Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 49 fttofgtiiililfifeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjaid 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Lánsfjáráætlun, erlendar skuldir og innlendur sparnaður Samkvæmt fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1985, sem lögð var fram á Al- þingi í fyrradag, fer heild- arlánsfjáröflun til opinberra aðila langleiðina í tíu milljarði króna. Meginhluti þessa láns- fjár verður áfram sóttur til út- lendinga, þ.e. í erlendan sparn- að, eða 7.300 m.kr. Þar af ganga til afborgana 4.700 m.kr., þann- ig að hrein aukning erlendra langtímalána verður 2.600 m.kr., sem samsvarar um 6% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Þrátt fyrir ráðgerðan fram- kvæmdasamdrátt 1985, sem á heildina litið nemur 3% frá 1984, eykst erlendi skuldaþung- inn. Löng erlend lán íslendinga nema nálægt 43.000 m.kr. nú um áramótin, sem er rúmlega 60% sem hlutfall af þjóðar- framleiðslu. Þessar skuldir aukast heldur á næsta ári. Þessi skuldastaða er ógnvekj- andi. Það bætir lítið úr skák þótt bent sé á að hækkun skuld- anna stafi að hluta til af lækk- uðu raungildi krónunnar og rýrnum þjóðarframleiðslu. Lánsfjáráætlun gerir því skóna að greiðslubyrði vegna afborgana og vaxta af löngum erlendum lánum verði hin sama og hlutfall af útflutningstekj- um 1985 og 1984, eða 23%. Vegna þess, hve stór hluti af erlendum skuldum landsmanna er bundinn í Bandaríkjadölum, eða 56,3% heildarskuldanna, hafa gengissveiflur hans mikil áhrif á skuldastöðuna — og greiðslubyrðina í krónum mælda. Lánakostnaður, vegna erlendra skulda, sem nemur milljörðum króna, er fjármuna- færzla til erlendra sparenda, sem rýrir kaupmátt þjóðar- tekna samsvarandi og þar með lífskjör í Iandinu. Nú þarf erlend lánsfjáröflun ekki að vera af hinu illa, ef henni er varið til framkvæmda, sem rísa undir fjármagns- kostnaði og skila að auki arði til að bæta lífskjör í landinu. Hverfi hún hinsvegar í fjárfest- ingarmistök, sem dæmi eru um, skerðir hún lífskjörin. Mergurinn málsins er þó sá, að byggja upp innlendan sparn- að og eiginfjármyndun þjóðar- innar, þann veg, að hún verði ekki jafn háð dýru, erlendu fjármagni og nú er. Það er ekki einungis þáttur í nauðsynlegri lifskjarsókn þjóðarinnar heldur ekki síður í varðveizlu efna- hagslegs sjálfstæðis hennar. Lánsfjáráætlun gerir ráð fyrir því að innlend fjáröflun nemi 2.568 m.kr., eða aðeins fjórðungi lánsfjárþarfarinnar á næsta ári. Innlend fjáröflun er talin „einkar ótrygg á næsta ári“. Þessi ályktun er m.a. byggð á lakri lánsfjárheimtu á skuldabréfa- og spariskírteina- markaði í ár. Veigamesti þáttur innlendrar lánsfjáröflunar eru ráðgerð kaup lífeyrissjóða á skuldabréfum húsbyggingar- sjóða og framkvæmdasjóðs. Gengið er út frá því að lífeyr- issjóðirnir verji 40% af ráðstöf- unarfé til þessara kaupa. Við erum í brýnni þörf fyrir innlendan sparnað og eiginfjár- myndun. Slíkur sparnaður verður ekki til nema vaxta- og skattaforsendur leyfi. Stjórn- völd hafa ekki sett fram mark- vissa vaxtastefnu, sem fólk og fyrirtæki geta byggt á í næstu framtíð. Fjárfestingar- og lánsfjáráætlun verður ekki af- greidd fyrir áramót. Engin veit raunar hvernig lánsfjárlögin eiga eftir að líta út að lokum. Rekstrarhalli ríkissjóðs ræður miklu um það. Það þarf vissulega tíma til að vinna sig út úr vandanum. En það þarf ebki síður að kort- leggja leiðina og tímasetja áfanga að settu marki. í því efni þarf löggjafinn að vera markvissari. Alþingi og K-bygging Landspítala Krabbamein og hjarta- og æðasjúkdómar hafa færzt í aukana hér á landi og eru helztu dánarorsakir íslendinga. Á sl. tíu til fimmtán árum hefur orðið tæknibylting í heil- brigðisþjónustu í V-Evrópu og N-Ameríku, ekki sízt í rann- sókn og meðferð þessara sjúk- dóma. Við eigum vel menntaðar heilbrigðisstéttir en höfum dregizt verulega afturúr í tækniþróun heilbrigðismála. K-bygging Landspítala er forsenda þess að vinna upp það forskot sem aðrar þjóðir hafa fram yfir okkur á þessu sviði. Henni er ætlað að verða mið- stöð rannsókna, skurðlækn- inga, krabbameinslækninga, röntgengreiningar og háþró- aðrar tækni á þessum vett- vangi. Alþingi tekur væntanlega í dag, við afgreiðslu fjárlaga, ákvörðun um, hvort í þessa byggingu verður ráðizt eða ekki. Það er mikil ábyrgð sem hvílir á þingmönnum í þessu efni. Sparnaður er að vísu nauðsynlegur, þegar harðnar á dalnum í ríkisfjármálum og þjóðarbúskap, en hann á ekki að koma niður þar sem sízt skyldi. Kjarnavopn til íslands: Aðeins að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar George Shultz, uUnríkisráðherra Bandaríkjanna, Richard Burt, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, ræðast við á fundi í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Briissel í síðustu viku. Utanríkisráduneytinu hefur borist svar frá bandaríska sendirádinu í Reykjavík vegna fyrir- spurnar sem Geir Hall- grímsson, utanríkis- ráöherra, beindi til Bandaríkjastjórnar í til- efni af því að hinn 5. desember síðastliðinn sýndi William Arkin, bandarískur sérfræð- ingur um vígbúnaðar- mál, ráðherranum leyni- legan lista, sem á að sýna að 1975 hafi Ger- ald Ford, þáverandi for- seti Bandaríkjanna, veitt flota Bandaríkj- anna heimild til að flytja 48 djúpsprengjur með kjarnahleðslum til íslands á stríðstímum. Hér fer á eftir frétta- tilkynning utanríkis- ráðuneytisins um þetta mál ásamt fylgiskjölum frá 1980. Fréttatilkynning 19. desember 1984 „í tilefni fyrirspurnar sinnar hinn 5. þ.m. hefur Geir Hall- grímssyni utanríkisráðherra nú borist svar ríkisstjórnar Banda- ríkjanna í eftirfarandi bréfi frá forstöðumanni bandaríska sendi- ráðsins í Reykjavík dagsettu 17. desember 1984 varðandi kjarna- vopn: „Eins og mér er ljóst að yður er kunnugt hefur það um langt ára- bil verið fastmótuð stefna Atl- antshafsbandalagsins og Banda- ríkjanna að játa hvorki né neita heimildargildi skjala sem sögð eru trúnaðarskjöl Bandaríkjanna eða bandalagsins. Um leið hefur mér verið falið að ítreka að Bandaríkin hafa í einu og öllu farið eftir og munu halda áfram að fara eftir ákvæðum varnarsamningsins við Island frá 1951 og samþykkt Atlantshafs- bandalagsins varðandi staðsetn- ingu kjarnavopna sem áskilja að sérhver heimild til Bandaríkja- hers til þess að flytja kjarnavopn til íslands mundi aðeins vera veitt að fengnu samþykki íslensku rík- isstjórnarinnar. f samræmi við þetta hefur mér verið falið að fullvissa yður um aö bandarísk stjórnvöld halda enn fast við þann gagnkvæma skilning ríkisstjórna okkar varðandi kjarnavopn sem fram kom í bréfi dagsettu 11. ágúst 1980 til dr. ólafs Jóhannessonar utanríkis- ráðherra íslands." Samkvæmt þessu er ljóst að heimild til geymslu kjarnavopna á íslandi á ófriðartímum hefur ekki verið veitt. Utanríkisráðuneytið lætur fylgja hér með skjöl frá 1980 sem vitnað er til hér að framan, þar sem fram kemur að það hefur ávallt verið stefna ríkisstjórna ís- lands að engin kjarnavopn skuli leyfð í landinu og er sú stefna í fullu gildi. Utanríkisriðuneytið, Reykjavík, 19. desember 1984.“ Yfírlýsing sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, Richard A. Ericson, Jr., 11. ágúst 1980. „Með vísun til þess að gefið hef- ur verið í skyn að kjarnavopn séu á íslandi, skal tekið fram að það hefur lengi verið stefna Banda- ríkjanna aö játa hvorki né neita tilvist kjarnavopna nokkurs stað- ar. Hins vegar er stefna ríkis- stjórnar Bandaríkjanna í sam- ræmi við þá ákvörðun sem tekin var á leiðtogafundi aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í París 1957, þar sem lýst var yfir að „staðsetning birgða þessara (átt er við kjarnaodda sem eru til taks í þágu varna bandalagsins) og flauga, og fyrirkomulag varðandi notkun þeirra, munu samkvæmt þessu verða ákveðin í samræmi við vamaráætlanir Atlantshafs- bandalagsins og með samþykki þeirra ríkja sem beinan hlut eiga að máli“. Þessi skuldbinding er í sam- ræmi við 3. grein samningsins frá 1951 um Keflavikurstöðina, þar sem segir: „Það skal vera háð sam- þykki íslands, hverrar þjóðar menn eru í varnarliðinu svo og með hverjum hætti það tekur við og hagnýtir þá aðstöðu á íslandi, sem veitt er með samningi þess- um.““ Yfirlýsing Ólafs Jóhannes- sonar, utanríkisráðherra, 11. ágúst 1980 um kjarnavopn. „Yfirlýsing sendiherra Banda- ríkjanna, sem hann gefur fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar, vísar til tveggja skuldbindinga, sem leiða til þess að bandarísk kjarnavopn verða ekki flutt til íslands nema fyrir liggi samkomulag íslands og Bandaríkjanna þar að lútandi, og áréttar að þetta sé í samræmi við stefnu Bandaríkjanna. Hin fyrri er samþykkt leiðtoga- fundar Atlantshafsbandalags- ríkjanna frá desember 1957 um staðsetningu kjarnavopna og flugskeyta í Evrópu til mótvægis við vaxandi vígbúnað Sovétríkj- anna. Þessi samþykkt kveður skýrt á um að slíkum vopnum verði ekki komið fyrir í neinu Evr- ópuríki, nema með fullu sam- komulagi þeirra ríkja, sem málið snertir beint, þ.e. þess ríkis sem vopnin eru flutt til og þess ríkis sem þau koma frá. Síðari skuldbindingin felst í 3. gr. varnarsamnings íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951. Samkvæmt henni er það háð sam- þykki íslands með hverjum hætti varnariiðið hagnýtir þá aðstöðu á íslandi, sem veitt er með varnar- samningnum, og er þá m.a. átt við fjölda varnarliðsmanna, vopna- búnað og framkvæmdir á varnar- svæðinu. Af hálfu Bandaríkjamanna hafa ekki verð settar fram óskir um staðsetningu neinna tegunda kjarnavopna á íslandi og ekki hafa heldur af hálfu neinna ann- arra aðildarílkja Atlantshafs- bandalagsins, eða herstjórnar þess, verið gerðar athgasemdir við þá stefnu íslands að hér skuli ekki' vera kjarnavopn. Stefna islenskra stjórnvalda í þessu efni hefur alla tíð verið skýr og ótvíræð og hafa ekki færri en 5 íslenskir utanríkisráðherrar gefið opinberar yfirlýsingar um þessa stefnu, auk þess sem hún hefur hvað eftir annað verið áréttuð á ráðherrafundum Atlantshafs- bandalagsins, t.d. á fundi Atlants- hafsráðsins í Brússel í desember 1979 og nú síðast á fundinum í Ankara í júnílok sl. Ummæli mín þar voru á þessa leið: „Ég vil við þetta tækifæri ítreka þær yfirlýsingar, sem fyrir- rennarar mínir hafa gefið hér í ráðinu, þess efnis að það er og hef- ur ætíð verið eitt af grundvallar- atriðum íslenskrar varnarmála- stefnu að engin kjarnavopn skuli vera í landinu. Og ég er þess full- viss, að engin íslensk ríkisstjórn getur samþykkt að falla frá þeirri stefnu." Við þessa yfirlýsingu var engin athugasemd gerð. Eg fagna því að Bandaríkja- stjórn hefur orðið við þeim til- mælum, sem ég setti fram og ræddi síðan við utanríkisráðherra Bandaríkjanna á Ankara-fundin- um, að hún staðfesti afstöðu sína í málinu með opinberri yfirlýsingu. Þar með liggja óvefengjanlega fyrir yfirlýsingar beggja aðila.“ Leikfélag Reykjavíkur: Dagbók Önnu Frank um jólin LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýnir um hátíðirnar leikritið Dagbók Önnu Frank, sem byggt er á dagbókinni eftir gyðingastúlkuna, sera dvaldist í felum á stríðsárunum á þriðja ár vegna gyðingaofsókna na.si.sta. Guð- rún Kristmannsdóttir er í hlutverki Önnu, en hún er aðeins 16 ára að aldri. Með önnur stór hlutverk fara Sigurður Karlsson, Valgerður Dan, Jón Sigurbjörnsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Gísli Halldórsson, Kristján Franklín Magnús og Kagnheiður Tryggvadóttir. Leik- stjóri er Hallmar Sigurðsson. Dagbókin verður sýnd laugar- dagskvöldið 29. desember og Guðrún Kristmannsdóttir i hlutverki önnu Frank. sunnudagskvöldið 30. desember í Iðnó. Aðrar leiksýningr leikfélags- ins liggja niðri, en Gísl heldur áfram eftir áramótin ásamt Fé- legu fési Darios Fo. Síðustu æfingar standa nú yfir á næsta verkefni félagsins sem er bandaríska verðlaunaleikritið Agnes — barn Guðs eftir John Pi- elmeier í þýðingu Úlfs Hjörvar. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs- dóttir en með hlutverkin þrjú fara Sigríður Hagalín, Guðrún Ás- mundsdóttir og Guðrún S. Gfsla- dóttir. Leikritið gerist að hluta til í nunnuklaustri og hefur á sér yf- irbragð spennuleikrits eða jafnvel sakamálaleikrits. I klaustrinu hef- ur ung nunna eignast barn og barnið finnst síðan látið í klaustr- inu. Geðlæknir er kvaddur á vett- vang til þess að kanna málavexti og heilbrigði stúlkunnar. Þetta leikrit hefur á síðustu þrem árum farið sigurför um heiminn, einna frægust varð sýningin á Broadway þar sem leikritið gekk á þriðja leikár og hlutu leikkonurnar þrjár þar hin margvíslegustu verðlaun. Frumsýning á Agnesi verður laugardagskvöldið 5. janúar. Frá afhendingu bókagjafarinnar. Frá vinstri: Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, Guðmundur Magnússon, háskólarektor, Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Arna Magnússonar, og Sveinn Einarsson, sonur Einars Olafs Sveinssonar, sem afhenti gjöflna. Stofnun Arna Magnússon- ar fær bókasafn Einars Ólafs Sveinssonar að gjöf HINN 12. desember síðastliðinn afhenti Sveinn Einarsson rithöf- undur Stofnun Árna Magnússonar að gjöf vísindabókasafn föður stns, Einars Ól. Sveinssonar prófessors, sem andaðist á liðnu vori. Gjafabréfíð er á þessa leið. „Með bréfi þessu afhendum við Stofnun Árna Magnússonar á íslandi til fullrar eignar og umráða vísindabókasafn Einars Ólfs Sveinssonar, en í því eru margvísleg rit í íslenskum og erlendum fræðum; bækur, rit- raðir, tímarit, bæklingar og sérprent. Ritin ber að varðveita í bókasafni Árnastofnunar, en hvert þeirra skal merkt stofn- uninni og orðunum: „Úr bókum Einars Ólafs Sveinssonar". Um notkun og lán ritanna fer með sama hætti og önnur rit safnsins. Ennfremur afhendum við öll handrit Einars Ólafs Sveinsson- ar af eigin verkum til varðveislu í stofnuninni. Um notkun þeirra í fræðaskyni fer eftir samkomu- lagi forstöðumanns stofnunar- innar og Sveins Einarssonar, sem fer með höfundarrétt verkanna. Með þessu viljum við votta Árna Magnússyni og stofnun hans á íslandi virðingu okkar og væntum, að gjöfin efli alla iðkan vísinda á Árnastofnun. Reykjavík, 12. aprfl 1983. í umboði föður míns, Einars Ólafs Sveinssonar, og fyrir sjálfan mig, Sveinn Einars- son.“. Afhending þessa merka bóka- og handritasafns fór fram við hátíðlega athöfn í Árnastofnun á afmælisdegi Einars Ól. Sveinssonar, en hann hefði orð- ið 85 ára þennan dag. Viðstödd voru Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra, Guð- mundur Magnússon háskóla- rektor og nokkrir fleiri gestir. Forstöðumaður Árnastofnunar, Jónas Kristjánsson, þakkaði hina höfðinglegu gjöf og minnt- ist Einars Öl. Sveinssonar, sem var fyrsti forstöðumaður stofn- unarinnar og bar hag hennar ávallt mjög fyir brjósti, eins og gjöf þessi ber vitni um. Frá Stofnun Árna Magnússonar. Islenzka óperan: Tónleikar í minningu Péturs Jónssonar HÁTÍÐATÓNLEIKAR verða í fæ lensku óperunni laugardaginn 22. desember kl. 14.30 í tilefni þess að um þessar mundir eru liðin 100 ár frá fæðingu Péturs Jónssonar óperu- söngvara. í frétt frá íslensku óperunni segir: „Pétur Jónsson fæddist í Reykjavík 21. desember 1884. Að loknu stúdentsprófi hóf hann nám í tannlækningum í Kaupmanna- höfn árið 1906. En hugur Péturs snerist þó brátt alveg að tónlist og söng og árið 1909 stenst hann inn- tökupróf í óperuskóla Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn. Óperuferill hans byrjaði síðan í Berlín árið 1911 og var það upphaf 20 ára ferils sem aðaltenórsöngv- ari við fræg óperuhús í Þýska- landi, svo sem í Kiel, Darmstadt, Bremen og víðar. Pétur gat sér mikla frægð sem hetjutenór í óperum Wagners, en hlutverka- safn hans var annars ótrúlega fjölbreytt. Pétur Jónsson lést í Reykjavík 14. apríl 1956. Á tónleikunum í íslensku óper- unni á laugardaginn heiðra eftir- taldir söngvarar minningu þessa brautryðjanda síns: Anna Júlíana Sveinsdóttir, Elín Sigurvinsdóttir, Elísabet Erlingsdóttir, Garðar Cortes, Guðmundur Jónsson, Hall- dór Vilhelmsson, Kristinn Halls- son, Kristinn Sigmundsson, Magn- ús Jónsson, ólöf Kolbrún Harð- ardóttir, Sigríður Ella Magnús- dóttir, Sigurður Björnsson og Simon Vaughan. Á efnisskránni eru verk eftir m.a. Puccini, Lehár, Handel, Dvorak, Árna Thorstein- son, Atla Heimi Sveinsson, Karl O. Runólfsson o.fl.“ Pétur Jónsson í hlutverki Radames í Aida.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.