Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
kusch
co
SitzmobetwerKe KG
Stóllinn SÓLEY sem teiknaður er af Valdimar
Haröarsyni arkitekt, vekur nú athygli víöa um
heim.
SÓLEY er þœgilegur, nútímalegur klappstóll
framleiddur í fjöldamörgum lita- og efnistilbrigö-
um.
Meö stólnum er fóanlegt hringlaga felliborö.
ttpQl
Síðumúla 20 Reykjavík Sími 91-3 6677
Liösstjórarnir ræöast viö. T.v. er dr. Kristján Guömundsson, liösstjóri karlasveitarinnar, en t.h. Þráinn Guö-
mundsson, liösstjóri kvennasveitarinnar. f miðið er Karl Þorsteins.
Ólympfuskákmótið í Saloniki:
Erfitt að hrista af
sér glímuskjálftann
Skák
Margeir Pétursson
ÍSLENSKU Ólympíusveitinni í
Saloniki var gefin há einkunn
strax í upphafi sem viö vissum að
erfitt myndi reynast aö standa
undir. Viö fengum byrjunarnúmer-
ið átta sem þýddi að við værum
áttunda stigahæsta sveitin á mót-
inu, fyrir ofan öflugar skákþjóðir
eins og V-Þýzkaland, Búlgaríu,
Rúmeníu, Svíþjóð og fsrael. Sú
þjóð sem var í sjöunda sæti voru
Englendingar og þaö var ekki laust
viö að þeir og hinar sveitirnar sem
sátu nálægt okkur litu vantrúar-
augum á þetta norræna unglinga-
lið.
„Hvar hafa þessir strákar
fengið öll þessi stig?“ „Þeir
verða fljótt sendir niður í flóð-
hestagirðinguna þessir" hafa
nágrannar okkar í fyrstu umferð
vafalaust hugsaö og sennilega
hafa þeir brosað í kampinn er
þeir sáu úrslitin hjá okkur í
fyrstu umferð:
Túnis — fsland 2—2
Bouaziz — Helgi 'k — 'k
Belkhodja — Margeir 'k — 'k
Hmari — Jóhann 1—0
Kaabi — Jón L. 0—1
Þó Túnismenn séu vafalaust
öflugasta skákþjóðin í Afríku er
erfitt að skýra þennan afar slaka
árangur okkar. Ég ætla þó að
nefna ferðaþreytu, ofmetnað
vegna hins háa rásnúmers og
glímuskjálfta sem samverkandi
orsakir.
Andstæðingur minn kunni
teóríuna nægilega langt til að ná
jöfnu endatafli, en mér hefði
sennilega tekist að snúa á hann
ef fákunnandi skákstjóri hefði
ekki truflað mig í tímahraki.
Andstæðingur Jóhanns tefldi
enfaldlega mjög vel, „sit livs
parti“, myndu Danir segja, eftir
að Jóhanni hafði orðið á óná-
kvæmni í byrjuninni. Jón var sá
eini sem tefldi eðlilega, enda
vann hann sannfærandi. Helgi
tefldi af krafti í byrjuninni gegn
alþjóðlega meistaranum Bouaz-
iz, sem almennt er viðurkenndur
sem sterkasti skákmaður heillr-
ar heimsálfu. Sú skák fór aftur
og aftur í bið og lifðum við því
nokkra daga í voninni um að
geta sviðið Túnisbúana. Svo fór
að þessi skák varð sú lengsta á
öllu Ólympíumótinu, 150 leikir,
en allt kom fyrir ekki, Bouaziz
hélt sínu.
2. umferö:
ísland — Hondúras 4—0
Helgi — Singh 1—0
Margeir — Zaldivar 1—0
Jóhann — Hesis 1—0
Jón L. — Hjudza 1—0
Mótskerfið, sem kennt er við
Monrad, gerði það að verkum að
nú fengum við enn slakari and-
stæðinga en í fyrstu umferð,
jafnteflið við Túnis dró því eng-
an dilk á eftir sér, a.m.k. ekki
vinningalega séð. Daginn áður
hafði Hondúras óvænt náð jafn-
tefli við Portúgal og við áttum
vægast sagt í miklum erfiðleik-
um með þá, allir nema Helgi,
sem vann mjög örugglega. Hinar
skákirnar þrjár fóru í bið og þar
varð reynslan þung á metunum,
biðstöður okkar Jóhanns reynd-
ust unnar og mótherji Jóns lék
herfilega af sér í betra endatafli.
Svein frá Hondúras myndi
sennilega ekki þykja ýkja
merkileg í þriðju-deildarkeppn-
inni hér á landi, en það er aldrei
auðvelt að tefla þegar ekkert
annað en skjótur sigur þykja
boðleg úrslit.
3. umferö:
Argentína — ísland 0—4
Barbero — Margeir 0—1
Gomez-Baillo — Jóhann 0—1
Ricardi — Jón L. 0—1
Monier — Guðmundur 0—1
Þó flestum hafi líklega þótt
stórsigurinn yfir Hondúras
næsta sjálfsagður, dugði hann
til að koma okkur í gang. Nú
mættum við Argentínumönnum,
sem að þessu sinni höfðu gefið
stórmeisturum sínum frí, en
tefldu fram ungum mönnum sem
höfðu orðið hlutskarpastir á
meistaramóti landsins. Stór-
meistarinn Quinteros var að vísu
skráður á fyrsta borð í Argent-
ínsku sveitinni, en við nutum
góðs af því hann mætti ekki til
leiks fyrr en nokkrar umferðar
voru búnar af mótinu. Helgi
Ólafsson fékk einnig frí, til þess
að rannsaka biðskákina við Bou-
aziz, sem enn var í fullum gangi.
Skemmst er frá því að segja að
við náðum allir okkar bezta 1
þessari umferð. Argentínumeist-
arinn nýbakaði fór í röng upp-
skipti gegn mér og lenti skyndi-
lega í töpuðu endatafli, Jóhann
vann á mjög vandlega upp-
byggðri sókn og Jón náði
snemma að snúa á andstæðing
sinn og ná frumkvæðinu með
svörtu. Helsta vandamál hans
var að velja úr mörgum vænleg-
um leiðum, en eftir að honum
tókst loks að ákveða sig mátaði
hann mótherjann úti á miðju
borði. Fljótt á litið lét staða
Guðmundar lítið yfir sér í mið-
taflinu, en seinna kom í ljós að
andstæðingur hans gat ekkert
annað en leikið mönnum sínum
fram og til baka á meðan Guð-
mundur jók hinn stöðulega sókn-
arþunga jafnt og þétt.
Skáklistin stendur mjög
traustum fótum i Argentinu, þar
voru t.d. haldin Olympíumót
1939 og 1978 og þó þeir geti
óneitanlega stillt upp betra liði
en því sem við burstuðum, var
þetta stórkostlegur sigur sem
fleytti okkur alla leið upp i
„ljónagryfjuna", þar sem efstu
þjóðirnar tefldu innbyrðis.
Ilvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Gomez-baillo
Slavnesk vörn
I. c4 — c€, 2. d4 — d5, 3. Rf3 —
RfG, 4. Rc3 — dxc4, 5. a4 — Bf5, 6.
e3 — e€, 7. Bxc4 — Bb4, 8. (H) —
0-0, 9. Rh4 — Bg4, 10. f3 — Rd5I?
Svartur vill flækja taflið, en
10. — Bh5 er miklu traustara
framhald. Nú fær hvítur bisk-
upaparið og sóknarfæri.
II. fxg4 — Dxh4, 12. e4I?
Karpov lék 12. Df3 gegn Kupr-
eitschik 1975 og náði betri stöðu.
Hugmynd Jóhanns er sú að eftir
12. — Rxc3,13. bxc3 — Bxc3,14.
Ha3 kemst drottningarhrókur
hvits strax í kóngssóknina.
12. — Rb€, 13. Bb3 — c5,14. Ra2!
— Ba5, 15. d5 — cxd5, 1€. exd5
—R8d7, 17. Rc3
Leikurinn 14. Ra2 hefur gert
sitt gagn. Ba5 kemst ekki í vörn-
ina á kóngsvæng.
17. — Re5, 18. h3 — Rbd7?
Þessi eðlilegi leikur svarar
ekki til þeirra krafna sem þessi
hvassa staða gerir. Til greina
kom 18. — c4, 19. Bc2 Bxc3, 20.
bxc3 — Had8 með það fyrir aug-
um að reyna að hagnýta sér tæt-
ingslega peðastöðu hvíts.
19. Re4 — h€.
Þessi veiking reynist afdrifa-
rík, en hvítur hótaði 20. Bg5.
20. Bc2 — De7?! 21. g5! — hxg5,
22. d€ — De8, 23. Rxg5 — g€, 24.
Ha3!
Allir menn hvíts taka nú virk-
an þátt í sókninni. Eitthvað
hlýtur undan að láta.
24. - Bd8, 25. h4 — f€, 2€. Rh3 —
Kg7, 27. Rf4 - 15, 28. Dd5 — Df7,
29. Re€+ — Kg8, 30. Hg3 — Bxh4.
31. Hxí5! — BfG.
31. - Bxg3 - 32. Hxf7 -
Rxf7, 33. Bxg6 var engu betra.
32. Hxf€! — Dxf€, 33. Rxf8+ —
Kxf8, 34. Bh€+ — Ke8, 35. Dg8+
— Rf8, 3€. Bxf8 og svartur gafst
upp.
Eftir þrjár umferðir voru
Rússar efstir með fullt hús vinn-
inga því þeir sigruðu aðalkeppi-
nauta sína frá fyrri ólympíu-
mótum, Ungverja, hvorki meira
né minna en 4—0. Gárungarnir
sögðu að þetta hefðu verið
óskaúrslit fyrir báðar þjóðir, því
Rússarnir hefðu fengið alla
vinningana, en Ungverjarnir
hafi getað glaðst yfir óförum
hvers annars.