Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
Nýr bankastjóri
í Seðlabankann
BANKARAÐ Seðlabankans mun
vKntanlega í dag gera tillögu til
bankamálaráðherra um eftirmann
(•uðmundar Hjartarsonar, Seðla-
bankastjóra, sem lætur af störfum
nú um áramótin. Samkvæmt upplýs-
ingum Mbl. hefur það verið rætt í
ríkisstjórnarflokkunum, að Tómas
Árnason, alþingismaður og fráfar-
andi forstjóri Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins, taki við af Guðmundi
Hjartarsyni. Stjórn Framkvæmda-
stofnunar ríkisins samþykkti á fundi
sínum í gærmorgun, að leggja til við
ríkisstjórnina að Gunnlaugur M.
Sigmundsson, 36 ára deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu, verði forstjóri í
stað Tómasar frá og með 1. janúar
1985.
Blaðamaður Mbl. spurði Tómas
í gær hvað tæki við hjá honum er
hann léti af störfum í Fram-
kvæmdastofnun ríkisins. „Það er
óákveðið," svaraði Tómas, „en ég
er alþingismaður og það er ærið
starf út af fyrir sig.“
— Hvers vegna lætur þú af
störfum í Framkvæmdastofnun?
„Það er af sérstökum ástæðum.“
— Verður þú Seðlabankastjóri í
stað Guðmundar Hjartarsonar?
„Það veit enginn nema ráð-
herra, þú verður að spyrja ráð-
herra bankamála um það,“ sagði
Tómas Árnason.
Matthías Á. Mathiesen, banka-
mála- og viðskiptaráðherra, sagð-
ist hafa óskað eftir tillögum um
stöðu Seðlabankastjóra frá banka-
ráðinu. Fyrr en sú tillaga lægi
fyrir gæti hann ekkert sagt um
málið.
Kosið í bankaráð eft-
ir átök í flokkunum
SAMKOMULAG náðist milli stjórn-
arflokkanna um að bjóða fram sam-
eiginlega til kosninga í bankaráð
ríkisbankanna, sem stóð til að færi
fram á Alþingi seint í gærkvöldi. Áð-
ur hafði Alþýðuflokkur gert Sjálf-
stæðisflokki tilboð, sem hefði getað
orðið til þess að sjálfstæðismenn
fengju tvo menn í hvert hinna fjög-
urra bankaráða, en framsókn aðeins
einn í hvert þeirra. Samkomulag
stjórnarflokkanna byggist á því, að
framsókn fær tvo menn í bankaráð
Seðlabankans. Framsókn á aðeins
einn fulltrúa í hinum bankaráðun-
um, en Sjálfstæðisflokkur tvo í
hverju þeirra. Alþýðuflokkur fær
einn fulltrúa í þrjú bankaráð, önnur
en Seðlabankaráðið.
Eftir að ljóst varð, að Kvenna-
listi og Bandalag jafnaðarmanna
ætluðu að sitja hjá við kjör í
bankaráð komu alþýðuflokksmenn
að máli við forustumenn Sjálf-
stæðisflokks og gerðu þeim tilboð.
Vegna veikrar stöðu Alþýðu-
flokksins á þingi eiga þeir einir
sér ekki möguleika á neinum
manni í bankaráðin og bentu því
á, að með því fyrirkomulagi yrðu
alþýðubandalagsmenn með odda-
menn í öllum bankaráðunum, en
þeir eru öruggir einir sér með 10
þingmenn að baki að fá einn mann
í hvert ráðanna. Þegar sjálfstæð-
ismenn tóku jákvætt í tilboð Al-
þýðuflokksins tilkynntu alþýðu-
flokksmenn, að þeir hygðust ná
samkomulagi við Alþýðubanda-
lagið um að bjóða fram sameigin-
lega með þeim.
Fólitískt jafnvægi
Við ofangreinda stöðu var
stjórnarandstaðan komin með 16
manna lista, Sjálfstæðisflokkur á
22 þingmenn en framsókn aðeins
14. Ef Sjálfstæðisflokkur hefði
staðið einn að kosningunum hefði
MorgunblaSið/Ól.K.M.
Forsetaskipti
í borgarstjórn
hann með þessu móti getað náð
tveimur mönnum í hvert banka-
ráðanna, en framsókn aðeins ein-
um. Stjórnarandstaðan hefði verið
örugg um tvo í hvert ráð, þá vænt-
anlega einn frá hvorum flokki.
Framsóknarmenn lögðu við þessi
tíðindi mjög mikla áherslu á að
bjóða fram sameiginlega með
sjálfstæðismönnum og höfðuðu
m.a. til stjórnarsamstarfsins og
að því gæti orðið hætt, ef ekki
næðist samstaða.
Samkomulag náðist í máli þessu
í gær á þá lund, sem að ofan grein-
ir. Sjálfstæðismenn gerðu kröfu
um, að Alþýðuflokkurinn fengi
einn mann í hvert bankaráð, nema
Seðlabankann, og að framsókn
fengi þess í stað tvo menn í Seöla-
bankaráð. Samkvæmt heimildum
Mbl. telja sjálfstæðismenn að með
þessu sé dágott pólitískt jafnvægi
í bankaráðum viðskiptabankanna
og að bankaráð Seðlabankans
skipti ekki sköpum, því þeirra
maður í stóli viðskiptaráðherra sé
þar allsráðandi. Viðskiptaráð-
herra skipar til dæmis banka-
stjóra Seðlabankans, sem banka-
ráðin gera aftur á móti í við-
skiptabönkunum.
Samkomulag náöist einnig milli
stjórnarflokkanna um að fram-
sókn fái formennsku í bankaráði
Búnaðarbankans, en sjálfstæð-
ismenn í hinum ráðunum þremur.
Af breytingum flokkanna, sem
Mbl. náði fréttum af seint í
gærkvöldi, áður en til kosninga
kom, má nefna, að Ingi R. Helga-
son hættir setu í bankaráði Seðla-
bankans fyrir Alþýðubandalagið.
Við stöðu hans tekur Þröstur
Ólafsson. Halldór Blöndal Sjálf-
stæðisflokki tekur sæti í Búnaðar-
banka fyrir séra Gunnar Gíslason.
Valdimar Indriðason og Kristmar
Karlsson tekur sæti Alberts Guð-
mundssonar og Guðmundar
Karlssonar í Útvegsbanka.
FUNDUR borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær var síðasti fundurinn
sem Markús Örn Antonsson stýrði
sem forseti borgarstjórnar, en
hann tekur sem kunnugt er við
starfl útvarpsstjóra um næstu ára-
móL Páll Gíslason læknir tekur þá
við embætti forseta borgarstjórn-
ar, en hann hefur verið borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins um
langt árabil og gegnt margvísleg-
um trúnaðarstörfum innan flokks-
ins og utan.
Markús Örn Antonsson hefur
verið borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík síðan árið
1970 og tók hann við embætti
forseta borgarstjórnar vorið
1983, er Albert Guðmundsson,
þáverandi forseti borgarstjórnar
tók við embætti fjármálaráð-
herra í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar. Meðfylgjandi
mynd tók ljósmyndari Morgun-
blaðsins, Ólafur K. Magnússon,
af Páli Gislasyni og Markúsi
Erni Antonssyni á borgarstjórn-
arfundinum í gær.
Listasafn alþýðu:
Matsmenn
meta teikn-
ingu Muggs
SÉRFRÓÐIR matsmenn verða
kvaddir til að meta verðgildi teikn-
ingarinnar eftir Mugg, sem stolið
var af yflrlitssýningu í Listasafni al-
þýðu fyrir réttri viku og síðan eyði-
lögð, að því er Þorsteinn Jónsson,
forstöðumaður safnsins, sagði í sam-
tali við blaðamann Mbl. í gær. „Ég
geri mér vonir um að matsmennirnir
tveir Ijúki verki sínu strax eftir ára-
mótin,“ sagði Þorsteinn.
Ein heildartrygging náði yfir
allar myndir á sýningunni en eins
og oft er á slíkum sýningum hafði
ekki verið sett ákveðið verðmæti á
hverja einstaka mynd. „Nokkrar
myndir eru tryggðar fyrir
ákveðna upphæð, nefnilega þá,
sem eigendur hafa gefið upp sem
verðmæti," sagði Þorsteinn. „Mat-
ið á teikningunni verður miðað við
það verð, sem við þekkjum. Til að
geta metið þessa einstöku mynd
verður að meta allar myndirnar á
sýningunni. Myndir Muggs hafa
lítið verið hér á markaði en þegar
það hefur gerst að undanförnu
hafa þær verið seldar fyrir mjög
hátt verð.“
Þorsteinn Jónsson sagði að í
framhaldi af þjófnaðinum hefðu í
stjórn safnsins farið fram ítarleg-
ar umræður um varúðarráðstaf-
anir, svo slíkir hörmungaratburð-
ir endurtækju sig ekki. „Það verða
örugglega gripið til einhverra ráð-
stafana af okkar hálfu, bæði hér í
safninu og á þeim vinnustaða-
sýningum, sem við höfum staðið
fyrir,“ sagði hann.
Fjárfestingafélag íslands:
Stofnar fyrsta verð-
bréfasjóð á íslandi
Fjárfestingafélag íslands hf. hefur
ákveóið að beita sér fyrir stofnun
verðbréfasjóðs, sem er hinn fyrsti
sinnar tegundar á íslandi. Hliðstæð-
ir sjóðir hafa verið starfræktir um
árabil í Bandaríkjunum, á Bretlandi
og í Danmörku og nefnast þar
„Mutual Funds“, „Unit Trusts" og
„Investerings Foreninger". Tilgang-
ur verðbréfasjóðsins er að safna
áskriftum og framlögum með útgáfu
hluta- og skuldabréfa. Andvirði
þeirra verður ávaxtað með kaupum á
verðbréfum.
Fjárfestingafélagið hefur látið
hanna tölvuforrit, sem gerir kleift að
birta daglegan gengisútreikning á
verðbréfaeign sjóðsins. Hér fer á
eftir fréttatilkynning frá stjórn Fjár-
festingafélagsins um stofnun verð-
bréfasjóðsins:
Stjórn Fjárfestingafélags ís-
lands hf. hefur ákveðið að beita
sér fyrir stofnun fyrsta verðbréfa-
Hróplegt óréttlæti
fólgið í lífeyrismálum
— segir Guðjón A. Kristjánsson, en kröfur formanna voru lagðar fram í gær
Guðión A, Kristjánsson, formað-
FARMANNA- og flskmannasamband
íslands lagði í gær fram kröfur sínar
vegna fyrirliggjandi kjarasamninga.
Meginatriði í kröfum sambandsins
eru úrbætur í lífeyris- og trygginga-
málum, afnám kostnaðarhlutdeildar
utan skipta og tvöflilduM kauptrygg-
ingar og fastra launa á stórura togur-
um. Afnám kostnaðarhlutdeildarinnar
miðað við stöðuna 1976 þýðir um 9%
hækkun launa sjómanna.
Samningar allra félaga sjómanna,
bæði undirmanna og yfirmanna eru
lausir um áramót og flest aðildar-
félög Sjómannasambandsins hafa
ennfremur aflað sér verkfallsheim-
ildar, en kröfur þess eru mjög svip-
aðar kröfum FFÍ. Mörg aðildarfélög
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins hafa einnig aflað sér verk-
fallsheimildar eða eru að því um
þessar mundir. Þá má geta þess, að
nú stendur yfir allsherjar atkvæða-
greiðsla hjá Sjómannafélagi
Reykjavíkur um verkfallsheimild.
Stendur atkvæðagreiðslan til 7. jan-
úar næstkomandi.
11 ói
ur FFI, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hróplegt óréttlæti væri
fólgið í lífeyris- og tryggingamálum
sjómanna. Eins og staðan væri nú,
væru þess dæmi að mánaðarlegur
lífeyrir sjómanna væri aðeins 1.100
krónur. Leiðrétting þessara mála
væri því eitt af brýnustu verkefnun-
um auk þess, að fá aftur til baka
eðlilegan hlut þess fiskverðs, sem
tekið væri utan skipta. Þá væri
ennfremur nauðsyn hækkunar
tekjutryggingar og fastakaups.
sjóðsins á íslandi og mun stofnun
hans fara fram fyrir nk. áramót.
Sjóður þessi mun þjóna og vera
opinn almenningi, sem njóta mun
alls hagnaðar af starfsemi hans.
Tilgangur sjóðsins er að safna
áskriftum og framlögum með út-
gáfu hluta- og skuldabréfa, sem
fara mun fram fljótlega eftir ára-
mót. Fé sjóðsins mun verða ávaxt-
að eins vel og kostur er með kaup-
um á traustum og auðseljanlegum
verðbréfum á hinum frjáísa mark-
aði.
Mikilvægur þáttur í starfsem-
inni verður áhættudreifing, sem
felst í því að valin eru saman verð-
bréf, sem dregið geta úr heildar-
áhættu sjóðsins, þannig að fjár-
festingum sjóðsins verður dreift á
mörg verðbréf (skuldara og trygg-
ingar).
Varsla sjóðsins verður í höndum
færustu sérfræðinga, sem munu
nýta sérþekkingu sína og yfirsýn
við innkaup og umsýslu fjármuna
sjóðsins.
Þess er vænst, að Fjárfestinga-
félagi íslands hf. verði falin umsjá
sjóðsins, en starfsmenn félagsins,
sem menntaðir eru í fjármálum í
N-Ameríku, hafa á undanförnum
árum kynnt sér rækilega starf-
semi hliðstæðra sjóða í Bandaríkj-
unum, á Bretlandi og í Danmörku,
þ.e. „Mutual Funds", „Unit-
Trusts" og „Investerings Foren-
inger", en félagið hefur jafnframt
á sl. 15 mánuðum látið hanna öfl-
ugt tölvuforrit, sem gerir fjárfest-
ingastjórnun verðbréfasjóða sem
markvissasta m.a. með daglegum
gengisútreikningi alls verðbréfa-
lagers sjóðsins.
Stjórn Fjárfestingafélags ís-
lands hf. telur, að með starfrækslu
sjóðs sem þessa, sé hægt að stuðla
að eftirfarandi þróun á fjár-
magnsmarkaðinum hér á landi:
1. Fjölga tegundum verðbréfa á
markaðinum, s.s. með nýjum,
traustum og auðskildum verð-
bréfum og gera þannig öllum
þorra landsmanna kleift að
stunda verðbréfaviðskipti.
Gengi útgefinna skuldabréfa
sjóðsins mun verða reiknað út
og birt reglulega.
2. Að hér geti komist á sem fyrst
regluleg skráning á verði hluta-
bréfa, sem er forsenda þess að
koma upp virkum hlutabréfa-
markaði hér á landi. Slíkur
hlutabréfamarkaður getur
opnað vænlegum atvinnunýj-
ungum framtíðarinnar leið inn
á fjármagnsmarkaðinn og
stuðlað þannig að bættum kjör-
um landsmanna.
Stjórn Fjárfestingafélags ís-
lands hf. væntir þess, að stofnun
þessa verðbréfasjóðs geti stuðlað
að nauðsynlegum breytingum á
skattalögum og lagaákvæðum og
ákvörðunum um vexti, svo að
verðbréfamarkaðurinn geti þjónað
atvinnulífinu með hliðsjón af
þeirri nýsköpun atvinnulífsins,
sem nauðsynleg er á næstu árum.
Þess er vænst, að umræddur
verðbréfasjóður nái því á árinu
1985 að uppfylla skilyrði ríkis-
skattstjóra um frádráttarbærni
hlutabréfakaupa frá skattskyldum
tekjum manna.
Reykjavík, 20. desember, 1984,
Stjórn Fjárfestingafélags fsl. hf.
Karl vann
KARL Þorsteins vann skák sína í
fyrstu umferð Evrópumóts ungling*
í skák í Groningen í Hoilandi í g*r.
Karl hafði hvítt gegn Freddy Berent
frá Luxemborg og vann skákina í 4°
leikjum. Karl er stigahæstur 32
keppenda, en nokkrir skákmenn eru
aðeins 10—20 stigum lægri en hann.