Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 13 Magnús Jónsson og Olafur Vignir Tónlist Egill Friöleifsson Fyrir stuttu kom út plötualb- úm, sem hefur að geyma söng Magnúsar Jónssonar við undir- leik Ólafs Vignis Albertssonar. Tilgangurinn með þessari útgáfu mun vera að gefa nokkra mynd af söngferli og söngsviði Magn- úsar, en hann hefur lengi staðið í fremstu röð tenóra okkar og gert garðinn frægan bæði hér heima og erlendis. f albúminu er að finna tvær hljómplötur með samtals 30 sönglögum og óperu- aríum svo af nógu er að taka, og spanna hljóðritanirnar tuttugu ára tímabil, eða frá 1964 til ’84. Á umslaginu er rakinn söng- ferill Magnúsar. Skemmtileg er sagan, þegar hann sem 17 ára unglingur bankaði uppá hjá Pétri Jónssyni óperusöngvara og óskaði eftir tilsögn í söng, en var snúið við í það skiptið. Magnús lét þó ekki hugfallast, en reyndi aftur að ári og þá gekk betur. Námið sóttist honum vel, sem best sést á því að aðeins tveimur árum síðar söng hann hlutverk guðspjallamannsins í Jóhannes- arpassíunni eftir Bach. Magnús var í þeim dugmikla hóp er dreif upp óperusýningar hér heima á sjötta áratugnum, en árið 1957 ræðst hann til óperunnar í Kaupmannahöfn, þar sem hann starfar næsta áratuginn við góð- an orðstír. Eftir það kemur hann heim og hefur síðan verið virkur í faginu bæði á konsertpallinum og eins á óperusviðinu. Undirritaður er einn þeirra sem lengi hafa hrifist af þrótt- miklum, karlmannlegum söng Magnúsar og á þessum plötum er að finna margar perlur úr heimi söngsins, þó ekki gefist tóm til að rekja það allt hér. Það sem flestum verður e.t.v. minnis- stæðast er hetjulegir tilburðir hans í glímunni við stórhlutverk óperunnar, en Magnús á marga strengi í sinni hörpu. Nægir þar að benda á hve mildilega hann syngur vöggukvæði Emils Thor- oddsen og hversu lauflétt hann upphefur rödd sína í blóma- aríunni úr óperunni Carmen eft- ir Bizet, en glæsileg frammi- staða hans í þeirri óperu, er hún var sýnd á fjölum Þjóðleikhúss- ins fyrir áratug, er mér enn í fersku minni. Sem fyrr segir er elsta upp- takan frá árinu 1964 og er ekki sambærileg tæknilega við það sem nú gerist. Eigi að síður er fróðlegt að heyra þessar gömlu hljóðritanir nú. Nokkuð virðist rödd Magnúsar hafa dökknað á þessum tuttugu árum, en um leið öðlast jafnvel enn meiri fyllingu ef nokkuð er. Meðleikari Magn- úsar er Ólafur Vignir Alberts- son, en samstarf þeirra hefur nú staðið á þriðja áratug, enda eiga þeir ekki í vandræðum með að ná saman. Ég hafði mikla ánægju af að hlusta á þetta alb- úm þeirra Magnúsar og ólafs. Alís í Undralandi Bókmenntír Siguröur Haukur Guöjónsson ALÍS í UNDRALANDI. Höfundur: Lewis Carroll. Þýðing: Ingunn E. Thorarensen. Myndir: Jenny Thorne. Prentað á Spáni. Útgefandi: Fjölvaútgáfan. Ekki er það alltaf sem okkur er gefið að meta þær stundir er við lifum, meta gildi þeirra fyrir þá sem eftir koma. Sjálfsagt hefir Charles Lutwidge Dodgson ekki heldur gert sér ljóst, er hann á Temsá 1862, reyndi að hafa ofan af fyrir systrunum Lorinu, Alice og Edith, að hann var að segja sögur sem fleiri eyru þráðu að heyra, sögur sem skipuðu honum á bekk með ástsælustu höfundum brezku þjóðarinnar. Sjálfsagt hefði blærinn borið sögurnar hans út á haf gleymskunnar, ef litla stúlku, Alice, hefði ekki langað að sjá nafnið sitt í skrifaðri bók. Svona verða tilviljanir, stundum, til þess að bjarga verðmætum. Bókin er í 12 köflum, þar sem Al- ice litla kynnist furðuheimum ævintýranna, henni skemmt en jafnframt leidd að sannindum lífsins. Stíll höfundar er nokkuð þungur, innskotin mörg, eins og þú heyrir tal milli vina. Þýðing Ingunnar er listagóð, á kjarnamáli. Myndir bókarinnar eru meistaralega gerðar, falla að efni, vekja spurningar og eftir- væntingu. Hér er sagan í sinni uppruna- legu mynd, og í engu til sparað, er íslenzkum bömum er rétt ein þeirra perlna, sem brezk menning telur meðal skartgripa sinna. Hafi Fjölvaútgáfan kæra þökk fyrir bráðfagra og góða bók. Dr. Charles Francis Potter ÁRIN ÞÖGLU ÍÆVI JESÚ Dr. Charles Francis Potter Árin þöglu í ævi Jesú Öldum saman hafa unnendur bibliunnar velt fyrir sér þeirri spurningu hvar Jesús hafi veriö og hvaö hann hafi haft fyrir stafni hin svonefndu „átján þöglu ár“ í ævi sinni, frá tólf ára aldri til þrítugs. Hiö mikla handritasafn, bókasafn Essena, sem fannst í Kúmran hellunum viö Dauðahaf 1945 og næstu ár á eftir, hefur loks gefiö svar viö þessari spurningu. Þaö verður æ Ijósara, eftir því sem rannsóknum handritanna miöar áfram, aö Jesús hefur á þessum árum setiö viö hinn mikla menntabrunn sem bókasafn Essena var og haft náin kynni af háþróuöu samfélagi þeirra. Glöggt má greina náinn skyldleika meö kenningum Jesú og Essena, jafnvel oröalagiö í boðskap Jesú ber ótvíræöan essenskan svip. Fágaö og fagurt verk. pófeaútgáfanjjóbðasa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.