Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.12.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 Miður, kona, bam er eftir höfund „Love Story" Erich Segal. i Fullkomnu hjónabandi, sem allir öfunda, er skyndilega og óvamt ógnað af rödd frá fortíðinni. Bob Beckwith stærðfræðiprófessor er hamingjusamur fjölskyldufaðir, þar til í ljós kemur að eina hliðarspor hans í hjónabandinu hefar haft óvæntar afleiðingar. Maður, kona, bam er langbesta skáldsaga Erich Segals, og jafnvel ennþá áhrifameiri en „Love Story“. Skáldsagan TIM er eftir Colleen McCullough höfund Þymifuglanna sem nú er framhaldsmynd í sjónvarp- inu. Bókin segir frá Mary sem var komin yfir fertugt. menntuð kona sem naut velgengni í starfi og bjó ein. Tim var tuttugu og fimm ára og glæsileg- ur eins og grískur guð en með bams- liuga.... Hjartnæm og fullkomlega trúverðug saga sem yljar manni um hjartaræt- umar án þess að verða væmin. Margir þeirra, sem hlustað hafa á bamasögur Guðrúnar Sveinsdóttur í útvarpinu á liðnum árum, hafa beðið þess með óþreyju að sögur hennar birt- ust á prenti. Jólasveinafjölskyldan á Grýlubæ segir frá Grýlu, Leppalúða og jólasveinunum. Þetta er auðvitað alþekkt fjölskylda, en við verðum þess þó vör, þegar við lesum söguna, að okkur hefur verið margt óljóst um lífið á Grýlubæ og annars staðar í Trölla- byggð. Margar myndir prýða bókina og gerir það hana enn skemmtilegri fyrir yngstu lesenduma. ÍSAFOLD Með röntgenmyndum má lækka dánartíðni úr brjósta- krabbameini um allt að 70 % — eftir Úlaf Ólafsson I umræðum um brjóstaröntgen sem fram fóru á Alþingi nýlega kom ekki nægilega vel fram hverj- ar voru niðurstöður svokallaðrar mammógrafíunefndar, sem heil- brigðisráðherra skipaði til að kanna forsendur 3kipulegrar leit- ar að brjóstakrabbameini. Nefnd- in byggði álit sitt á ýmsum inn- lendum og erlendum rannsóknum sem eru bað sannfærandi að mammógrafíunefnd skilaði ein- róma áliti um nauðsyn þess að gefa öllum íslenskum konum á vissum aldri kost á slíkri rann- sókn. Á alþjóðlegri ráðstefnu um brjóstakrabbamein, sem haldin var í Reykjavík í vor, kom fram eindreginn stuðningur við álit nefndarinnar. Þessa ráðstefnu sóttu m.a. átta helstu sérfræð- ingar í brjóstakrabbameinsleit í heiminum. Sumir vilja bíða eftir „öruggum sönnunum" áður en hafist verður handa um brjóstaröntgenmyndan- ir. Ef krafist væri slíkra sannana á öllum sviðum læknisfræði mætti lengi bíða og jafnvel loka mörgum sjúkrahúsum. Þess er ekki nægi- lega getið í umræðunum að grein- ing krabbameins í brjósti á frum- stigi með brjóstaröntgeni er orðin mjög almenn í mörgum fylkjum og borgum austan og vestan hafs, t.d. í Bandarikjunum og Svíþjóð. Helstu ástæður fyrir því að ekki „Á það var drepið í um- ræðunum að sjúkrahús- in gætu ekki tekið á móti þeim fjölda kvenna sem greinast myndu á fyrstu mánuð- um slíkra brjóstarönt- genrannsókna. En eru þau frekar tilbúin að taka við sömu konum nokkrum árum seinna með sjúkdóminn á hærra stigi?“ er hafist handa um víðtækari að- gerðir eru yfirleitt taldar vera skortur á fjármagni, en ekki að fagleg rök séu ekki til staðar. ís- lenskar konur hafa ekki haft styrk til að koma þessum málum fram. Ef menn telja sig ekki hafa efni á að hefjast handa nú, þá er illa komið. Rétt er að ítreka þá staðreynd að við brjóstamyndatökur finnast um 60—70% af æxlum á fyrsta stigi, þ.e. án meinvarpa, en við Ólafur Ólafsson venjulega læknisleit finnast meinvörp í 70% tilfella. Segja má að stærð æxlisins og tilvist mein- varpa skipti sköpum. í umræðun- um komu ekki fram réttar upplýs- ingar um lífslíkur. Látið hefur verið í það skína að megin ávinn- ingurinn við að finna brjósta- krabbamein á frumstigi sé sá að konan fái upplýsingar um sjúk- dóminn fyrr en ella. Þetta er byggt á fræðilegum rökum sem búin eru til við skrifborð. Að vísu eru rannsóknir á þessu sviði til- tölulega skammt á veg komnar en niðurstöður bandarísku HIP- rannsóknarinnar eru þær að eftir fjórtán ár séu dánarlíkur meðal þeirra kvenna er fóru í brjósta- röntgen allt að 40% lægri en hjá þeim sem ieitað höfðu til læknis vegna einkenna. Ennfremur hafa nýlega verið birtar í Lancet niður- stöður frá Hollandi þar sem fram kemur 50—70% lækkun á dánar- tíðni. Virðist því ljóst að lífslíkur hafa 3tóraukist. Ég legg til að menn kynni sér betur þessar upp- lýsingar. Á það var drepið í umræðunum að sjúkrahúsin gætu ekki tekið á móti fjölda kvenna sem greinast myndu á fyrstu mánuðum slíkra brjóstaröntgenrannsókna. En eru þau frekar tilbúin að taka við sömu konum nokkrum árum seinna með sjúkdóminn á hærra stigi? Á Alþingi var vitnað til um- ræðna sem fram fóru í Danmörku fyrir ári, en þá var ekki mælt með brjóstaröntgenrannsóknum. Ekki var minnst á að Danir standa sig mun verr á sviði fyrirbyggjandi læknisfræði en nágrannaþjóðirn- ar og eru því ekki til fyrirmyndar. Þó að ótrúlegt megi teljast þá sinna þeir ekki viðurkenndum ör- yggisráðstöfunum í heilbrigðis- málum eins og t.d. almennum bólusetningum gegn mislingum og rauðum hundum. Það er greini- iega ekki farið nægilega eftir ráð- leggingum iækna < því landi, og árangurinn er meðal annars sá að meðalævi Dana er styttri en margra annarra þjóða. Ef úrtölumenn hefðu almennt ráðið ferðinni í heilbrigðismálum á íslandi hefði margt farið á ann- an veg en varð. Nefna má nokkur dæmi: 1. Allsherjar berklaleit hefði ekki hafist árið 1936, en við vorum fyrstir til að berklaskoða heila þjóð. Árangur þeirra aðgerða dylst engum. Nú er berklatíðni á íslandi sú lægsta í heimi. 2. Leit að leghálskrabbameini hefði ekki hafist árið 1964, en íslendingar voru einnig fyrstir þjóða til að hefja allsherjarað- gerðir á því sviði. Nú vilja allir Lilju kveðið hafa og Álþjóða heilbrigðismálastofnunin óskar eftir því að iæra af íslending- um, enda er dánartíðni vegna sjúkdómsins lægst á íslandi. 3. Hjartavernd hefði ekki hafið starfsemi sína árið 1967, en þar voru íslendingar eins og áður í fararbroddi, m.a. með þeim árangri að dánartíðni vegna háþrýstings hefur lækkað um meira en helming og er nú sú lægsta í hinum vestræna heimi. Mun meiri rök liggja nú fyrir um gildi allsherjarleitar að brjóst- akrabbameini heldur en um gildi framangreindra skoðana þegar þær hófust, þótt þær hafi allar heppnast frábærlega vel. Ég fæ ekki séð að aðgerðaleysi annarra þjóða sé rök fyrir aðgerðaleysi á íslandi. Ég vil að lokum benda mönnum á að aðgerðir íslendinga í veigamiklum heilbrigðismálum gefa eindregið til kynna að við sé- um vel færir um að velja sjálfir heppilegar leiðir í þessu efni, en þurfum ekki að bíða eftir öðrum. Því legg ég til að Alþingi íslend- inga taki mið af áliti mammógr- afíunefndar, til hagsbóta fyrir ís- lenskar konur. Þær eiga það skilið. Við bjóðum aðeins fyrsta flokks DEMANTA. Demantar eru okkar sérgrein Við bjóðum aðeins íyrsta flokks demanta greypta í hvítagull og rauðagull. Ábyrgðarskírteini fylgir öllum okkar demantsskartgripum. Meðlimir í demantsklúbbi Félags íslenskra Gullsmiða. Greiðsiukortaþjónusta. Ólaíur Ólaísson landlæknir dvelst í vetur í Kaupmannahöfn og vinnur þar að verkefnum fyrir Alþjóða heilbrigðismálastofnunina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.