Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 96
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTfíÆTI. SÍMI 11633
SIWEST iAnsiraiist
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Evrópubandalagið afnemur tollfrelsi á saltfiski og skreið:
Gefumst ekki upp í bar-
áttunni fyrir tollfrelsi
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Litlu
jólin á
Landakoti
Nú er tími litlu jólanna. í
gær voru þau haldin á barna-
deild Landakotsspítala og
þar tók Friðþjófur þessa
mynd.
4DAGAR
TIL JÓLA
- segir Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra
Sjávarútvegsráðheiranefnd ráð-
herraráðs Evrópubandalagsins sam-
þykkti í Brussel í gær að afnema
tollfrelsi á innfluttum þorskafurðum
til aðildarlanda bandalagsins frá og
með 1. júlí næstkomandi. Getur
þetta haft í for með sér 13 til 20%
tolla á þessar afurðir, þar með talið
á skreið og saltfisk. Islendingar
Opinber gjöld 1985:
Fyrirfram-
greiðsla 57 %
FYRIRFRAMGREIÐSLA opinberra
gjalda á komandi ári hefur verið
ákveðin 57% af álögðum gjöldum
þessa árs með þeim fyrirvara, að
frumvörp þau er liggja fyrir Alþingi
og varða skattaálögur og fjárlög
verði samþykkt. Á þessu ári nam
fyrirframgreiðslan 63%.
Að sögn Árna Kolbeinssonar,
skrifstofustjóra fjármálaráðu-
neytisins, er miðað við að fyrir-
framgreiðslan verði 11,4% í hvert
sinn, í fyrsta sinn 1. febrúar og
síðan mánaðarlega til og með 1.
júní, eins og venja er og því sam-
tals 57%. af álögðum gjöldum í ár.
Janúarmánuður og júlímánuður
eru skattiausir.
Söluskatt-
ur hækkar
um 0,5 %
Á fundi efri deildar Alþingis, í
gærkvöldi var frumvarp fjármála-
ráðherra um 0,5% hækkun á sölu-
skatti samþykkt sem lög.
Allir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar greiddu atkvæði á
móti. Eyjólfur Konráð Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, formaður fjár-
hags- og viðskiptanefndar deild-
arinnar sat hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Sjá nánar þingfréttir, bls. 52—53.
Geymsla kjarnorkuvopna á íslandi:
Heimild á ófriðartímum
hefur ekki verið veitt
- segir utanríkisráðuneytið um svar Bandarfkjastjórnar
„SÉRHVER heimild til Bandaríkjahers til þess aó flytja kjarnavopn til
íslands mundi aðeins vera veitt að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnar-
innar,“ segir í bréfi bandaríska sendiráðsins í Reykjavík til Geirs Hall-
grímssonar, utanríkisráðherra. í bréfinu er sendiráðið að svara fyrirspurn
utanríkisráðherra, er hann bar fram eftir viðræður við William Arkin, banda-
rískan vígbúnaðarsérfræðing, 5. desember síðastliðinn. í fréttatilkynningu
utanr/kisráðuneytisins segir, að samkvæmt bréfi sendiráðsins sé Ijóst að
heimild til geymslu kjarnavopna á fslandi á ófriðartímum hafi ekki verið
veitt.
William Arkin sagðist 1980 hafa
staðgóðar heimildir fyrir því að
kjarnorkuvopn væru á fslandi og
dró það svo til baka er hann dvald-
ist hér í fyrstu viku þessa mánað-
ar, en sagðist þá hafa staðgóðar
heimildir fyrir því að fyrir lægi
skjal er sýndi að 1975 hefði Gerald
Ford, Bandaríkjaforseti, heimilað
bandaríska flotanum að flytja
hingað 48 djúpsprengjur með
kjarnahleðslum á stríðstímum. Er
hér um að ræða prentaðan lista
með nöfnum ýmissa ríkja og skýr-
ingum. Listinn er trúnaðarskjal
og sagðist Arkin hafa fengið hann
hjá bandarískum embættismanni.
Listinn hefur ekki fengist birtur.
f bréfi bandaríska sendiráðsins
sem dagsett er 17. desember segir,
að það hafi um langt árabil „verið
fastmótuð stefna Atlantshafs-
bandalagsins og Bandaríkjanna að
játa hvorki né neita heimildar-
gildi skjala sem sögð eru trúnað-
arskjöl Bandaríkjanna eða banda-
lagsins."
f bréfi sendiráðsins er ítrekað
RonriíiríWÍn bof! í stinn m/ öllll
farið eftir og muni halda áfram að
fara eftir ákvæðum varnarsamn-
ingsins við ísland frá 1951 og sam-
þykkt Atlantshafsbandalagsins
varðandi staðsetningu kjarna-
vopna sem áskilja að sérhver
heimild til Bandaríkjahers til þess
að flytja kjarnavopn til Islands
mundi aðeins vera veitt að fengnu
samþykki íslensku ríkisstjórnar-
innar. Loks er vísað til hins gagn-
kvæma skilnings milli ríkis-
stjórna fslands og Bandaríkjanna
varðandi kjarnavopn, sem fram
kom í ágúst 1980.
Sjá nánar á miðopnu.
fluttu á síðasta ári 13.200 lestir þess-
ara afurða út til aðildarlanda banda-
lagsins og 33.100 lestir af saltfiski til
Spánar og Portúgals, sem hyggjast
ganga í bandalagið 1. janúar 1986.
Ljóst þykir, að tollar sem þessir
muni hækka afurðaverð í viðkom-
andi löndum og hætta er talin á sam-
drætti útflutnings þangað vegna
þess.
Matthías Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra, sagði vegna þessa
í samtali við blm. Morgunblaðsins,
að þetta væri ekki aðeins hags-
munamál okkar og Norðmanna,
heldur einnig Portúgala og Spán-
verja því að sjálfsögðu yrði þessi
eftirsótta vara í þeim löndum
töluvert dýrari en ella. Hann væri
því þeirrar skoðunar, að þessar
þjóðir myndu stuðla að því, að á
samþykkt þessari yrði með einum
eða öðrum hætti breyting.
Hann hefði vonazt til þess, að
mál þetta yrði ekki afgreitt á þess-
um fundi sjávarútvegsráðherra-
nefndarinnar og sömu sögu hefði
verið að segja um álit viðskipta-
ráðherra Noregs. Hann hefði því
orðið fyrir verulegum vonbrigðum
með þessa ákvörðun, en við mynd-
um að sjálfsögðu ekkert gefast
upp í þessu máli og myndum
áfram fylgja eftir óskum okkar í
sambandi við áframhald tollfrels-
is á þessum afurðum.
Sjá á bls. 4 frétt frá Önnu
Bjarnadóttur, fréttaritara
Morgunblaðsins í Brussel.
Mynd Muggs
var eyðilögð
TEIKNINGIN eftir Mugg, sem stolið var af yfirlitssýningu í Listasafni
alþýðu sl. föstudag, hefur verið eyðilögð. 1‘jófurinn, Reykvíkingur á þrítugs-
aldri, reyndi fyrst aó koma myndinni í verð en þegar það tókst ekki segist
hann hafa rifið hana í smátt og fleygt, skv. upplýsingum Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gærkvöld.
Þjófurinn var sá hinn sami og
rannsóknarlögreglan hafði grunað
frá upphafi en við yfirheyrslur á
mánudag bar hann af sér allar
sakir og var honum þá sleppt.
Rannsókn málsins var haldið
áfram og í fyrrakvöld skýrði mað-
ur nokkur RLR frá því, að hinn
grunaöi hefði boðið sér myndina
fala. Hann hefði hafnað því. Var
sá grunaði handtekinn aftur í
gærmorgun og játaði hann síðdeg-
is að hafa stolið myndinni og eyði-
lagt hana. Honum var sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Mjög erfitt er að meta verðgildi
myndarinnar, sem Muggur (Guð-
mundur Thorsteinsson) teiknaði
af sofandi barni árið 1913 — gildi
hennar var ekki síst tilfinninga-
legt fyrir eigandann, sem myndin
var af.