Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 10

Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 „Því ekki það? Það gKti verið gaman að prófa einn vetur, sagði ég við sjálfan mig, þegar Guðlaug- ur Rósinkranz kom að máii við mig fyrir rúmum þremur áratugum og bað mig að koma til íslands og kenna ísiendingum listdans. Þeir urðu víst fleiri en einn veturnir, enda fékk ég strax slíka ást á landi og þjóð og því undarlega verkefni sem mér var falið að vinna, að ég hrcinlega gat ekki slitið mig í burtu,“ rifjar hann upp maðurinn sem sumir segja að hafi kennt íslendingum að dansa, eða að minnsta kosti „komið okkur á sporið“ — Daninn og heimsborg- arinn Erik Bisted. Þegar List- dansskóli Þjóðleikhússins var stofnaður haustið 1952, var Bisted ' ráðinn til þess að móta skólann og allt hans starf. Um leið varð hann fyrsti ballettmeistari Þjóðleikhúss- ins oggegndi því embætti fram til 1960. A þessum árum samdi Bisted og færði upp í Þjóðleikhús- inu sex ballettsýningar, auk dansa í fjölmargar sýningar Þjóðleik- hússins. Síðan Bisted lét af emb- Ktti sem ballettmeistari Þjóðleik- hússins og fór á flakk um Evrópu, hefur hann margoft verið kallaður hingað heim ef mikið hefur legið við til að leikstýra verkum og stjórna dansatriðum. Og nú er hann sem sé kominn rétt enn einu sinni, í þetta skipti tii að liðsinna við uppfærslu á Kardemommu- bænum, sem Þjóðleikhúsið frum-j. sýnir á annan dag jóla. „Mér hlýnar alltaf um hjarta- rætur þegar ég kem inn í Þjóð- leikhúsið," segir Bisted, „bæði af því mér finnst eins og ég eigi svolítið í því, hafi lagt nokkra steina i það, en einnig vegna þess að þar ríkir sérstök kúlt- úrstemmning, sem ekki er víða að finna. Þjóðleikhúsið hefur sál,“ segir Bisted og horfir dreyminn á mögnuð málverkin í setustofunni á Hótel Holti, þar sem hann gistir, eins og hann sé að virða fyrir sér sjálfa hússál- ina í formi ljúfrar endurminn- ingar. — Um hvað ertu að hugsa, með leyfi? „Það er von þú spyrjir," segir hann og hrekkur upp úr leiðsl- unni. „Eg var að hugsa um fyrstu sýninguna okkar, „Ég bið að heilsa“, sem var flutt árið 1953 og voru dansar við tónlist eftir Karl. O. Runólfsson. Það var auðvitað ekki „prófessional" sýning en hún gekk ótrúlega vel. Samt ert mér minnisstæðast frá þessari sýningu vandræðin með skóna. Á þessum tíma voru ekki til ballettskór á íslandi og það þurfti að sérsauma skó fyrir dansarana á saumastofu Þjóð- leikhússins. Ég hef aldrei lent í öðru eins.“ — Það hefur sjálfsagt skort margan nauðsynjahlutinn á þessum fyrstu árum? „Maður lifandi! Það var ekk- ert til af neinu tagi. Ékki bún- ingar eða æfingaskór, og það sem verst var, það var engin að- staða til æfinga. Það tók þrjú ár að koma upp sæmilegu sviði í kjallaranum. En þetta blessaðist allt og gekk ljómandi vel, enda var enginn skortur á því sem öllu máli skiptir: duglegu og hæfileikaríku fólki. Áf því var nóg.“ — Helgi Tómasson meðal annars. Þú ert eiginlega guðfað- ir hans í dansinum, er það ekki? „Það má kannski segja það. Helgi var einn af þeim 250 sem við tókum inn til prufu fyrsta starfsárið, þá aðeins smástrákur 8—9 ára gamall. Hann hafði strax mikinn áhuga og virtist hafa allt til að bera til að geta orðið góður dansari, hafði góða fætur og var sérlega músíkalsk- ur. Helgi æfði næstu árin alger- lega undir minni stjórn, ýmist í Þjóðleikhúsinu eða í Tívolíleik- húsinu í Kaupmannahöfn, þar sem ég var ballettmeistari yfir sumartímann. Helgi tók fljótt gífurlegum framförum og ég gerði mér grein fyrir því að hann ætti eftir að ná langt. Þjóðleíkhúsíö hefur sál Rætt við Erik Bisted fyrrum ballettmeistara Þjóðleikhússins Erík Bisted á Rfingii Þjóðleikhússins i KardimommubKnum. MorgunblaðiA/Bjarni — Víkjum að öðru, Bisted. Hvað hefurðu haft fyrir stafni frá því að þú lést af störfum sem ballettmeistari Þjóðleikhússins? „Það hefur verið mjög mikið að gera hjá mér, yfir vetrartím- ann hef ég flakkað á milli borga i Evrópu og fært upp verk, en á sumrin hef ég starfað sem ball- ettmeistari í Tívólíleikhúsinu í Kaupmannahöfn. Ég lét þar af störfum í fyrra, og í sumar hef ég haft það náðugt í íbúð minni á Spáni. Þetta var í fyrsta skipti í 52 ár sem ég hef tekið mér frí.“ —Hvar stendur listdansinn hæst í Evrópu um þessar mund- ir? „Þetta er erfið spurning. Það eru mjög góðir dansarar í Lond- on og Parísaróperan er góð, og Danir eru ennþá nokkuð fram- arlega, en eru þó á niðurleið." — En íslenskur ballett, hvern- ig líst þér á hann? „Það eru tvö stór vandamál sem hrjá íslenskan listdans, það vantar drengi og peninga. Ein- hverra hluta vegna hafa íslensk- ir drengir lítinn áhuga á list- dansi, þeim finnst kannski að þetta sé kvennalist fyrst og fremst. Og ef peningar eru af skornum skammti er hætt við stöðnun, bæði verða sýningar of strjálar og það er ekki ráðist í að fá erlenda listamenn til að blása nýju lífi í dansinn. En það er nauðsynlegt, ekki bara á Islandi, hedur hvar sem er í heiminum. í Þjóðleikhúsinu er mjög gott listafólk, en það verður að styðja betur við bakið á því. Menn verða að athuga það, að Þjóð- leikhús er menningarstofnun sem hefur það hlutverk að varð- veita tungumálið og menning- una. Slíkt kostar peninga og það verða allir að taka þátt í þeim kostnaði." Hversu langt var ómögulegt að segja, það færi einfaldlega eftir því hve harður og ákveðinn hann yrði við sjálfan sig. Það verður enginn góður dansari án gífur- legs sjálfsaga. Einu atviki gleymi ég aldrei frá þessum árum. Helgi var þá 14 ára gamall, minnir mig, og það fór að renna upp sú stund að hann tæki endanlega ákvörðun um framtíð sína. Móðir hans var nokkuð tvístígandi, hún var mjög stolt af syni sínum, en hafði áhyggjur af því að hann gæti ekki unnið fyrir sér sem dansari. Eitt sinn kemur hún að máli við mig í Þjóðleikhúsinu og spyr mig ráða. Gæti drengurinn lifað af dansinum, eða ætti hann að snúa sér að einhverju hag- nýtu námi, læra einhverja iðn? Nei, nei nei, sagði ég, hafðu eng- ar áhyggjur, ég skal ábyrgjast drenginn. Hann verður mikill dansari. Auðvitað gat ég ekki séð fyrirfram að Helgi næði slíkum frama sem raun ber vitni, en mikið var ég stoltur þegar ég frétti hversu vel honum vegnaði í Bandaríkjunum, og feginn að hafa tekið svo afdrátt- arlausa afstöðu." — Það hefur mikið komið til tals undanfarið að Helgi gerðist ballettmeistari við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn, en nú liggur ljóst fyrir að af því verður ekki. „Því miður. Það hefði sannar- lega orðið gaman að fá Helga þar til starfa, ekki síst fyrir mig. En Helgi gat ekki sætt sig við æfingatímana, hann vildi æfa meira, en fyrir því var ekki hægt að fá samþykki. Ég held að það sé aðalástæðan fyrir því að svona fór, frekar en peninga- málin. Helgi er vanur miklum æfingum og ströngum aga og vill strarfa á þeim grundvelli." Ræningjarnir, Kasper, Jesper og Jónatan, leggja á ráðin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.