Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
35 milljóna hlutafjáraukning Fjárfestingafélagsins:
Erum að bjóða fjárfestingu
sem skilar hagnaði og arði
— segir Gunnar Helgi Hálfdánar-
son, framkvæmdastjóri félagsins
HVERS vegna ættu almenningur og venjulegir sparifjáreigendur að taka
þátt í hlutafjáraukningu og umsvifum Fjárfestingafélags íslands hf.?
Félagið býður nú landsmönnum að taka þátt í „stórátaki, sem ætlað er að
örva nýtt atvinnulíf í landinu, meðal annars Hskeldi með hafbeit," eins
og það er orðað í auglýsingum félagsins.
Gunnar Helgi Hálfdánarson,
framkvæmdastjóri Fjárfestinga-
félagsins, sagði í samtali við
blaðamann Mbl., að svarið lægi i
augum uppi: „Það er verið að
bjóða fjárfestingu, sem skilar arði
um leið og hún lækkar skatta
fólks," sagði hann. „Það er verið
að bjóða fólki að taka þátt í at-
vinnuuppbyggingu fyrir framtíð-
ina.“
Hann sagði að félagið væri með
á prjónunum merk mál og þýð-
ingarmikil: „í fyrsta lagi er það
áhættufjármögnun, fyrst og
fremst fiskeldi með hafbeit og svo
er það fjármálaleg þjónusta af
ýmsu tagi, sem félagið hyggst
beita sér enn frekar í. Fyrir hinn
almenna sparifjáreiganda er hér
um að ræða hagnaðarmöguleika.
Vissulega er þetta áhættusamari
fjárfesting en t.d. spariskírteini
ríkissjóðs eða peningar á banka-
bók en ef áætlanir okkar ganga
eftir mun fjárfestingin skila
hagnaði og arði, sem ætti að geta
orðið betri en framangreindir
kostir. Við erum náttúrlega að
tala um langtímafjárfestingu
fyrir sparifjáreigendur, 2—3 ár, sá
tími verður notaður til fjárfest-
ingar og uppbyggingar félagsins.
Hvað varðar skattaafslátt þá get-
ur hann orðið allt að 25 þúsund
krónur fyrir einstakling eða 50
þúsund krónur fyrir hjón ef fólk
kaupir hlutabréf fyrir áramótin.
Þessi skattaafsláttur eykur því
verulega líkurnar á að fjárfesting-
in skili hluthöfunum arði.“
— Hvernig má svo greiða þessi
hlutabréf? Allt á borðið eða má
borga með afborgunum?
„Það væri ágætt að fá allt á
borðið en við höfum gefið fólki
kost á að borga hlutafé sitt með
jöfnum mánaðarlegum greiðslum
á verðtryggðu skuldabréfi á tíma-
bilinu febrúar til júlí á næsta ári.
Það er rétt að taka fram, að um er
að ræða 1000, 10.000 og 100.000
króna hlutabréf og að hverju 1000
króna bréfi fylgir eitt atkvæði."
15 milljónir í laxarækt
í kynningarbæklingi, sem félag-
ið hefur gefið út í tilefni af fyrir-
hugaðri stækkun, kemur fram að
nýja hlutafénu, 35 milljónum,
hyggst félagið verja á þrennan
hátt: í fyrsta lagi til uppbyggingar
annars áfanga laxahafbeitar-
stöðvar félagsins í Vogum, Vatns-
leysuströnd, á árinu 1985 í sam-
vinnu við bandaríska fyrirtækið
Weyerheauser Co., alls 15 milljón-
um króna. í öðru lagi skal verja
2,5 milljónum króna til uppbygg-
ingar og framþróunar verðbréfa-
markaðs og fjármálaráðgjafar fé-
lagsins, s.s. á tölvukerfi, og í þrið-
ja lagi skal verja 17,5 milljónum
króna til aukningar leigukaupa-
starfsemi félagsins á vélum og
tækjum til atvinnulífsins og eða
þátttöku í atvinnurekstri.
í bæklingnum segir: „Þar sem
tilgreint hlutafé mun styrkja
verulega efnahagsreikning félags-
ins, gefur umrædd aukning hluta-
fjár félaginu tækifæri til viðbót-
arlántaka (erlendra og innlendra),
allt að 35 m.kr., sem varið yrði til
enn frekari eflingar leigu-
kaupastarfseminnar og þátttöku í
arðbærum atvinnunýjungum og
eldri fyrirtækjum með stjórnun-
arlega og/eða fjárhagslega endur-
skipulagningu í huga, s.s. í sam-
bandi við kynslóðaskipti stjórn-
enda.“
500 milljón króna
velta 1989
Fjárfestingafélag íslands hf.
Gunnar Helgi Hálfdánarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingafélags ís-
lands: Erum að tala um langtíma-
fjárfestingu fyrir sparifjáreigendur.
var stofnað 1971 af einstaklingum,
fyrirtækjum, samvinnufyrirtækj-
um og peningastofnunum, til að
„efla íslenskan atvinnurekstur og
örva til þátttöku í honum með því
að fjárfesta í atvinnufyrirtækjum
og veita þeim fjárhagslega fyrir-
greiðslu," eins og segir í sam-
þykktum félagsins. Núverandi
starfssvið eru fimm, að því er seg-
ir í kynningarbæklingnum:
áhættufjárfestingar, leigukaup/-
fjármögnun, verðbréfamarkaður,
fjármálaráðgjöf og sjóða- og fyrir-
tækjavarsla. Af núverandi verk-
efnum ber hæst þátttaka félagsins
í laxarækt og Vogun hf., sem er
eignarfélag Trésmiðjunnar Víðis
hf.
I laxarækt hefur félagið byggt
upp hafbeitarstöð í Vogum í sam-
vinnu við Oregon Aqua Foods,
dótturfyrirtæki bandaríska stór-
fyrirtækisins Weyerheauser Co.,
sem hefur verið brautryðjandi í
seiðaeldi og hafbeit með Kyrra-
hafslax. Tilraunir með seiðaaðlög-
un og sleppingar frá Vogum hóf-
ust vorið 1982 en síðan hefur
20.000 seiðum verið sleppt árlega.
Endurheimtur hafa reynst betri
en búist var við.
Segir að til þessa hafi Fjárfest-
ingafélag íslands hf. borið allan
kostnað af uppbyggingu stöðvar-
innar til jafns við bandaríska
fyrirtækið og sé hlutur félagsins
nú rúmlega 8 milljónir króna.
Næsta vor er stefnt að því að ráð-
ast í byggingu 200-400 þúsund
seiða stöðvar í félagi við Weyer-
heauser. Áætlaður byggingakostn-
aður er 30 milljónir en árleg velta
stöðvarinnar er áætluð um 25
milljónir. Á árunum 1988—1989 er
fyrirhugað að koma stöðinni í end-
anlega stærð, eða 5—10 milljón
seiði. Byggingarkostnaður þeirrar
stöðvar er áætlaður um 400 millj-
ónir og árleg velta um 500 milljón-
ir.
„Björgunaraðgerðir“
Félagið tók þátt í stofnun Vog-
unar hf. í febrúar sl. til að kaupa
meirihluta hlutafjár í Trésmiðj-
unni Víði hf., sem átti í miklum
fjárhagsvanda. Segir í bæklingn-
um, að „auk hagnaðarvonarinnar
hefur félagið ásamt hluthöfum í
Vogun hf. bundið vonir við að
Það kostar sitt
að framleiða eingöngu
vandaðar og góðar
matvörur
SS hefur alltaf leitast við að svara kröfum neytenda um
nýjungar í framleiðslu, úrvinnslu og frágangi
SS lærir af dómi neytenda, og breytir eftir honum
SS ber virðingu fyrir neytendum . SS lækkar ekki
verðlag á framleiðslu sinni, með því að gera minni
gæðakröfur: Neytandinn á aðeins skilið það besta, jafnvel
þótt það kosti meira
Sérþjálfað starfsfólk SS tryggir vönduð vinnubrögð
SS treystir gæðaeftirlitið með góðu skipulagi og stjórnun
á öllum stigum vinnslunnar
SS kappkostar að eiga gott samstarf við bændur og
stjórnendur framleiðslubúa
SS vill kosta miklu til
svo neytendum standi ávallt til boða
matvörur í hæsta gæðaflokki
á sanngjömu verði
Gleðileg jól og farsælt komandi ár