Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
252. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Samningurinn um framtíð Hong Kong undirritaður í Peking:
Brotið blað í samskipt-
um Breta og Kínverja
Peking, 19. desember. AP.
DENG Xiaoping, hinn áttræði leiðtogi Kínverja, segir að samningurinn um
framtíð Hong Kong, sem forsætisráðherrar Bretlands og Kína undirrituðu í
Alþýðuhöllinni í Peking í dag, hafi sögulega þýðingu. Hann kveðst vonast til
þess að verða svo heilsuhraustur eftir 13 ár, þegar Kínverjar taka við
yfírráðum borgarinnar, að hann geti komið þangað í heimsókn.
Samningurinn felur í sér að
Bretar afsala sér yfirráðum yfir
Hong Kong, sem verið hefur ný-
lenda þeirra frá 1841, í hendur
Kínverja árið 1997, en Kínverjar
ábyrgjast aftur á móti að þar
verði markaðshagkerfi við lýði
næstu hálfa öldina eftir yfirtök-
Huges valinn
lárviðarskáld
London, 19. desember. AP.
TED lluges, sem í skáldskap sín-
um fjallar um örlög mannsins og
samband hans við náttúruna, hef-
ur verið valinn til að taka við af sir
John Betjemin sem lárviðarskáld
Breta.
Það var skrifstofa forsætis-
ráðherra, sem greindi frá vali
Huges, en það hefur tíðkast frá
því á 17. öld að breska ríkið
skipi lárviðarskáld, sem hefur
það hlutverk með höndum að
orða stórviðburði í þjóðlífinu I
ljóði.
Huges, sem er 54 ára gamall
ekkjumaður, sagði, að honum
þætti mikil sæmd að valinu, þó
að þaö mundi ekki valda neinum
straumhvörfum í lífi hans.
una. Að auki hafa Kínverjar gefið
Hong Kong-búum fyrirheit um
sjálfstjórnarréttindi, sem tryggð
verða með lögum.
Margrét Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, kvað samn-
inginn marka þáttaskil í sam-
skiptum Breta og Kínverja. Sam-
komulag þjóðanna sýndi, að þegar
skoðanamunur væri mikill, eins og
í viðræðunum um framtíð Hong
Kong, skipti staðfesta og vilji til
að finna lausn höfuðmáli og
mættu aðrir draga af því lærdóm.
Valdhafar á Taiwan hafa for-
dæmt samninginn og segja hann
ógildan, þar eð þeir séu hinir einu
lögmætu ráðamenn Kína og þar
með réttir viðsemjendur Breta.
Hafa þeir látið í ljós ugg um að
samningurinn muni skaða verslun
og viðskipti á Taiwan.
Talið er að þorri íbúa Hong
Kong sé ánægður með samninginn
og treysti því, að stjórnvöld í Kína
efni loforð sín. Borgin er þriðja
stærsta fjármálamiðstöð heims og
til marks um bjartsýni, sem þar
ríkir um framtíð markaðshagkerf-
isins, er nefnt að hlutabréf hafa
almennt hækkað í verði að undan-
förnu.
Tæplega
50 %kusu
Islamabad, 19. desember. AP.
VESTRÆNIR fréttamenn og
heimildarmenn þeirra teija, að
innan við helmingur kjósenda í
Pakistan hafi tekið þátt í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni, sem þar fór
fram í dag. Stjórnvöld hafa hins
vegar ekki geflð upp neinar tölur
um kjörsókn, og sennilega verða
úrslit ekki birt fyrr en á laugar-
dag.
Stjórnarandstæðingar hafa
fagnað hinni litlu þátttöku í
kosningunum, en þeir spá því
að stjórnvöld muni ekki skýra
rétt frá kjörsókninni. Frétta-
menn frá Vesturlöndum, sem
fóru á fjölmarga kjörstaði í
höfuðborginni, Islamabad,
einnig i nágrenni hennar og í
Rawalpindi, segjast hafa orðið
vitni að því að margt fólk sem
ekki er á kjörskrá hafi fengið
að greiða atkvæði.
Kjósendum var aðeins gefinn
kostur á því að lýsa sig sam-
þykka þeirri stjórnarstefnu,
sem einvaldur landsins, Mo-
hammad Zia Ul-Haq hershöfð-
ingi, fylgir og kjósa hann for-
seta til næstu fimm ára.
Khadafy
Símamynd/AP.
Margrét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kína, skiptast á eintökum af
samningnum um framtíð Hong Kong, sem undirritaður var í Alþýðuhöllinni í Peking í gær.
Khadafy
á leyni-
fundi á
Mallorca
Palma, Mallorca, 19. desember. AP.
MOAMMAR Khadafy, leiðtogi Líb-
ýu, átti í dag fundi með Bruno
Kreisky, fyrrum kanslara Austurrík-
is, og Felipe Gonzalez, forsætisráð-
herra Spánar, skammt frá borginni
Palma á Mallorca, að því er yfirvöld
á eynni hafa greint frá.
Ekkert hefur verið látið uppi
um efnisatriði þessara viðræðna.
Fundirnir fóru fram hvor í sínu
lagi. Fyrir hádegi átti Khadafy
viðræður við Kreisky, en síðar um
daginn hitti hann Gonzalez að
máli. Þeir Kreisky og Gonzalez
gegna báðir embætti varaforseta
Alþjóðasambands jafnaðarmanna
og dvelur hinn fyrrnefndi lang-
tímum á ári hverju í Palma.
Óstaðfestar fregnir herma, að
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínuaraba (PLO), sé
einnig væntanlegur til eyjarinnar,
en engar fregnir höfðu borist um
komu hans þangað þegar blaðið
fór í prentun í nótt.
f fylgdarliði Khadafys eru 25
manns og hefur hópurinn á leigu
herbergi á Son Vida-hótelinu um
óákveðinn tíma.
Þrír milljarðar í ráð-
stefnuhöll í Eþíópíu
„Svik við þær milljónir, sem búa við hungur,“ segir Bandaríkjastjórn
New York, 19. desember. AP.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag, að verja 73,5
milljónum Bandaríkjadala (jafnvirði þriggja milljarða ísl. króna) til að
reisa nýja ráðstefnuhöll í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu. Þetta var ein
af síðustu samþykktum þingsins, sem nú hefur tekið sér hlé og kemur
ekki aftur saman fyrr en í mars.
Bandaríkjamenn lögðust ein-
dregið gegn því að ráðstafa fénu
með þessum hætti og hafa for-
dæmt samþykktina. Þeir segja
að hún sé svik við þær milljónir
Eþíópíumanna, sem búi við
hungur, fátækt og kúgun, og
bundið hafi vonir við alþjóðlegt
samstarf til að leysa vanda sinn.
Sendifulltrúar 122 ríkja
greiddu tillögunni atkvæði, en 5
voru á móti og 16 sátu hjá. Auk
fulltrúa Bandaríkjanna greiddu
fulltrúar Bretlands, Belgiu, Lúx-
emborgar og Hollands atkvæði
gegn tillögunni. Flestir fulltrúar
annarra vestrænna ríkja sátu
hjá, en öll kommúnistaríkin
studdu tillöguna.
Ráðstefnuhöllin í Addis Ab-
aba á að hýsa Efnahagsmála-
nefnd Afríku, sem er deild innan
Efnahags- og félagsmálaráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Richard Nygard, sendifulltrúi
Bandaríkjanna, sagði í dag að
bygging ráðstefnuhallarinnar
væri sóun á fjármunum. Hann
varpaði fram þeirri spurningu
hvernig almenningur í heimin-
um brygðist við þeim tíðindum,
að Sameinuðu þjóðirnar teldu
við hæfi að byggja í miðri hung-
ursneyðinni í Eþiópíu höll, sem
væri ekki annað en stöðutákn og
langtum stærri en Efnahags-
málanefndin þyrfti á að halda.
Nygard sagði að nota mætti þá
fjármuni, sem fara ættu í bygg-
inguna, til þess; aö bólusetja
eina milljón barna gegn öllum
helstu smitsjúkdómum; að
byggja 25 þúsund brunna og
dæla úr þeim vatni handa rösk-
lega tólf milljónum manna; að
fæða 125 þúsund fjölskyldur I
Eþíópíu í eitt ár og sjá um alla
kornþörf Chad á næsta ári.