Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
+ Faöir minn, tengdafaöir og afi, HANNESHANNESSON, Kringlu, Grimsnesi, sem lóst á Borgarspitalanum föstudaglnn 14. desember, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 22. desember kl. 13.30. Bilferö veröur farin frá Laugarvatni kl. 11.00. Sigríöur Hannesdóttir, Sigurður Haraldsson, Hannes, María, Þórkatla, Þorbjörg, Helena.
t ERLENDUR ÓLAFSSON frá Kiöafelli (Kjós, Laugavegi 45, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. desember kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna. Berga Ólafsdóttir, Guörún Ólafsdóttir.
+ Innilegar þakkir faerum viö öllum þeim mörgu er sýndu okkur hlýhug og samúö viö andlát og jaröarför bróöur okkar, SIGMARS BENJAMÍNSSONAR, Mörk, Kópaskeri. Guö blessi ykkur öll. Guölaug Benjamínsdóttir, Ólaffa Benjamínsdóttir, Kristbjörn Benjamínsson.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, INGIBJARGAR JÖRUNDSDÓTTUR, Álfheimum 28. Gyöa Salomonsdóttir, Lilja Salomonsdóttir, Jóhann Mosdai Salomonsson, Jóhanna Sumarliöadóttir.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför ELMU BJARKAR GUOJÓNSDÓTTUR, Lokastfg 18, Reykjavfk. Helga Gfgja Jónsdóttir, Jesper Jörgensen, Gunnar Jónsson, Renata MUIIer, Guójón Sigurósson, systkini hinnar látnu og aörir vandamenn.
+ Innilegt þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, REBEKKU PÁLSDÓTTUR, Baejum, Snæfjallaströnd. Sérstakar þakkir til alls starfsfólk sjúkrahúss Isafjaröar. Óskar Jóhannesson, Lydfa Sigurlaugsdóttir, Páll Jóhannesson, Anna Magnúsdóttir, Rósa Jóhannesdóttir, Andrós Hjörleifsson, Ingi Jóhannesson, Gunnur Guómundsdóttir, Márfa Jóhannesdóttir, Sigurvin Guöbjartsson, Felix Jóhannesson, Guörún Stefánsdóttir, barnabðrn og barnabarnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför RÓSU FRIDJÓNSDÓTTUR, Engihjalla 9. Bjarni P. Jónasson, Friðjón Bjarnason, Inga Brynjólfsdóttir, Siguröur Bjarnason, Hilde Stoltz, Valgeir Bjarnason, Margrót Bjarnadóttir.
+ Alúöarþakkir fyrir samúö og vinsemd við andlát og jaröarför systur okkar, ÓLAFAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Litlu-Skógum, Stigahlió 20, Reykjavfk. Aöalsteinn Halldórsson. Emelfa Grönvold, Sigurþór Halldórsson, Jóhannes Halldórsson.
Ólöf Halldórs-
dóttir - Kveðja
Þegar ég lagði af stað í ársdvöl
mína til Bandaríkjanna í ágúst-
mánuði síðastliðnum datt mér
ekki í hug að ég væri að kveðja
öllu í hinsta sinn. En köllunin kom
þegar við áttum síst von á því,
jafn hress kona og hún var ætíð.
En nú er hún lögð af stað í hina
löngu ferð.
Olla hefur verið kringum mig
allt frá því ég fyrst man eftir mér
og reyndist okkur systkinunum
ómótstæðilega vel öll þau ár. Hún
var mjög vinsæl og bar hag allra
Minning:
Fædd 1. febrúar 1928
Dáin 8. desember 1984
Skarð hefur veirð höggvið í
gamlan vinahóp. Steina Bogga,
eins og hún var ætíð kölluð af
kunningjum sínum, lést í sjúkra-
húsi Húsavíkur 8. þessa mánaðar.
Hún var aðeins 56 ára gömul þeg-
ar hinn mannskæði sjúkdómur
krabbinn lagði hann að velli eftir
skamma sjúkdómslegu.
Steina Bogga var fædd á Upp-
sölum á Húsavík. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Árnína Jónsdóttir
og Valdemar Jósafatsson. Heimil-
ið á Uppsölum var mannmargt.
Árnína og Valdemar höfðu bæði
verið gift áður en misst maka sína
og áttu tvo syni hvort um sig þeg-
ar þau tóku saman. Þeim varð síð-
ar fjögurra barna auðið og var
Steinunn önnur í aldursröð þeirra.
Auk þess dvaldi á heimilinu til
dauðadags Hólmfríður móðir Árn-
ínu.
Á þeim árum sem Steina Bogga
var að alast upp voru götur á
Húsavík ekki búnar að fá nein
heiti né hús búin að fá númer.
Hvert hús bar sitt nafn sem menn
voru gjarnan kenndir við. Mikll
samgangur var milli nágrannanna
á þeim árum og samskipti mikil
við fjölskyldu í næstu húsum.
Þannig var það á milli Uppsala og
Steinholts. Húsfreyjurnar í þess-
um húsum voru miklar vinkonur
og fjölskyldurnar tengdust vin-
áttuböndum.
Á Uppsölum var öllum tekið vel
og Uppsalir einhvern veginn
drógu börnin tíl sín. Þar var svo
gott að leika sér, ekki einungis
innan húss heldur líka á lóðinni
þar í kring. Leikir þessir urðu oft
háværir, ekki síst síðla sumars á
kvöldin þegar götuljósið við Upp-
sali lýsti upp leiksvæðið. En þó oft
væri hávaðasamt í leikjum okkar
við Uppsali var aldrei stuggað við
neinum.
Uppsalasystur urðu nánar vin-
konur systranna í Steinholti. Þær
léku sér saman daginn út og inn
með dúkkur sínar og svo voru
hannyrðirnar stundaðar af kappi.
Seinna kom samvinnan í beit-
ingaskúrnum.
Þetta kemur upp í hugann þegar
látinn vinur kveður. Þá rifjast svo
margt upp frá liðnum tíma. En
það bregður um leið ljósi á þá
æsku sem viðkomandi átti, bregð-
ur Ijósi á það ástríki sem ríkti og á
þann skilning sem sýndur var
ungum börnum sem sóttu fram til
þroska. í þessum glaða systkina-
og vinahópi ólst Steina Bogga upp.
Hún bar það alla tíð með sér og
það endurspeglaðist í hjálpsemi
hennar og fórnfýsi í félagsstörf-
um.
Þegar Steina var á tólfta ald-
ursári varð hún fyrir þeirri
þungbæru reynslu að missa móður
sína. Þá hvíldi skuggi yfir Uppsöl-
um. En Valdemar hélt hópnum
saman án þess að æðrast. Hann
var nú orðinn ekkjumaður í annað
fyrir brjósti. Hún lét sig aldrei
vanta í fjölskylduboð og var jafn
vinsæl meðal hinna yngri sem
eldri. — Oft gegndi hún ömmu-
hlutverkinu, enda var hún ein-
staklega blíð og góð kona, skapgóð
og brosleit.
Við höfum misst mikið. Enginn
er fær um að taka við hennar hlut-
verki, en minningin um Ollu lifir í
huga okkar og hjarta alla tíð og
svo frábær var hún að við getum
öll tekið hana okkur til fyrirmynd-
ar.
sinn. Nú var það Hólmfríður
amma sem kom til sögunnar og
það reyndi að sjálfsögðu mikið á
eldri systurnar að hjálpa ömmu
sinni við heimilishaldið.
Eftir nám í unglingaskóla fór
Steina Bogga að vinna fyrir sér.
Að lokum vil ég votta ættingj-
um hennar og vinum dýpstu sam-
úð.
Ólafur Steinarsson,
Tracy, Minnesota.
En hún tók jafnframt mikinn þátt
í félagsstörfum. Hún var af lífi og
sál þátttakandi í starfi íþróttafé-
lagsins Völsungs og var ein af
vöskust handboltastúlkum félags-
ins. En þegar árin liðu var það
Leikfélag Húsvíkur sem átti hug
hennar allan. I störf fyrir það fé-
lag fóru flestar frístundirnar þó
Slysavarnafélagið nyti einnig
starfskrafa hennar. Þau urðu
mörg handtökin og hlutverkin sem
Steina Bogga skilaði i leiklistarlífi
á Húsavík. Stóran þátt átti hún í
velgengni þess félags.
Steina dvaldi öll sín ár á Húsa-
vík utan tvo vetur sem hún var í
Reykjavík. í Húsavík starfaði hún
lengst af hjá Kaupfélagi Þingey-
inga. Hún var mjög traustur
starfsmaður, samviskusöm og
dugleg. Hún hafði, eins og sú
kynslóð sem hún ólst upp með,
vanist því að skila sínu starfi og
lét ekki á sig halla í þeim efnum.
Eins og margir frændur hennar
var hún listhneigð og hafði yndi af
góðum bókum og fagurri músík.
Hún hafði búið eftirlifandi manni
sínum Jóni Bernharðssyni mjög
notalegt heimili að Sólbrekku 10.
Við systkinin sendum Jóni og
systkinum Steinu okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Við
brotthvarf hennar nú, svo langt
um aldur fram, þökkum við alla
glaðværðina frá liðnum dögum og
óbrotgjarna vináttu gegnum árin.
Systkinin frá Steinholti.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Synd og ábyrgð
Ef Guð er réttlátur, fæ ég ekki skilið, hvers vegna hann refsar
öllu mannkyni fyrir syndina, sem Adam og Eva drýgðu.
Hvernig datt yður í hug, að verið væri að refsa okkur
fyrir synd Adams og Evu? Nú segir Biblían að vísu um
Guð: „Eg er drottinn Guð þinn ... sem vitja misgjörða
feðranna á börnunum, já, í þriðja og fjórða lið.“ En hér
er átt við syndir og syndaeðli, sem hefur fjötrað okkur
um allar kynslóðir.
Biblían kennir, að hver og einn sé ábyrgur vegna
sinna eigin synda og að við séum ekki ábyrg vegna
synda annarra. Adam og Eva syndguðu og voru rekin
úr Eden. En Biblían segir, að við höfum öll syndgað.
„Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.“ Guð vildi,
að við lifðum öll í dásamlegu samfélagi við sig, en það
er syndin, sem hefur rofið þetta samfélag — núna eins
og í Eden.
Ennfremur er þess að geta, að Guð hefur gert ráð-
stafanir vegna syndarinnar, sem hefur komið í veg
fyrir, að manninum færi fram í rás aldanna. Kristi var
fórnfært til þess að hann skyldi bera syndir margra,
segir Biblían. Hún segir líka, að hann hafi verið særð-
ur vegna misgjörða okkar. Hann er ekki aðeins réttlát-
ur. Hann er miskunnsamur og kærleiksríkur við
okkur. Það var kærleikur hans sem knúði hann til að
senda einkason sinn til að bera í burtu syndir heims-
ins.
Við köllum sjálf dóm yfir okkur með syndum okkar,
eins og Adam og Eva. En Biblían segir, að við hryggj-
um Guð í hvert skipti, sem við brjótum boðorð hans.
Hann reynir sífellt að leiða okkur til samfélags við sig
að nýju.
Steinunn Sigurborg
Váldemarsdóttir