Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 5

Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 5 Borgey hf. Hornafírði: Skráð hlutafé 72.000 kr. Kaupir togara á 90 millj. HINN 1. janúar 1985 tekur Bolli l»ór Bollason hagrræðingur við starfi að- stoðarforstjóra l>jóðhagsstofnunar af Hallgrími Snorrasyni, sem skipað- ur hefur verið hagstofustjóri. Bolli verður jafnframt forstöðumaður þjóðhagsspár og yfirlitsskýrslna l'jóðhagsstofnunar um þjóðarbú- skapinn. Bolli er fæddur 24. febrúar 1947. Hann lauk B.A.-prófi í hajífræði frá Manchester-háskóla árið 1971 og cand.polit.-prófi frá Kaup- mannahafnarháskóla árið 1975. Bolli starfaði við Þjóðhagsstofnun hluta úr ári hverju 1970—1974 en samfellt frá árslokum 1974. Þá verður Gamalíel Sveinsson viðskiptafræðingur forstöðumað- ur þjóðhagsreikninga og atvinnu- vegaskýrslna Þjóðhagsstofnunar frá næstu áramótum. Gamalíel er fæddur 18. desember 1946. Hann lauk cand.oecon-prófi frá Háskóla íslands árið 1971 og stundaði framhaldsnám í gerð þjóðhags- reikninga við Institute of Social Studies í Haag í Hollandi 1973—1974. Gamalíel hefur starf- að við Þjóðhagsstofnun frá 1971. HLUTAFÉLAGIÐ Borgey á Höfn í Hornafirði festi fyrir skömmu kaup á togaranum Erlingi GK 6 úr Garði. Kaupverð var 90 milljónir króna, en samkvæmt hlutafélaga- skrá er hlutafé Borgeyjar, sem er að 75% í eigu Kaupfélags Austur- Skaftfellinga, 72.000 krónur. Hef- ur togarinn nú verið skráður með heimahöfn á Höfn og ber nafnið Þóhallur Daníelsson SF 71. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Austur-Skaftfellinga er Her- mann Hansson og sagði hann það rangt í samtali við Morgun- blaðið, að hlutaféð væri 72.000 krónur. Hann vildi ekki gefa upp hlutfé félagsins, það kæmi Morgunblaðinu ekkert við, en það væri ekkert óeðlilegt við þessi skipakaup. Hins vegar vildi hann vildi ekki tjá sig um það hvernig kaupin væru fjármögn- uð, en sagði hlutfélagið byggt á gömlum merg og ætti það tals- vert eigið fé eða alls um 30 millj- ónir króna. Hlutafé starfandi hlutafélaga skipti ekki megin- máli, heldur eiginfjárstaða þeirra. Hermann sagði, að skipið væri keypt til að tryggja aukið og jafnt hráefnisstreymi til staðar- ins og tryggja þannig jafnari vinnu verkafólks í landi. Höfn F/ERT er víðast hvar um landið, samkvæmt upplýsingum er Mbl. fékk hjá Lórenz Rafn hjá Vegaeftir- litinu í gær. Þó er Breiðamerkur- sandur aðeins fær stórum bílum og jeppura austur um. En frá Hornafirði og um Austfirði er vel fært. Allri umferð er fært fyrir Hvalfjörð og um Borgarfjörð og út á Snæfellsnesið, en ófært fyrir Nesið um Fróðárheiði. Stórum bíl- um og jeppum er fært um Kerl- ingarskarð og vel búnum bílum um Heydal og þaðan í Búöardal og allt vestur í Reykhólasveit. Norður um Strandir og í Hólmavík er öllum fært, allar göt- ur til Akureyrar og þaðan með væri eitt fárra sjávarútvegs- byggðarlaga, sem ekki hefði átt togara síðustu ár, og það gæti varla talizt óeðlilegt, þó atvinna og hráefni væru tryggð með þessum hætti. ströndinni til Vopnafjarðar. Þá er fært á Siglufjörð og frá Akureyri á Ólafsfjörð. Hæstu fjallvegir, t.d. Möðrudalsöræfi, eru ófærir, en annars kvað Lórens færð óvana- lega góða á landinu miðað við árstíma. Ef þörf krefur verður mokað frá Reykjavík norður um land í dag, föstudag, og út á Snæfellsnes. Einnig verða vegir ruddir þar á landinu, sem þess gerist þörf, á laugardag og þar næst á annan dag jóla, þann 26. desember. Þá verður mokað föstudaginn 28. des. og síðan næst 2. janúar og er þar með upp talinn hinn hefð- bundni jólamokstur, eins og þeir kalla það hjá Vegaeftirlitinu. ■■■■■V Jón Páll undirbýr átökin við bifreiðina, sem hann hyggst velta nokkrar veltur þann 29. desember nk. En slíkar bflveltur munu vera veigamikill þáttur í keppninni um titilinn „Sterkasti maður heims“, sem fram fer í Svíþjóð í janúar nk. Veltir bifreið í fjáröflunarskyni Jón Páll undirbýr sig fyrir keppni „sterkustu manna heims“ og borðar átta máltíðir á dag JÓN Páll Sigmarsson, lyftinga- kappi, heldur í byrjun janúar til Svíþjóðar og tekur þar þátt í keppninni „Sterkasti maður heims“, sem honum hefur verið boðin þátttaka í. Ekki mun hér vera á ferðinni kraftlyftinga- keppni, heldur eru þrautirnar, sem lagðar eru fyrir keppendur, harla óvenjulegar. Þurfa þeir m.a. að lyfta steinum, hlaða 70 kg ísklump- um á vöruflutningabíl, draga tíu tonna vörubíl og kasta trjástofnum sem lengst, svo að eitthvað sé nefnt. Munu sterkustu menn heims taka þátt í keppni þessari, en þetta er í þriðja skipti, sem Jóni Páli er boðin þátttaka. Fyrir tveimur árum lenti hann í þriðja sætinu og í fyrra hreppti hann annað sætið, en að þessu sinni mun hann stefna á sigur. Jón Páll hefur að sjálfsögðu hafið þjáifun fyrir þessa miklu keppni og hyggst hann kynna hana og jafnframt æfa sig í einu keppnisatriðanna nk. laugardag, 29. desember, klukkan 14.00 fyrir utan verslunina H. Johnson og Co. í Brautarholti 22. Æfingin felst í því, að kappinn veltir bíl nokkrar veltur, en það er einmitt veigamikið atriði í keppninni ytra. Sveinbjörn Guðjohnsen, eig- andi H. Johnson og Co. hefur skipulagt þessa æfingu hjá Jóni Páli, en Sveinbjörn hyggst styrkja hann til Svíþjóðarfarar- innar. Vonast þeir félagar til þess að fleiri fyrirtæki taki þátt í því að styrkja Jón Pál til farar- innar, því það mun ekki kostnað- arlaust að gera tilkall til titilsins „Sterkasti maður heims". M.a. borðar Jón Páll nú átta máltíðir á dag. Hann er að reyna að þyngja sig fyrir keppnina og er haft eftir kokkunum á Hótel Borg, vinnustað Jóns Páls, að í hvert mál borði hann á við sex fíleflda karlmenn. Bolli Þór Bollason Gamalíel Sveinsson Breytingar á yfirstjórn Þjóöhagsstofnunar TIL KL. 21.00 I KVOLD ^RlKARNABÆ Laugavegi 66 — Austurstræti 22 — Glæsibæ. Sími frá skiptiborði 45800. Bonanarte Laugavegi 30. Óvenju góð færð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.