Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Þorsteinn Ö. Stephen- sen — Afmæliskveðja Einn af þeim mönnum sem hæst ber í íslenskri leiklistarsögu, Þorsteinn Ö. Stephensen, er átt- ræður í dag. Það er náttúrunnar lögmál að hin síðustu ár höfum við séð minna til Þorsteins á sviði og sjaldnar heyrt til hans í útvarpi en áður var. Og þó mun engum, sem eitthvað varðar og einhverju skiptir menning þessa litla ey- lands, blandast hugur um, hvílíkt stórveldi Þorsteinn hefur verið í okkar leiklist og er enn. Hann kemur inn í leiklistina, þegar hún er borin uppi af hugsjón og fórn- fýsi og leitun á ótraustara — og í raun óhæfara lifibrauði, segir skilið við sitt háskólanám (hann er einn af þeim, sem við getum þakkað fyrir að hafa ánetjast Thaliu í skóla), brýst til annarra landa þar sem skipulagt og virt nám var fyrir hendi í þessari listgrein og er einn hinna fyrstu, sem kemur síðan heim til að hefj- ast handa með leiknám að baki. Þá er ekki að neinni atvinnu- mennsku að hverfa og Þorsteinn Ö. tók að sér þularstarf í ríkisút- varpinu að aðalstarfi — hann átti fyrir stórri fjölskyldu að sjá — og varð einn vinsæíasti útvarpsmað- ur okkar svo sem alþjóð er kunn- ugt. Auk þess lék hann á hverju ári eitthvað með Leikfélagi Reykjavíkur, þegar þetta tvennt rakst ekki á. Það stoðar lítt að rifja upp slíka sögu fyrir ungum leikaraefnum sem nú á dögum koma út úr skólum og kvíða verk- efnaleysi — veraldarhjólið snýst of ört til að menn geti sett sig fyllilega inn í þessa ekki svo mjög fjarlægu tíð á hverjum tíma. í rauninni er aðeins eitt haldreipi til þess og það er að gera meiri kröfur til sjálfs sín en annarra. Þar hygg ég Þorsteinn sé mér sammála og sé þess gætt í nútíð- inni, held ég yfir allan efa hafið, að hinn ungi leikari hefur að allt öðru og meiru að hverfa í dag en fyrir fimmtíu árum, þegar Þor- steinn Ö. stóð á krossgötum, braust út til náms og stóð enn á krossgötum heim kominn. En þetta með krðfurnar til sjálfs síns lærist kannski ekki fyrr en á löngum ferli. Sá agaði lista- maður — sá yfirburða listamaður vil ég segja — sem Þorsteinn með árunum varð — sá listamaður stökk ekki alskapaður og full- þroska fram úr skóla eins og sum- ir ímynda sér að hægt sé að gera nú á dögum (og fjölmiðlum hættir til að ýta undir þessa skoðun fyrir nýjabrunns sálir, þannig að ungt og efnilegt fólk týnir áttum og heldur að það hafi fundið upp púðrið). Eftir árastarf sem þulur tók Þorsteinn Ö. að sér að stjórna barnatíma útvarpsins og loks varð hann fyrsti leiklistarstjóri þess. Hann hefur því allan sinn starfs- aldur fyrst og fremst verið út- varpsmaður. Þessu hefur fylgt, að í rauninni fengum við of sjaldan að njóta hæfileika hans á sviði og má það vera til marks um snilli hve mikið hefur greypst óafmá- anlega í okkur, þegar Þorsteinn kom þar. Hitt vannst í staðinn, að enginn maður varð jafn mikill sér- fræðingur í samspili raddar og hljóðnema — og Þorsteinn var orðsins leikari í öðrum meiri. Margir hafa lýst list Þorsteins Ö. og oft — þeirra á meðal sá, sem hér heldur á penna — og er það mjög að vonum að sé freistandi, svo auðugt mannþing, sem gefur að líta — og heyra. Þarna eru skapvitrir hugsjónamenn og aumkunarverðir fáráðar, afburða- menn í glímu við höfuðskepnur og minnstu rök og hinn venjulegi maður með sitt domt, ögn spaugi- legur kannski eins og við erum flest eða svolítið lítilsigldur gagn- vart hinum stóru spurningum — m.ö.o. mannlegur fyrst og fremst. Þarna er Arnas Arneus, Jeppi, Brynjólfur biskup, Björn hrepp- stjóri í Fjalla-Eyvindi, Davíðsen konsúll, Absolon Beyer, Njú Kína- prins, Kammerráð Kranz, Jean Valjean Vesalinganna, Sloper læknir, annað jóðið hans Odds, skóarinn hans Jökuls (og reyndar Davíð í sumrinu líka), þingmaður- inn hans Agnars í kjarnorkunni, kennarinn í Crocker-Harris í Browningþýðingunni að ógleymd- um pressaranum í Dúfnaveisl- unni. Eða mannmergðin í útvarp- inu af enn öðrum toga og gerðum. Til þess að lýsa kennileitum í list Þorsteins þarf annað rými en hæfir í lítilli afmæliskveðju. Hins vegar langar mig að nota hér tækifærið að minnast á það leik- listarstarf Þorsteins sem í raun réttri er hans ævistarf: leikhús- stjórn í því leikhúsi, sem náði þá til flestra landsmanna og gerir kannski enn. Hér á landi þykir fínt að finna að, það fellur inn í goðsöguna um gáfurnar sem þessi þjóð á að vera svo ríkulega gædd — og sitthvað þótti nú aðfinnslu- vert þá. En seinn til áræðis verður Þorsteinn Ö. Stephensen ekki sagður: við blasir lífsverk list- rænnar dirfsku og listræns metn- aðar, þar sem á hverjum vetri var ráðist í stórvirki eftir stórvirki og ekki kannski síst um vert hversu mörgum hátindum sígildra leik- bókmennta var skilað okkur og gert að eign okkar í fyrsta sinn á þessum árum. Og það var ekki leikið fyrir daufum eyrum: fjöl- skyldurnar sátu saman við tækin sín og þetta voru helgistundir, sem mótuðu lífsviðhorf manna og verðmætamat. Þarna var reisn, kjarkur, dómhæfni og listrænn skilningur. Þessar linur eru skrifaðar á Ak- ureyri, þar sem landshornaflakk- arinn marghýddi, Sölvi Helgason, fyllir þanka mína dag og nótt. Þá sem eru minni máttar og utan- garðs hefur Þorsteinn ævinlega átt auðvelt með að skilja. En líka þá listhneigð, sem býður öllu byrginn og brýst fram — kannski stundum af meiri ofstopa en hóg- værð — brýst fram þvert ofan í allar aðstæður — af því að listin er heilög köllun. Vegna þess að list Þorsteins Ö. Stephensen hefur ævinlega verið borin uppi af mannúð. Ég sendi Þorsteini og hans list- fengu fjölskyldu hugheilar árnað- aróskir. Það hlýtur að vera gaman að verða áttræður og hafa gert svona mörgum gott í sinni. Sveinn Einarsson. I dag þegar Þorsteinn ö. Steph- ensen leikari fyllir áttatíu ár er það með einlægri virðing og þökk sem Félag íslenskra leikara sendir honum sínar bestu heillaóskir. ís- lenskir leikarar eiga honum skuld að gjalda, bæði í listrænu og fé- lagslegu tilliti, sem aldrei verður að fullu goldin. Það væri hrein fásinna að ætla sér í þessari klausu að gera nokk- ur viðhlítandi skil þeim merka þætti sem Þorsteinn hefur átt í leiklistarmálum íslendinga. Er þess að vænta að þeirri sögu verði gerð skil af þeim sem til þess eru betur hæfir. Aftur á móti er mér það Ijúft og skylt að nefna hér þann hlutann af lífsstarfi Þor- steins Ö. Stephensen sem snýr að félagsmálum íslenskra leikara þó aðeins í stuttu máli sé. Mun á eng- an hallað þó sagt sé að Þorsteinn hafi verið einn aðalhvatamaður- inn að stofnun Félags íslenskra leikara. Var hann enda kosinn fyrsti formaður þess og gegndi því starfi fyrstu sjö árin. Islenskir leikarar búa enn að því starfi sem þá var unnið og aldrei verður full- þakkað. Enda þótt með tímanum hafi Þorsteinn Ö. Stephensen sem Pressarinn í Dúfnaveislunni. færið og þakka fyrir mig, að hafa fengið að starfa með honum og læra af honum, bæði í félagsmál- um og í starfi hans sem leikari. f.h. Félags íslenskra leikara, Sigurður Karisson. Þorsteinn ö. Stephensen er átt- ræður í dag. Einn okkar mikil- hæfustu leikara, sem um áratuga skeið hefur auðgað tilveru leik- húsgesta og útvarpshlustenda; sá leikari, sem við Oll, utan leikhúss og innan virðum ekki aðeins sem einn af frumkvöðlum íslenskrar atvinnuleiklistar, heldur einnig sem einn gáfaðasta og fjölhæfasta listamann okkar — og er þá reyndar rétt að minna á þá hneisu, að þjóðin skuli enn ekki hafa séð heimkomuna. 1934 lék hann fyrstu stóru hlutverkin: Jeppa á Fjalli og Dag Vestan í Straumrofi Laxness við góðan orðstír. Þorsteinn lék síðan svo til óslitið með Leikfélag- inu allt fram undir 1970 og gegndi auk þess forystu- og stjórnarstörf- um, var m.a. formaður félagsins í tvígang. Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa 1950 og við lá, að Leikfé- lag Reykjavíkur yrði lagt niður, skipaði Þorsteinn sér í sveit for- ystumanna félagsins og hóf starf- semina til vegs og virðingar á næstu árum, þótt hann léki reynd- ar einnig í Þjóðleikhúsinu strax við vígslu þess Björn hreppstjóra í Fjalla-Eyvindi og Arnas Arnæus í í slandsklukkunni. Á leikferli sínum hefur Þor- steinn sjaldan, ef nokkurn tíma brugðist og þegar skoðaðir eru aðrir menn tekið við forystustörf- um í félaginu hefur Þorsteinn alla tíð verið virkur félagsmaður og látið sig varða hvernig unnið hef- ur verið að þeim markmiðum sem því voru sett í öndverðu og enn eru í fullu gildi. Á þessu fékk undirrit- aður að kenna þegar Þorsteini þótti ungir menn ara offari í að breyta og bylta því sem þeim þótti úrelt og gamalt í félaginu. Vorum við Þorsteinn þá settir saman í nefnd til að jafna ágreininginn, og þó ekki verði sagt að þau nefnd- arstörf hafi gengið átakalaust, var það mikil og dýrmæt reynsla fyrir byrjandann þegar Nestorinn tók hann á hné sér og leiddi hann í ýmsan sannleika um félagsmál leikara. Samt sem áður tókst okkur ekki að verða sammála um alla hluti í nefndinni og varð aðal- fundur að skera úr um sumt. Tel ég mér skylt að játa það hér og nú að betur hefði ég tekið meira mark á efasemdum Þorsteins um ágæti ýmissa þeirra breytinga sem þá voru gerðar (þú veist hvað ég meina, Þorsteinnl). Um leið og ég flyt Þorsteini bestu árnaðaróskir frá Félagi ís- lenskra leikara ásamt þakklæti fyrir störf hans vil ég nota tæki- sóma sinn í að veita honum heið- urslaun listamanna. Mig langar, Þorsteinn, að senda þér fáein kveðjuorð á þessum degi og þakka þér einstaklega ánægjulega sam- vinnu og kynni á liðnum árum, fyrst á Leiklistardeild útvarps og síðan í starfi á leiksviði Þjóðleik- hússins. Ekki ætla ég að rekja hér til neinnar hlítar leik- eða starfsferil Þorsteins en strax í menntaskóla vakti hann athygli fyrir leikhæfi- leika, fór síðan utan til náms við Konunglega leikhúsið í Kaup- mannahöfn og hóf leik með Leik- félagi Reykjavíkur strax eftir leikdómar um hann, er hrannað þar upp hrósyrðum af slíkri rausn, að fylla mætti lesendur efasemd- um, ef ekki hefðu sjálfir sann- reynt réttmæti þeirra. Tvívegis hlaut hann Silfurlampann, viður- kenningu íslenskra leikgagnrýn- enda: fyrir leik sinn sem Crocker- Harris í Browning-þýðingunni 1957 og fyrir pressarann í Dúfna- veislu Laxness 1966. Meðal ann- arra stórra og minnisverðra hlut- verka hans má nefna Brynjólf biskup í Skálholti, Wilkins dóm- ara í gamanleiknum Elsku Rut, sem ég reyndar nefni hér af því að þar sá ég Þorstein fyrst á leik- sviði, þá sex ára gamall, og er mér enn minnisstætt; Lenna í leikrit- inu Mýs og menn, Róbert Belford í Marmara, Krans kammerráð í Ævintýrinu, Jean Valjean í Vesal- ingunum, Þorleif alþingismann í Kjarnorku og kvenhylli, gamla manninn í Stólunum og Davíð í Sumrinu ’37 og er þó fátt eitt talið. Á síðustu árum hefur Þorsteinn verið alltof sjaldséður á leiksviði, síðast lék hann Firs í Kirsuberja- garðinum hjá LR 1980 og örnólf í Stundarfriði Guðmundar Steins- sonar í Þjóðleikhúsinu 1979—’81. Fyrir þann tíma langar mig sér- staklega að þakka þér, kæra af- mælisbarn og félagi. Vinnan við Stundarfrið er einhver ánægju- legasta endurminning undirritaðs úr leikhússtarfi og ekki síður ferð- irnar og vináttan, sem í kjölfarið fylgdi. Reyndar starfaði ég með Þorsteini á Leiklistardeild útvarps um skeið og aðdáun mín á honum sem listamanni var rótgróin en það var í raun ekki fyrr en í ferða- íogunum um þvera og endilanga Evrópu að mannkostir hans birt- ust mér til hlítar. Við sem mótuð- um fjöldskylduna brjóstumkenn- anlegu í leikritinu hans Guðmund- ar urðum reyndar sjálf eins og stór fjölskylda á þriðja ár vegna tíðra ferða á leiklistarhátíðir er- lendis, sýninga, enduræfinga og loks sjónvarpsupptöku. Aldrei féll þar styggðaryrði og ekki var streitunni fyrir að fara í fjölskyld- unni þeirri, þar áttir þú stóran hlut að máli, Þorsteinn. Ógleym- anleg er okkur rík kimnigáfa þín og hlýja, sem yljaði okkur og kætti á löngum og erfiðum ferðum. Þegar flett er leikdómum um af- rek Þorsteins á leiksviðinu, rek- umst við aftur og aftur á orð eins og höfðinglegur, snjallmæltur, háðskur, heill, hnitmiðaður og sannur. Með góðri samvisku og svo langt sem leikhúsreynsla mín og minni nær, tek ég í lotningu undir þessi ummæli en þau eiga svo sannarlega ekki síður við manninn á bak við hlutverkin. Vilji maður endilega leita uppi einhverjar að- finnslur, má segja, að líkamleg til- þrif hafi ef til vill ekki verið meðal fyrirferðarmestu þáttanna í leik Þorsteins, enda lítt ginnkeyptur fyrir kollsteypum og handahlaup- um ýmissa yngri spámanna úr röðum svonefnds hreyfileikhúss, sem ég held reyndar að Þorsteinn af sinni alkunnu kímni hafi fyrst- ur manna nefnt „svitalyktarleik- hús“. Meðferð Þorsteins á íslensku máli í leik og utan hefur nálgast það að vera óaðfinnanleg og allra manna best kann hann þann gald- ur í list sinni, að vera eðlilegur, geta látið hverja setningu hljóma, sem væri hún að kvikna í fyrsta sinn á sviðinu þá stundina, hugsuð af viðkomandi persónu og óhugs- andi í munni annarra. Kæra afmælisbarn, ég vona, að þú sért búinn að fyrirgefa mér það, þegar ég lét hífa þig upp und- ir rjáfur í Þjóðleikhúsinu á rós- rauðu skýi í Góðu sálinni og dúsa þar dágóða stund kvöld eftir kvöld og að ég skuli ekki enn hafa komið í verk, að endurnýja kynni mín af pressaranum góða nema i leik- lestrarformi á friðarsamkomu í fyrra. En ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra í Stundarfriðs- fjölskyldunni og gömlu félaganna hjá Leikfélagi Reykjavíkur, þegar ég óska þér alls góðs á ókomnum árum um leið og ég vona, að við eigum enn eftir að njóta krafta þinna á leiksviðinu, ekki bara einu sinni heldur oft. Stefán Baldursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.