Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
85
Furðulegir
Margir væru eflaust til i að fá
jólapakka sem þennan og
hver veit nema hægt sé að panta
einn slíkan ef brögðum er beitt.
Árni Sæberg tók þessa mynd fyrir
nokkru er þessar stúlkur úr
Kvennaskólanum voru að dimitt-
era.
-
BRYNDÍS SCHRAM OG FLUGFREYJUR AÐ ÁRITA
„Hátt uppi“
Ameðfylgjandi mynd sjáum
við hvar Bryndís Schram er
ásamt fjórum flugfreyjum að
árita bókina „Hátt uppi“ í bóka-
búð Sigfúsar Eymundssonar sl.
laugardag.
Þetta er nýútkomin samtalsbók
Bryndísar við átta flugfreyjur.
Frá vinstri: Bryndís Schram, El-
ínborg Óladóttir sem er fyrsta
flugfreyja Loftleiða á Islandi,
Edda Guðmundsdóttir kona
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra, en Edda var
flugfreyja um tíma, þá Erna
Hjaltalín sem f mörg ár var eina
konan sem hafði flugmannsrétt-
indi og að lokum Gerða S. Jóns-
dóttir, en hún flaug með Pan Am í
u.þ.b. 14 ár.
Verið að
mála yngstu
prinsana
Nú er verið að mála William
prins, son Diönu og Charles
Bretaprins. Það er John Anth-
ony sem málar piltinn, en hann
hefur alls gert 17 myndir af fjöl-
skyldunni. Málarinn, sem er nú
67 ára gamall, vonast til að geta
málað 26 málverk fyrir breska
kóngafólkið. Næsta verk hans
verður að mála Harry litla, sem
er eins og ýmsir lesendur eflaust
vita, yngri sonur hjónanna.
Dönsku barnaskórnir frá
BHndgsiara
eru í hæsta gæöaflokki.
Spyrjið um barnaskóna
með kanínumerkinu.
Póstsendum
Kuldaskór úr
vatnsvöröu
leöri.
SKOVERSLUN VIÐ ÓÐINSTORG
SÍMIJ4955
Sloppaúrvaliö er hjá okkur
Velúr-sloppar, frottésloppar,
silkisloppar, loösloppar, vattsloppar
í stæröum 34—38 á veröinu
frá 999 krónum.
lympi
Laugavegi 26, Glæsibæ,
sími 13300. sími 31300.