Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 Stefnt að því að tvöfalda söluna \oguw. 17. desember. Á VEGUM Varnarliðsins og utanríkisráAuneytisins er starfandi nefnd sem athugar möguleika á sölu á lambakjöti á Keflavíkurflugvelli. Einn- ig med sölu á öörum afurðum og með hvaða móti mætti auka söluna til Varnarliðsins. Nefndin kom saman um miðj- an september sl. og hefur látið gera upplýsingabækling um lambakjötið í þeim tiigangi að auka fræðslu og til að kynna lambakjötið fyrir íbúum á Keflavíkurflugvelli. Hefur kynn- ing farið fram í mötuneyti, klúbbum og í matvöruverslun, en stefnt er að því að auka söluna úr fjórum tonnum á sl. ári átta tonn á ári. Keflavíkurflugvöllur: íslenskar vörur seldar fyrir rúml. milljón á mánuði í nóvembermánuði voru ís- lenskar vörur seldar í matvöru- verslun varnarliðsmanna á Keflavíkurflugveili fyrir 1 — 1,1 milljón ísl. kr. Þær vörur sem eru seldar í versluninni eru: mjólk, ís, fiskur, brauð, ostar og grænmeti. E.G. Kynning á lambakjöti var haldin í kvennaklúbbi yfir- manna, þar kom íslenska hljómsveitin m.a. fram, haldið var erindi um lambakjötið og ís- lenskir matreiðslumenn sáu um matreiðsluna. Þótti kynningin takast mjög vel. í matvöruverslun kom fyrsta sendingin af lambakjöti 14. nóv- ember, samtals 1.150 kg. Þar hefur verið komið fyrir tveimur frystikistum, annarri frá SÍS en hinni frá Sláturfélagi Suður- lands. Þær tegundir sem seldar eru eru hryggir, læri, læris- sneiðar, pylsur, Londonlamb o.fl. Úrvalið verður aukið síðar. Eftir mánuðinn hafði tekist að seija 800 kg fyrir um 200 þúsund kr. en lambakjötið er selt með út- flutningsbótum. í matvöruversl- uninni iiggja frammi uppskriftir að matreiðslu úr lambakjötinu. I desember verður matseðill í mötuneytinu með lambakjöts- réttum og í klúbbunum verður lambakjöt aðalréttur einu sinni í viku. E.G. Hættan minni, þótt ekki vilji ég sýkna þá - segir Árni Björnsson læknir um UVA-sólalampana „ÚTFJÓLUBLÁIR geislar eru líklegasta ástæðan fyrir sortuæxlum og því er aldrei hægt að sýkna þá alveg þótt Ijóst sé, að hættan er misjafnlega mikil. Og þá má segja að ef notaðir eru réttir lampar, með réttum perum, sem gefa frá sér lágmarks B-geislun, er hættan minni þótt hún sé auðvitað alltaf fyrir hendi í einhverjum mæli,“ sagði Árni Björnsson læknir, er hann var spurður um ummæli John Krogh, forstjóra M.A. Solarium í Danmörku, þess eðlis, að sólbrúnka frá UVA-sólarlömpum væri hættuminni en af völdum sólskins. Árni Björnsson læknir sagði ennfremur, að hann hefði að und- anförnu unnið að söfnun gagna um þessi mál og hefði undir hönd- um skýrslur, greinar og upplýs- ingar víðsvegar að úr heiminum. „Það sem er sameiginlegt með öll- um þessum /gögnum og upplýsing- um er, að menn hallast að því, að útfjólubláir geislar séu aðalorsök þessara sortuæxla og því er í raun og veru ekki hægt að sýkna eitt eða neitt af því, sem sendir frá sér slíka geisla, hvorki sólina né ann- að. Hitt er svo annað mál, að menn eru ekki alveg á eitt sáttir um hvernig þetta kemur fram“, sagði Árni. „Þó bendir allt til, að hættan á þessari æxlismyndun stafi af því að menn fái tiltölulega stutta en mikla geislun, eins og menn fá til dæmis er þeir fara héðan og til sólarlanda og baka sig í sól og jafnvel brenna sig. Slíka geislun geta menn Iíka fengið ef þeir fara í sólarlampa og ætla sér að verða brúnir á mjög stuttum tíma,“ sagði Árni Björnsson. Um UVA-sólarlampana, sem gerðir eru að umtalsefni í áður- nefndum ummælum John Krogh, sagði Árni meðal annars: „Það eru til mismunandi tegundir af lömp- um sem auðvitað eru misjafnlega hættulegir hvað þetta varðar. Við vitum að þetta danska fyrirtæki framleiðir sólarlampa, sem eru prófaðir með sérstökum tækjum og þeir eiga að gefa lágmarks- skammt af svokölluðum B-geisl- um, en þeir eru af flestum taldir varasamari en A-geislar. Menn geta því að vissu leyti verið örugg- ari að fara í slíka lampa, þar sem vitað er að notaðar eru réttar per- ur heldur en þar sem ekkert eftir- lit er með þessu. Hitt er svo annað mál, að öll útfjólublá geislun ertir þessar frumur í húðinni og einnig má nefna, að rannsóknir benda til að útfjólublá geislun geti einnig veikt ónæmiskerfi líkamans. Svar mitt við því, hvort eitthvað sé ör- uggara en annað í þessum efnum, er því að ef það er tryggt, að það sé eins lítið af B-geislum í lömp- unum og hægt er þá megi ef til vill halda því fram að þessir lampar séu minna skaðlegir en aðrir. En þó er langt frá því að ég vilji sýkna þá algerlega," sagði Árni Björnsson læknir. Sæmundur Kjartansson húð- sjúkdómafræðingur sagði í sam- tali við blaðamann Morgunblað- sins vegna þessa máls, að eftir því sem hann best vissi, mætti taka undir þær fullyrðingar að sól- brúnka frá UVA-sólarlömpum væri ekki eins hættuleg og snögg og mikil sólbrúnka af völdum sól- skins. „Hér er átt við þessi sam- lokuljós, en ekki háfjallasól. Geisl- arnir frá þessum bekkjum valda yfirleitt ekki sólbruna, og eftir því sem ég best veit er talið að menn taki minni áhættu af að verða brúnir í þessum bekkjum en af sólarljósinu," sagði Sæmundur Kjartansson. Kór Langholtskirkju flytur jólasöng KÓR LANGHOLTSKIRKJU nytur jólasöngva í LangholUkirkju á föstu- dagskvöld klukkan 23 og verða þeir nú í fyrsta skipti haldnir í fullbúinni kirkjunni, sem var vígð 16. september sl. Um efnisskrána segir svo í frétt frá kórnum: „Einsöngvari með kórnum verð- ur John Speight. Bernhard Wilk- inson leikur á flautu, Jón Sigurðs- son á kontrabassa og Gústaf Jó- hannesson á orgel. Aðstoða þeir kórinn í nokkrum alþekktum jóla- lögum sem hér verða flutt í nýjum buningi Anders öhrwall, sem er einn þekktasti kórstjóri Svía nú. Hann gerði þessar útsetningar fyrir hinn heimsþekkta söngvara, Hákan Hagegárd, sem söng þær inn á plötu ásamt Bach-kórnum í Stokkhólmi, sem öhrwall stjórn- ar. Tónleikarnir hefjast á nokkr- um gömlum jólasálmum og síðan syngja allir þrjá jólasálma og fyrri hluta tónleikanna lýkur á út- setningum Öhrwall. Eftir hlé verður slegið á léttari strengi. Kórinn og áheyrendur syngja jóla- söngva (carols). Þá tekur við nokk- ur hátíðleiki með flutningi kórsins á „barokk“-verkum og nýstárlegri útfærslu á sálmalagi eftir Bach þar sem kórfélagar „improvisera" með látbragði. Að lokum syngja svo allir „Heims um ból“. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. í hléi verður hægt að fá „jóla- súkkulaði" í sal safnaðarheimilis- ins. Kór Langholtskirkju hélt sína fyrstu jólasöngva í kirkju Krists konungs í Landakoti 1979 og hafa þeir síðan verið fastur liður í starfi kórsins og m.a. verið haldn- ir í kirkjuskipi Langholtskirkju ófullgerðu. 4 Kveikt á jólatrénu í Hólminum Vernd með fataúthlutun „FÓLK hefur brugðist vel yiö og gef- iö gamlan fatnaö en einnig höfum viö fengiö fatnaö frá fyrirtækjum. Viö erum því með sæmilegar birgöir, en þörfin er mikil og það gengur fljótt á birgðirnar," sagði Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður félaga- samtakanna Verndar, í samtali við Mbl.. en fataúthlutun Verndar er hafín. Samtökin hafa flutt í nýtt hús- næði á Bergstaðastræti 26 og verður úthlutun daglega milli klukkan 11 ogl3. „Við viljum hvetja fólk til þess að koma til okkar fatnaði, því þörfin er mikil og verður tekið á móti fatnaði á sama tíma og út- hlutað er,“ sagði Jóna Gróa. Das Kapital á Hótel Borg HUÓMSVEITIN Das Kapital held- ur tónleika á Hótel Borg í kvöld klukkan 22.30. Lög af nýútkominni plötu hljómsveitarinnar verða kynnt, en einnig annað nýtt efni, sem hljómsveitin á í fórum sfnum. HÍjómsveitina skipa Bubbi Morth- ens, Jakob Magnússon, Jens Hans- son, Guðmundur Gunnarsson og Mike Pollock. Lambakjöt kynnt é Keflavíkurflugvelli: Stykkishólmi, 17. desember. í G/ER var kveikt á stóni jólatré í Stykkishólmi, en tré þetta er gjöf frá vinabæ Stykkishólms, Drammen I Noregi, og er þetta í fyrsta sinn sem okkur berst svona vinaleg gjöf frá þeim. Það var mikill mannfjöldi sam- ankominn í skrúðgarði okkar, Hólmgarði, þar sem tréð var reist, og hófst athöfnin með því að Lúðrasveit Stykkishólms, undir stjórn Daða Þ. Einarssonar, lék þar ýms ættjarðarlög og jólalög og kirkjukór Stykkishólmskirkju, undir stjórn Jóhönnu Guð- mundsdóttur, söng jólasálma. Þá flutti oddviti Hólmara, Ellert Kristinsson, ræðu þar sem hann þakkaði þessa vinalegu og höfð- inglegu gjöf og rakti vinabæjar- tengsl þessara tveggja staða. f Drammen, sagði Ellert, starf- ar nú íslendingafélag af miklum krafti og hefir hópur þaðan heim- sótt Stykkishólm og eins hefir hópur á vegum hreppsins heimsótt Drammen. í lok ræðu sinnar bað Ellert formann norrænu deildarinnar í Stykkishólmi, Árna Helgason,að kveikja á ljósunum á jólatrénu og á eftir lék lúðrasveitin þjóðsöng Norðmanna og í lokin sungu allir viðstaddir Heims um ból, við und- irleik lúðrasveitar. Var þessi athöfn öll hin hátíð- legasta. Árni. Morgunblaðið/EG Varnarliðsmaður skoðar lærisneiðar af íslenzku lambi í verzhin á Kefla- vfkurflugvelli. mni Til mikillar gleði fyrir yngstu slóðina komu margir jólasveinar í fallegum búningum og dönsuðu kringum jólatréð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.