Morgunblaðið - 08.12.1984, Síða 44

Morgunblaðið - 08.12.1984, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984 Minnispeningur Rauða kross Islands Mynt Ragnar Borg UM þessar mundir eru 60 ár liðin frá stofnun Kauða kross íslands. Þessara tímamóta er minnst meðal annars með útgáfu minnispenings. Slegnir hafa verið 2.050 peningar, sem að vísu er nokkuð mikið á ekki strerri markaði en hér á landi, en þess ber að geta, að Rauði kross Íslands skiptist í deildir, sem starfa um allt land, og eru félagarnir því óvenju margir. Þeir eru reyndar svo margir, að ekki getur nema tíundi hver Rauða kross-félagi komist yfir pening. Ég er þess nefnilega full- viss, að mjög margir þeira vilja eign- ast peninginn, sem bæði er eigu- legur gripur, og minnir þá á starfið fyrir Kauða krossinn. Af þessum 2.050 peningum eru 2.000 úr bronsi en 50 úr sterling silfri. Silfurpeningarnir eru ein- göngu ætlaðir til gjafa. fsspor í Kópavogi hefir slegið peninginn og er vinnan á peningnum frábær. Hin fræga stytta Ásmundar Sveinssonar „Fýkur yfir hæðir" skrýðir peninginn á framhlið og minnir á líkn, en á bakhliðinni eru krossar, sem minna á Rauöa krossinn. Ég hélt að styttan héti „Móðurást", en svo er ekki; hún heitir „Fýkur yfir hæðir", sem er tekið úr upphafserindi kvæðis Jónasar Hallgrímssonar, sem birt er með þessarri grein. En kvæði þetta, sem heitir „Móðurást”, mun Jónas hafa þýtt og umort eftir norskri sögu og kvæði um móður, sem skýlir syni sínum, en frýs um leið í hel. Ég þarf í þessari grein minni ekkert að fjölyrða um ágæti Rauða krossins eða hið mikla starf, sem íslandsdeildin innir af, hendi. Það er gott til þess að vita, að þegar við erum komnir í álnir Islendingar, hjálpum við van- megna íbúum hér á jörðinni. Rauði kross íslands heldur líka uppi umfangsmiklu starfi hér- lendis, sem allir sjúklingar njóta. Framlögin eru einnig mörg til Rauða krossins bæði í sjálfboða- vinnu og peningum. Það er einkennilegt en satt, að lítill málmpeningur, sem bæði er fallegur og vel gjörður, getur í vetfangi dregið fram og minnt á hugsjón, sem þúsundir manna og kvenna hér á landi vinna að, af einlægni og ósérhlífni. Þessi minnispeningur verður því hvati að frekara starfi. Svona minnis- pening viljum við myntsafnarar eiga í safninu okkar og svo er sjálfsagt um marga aðra. Þröstur Magnússon vann framdrögin að útliti peningsins, en erfingjar Ásmundar Sveinssonar leyfðu endurgjaldslaust notkun styttu Ásmundar. Ég segi þeim það strax, sem kaupa minnispening Rauða kross íslands, að þeir eignast ekki pen- ing, sem rýkur strax upp í verði. Hann er ekki fjárfesting, sem gef- ur af sér ævintýralegan arð. Hann er á hinn bóginn fallegur pening- ur, seldur á skikkanlegum pris, og minnir á starf Rauöa kross ís- lands á umliðnum 60 árum, í dag og í framtíðinni. Þess er þó von, að fyrst Rauði krossinn er einu sinni farinn að gefa út peninga, að framhald verði á, og þá er sá fyrsti ávallt sjaldgæfastur. Næsti fundur hjá Myntsafnara- félagi Islands verður haldinn I Templarahöllinni á morgun, sunnudag, klukkan 14.30. Fundur- inn er með hefðbundnum hætti. Menn sýna nýja gripi í safni sínu, skiptast á mynt og seðlum, en svo er uppboð. Á því eru 115 númer, þar á meðal Jóns Sigurðssonar gullpeningurinn, þykkur túkall, danskir og sænskir gullpeningar, tunnumerki minnispeningar og seðlar. Þeir, sem áhuga hafa á að kynnast starfi Myntsafnarafé- lagsins, eru velkomnir á fundinn. MÓÐURÁST Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel, í fjallinu dunar, en komið er él, snjóskýin þjóta svo ótt og svo ótt, auganu hverfur um heldimma nótt vegur á klakanum kalda. Hver er in grátna, sem gengur um hjarn, götunnar leitar, og sofandi barn hylur í faðmi og frostinu ver, fögur í tárum? En mátturinn þver, — hún orkar ei áfram að halda. „Sonur minn góði, þú sefur í værð, sérð ei né skilur þá hörmunga stærð, sem að þér ógnar og á dynja fer. Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér saklausa barninu að bjarga. „Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt, sofa vil eg líka þá skelfingarnótt. Sofðu. Eg hjúkra og hlífi þér vel, hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él má ekki fjörinu farga." Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið, fannburðinn eykur um miðnæturskeið. Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá beljandi vindur um hauður og lá í dimmunni þunglega þýtur. Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís, dauð er hún fundin á kolbláum ís. Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík líknandi vetur — en miskunnarrík sól móti sveininum lítur, því að hann lifir og brosir og býr bjargandi móður í skjólinu hlýr, reifaður klæðnaði brúðar, sem bjó barninu værðir og lágt undir snjó fölnuð í frostinu sefur. Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær, lífinu beztan er unaðinn fær, móðurást blíðasta, börnunum háð, blessi þig jafnan og efli þitt ráð guð, sem að ávöxtinn gefur. Jónas IIallgríms8on

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.