Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
um tíma safnaðist umtalsverð
upphæð sem var mikil aðstoð til
þessara framkvæmda. Kvenfé-
lagskonur kirkjunnar lögðu að
mörkum einnig fjármagnsaðstoð,
þær hafa með félagsstarfi um dag-
ana stuðlað að velferð kirkjunnar
á marga lund gegnum árin.
Það er mjög einkennandi, hvað
konur landsins hafa löngum fórn-
að kröftum sínum til þess að vinna
að mikilvægum málum safnaða og
kirkju. Með þeim hætti hafa þær
kveikt ljós á kyndli kristninnar.
Kirkja vor er
fagurt hús
Enn heldur mikilvæg endurnýj-
un kirkjunnar áfram. Nýlega var
sett nýtt járn á þak hennar, en
það hefur ekki verið gert fyrr, síð-
an að kirkjan var byggð, þó hefur
eðlilegt viðhald farið fram. Nú um
þessar mundir hafa verið miklar
undirbúningsframkvæmdir á döf-
inni til endurbóta á þessu fagra
guðshúsi. Hitaveita hefur verið
lögð í kirkjuna þá um leið ný hita-
lögn, því upphitun hefur farið
fram með rafmagni. Einnig hefur
verið unnið að undirbúningi vegna
einangrunar á lofthvelfingu við
þakið innanvert, en það hefur ekki
verið gert áður.
Ennfremur var teiknað að-
komusvæði við aðaldyr kirkjunn-
ar, sem verður endurbyggt með
hitalögn og munu margir fagna
því um vetrartímann. Hafnar-
fjarðarsókn telur um sex þúsund
sóknarmenn og fer vel á því við
tfmamót, að söfnuðurinn fylgist
með hvernig tekjum kirkjunnar er
ráðstafað en fé hennar er vand-
lega gætt og notað til eðlilegra
þarfa við endurbætur og forsjá
þessari helgu stofnun, svo að hún
haldi vöku sinni um tilgang og
tign, sem er sómi sóknarinnar og
bæjarfélags.
Það hefur ávallt verið sjónar-
mið sóknarnefndar, að kirkjan
njóti virðingar í sinni stílfegurð
með helgum áhrifum yfir um-
hverfi sínu. Þeir sem hafa kynnst
safnaðarlífi er kunnugt um það, að
framlag hvers sóknarmanns við
starfsháttu kirkjunnar er ljósgjafi
Hafnarfjarðarkirkja
til framtíðar hennar, þess vegna
getur umræða um slíka stofnun
verið lífshamingja vorra mann-
anna og mjög gjarnan til íhugunar
fyrir safnaðarfólk á merkum degi.
LokaorÖ á tímamótum
Þrátt fyrir það að oft hafi verið
talað um deyfð í safnaðarlffi
landsmanna, hefur kirkjan með
starfi sínu ásamt innri kjarna
hennar, ieitast við aö miðla söfn-
uði af náðargjöf sinni sem kristin
móðir. Hún vill laða og leiða lýð
sinn að náðarbrauði, sem hún
veitir af móöurkærleik og bendir á
um leið birtu hins himneska friðar
mannkyninu til handa og heilla.
Kirkjunni hefur ávallt tekist að
fá menn til fylgis með sér þeir
hafa ævinlega leitast við að finna
dýrðarljóma og með þeim hætti
fundið djúpan frið í frumgróðri
Iffsins, þar sem kirkja Krists þró-
ar sinn boðskap, sem hún deilir til
vor mannanna og veitir friðelsk-
andi þjóðum líkn sína.
Margir eru þeir sem þrá að
krjúpa að þeim fótstalli kirkjunn-
ar sem veitir birtu og innri frið í
gegnum strauma lífins. Það finna
menn við altari hennar, en þar fer
fram túlkun á boðum drottins,
sem hann veitir oss af náð sinni á
kyrrðar stundum. Slikar stundir í
kirkjunni skapa andlegan styrk,
umburðarlyndi og bróðurlegt sam-
starf á öllum sviðum mannlífsins.
Á afmælisdegi Þjóðkirkjunnar í
Hafnarfirði fagnar söfnuður
kirkju sinni á tímamótum. Frá
altari hennar eiga margir minnis-
stæðar helgar stundir, þar sem
safnaðarfólk hefur mótast af lif-
andi blessunarorðum, sem lýst
hefur þeim um ýmsa vegu.
Vegna tímamóta Hafnarfjarð-
arkirkju eru hér sendar heillaósk-
ir og þess vænst að kirkjan í heild
sinni verði ávallt Ijósberi kynslóð-
anna eins og Betlehemstjarnan
vísar til. Hún er lampi fóta vorra
og ljós á vegum vorum, sem okkur
syndugum mönnum er mikilsvert
að hafa sem leiðarljós á lífsgöng-
unni, sem einnig lýsir um friðar-
veg og skapar frelsi á vorri kæru
fósturjörð.
Um þessar mundir er Þjóðkirkj-
an f Hafnarfirði prúðbúin til allra
athafna og vekur athygli sem fyrr
vegna tignar sinnar og frumgerð.
Hún stendur nú endurnýjuð úti
sem inni, og er safnaðarnefnd til
mikils sóma og öllum þeim sem
eiga hlut að máli.
Um marga áratugi mun kirkjan
vera merkasta og tignarlegasta
bygging bæjarfélagsins, sem bæj-
arbúar veita lotningu og bera virð-
ingu fyrir. Þá mun kirkjan ávallt
minna á tilgang hennar, með turni
sínum og klukknahljóm, sem
minnir vegfarendur á helgar tfðir
og frið hersveitanna á himni og
jörðu.
Heill kirkju vorri, lind lífsins!
Sóknamefnd á undanförnum
árum og nú á tímamótum Hafnar-
fjarðarkirkju er skipuð eftirfar-
andi mönnum: Ólafur Vigfússon,
formaður, Guðmundur Guðgeirs-
son, varaformaður, Bjarni Linnet
ritari og m eðstjórnendur Sólveig
Eyjólfsdóttir og Jóhanna Andr-
ésdóttir. SafnaðarfuIItrúi er Ei-
rfkur Pálsson lögm.
Uudmundur Guögeirsson er hir-
skeramcistari í llafnartirði.
seld eintök þar séu færri en þau
sem fóru til Færeyja. Það væri
ennfremur gaman að fá skýringar
Jens á þeirri staðreynd, að Æskan
býður nú Poppbókina með 30% af-
slætti f bókabúðum. Slfk lækkun á
verði bóka hefur hingað til undan-
tekningarlaust þýtt örvæntingar-
fullar tilraunir bókaútgáfa til að
losna við bækur sem ekkert selj-
ast!
Um það er einnig ágreiningur á
milli okkar Jens, hvort Eðvarð
Ingólfsson hafi misnotað sér að-
stöðu sína sem dagskrárgerðar-
maður á rás 2 þegar hann tók við-
tal við Jens um Poppbókina í þætti
sfnum Frístund fyrir ári sfðan.
Orðrétt segir Jens: „í þriðja lagi
vann Eðvarð Ingólfsson ekki hjá
Æskunni, hvorki aðalstarf né
hlutastarf, þegar viðtalið fræga
var tekið." Samkvæmt upplýsing-
um sem ég fékk frá barnablaðinu
Æskunni (sama fyrirtæki og
bókaútgáfa og verslun með sama
nafni) 12. des. sl. hefur Eðvarð
Ingólfsson unnið sem blaðamaður
þar í u.þ.b. 3 ár. Auk þess má
benda á að á sama tíma og bóka-
útgáfan Æskan sendi frá sér
Poppbókina, þá komu út hjá henni
tvær bækur eftir Eðvarð. Séu upp-
lýsingar þessar frá Æskunni rétt-
ar, þá leikur enginn vafi á því að
hún var einn starfsmaður Æsk-
unnar að tala við annan slíkan um
bók frá útgáfunni. Ef slíkt telst
ekki misnotkun á aðstöðu sinni, þá
veit ég ekki hvað annað það getur
kallast! Jens telur það einnig
rangt hjá mér að viðtalið hafi ver-
ið langt. Því er til að svara að 4
mfnútur af 60 mfnútna þætti get-
ur vart talist annað en nokkuð
langt viðtal, þó þar sé ég ekki að
halda því fram að viðtalið hafi
verið óeðlilega langt. Fjögurra
mínútna auglýsing kostar sam-
kvæmt auglýsingataxta rásar 2 kr.
28.800 - (240 sek. x 120 kr.). Ef ég
réði rfkjum á rás 2, þá væri ég
ekki í vafa um að ég myndi krefja
stjórnanda þáttarins um þessa
upphæð fyrir þessa misnotkun á
aðstöðu sinni!
Ekki verður svo skilið við Poppb-
ókina — í fyrsta sæti, að minnst
verði á tvfsögli Jens f henni ann-
ars vegar og f Hjáguð hins vegar.
Fremst í Poppbókinni segir Jens:
„Þessi bók er hvorki fræðiverk af
neinu tagi né uppsláttarrit." í Hjá-
guð segir hann svo: „Poppbókin ...
er hvorttveggja í senn uppslátt-
arrit og afþreyingarlesning" (bls.
15). Bókin er semsagt bæði upp-
sláttarrit og ekki uppsláttarrit!
Það var og! Maður spyr sig hvort
til sé heil brú f hugsun þessa
manns.
Kás 2
Jens Guð gerir fjölmiðlaskoðan-
akannanir að umtalsefni. Vitnar
hann þar í könnun sem Hag-
vangur mun hafa framkvæmt. Um
niðurstöður hennar er ekkert
nema gott að segja, en heldur
þykir mér samanburður Jens á rás
1, sjónvarpi og Morgunblaðinu við
rás 2 vera óraunhæfur. Þarna er
Jens að tala um rótgróna fjölmiðla
sem hafa f tfmans rás fest sig f
sessi á meðal þjóðarinnar, en rás 2
hefur aðeins eitt starfsár að baki.
Auk þess er rás 2 ekki ætlað að
höfða til allra aldurshópa, svo sem
eins og hinum nefndu fjölmiðlum
er. Ég hygg ennfremur að tölur
þær sem Jens leggur fram taki til
vikulegrar hlustunar og lesturs, og
njóta hinir ríkisfjölmiðlarnir sér-
stöðu í þeim efnum hvað varðar
fréttir, en það er vart til sá maður
sem hlustar ekki a.m.k. einu sinni
í viku á þær.
Jens segir á einum stað orðrétt í
grein sinni: „Gagnrýnin er ekki
sett fram af illum hvötum, heldur
er henni ætlað að veita rás 2 það
aðahald sem henni er nauðsyn-
legt.“ Ég veit það vel Jens að veita
þarf rás 2 það aðhald sem henni er
nauðsynlegt, en málið er það, aö
eins og þin gagnrýni er sett fram,
þá fær enginn betur séð en hún sé
sett fram af illum hvötum, og þar
af leiðandi tekur enginn mark á
henni. Ég endurtek það að eigi
gagnrýni að vera marktæk, þá
verður hún að byggjast á
rökstuðningi, en ekki meiðyrðum í
garð einstakra manna eða órök-
studdum dylgjum.
Niðurlag
Niðurstaða mfn i greininni frá
13. nóv. var sú að blaðið HjáguÖ
væri eitthvert versta sorp sem
komið hefur á prent á tslandi. Ég
er ennþá sannfærðari en áöur um
sannleika þessarar fullyrðingar. I
rökstuðningi mfnum fyrir þessari
skoðun nefndi ég einkum tvö at-
riði: annars vegar margumrædda
gagnrýni Hjáguðs á rás 2, og hins
vegar sorpblaðamennsku sem
finna mátti f rfkum mæli f grein-
unum um látnu stjörnurnar, Elvis
Presley og John Lennon. Það er
svolítið merkilegt að Jens skuli
ekki minnast á síðartalda atriðið f
grein sinni. Kannski hann kunni
að skammast sín!
Ég vil að lokum þakka Jens
þann áhuga sem hann sýnir námi
mínu í grein sinni. Ég hyggst að
vfsu ekki verða prófessor f við-
skiptum, en ætlun mín er að verða
í framtíðinni kandidat í fræðun-
um. Ef slfkt á að takast er nauð-
synlegt að standast prófkröfur, og
verð ég þvf að láta þetta verða mín
sfðustu orð um Hjáguð f bili, eða
a.m.k. fram yfir próf. Eitt að lok-
um, ég heitir Eggert og er Jónas-
son, ekki Jónsson! Gleðileg jól
Jens.
Eggert Jónasson er nemi f
riöskiptafræði rið Háskóla ts-
lands.
Æ
Terelynebuxur
nýkomnar
Glæsileg ný sniö, margir litir
2 bakvasar meö hnepptum vasalokum.
Verð kr. 1.050,00, kr. 950,00, kr. 920,00, kr. 790,00.
Ódýr og vandaður jólafatnaöur f miklu úrvali.
Andrés, Skólavöróustíg 22a
Verðtryggðar og varanlegar
gjafír.
Óutndeilanlegar í
250 ár.
Konunglega
Hverfisgötu 49, símí 13313.