Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
253. tbl. 71. árg._________________________________FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Noregur:
Síldarmjöl orðið
helsta heilsufæðið
Osló, 20. desember. Krá Jan Erik Laure, fréliaritara Mbl.
SÍLDARMJÖL er á fjórum eða
fimm dögum orðið það heilsufæði
sem enginn Norðmaður getur verið
án. Á tæplega viku hafa yfir tíu tonn
af fiskmjöli selst í norskum mat-
vörubúðum. Gn aðeins þrjú tonn
seldust allt árið í fyrra.
Það sem talið er að valdið hafi
þessari ótrúlegu söluaukningu er
grein sem birtist í vikublaði einu
fyrir nokkru, þar sem rætt er um
hversu heilsusamlegt sé að eta
fiskmjöl.
— Og meira þurfti ekki til að
allir vildu mjölið eta, annaðhvort
til að halda heilsunni eða bæta
hana, segir Helge Möller hjá fisk-
mjölsverksmiðjunni Norsildmel í
Bergen.
Fiskmjöl er afurð sem engrar
athygli hefur notið í Noregi, segir
Helge Möller enn fremur. Allar
tilraunir sýna þó, að eggjahvítu-
efnin, steinefnin og vitamínin í
fiskmeltunni hafa fyrirbyggjandi
áhrif á fjölda algengra sjúkdóma.
Og nú leikur Norsildmel og
fleiri mjölverksmiðjum í Noregi
hugur á að vita, hvort síldarmjöl
muni héðan í frá bætast við dag-
lega fæðu fólks sem heilsusamleg-
ur viðauki eða hvort hér hefur
einungis flogið hjá ein af dægur-
flugum hollustuheimspekinnar.
Brezka kolaverkfallið:
Vinna hafin í tveim-
Nytum meira öryggis ef
við hefðum geimvopnin
— segir Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna
Wa.shington, 20. des. AP.
BANDARÍKIN og bandalagsríki þeirra nytu meira öryggis, ef þau réðu yfir
geimvopnum þeim, sem Reagan forseti hefur lagt til, að smíðuð verði í stað
þess að byggja á hótuninni um stórfellda gagnárás með kjarnorkuvopnum
gegn árás af hálfu Sovétríkjanna. Kom þetta fram í ræðu, sem Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, flutti í dag.
Weinberger gerði lítið úr kjarn-
orkuvopnahótuninni og lýsti henni
sem „úreltri herfræðikenningu".
Með henni hefði ekki tekizt að
koma í veg fyrir vígbúnað Sovét-
ríkjanna né að hindra brot þeirra
á fyrri samningum um takmark-
anir á því sviði.
Með því að reiða sig eingöngu á
eldflaugar og sprengjuflugvélar til
þess að svara kjarnorkuárás „er-
um við neydd til þess í framtíðinni
að byggja öryggi okkar eingöngu á
hótuninni um að hefna okkar, ef
ráðizt verður á okkur,“ sagði
Weinberger. „Öryggi okkar og
bandamanna okkar ætti að byggj-
ast á einhverju öðru og meira en
gagnkvæmri ógnun."
Herfræðiáætlun Reagans, sem
Weinberger
kennd hefur verið við „stjörnu-
stríð“, gerir ráð fyrir umfangs-
miklum rannsóknum og fram-
leiðslu á varnarvopnum eins og
„laser“-geislavopnum, sem komið
yrði fyrir úti í geimnum til þess að
skjóta niður kjarnorkuflaugar
Sovétmanna.
Mikhail Gorbachev, sem nú er í
opinberri heimsókn í Lundúnum,
en talinn er annar valdamesti
maður Sovétríkjanna, hefur gefið
í skyn, að í stað þess að fara að
dæmi Bandaríkjanna um að koma
á fót geimvopnakerfi, þá muni
Sovétríkin finna leiðir til þess að
brjótast í gegnum hvaða varnar-
kerfi, sem Bandaríkjamenn kunni
að koma á fót. Lét Gorbachev um-
mæli falla þar að lútandi, er hann
ræddi við leiðtoga brezku stjórn-
arandstöðunnar i gær.
Flugfar-
gjöld lækka
hjáBA
Washington, 20. des. AP.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnti brezka flugfélaginu
British Airways í dag, að það myndi
ekki hindra fyrirhugaða fargjalda-
lækkun félagsins um 35% á flug-
leiðinni milli New York og London.
Með þessu er leiðin rudd fyrir eina
umdeildustu fargjaldalækkun sög-
unnar á sviði flugsins.
Brezka stjórnin haföi komið í
veg fyrir þessa fargjaldalækkun í
október sl., þar sem henni þótti
skorta tryggingar fyrir því, að
bandarísk stjórnvöld yrðu ekki
til þess að lögsækja brezk flug-
félög fyrir lögbrot af þessum sök-
um, þar sem nokkrar líkur voru
taldar á því, að þessi fargjalda-
lækkun yrði talin brot á banda-
rískum lögum gegn hringamynd-
un.
Eftir þessa lækkun verða Ap-
ex-fargjöld British Airways á
flugleiðinni London—New York
378 dollarar á virkum dögum en
428 dollarar um helgar. Nú nema
þessi sömu fargjöld 579 dollurum
á virkum dögum og 619 dollurum
um helgar.
ur námum í Yorkshire
Mansfield. 20. de». AP.
Eindrœgni á yfirborðinu
Mynd þessi sýnir þá Moammar Khadafy, Líbýuleiðtoga, Felipe Gonzales,
forsætisráðherra Spánar og Bruno Kreisky fyrrum kanslara, eftir fund þeirra
f borginni Palma á Mallorca. Síðar kom Khadafy öllum á óvart með því að
kalla ' tær af borgutn Spánverja í Afríku „arabískar borgir".
Spánn afsali sér
löndum í Afríku
Framkvæmdaráð námaverka-
manna í Nottinghamshire samþykkti
í atkvæðagreiðslu í dag að segja skil-
ið við Landssamband námaverka-
manna í Bretlandi (NUM). Nær úr-
sögn þessi til um 90.000 verka-
manna. NUM hafði kraflzt dóms-
úrskurðar um, að úrsögn af þessu
tagi væri ólögleg, en niðurstaða rétt-
arins var á þann veg, að svo væri
ekki. Andstaða við verkfall kola-
námamanna í Bretlandi hefur verið
mest í Nottinghamshire. Hafa um
90% námamanna þar virt verkfallið
að vettugi og haldið áfram að vinna.
Ray Chadburn, forseti sam-
bands námaverkamanna í Nott-
inghamshire, sagði í dag, að þessi
ákvörðun hefði verið tekin af ótta
við að iandssambandið myndi
beita þá menn viðurlögum, sem
ekki vildu taka þátt í kolaverkfall-
inu.
1 Yorkshire, þar sem verkfallið
hefur notið órskoraðs stuðnings
kolanámamanna til þessa, hófst
vinna aftur í dag við enn eina
kolanámuna. í þessu héraði hafði
öll vinna legið niðri í kolanámun-
um þar til í gær, að byrjað var að
vinna við eina þeirra, þá fyrstu í
héraðinu frá því að kolaverkfallið
hófst fyrir 9 mánuðum.
Madríd. 20. des. AP.
MOAMMAR Khadafy, leiðtogi Lí-
býu, kallaði tvær af borgum Spán-
verja i Norður-Afríku „arabískar
borgir" á fundi með fréttamönnum á
Mallorra í dag. Var þar um að ræða
borgirnar Cæuta og Melilla, sem Mar-
okkómenn hafa gert tilkall til um
skeið. Spænska stjórnin mótmælti
þessum ummælum Khadafys harð-
lega í dag með yflrlýsingu, þar sem
sagði: „Þessar borgir eru spánskar og
því verður ekki haggað."
Khadafy sagði, að við innlimun
Ceuta og Melilla í Marokkó „ætti
ekki að þurfa að beita valdi“. Gerð-
ist það eftir fund hans og Felipe
Conzalez, forsætisráðherra Spánar,
og Bruno Kreisky, fyrrum kanslara
Austurríkis. Fundur þessi fór fram
á Mallorca og voru málefni Norð-
ur-Afríku þar til umræðu og þá
einkum bandalag Marokkó og Líb-
ýu, sem undirritað var í ágúst sl.
Jólabónusi rænt
Mancbester, 20. desember. AP.
TVEIR MENN vopnaðir skammbyssum rændu öryggisvagn í úthverfl
Manchester og komust undan með 480 þúsund sterlingspunda jólabón-
us, eða jafnvirði tæpra 25 milljóna króna.
Ræningjarnir óku bíl sínum Námu þeir um 40 peningatöskur
aftan á peningaflutningabifreið- á brott með sér. Engum skotum
ina svo hún hafnaði utan vegar. var hleypt af í ráninu og engin
Tókst þeim að yfirbuga verðina slys urðu á mönnum.
tvo og binda á höndum og fótum.