveðskapur, órímuð ljóð. Brag- fræði (ljóðstafasetning, kveður, rím, vísnakeppni?) — Skáldamál, skáldaleyfi. Saga íslensks kveð- skapur. Kynning á skáldum Iif- andi og látnum. Hví ekki endur- vekja þáttinn Ljóð mánaðarins? 15. Skáldsagnaritun. Höfundar kynntir. Stefnur í bókmenntum. Einkenni bókmennta á ýmsum tímum. 16. Barnabækur. Kynning á ís- lenskum barnabókum, a) fyrir börn, b) fyrir uppalendur; gildi barnabóka í máluppeldi. Þessum þætti er að okkar mati brýnt að sinna hið fyrsta. 17. íslensk leikrit, saga þeirra og einkenni. Fleira efni viljum við nefna án þess að við höfum gert okkur grein fyrir hvort það hentaði betur í stutta eða langa þætti: 18. Handritaíestur, leturfræði. Jóhannes Arason útvarpsþulur leiðbeinir ungum gesti f þularstofu hljóð- varpsins. Handrit sýnd og lesin. Jafnvel at- hugandi hvort ekki ætti að lesa með sjónvarpsáhorfendum texta með gotnesku letri. 19. Saga íslenskrar stafsetningar. Meginatriðin rakin, einkum þau sem koma nútímafólki helst á óvart. Hvaða reglur eru í gildi og hvar er þær að finna? Álitamál í stafsetningu. 20. Móðurmálskennsla í skólum. Markmið og aðferðir. Leitast við að tengja skóla og heimili. Hvað er verið að gera í skólum? 21. Mál og tölvur. Tölvumál, ís- lensk forrit og erlend. Geta tölvur orðið íslensku máli til tjóns eða er unnt að virkja kraft þeirra í þágu málræktar? 22. Samtalstækni. 23. Fraklsluefni í hentugu formi í rás 2, smáþætti á svipaðan hátt og þáttinn um daglegt mál, til aö vekja umræður og hafa áhrif. Dæmi um kynningu eða kennslu framburðar í sjónvarpi (Byrja á almennri kynningu slíkra þátta, þáttaraðarinnar.) Þegar við tölum, eru talfærin, varir og tunga á óslitinni hreyf- ingu. Með því að breyta stelling- um eða hreyfingum talfæranna er myndað nýtt hljóð. Ef við lok- um vörunum verða til hljóð eins og b, p, m, svo gróflega sé til orða tekið, en ekki visindalega. En ef við lokum vörunum ekki alveg, heldur leggjum neðri vör að efri framtönnum, verða til hljóð eins og v, f, eða réttara sagt [v:, f:]. Tökum dæmi um þessi hljóð (þau þurfa ekki að vera venjuleg orð): aba, apa, ama, ava, afa. (Aðstoðarmaður ber fram sömu orð, nærmyndir sýndar af vara- burði. Talfærahreyfing einnig sýnd með innfelldri (?) teikni- mynd.) Hljóð eins og [v:, f:] eru kölluð tannvaramælt af þvi að þau myndast milli vara og tanna, en b, p, m tvívaramælt af því að þeirra staður er milli varanna beggja: [a:ba, a:va]. Stundum koma b eða m fram í eðlilegum framburði þótt þessir stafir séu ekki skrifaðir. Við segjum rétti- lega „kébli“ og tölum um „Kébla- vikurflugvöll". Líka er oft talað um „nemdir“, eða „nebna“ eitthvað á „nabn“, þú „nerndir" þetta. í þessum orðum eru borin fram b og m, þótt skrifað sé f. Að lokum getum við reynt að finna hvort unnt er að bera fram f, v öðruvísi en tannvaramælt, það er öðruvísi en tíðkast í ís- lensku. (Myndir af tvívaramæltu öng- hljóðunum [aba, apa] á sama hátt og við v, f.) Jú, ekki ber á öðru. En þetta eru ekki venjuleg hljóð í munni fs- lendinga, þó að þau séu algeng í sumum erlendum málum. Lítum aftur á íslensku hljóðin til sam- anburðar: (Tvær samhliða myndir, önnur af tvívaramæltum, spænskum hljóð- um, hin af tannvaramæltum og þá merkt: íslensk hljóð.) En hvað um tvívaramæltu hljóð- in, b, p, m? Til gamans skulum við reyna að leysa þrautina gömlu: „Segðu spámanns spjarir, svo ekki komi saman á þér var- ir.“ (Mynd sýnd af orðunum „Spá- manns spjarir". Tvær samhliða talstöðumyndir, önnur tannvara mælt lokhljóö, áletrun: „Mögulegt, dcki notað“, þin sinlr tvívaramaplt lolfhijöð, ^letrun! :„Eðlilegt, is- lénsktf. þfíðþrtagsórð. irtn næjta » þáttqgæf Áfvllt fiwirto : • ' • 4 ,. * •»{*'*'* •'. : > * 1 ? :v - f r; Flestum hljóðum málsins mætti þannig gera skil í svo sem tíu slík- um stuttum þáttum: 1. b, p, m, v, f. 2. d, t, n, ð, þ. 3- gj, kj, hj, j, k, g, x, y n. 4. hl, 1, hr, r, hn, h. 5. u, ö, ú, o. 6. í, i, e, a. 7. á, ó, æ, au, ei. 8. Áhersla og hrynjandi (hrynur). 9. Hljómfall. 10. Ýmislegt um samfellt mál. Saga íslenskrar tungu Saga íslenskrar tungu í einni þáttaröð. Efninu mætti gera nokk- ur skil í sex til átta 20 mínútna þáttum. Fjögur meginviðfangsefni: Hvernig varð íslenska til? Breytingar á orðaforða og merkingum frá upphafi íslands byggðar. Breytingar á beygingum á sama tíma. Breytingar á framburði á sama tíma. Hvernig varö íslensk tunga til? Landnáma getur þess að land- námsmenn hafi flust hingað frá Norðurlöndum og Bretlandseyj- um. Ljóst er að ekki hefur verið talað að öllu leyti sama tungumál- ið um allt þetta svæði, þótt menn hafi yfirleitt skilið hver anna, nema þegar um var að ræða mæl- endur fjarskyldra tungna, svo sem írsku eða skosku og norrænu. Er íslenska komin af hræringi slíkra mála eða mállýskna? Hvað- an komu landnámsmenn og hvar settust þeir að? Finnum við ein- hver merki þess í nútímaíslensku, ensku og Norðurlandamálum að íslenska sé orðin til við blöndun á þennan hátt? Hvaða heimildir höfum við um mál forfeðra okkar á landnámsöld? Hvenær er hægt að fara að tala um íslensku sem sérstakt mál og þá íslendinga sem sérstaka þjóð? Breytingar á orðavali, merkingum og beygingum Málnotkun er háð atvinnuhátt- um og menningu þjóðarinnar. Málið þróast og breytist með sam- félaginu sem talar það. Því hafa margvíslegar breytingar orðið á orðaforða og merkingum orða síð- an um landnám. Orð hafa týnst eða skipt um merkingu og ný orð hafa litið dagsins ljós. Hins vegar hafa orðið mun minni breytingar á beygingum. Spyrja má hvort nauðsyn sé að breyta málfræðinni á tímum atvinnubyltingar. Hvern- ig stendur á ýmsum slíkum breyt- ingum sem nú eru að ryðja sér til rúms, til að mynda breytingum á föllum? Höfum við dæmi um eitthvað slíkt fyrr á öldum ís- lenskrar málssögu? Breytingar á framburði Ekki er unnt að stæla framburð Snorra Sturlusonar svo að treysta megi. Við vitum of lítið um fram- burð samtíðar hans til þess, og við vitum miklu minna um framburð Egils Skallagrímssonar. Málssag- an segir okkur samt ýmislegt um breytingar sem orðið hafa á hljóð- kerfinu frá því löngu fyrir land- nám. Rúnaristur sýna margvísleg hljóðvörp, svo dæmi séu nefnd. Traustasta heimild um framburð í forníslensku er Fyrsta málfræði- ritgerðin. Vera má að reynandi væri að „endurgera" framburð Snorra á einstökum orðum með því að styðjast við allar tiltækar heimildir málssögunnar. Flest meginatriðin munu vera nokkuð ljós, og kannski yrði það engu verra en þegar við nútíma íslend- ingar tölum dönsku illa. Hvernig var flutningur Hallgríms Péturs- sonar á Passíusálmunum? Um framburð hans á 17. öld vitum við miklu meira en um framburð Snorra á 12.—13. öld, svo ekki sé talað um framburð Egils á 10. öld. . Og hvað getum við hugsað okkur ura / þaþ rpark I sem frambúrður-' , niítfartiifóllíSkkápn pð áetjajá^g- nna? ! í * í • ‘ 1 ; t * r y •: *• * . , . V . - ^ r ■ , Morgunblaðiö/Árni Sæberg Oskar Gíslason heldur á endurunnu og hljóðsettu eintaki af Lýðveldis- hátíðarkvikmyndinni, sem hann frumsýndi í Gamla bíói þremur dögum eftir að lýðveldishátíðinni lauk sumarið 1944, og hefur ekki komið fyrir almenningssjónir. Endurvinnslu Lýðveldishátíðar- kvikmyndar Óskars Gíslasonar lokiö Nú er lokið endurvinnslu á Lýðveldishátíðarkvikmynd Óskars Gísla- sonar. Hefur myndin, sem Óskar tók á svart/hvíta 16 mm filmu af hátíðahöldum vegna lýðveldisstofnunarinnar sumarið 1944, verið endurklippt og hljóðsett og annaðist Erlendur Sveinsson, forstöðumað- ur Kvikmyndasafns íslands, það verk. Kvikmyndasafnið sá um fram- kvæmd endurvinnslunnar, í nánu samstarfi við Óskar Gíslason og fleiri aðila. Lýðveldishátíðarmyndin verð- ur frumsýnd fyrir boðsgesti í Regnboganum laugardag. En aðstandendur munu gera sér vonir um að sjónvarpið gefi landsmönnum öllum kost á að sjá þessa merku heimild um sögulegar stundir í sögu þjóðar- innar og kaupi myndina til sýn- ingar. Blm. Mbl. voru viðstaddir sýn- ingu á myndinni í gær, ásamt þeim Óskari Gíslasyni og Er- lendi Sveinssyni og kváðu þeir Óskar og Erlendur það hafa ver- ið sér mikið keppikefli, að endur- vinnslunni yrði lokið á þessu ári, á fjörutíu ára afmæli lýðveldis- ins. Myndin um Lýðveldishátíðina er um 40 mínútur að lengd og hefst hún á útifundi æskulýðsfé- laganna í Reykjavík, 14. maí 1944. Síðan greinir frá lýðveld- iskosningunum og aðdraganda hátíðahaldanna á Þingvöllum. Meginhluti myndarinnar gerist síðan á Þingvöllum, 17. júní 1944, þar sem m.a. er kosinn fyrsti forseti lýðveldisins. Mynd- inni lýkur á hátíðahöldum í Reykjavík, 18. júní, þar sem m.a. má sjá og heyra formenn stjórn- málaflokkanna flytja ræður fyrir framan stjórnarráðshúsið. Þessi mynd hefur ekki komið fyrir almenningssjónir síðan ár- ið sem hún var tekin. En eftir að tökum lauk lagði Óskar Gíslason nótt við dag í þrjá sólarhringa við að framkalla filmurnar og frumsýndi hana að því loknu i Gamla Bíói á þriðja degi eftir hátíðina. „Maður var svo ungur og sprækur," sagði Óskar, aðspurð- ur hvort ekki hefði verið erfitt að standa einn að gerð myndar- innar. En það gerði hann og tók jafnframt ljósmyndir. Myndin var þögul þegar hún var frumsýnd í Gamla Bíói á sín- um tíma og var leikin undir ís- lensk tónlist af hljómplötum. Til þess að hljóðsetja hana nú var fenginn aðgangur að hljóðupp- tökum Ríkisútvarpsins frá lýð- veldishátíðinni. En þær voru flestar gerðar í gegnum símalínu og sagði Erlendur Sveinsson að hljóðsetningin hefði verið tals- vert verk. Þá eru verðlaunalögin frá hátíðinni leikin í myndinni. Þjóðhátíðarsióður og Kvik- myndasafn Islands styrktu endurgerð myndarinnar fjár- hagslega, en heildarkostnaður við verkið var um 250.000 krón- ur. Magnús Bjarnfreðsson samdi texta og er þulur í myndinni og Sigfús Guðmundsson sá um hljóðblöndun. Jafnfrarat því að kvikmyada lýðveldishátföina tók Óskar fjölda Ijós- mytida. Hér sé4 þegar verið er að tplja atkvrði I Itofiniagu tiL embættis . (brpeta Ísiands á.Þingvöllpra Í7. Júní 1944 Glsfi Jónsson, íorseti sam- eirtaþs bings, jdkur vhj" átkvteðaséðlum áfífþi ' * * “ " stjóra atþingís. 4tyrir framaá sitja ráðherrar r stjórinn, Sveinn Bjornsson, fengst i-V.' irðssyni, skrifstofu * 'rnarinnar og ríkis-.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.