Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 Þessi bók lýsir Sölva Helgasyni frá nýju sjónarhomi og nú loks nýtur hann sannmælis, snillingurinn misskildi, Sólon Sókrates Húmbolt Philo- mates Voltaire Hegel Newton Beethoven Göthe Spinoza Helga- fóstri Islandus, eins og hann kallaði sig stundum. Margar nýjar heimildir hefur Jón Óskar fundið og komist í gegn um handrit Sölva, skrifúð með undursmárri skrift Bókina prýðir fjöldi litprentaðra mynda Sölva. Falleg bók, vegleg gjöf. Þegar söguhetja þessarar bókar, Bastían Balthasar Búx, hóf að lesa Söguna endalausu, fór hann bráðlega að lifa sig inn í efni hennar og taka þátt í atburðarásinni. Þessi unglingabók hrífúr alla með sér og þeir sem lesið hafa gefa henni ýmsar einkunnir: „meiriháttar", „geðveik1', „frábær" o. s. frv., enda margföld verðlaunabók. Allir unglingar þekkja lagið „The Neverending Story" en kvikmyndin sem lagið er úr er einmitt gerð eftir fyrri helmingi bókarinnar. Myndin er jólamynd í Bíóhöllinni. Tvímæla- laust sú bók sem hirtir best í mark hjá unglingunum fyrir þessi jól. Þessi bók er sú fyrsta sinnar tegundar eftir norrænan lækni - höfundurinn er héraðslæknir í Finnlandi. Bókin skipt- ist í tvo hluta, í fyrri hlutanum er fjallað um mál sem menn deila oft um - hin ýmsu fyrirbæri dulsálarfræðinnar. í síðari hlutanum er fallegur boðskapur sem Rauni-Leena Luukanen ritaði með ósjálfráðri skrift. Þessi boðskapur á enndi til allra og skiptir þá ekki máli hverrar trúar menn eru. Þessi bók varð strax metsölubók í heimalandi höfund- arins, síðan á hinum Norðurlöndunum og er nú komin út í íslenskri þýðingu Bjöms Thors. ÍSAFOLD Vandaóar skyrtur íöllum stæróum LAUGAVEGI 61-63 SÍMI 14519 Þú svalar lestrarþorf dagsins Klukkan glymur — af efnahagsvið- undrum, íslenskum og ísraelskum — eftir Ama Helgason Hin mikla Jórvíkurdómkirkja á Englandi brann illa á síðastliðn- um vetri þegar eldingu laust niður í hana. Ekki fylgdi fréttinni hver urðu afdrif bjöllunnar miklu sem hér verður gerð að umtalsefni. En kirkja þessi hefur oftsinnis verið grátt leikin af eldi og brandi. » Um miðja síðustu öld kviknaði í einum af turnum hennar og hrundu niður klukkurnar sem f turninum voru. Þá var aflað sam- skotafjár til kaupa á nýjum klukk- um, og með svo góðum árangri að kirkjuhaldarar höfðu nægt fé til að Iáta smíða eina gríðarstóra níð- þunga ellefu tonna klukku í stað hinna sem fóru forgörðum í eldin- um. En þegar klukkan var komin á sinn stað í turninum komust þeir að raun um að ekki færri en 30 menn þurftu að sveifla bjöllunni til að hún klingdi, en það sem verra var, klukkan hljómaði ekki saman með litlu systrum sínum í öðrum turnum kirkjunnar. Kirkjuhaldarar dóu ekki ráða- lausir. Þeir tóku til bragðs að senda mann upp í turninn þegar hringja átti klukkunum og skyldi hann dangla í þá stóru með hamri. í heilan mannsaldur bifaðist ekki kólfur klukkunnar en henni hringt með þessum hætti, þangað til loks á fjórða áratug líðandi aldar að þolinmóðustu Jórvikurbúum var nóg boðið og þótti orðið óbærilegt að láta þennan falska tón ham- arshögganna skera í eyru öllu lengur; var þá klukkan tekin niður, hún endursmiðuð og gerð nothæf til síns brúks og boðleg mannlegu eyra. Upp frá því þótti hljómur hennar hinn dýpsti og fegursti allra kirkjuklukkna í allri Evrópu, og er ekki fleira af þessari bjöllu að segja. Undir merkjum hamars- ins og sverðsins Heiðurskáboj íslensku flokks- kirkjunnar fór á dögunum í trú- boðsferð um Miðjarðarhafsbotn og gaf þá ísraelskum kollegum sínum góð ráð um landstjórnar- list, en þeim hefur gengið harla brösuglega að finna rétta sam- hljóma í efnahagslífinu. Var krómaður amerískur Stanley með gúmmíhaldi eða venjulegur ís- lenskur með tréskafti í pússi kú- rekans? Það er aukaatriði. Hann er kominn aftur heim í heiðardal- inn og hamrar ákafar en nokkru sinni fyrr bjölluna stóru. En þá herma fregnir frá ísrael að launa- fólk í landinu muni nú eiga að gegna veigamiklu hlutverki í leit ísraelskra kirkjuhaldara að tónin- um eina og hreina. Fáum hefur dulist hvernig sverði síonismans hefur verið beitt af hörku innan landamæra sem utan gegn palestínskum íbúum ríkisins til að gera stór- veldisdrauma að veruleika. Stríðið við þessa innbyggja landsins hefur kostað gífurlega fjárfestingu í drápstólum og peningarnir til þeirra nota aðallega verið seiddir fram með dansi ímyndunarinnar. Þökk sé ráðagóða íslenska kábojn- um, — nú getur ísraelska flokks- kirkjuráðið hætt að þreyja lýjandi dansinn kringum örverukrónu þessa hrjáða lands, hinn hríðfall- andi shekel, en í leiftursókn með Stanley að vopni eða íslenskan með tréskafti fjármagnað hasar- inn undir drungalegum bjöllu- hljómum gengisfellingar kjara og raunverulegra stríðsvaxta. Stóri Káboj í Villta Vestri hefur nú þeg- ar látið í Ijós velþóknun sína og lofað hinum óseðjandi vopna- viðskiptavini sínum heilum millj- arði dollara sem enn einu framlagi til baráttunnar. Á hinn bóginn eru draumar há- kirkjufeðranna islensku og hvern- ig þeir hafa ræst í rányrkju til lands og sjávar, veitingu fallvatna til Sviss, útflutningi á hugvits- mönnum, hjákátlegum hallar- byggingum fyrir betlifé og vaxta- okur, svo eitthvað sé nefnt, að ekki sé minnst á drauminn um óend- anlega víðáttumikla landhelgi. Ógnþrungin rödd sjóvíkingsins á alþjóðavettvangi eins og bjöllu- hljómar hamarshögganna berast nágrönnunum, Grænlendingum og Færeyingum, til eyrna: Vér Icelandic Cowboys höfum helgað oss alla loðnu innan sem utan takmarkalausrar landhelgi vors Kántrís, enda hlutskipti vort í samfélagi þjóðanna aö varðveita áratuga gamla sérþekkingu á meðferð þessa sjávarfangs í vor- um gömlu góðu ryðguðu síldar- bræðslum. Dirfist ei að ásælast vort síli! ÁRMÚLI 30 - 128 REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 8736 Opið á laugardögum KONRÁÐ AXELSSON SKRIFSTOFUVÖRUR multi form ERÉAÐ VI.VT.VI Spánnýtt og spennandi spil sem þjálfar þolinmæðina ÍNINTAI þýðirþolinmæði á japönsku). Góða skemmtun Lampar&glerhf Suðurgótu 3, Reykjavik Simi: 91-21830 Hamar úr skíragulli En Stóri Káboj í Vestrinu er ekki nógu skilningsríkur i garð ís- lenzku eftirlíkingarinnar. Eða hvað eru 20 milljónir dollara fyrir einn flugskúr annaö en loðnuskít- ur á priki? — Heimavöllur fisk- veiðitólanna er nánast þurraus- inn. Útlenskir sælkerar gína ekki lengur við lambakjötsvillibráð af rótnagaða landinu og brátt missir Mexíkó: Ammoníak- gasleki olli skelfingu í smábæ Meiíkibon, 18. deseraber. AP. 4MMONIAKGASLEKI frá gas- Hutningabíl í Matamoros-bæ í norð- lustanverðu Mexíkó olli mikilli ikelfingu meðal bæjarbúa á mánu- lagskvöld, en embættismenn í lög- reglu og slökkviliði bæjarins sögðu ið svo virtist sem fáir hefðu orðið fyrir alvarlegu heilsutjóni. Matamoros er rétt handan landamæranna við Texas, um 1000 km fyrir norðan Mexíkóborg. Að minnsta kosti einn, maður sem stjórnaði því þegar gasið var flutt úr gasflutningabílnum yfir á járnbrautarvagn, hlaut skaða af, en ekki er vitað hversu alvarlegan, að sögn Miguel Machuca, vakt- stjóra hjá slökkviliði staðarins. Kvað hann manninn hafa verið meðvitundarlausan þegar sjúkra- bíll kom á vettvang. Machuca sagði í símaviðtali, að margir hefðu verið sendir á sjúkrahús, en flestir hefðu fengið að fara heim að lokinni meðferð og sumir hefðu aðeins gengist undir skoðun. Engar opinberar tölur lágu fyrir um hversu margir hefðu verið lagðir inn á sjúkrahús eða orðið að fá læknismeðferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.