Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 30

Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 LSD eða lýsergíð Hugsanir fara úr böndum og alls konar skynbrenglanir fylgja I»essi grein um LSD eða lýsergíð eftir próf. l»orkel Jóhannesson er hluti úr bók um vímugjafa undir heitinu „Lyfjafræði mið- taugakerfisins", sem kemur út innan skamms á vegum mennta- málaráðuneytisins og Háskóla íslands. I»etta er heimildartexti, skrifaður fyrir læknanema og framhaldsskólanemendur svo og aðra, en kennsla í líffræði- legum greinum hefur mjög farið í vöxt í framhaldsskólum á seinni árum. Kaflann um LSD hefur Mbl. fengið til birtingar með tilliti til frétta um að nú sé þetta efni aftur farið að berast til landsins eftir um áratugs hlé. Lýsergíð (LSD) og efni með lýsergíðlíka verkun Langþekktast efna í þessum flokki er lýsergíð (A). Af öðrum efnum með lýsergíðlíka verkun verður lítillega minnst á lýserg- sýruamíð, psílócín (psílócýbín), meskalín og fáein efni önnur (B). A. Lýsergíð (LSD; lýserg- sýrudíetýlamíð) í sveppi, er á íslensku hefur ver- ið nefndur korndrjóli (Claviceps purpurea) og vex einkum á rúgi, en einnig á fleiri korntegundum, er að finna fjöldann allan af efn- um, sem áhugaverð eru m.a. til lyfja. Úr korndrjóla eru þannig unnin a.m.k. tvö lyf, sem velþekkt eru til lækninga. Nefnist annað ergótamín (enska heitið á korndrjóla er ergot), en hitt erg- ómetrín). Ergótamín er notað við meðferð á mígreni og ergómetrín er einkum notað til þess að draga saman leg eftir fæðingu. Bygg- ingarsteinninn í ergótamíni og ergómetríni er sýra, nokkuð flók- innar gerðar, er nefnist lýserg- sýra. Lýsergsýra inniheldur köfn- unarefni og er þannig í senn plöntubasi og lífræn sýra. Út frá lýsergsýru, sem unnin hefur verið úr korndrjóla, svo og ýmsum lýs- ergsýrusamböndum, sem þar er að finna, hafa verið framleidd mörg ný lýsergsýrusambönd. Sum þeirra eru notuð til lækninga. Eitt þessara sambanda er lýsergsýru- díetýlamíð, sem oftast er nefnt lýsergíð eða LSD. í þessum texta er efnið nefnt lýsergíð. Árið 1938 samtengdi (bjó til) svissneskur vísindamaður lýsergíð út frá lýsergsýru. Hann hafði von- ast til þess, að efni líkrar gerðar og lýsergíð gætu haft verkun á borð við pentetrazól og píkrótoxín. Um það bil fimm árum síðar fékk þessi sami maður af vangá ofan í sig eftir því, er næst varð komist, mjög lítið magn af lýsergíði. Hann var þá við vinnu í rannsóknastofu sinni. Honum varð svo við, að hann kenndi svima og óróa og ákvað að fara heim og hvílast. Kominn heim lagðist hann fyrir og fannst sem hann væri drukkinn og liði ekki illa. Það vakti þó at- hygli hans, hve mikið flug hugs- ana og hugmynda og mynda fór um innri hugskot hans, þegar hann lá með lokuð augu. Sérstak- lega fannst honum sem hann „sæi“ mikil tilbrigði lita og líkast því sem allt í kringum hann væru síbreytilegir litir á ferð og flugi. Nokkru seinna tók hann í til- raunaskyni um munn 260 míkróg (1 míkróg = 1/1000 mg) af lýserg- íði og varð fyrir svipuðum áhrif- um og fyrr, en mun meiri og leng- ur varandi. Af þessu gat hann ályktað, að lýsergíð væri efni, er hefði djúpstæða verkun á mið- taugakerfið í mjög litlum skömmtum við inntöku. Nú er vit- að, að 250 míkróg er nokkuð stór skammtur, þegar lýsergíð á í hlut. Skömmu fyrir 1950 birtust niðurstöður fyrstu vísindalegu at- hugana á verkunum lýsergíðs hjá mönnum. Þótti nú sýnt, að lýserg- íð væri hið dæmigerða hugvíkk- andi eða psýkedelíska lyf eða efni og með því mætti hugsanlega kanna „djúp sálarinnar", fá fyllri upplýsingar um tilurð hegðunar eða afbrigða í hegðunarmynstri manna, svo og beita því við geð- lækningar eða við könnun á uppá- komu geðsjúkdóma. Á árunum frá 1950 og fram yfir 1960 óx vegur lýsergíðs mjög með- al ýmissa lækna, en einkum meðal sálfræðinga og sumra rithöfunda og listamanna. Sumir hinna síð- artöldu rituðu á grundvelli sjálfs- tilrauna hástemmdar lýsingar á verkunum lýsergíðs og lýsergíð- líkra efna. Þeir lýstu lýsergíðvím- unni sem ferðum („trips") um ókunna stigu innra sjálfs og sem flugi um ytri víðáttur með ótal til- brigðum skynjana og kennda. Lýs- ingar þessar gefa í engu eftir lýs- ingum „hassistanna" eða hrifn- ingu manna yfir kókaíni á síðustu öld. Þegar leið á 7. áratug þessarar aldar, varð hins vegar deginum Ijósara, að lýsergíði var mjög vandstýrt og notkun þess, jafnvel í venjulegum skömmtum, gæti leitt til geðveikikenndra viðbragða með „ekta“ rangskynjunum, mikils ótta og árásarhneigðar og jafnvel enn fleiri afbrigðilegra fyrirbæra („bad trips“). Það var læknum til sóma, að þeir voru fljótir að leggja lýsergíð fyrir róða við tilraunir á mönnum og til lækninga. Eftir stendur þó, að verkunarháttur efna á borð við lýsergíð, þegar þekktur verður til meiri hlítar en nú er (sbr. á eftir), kann að varpa Ijósi á orsakir truflana í starfsemi miðtaugakerfisins, þar á meðal geðsjúkdóma. Lýsergíð er nær alltaf tekið um munn. Nokkuð algengt er, að lýs- ergíði sé dreift í formi taflna (framleiddar ólöglega), sem ekki sjaldan eru litaðar (rauðar, bláar), eða innþornuðu í pappírsbútum, sem einnig kunna að vera litaðir. Slíkir pappírsbútar, er komu til rannsóknar í Rannsóknastofu í lyfjafræði og í var lýsergíð, eru sýndir á mynd. Samtals hafa Rannsóknastofunni borist 28 sýni til rannsóknar með tilliti til lýs- ergíðs á árunum 1972 og 1973. Fjöldi sýna og dreifing eftir árum bendir því til þess, að smygl og dreifing á lýsergíði hafi aldrei ver- ið mikil hér á landi og farið minnkandi. Engar heimildir eru um notkun lýsergíðs hér á landi fyrir 1969. Lýsergíð og flest efni með lýs- ergíðlíka verkun eru nú felld undir lög um ávana- og fíkniefni frá 1974. Er meðferð þeirra, sala og dreifing bönnuð á íslensku yfir- ráðasvæði nema það sé sérstak- lega leyft. Sömu ákvæði gilda m.a. um tetrahýdrókannabínól og hvers konar kannabissamsetn- ingar. Á slangurmáli er lýsergíð gjarn- an nefnt „sýra“ („acid"). Onnur slanguryrði á ensku yfir lýsergíð eru „cubes" og „sugar“. Á slang- urmáli eru þeir, sem oft nota lýs- ergíð eða sækjast eftir því, nefndir „acid heads" eða „acid freaks“ (gætu væntanlega heitið „sýru- fríkarar“ á íslensku slangurmáli). Eftir gjöf lýsergíðs eru ókyrrð og auknar hreyfingar áberandi hjá flestum tilraunadýrum. Ókyrrð eftir gjöf lýsergíðs í til- raunum með ýmis dýr og sú stað- reynd, að amfetamín hefur sam- verkandi verkun við lýsergíð og klórprómazín andstæða verkun, er forsenda þess, að teija megi lýs- ergíð hafa örvandi verkun á mið- taugakerfið. Lýsergíð kann og að breyta hegðunarmynstri dýra. Þannig virðast kettir, sem gefið er lýsergíð, hræðast mýs, og fiskar synda lóðrétt í vatni (rangskynj- anir?). Minnsti skammtur af lýsergíði við inntöku, sem myndi hafa merkjanlega verkun á menn, er á Dr. Þorkell Jóhannesson bilinu 20—40 mígróg. Við tilraunir eru venjulega notaðir allmiklu stærri skammtar eða 1—2 míkró- g/kg líkamsþyngdar (oft sem næst 100 míkróg.) Eftir töku þessa skammts myndi hámarksþéttni í blóði verða eftir 'h—1 klst., en minnka smám saman á næstu klukkustundum. Lýsergíð myndi þó enn vera mælanlegt í blóði eftir 8-10 klst. Eftir töku lýsergíðs (100 míkr- óg) yrði fyrstu einkenna að öllum likindum vart um það bil 15—30 mín. síðar. Blóðþrýstingur hækk- ar, líkamshiti hækkar, tíðni hjart- sláttar eykst, öndunartíðni eykst, klígja kemur fyrir og ef til vill uppsala, víkkun sjáaldra, skjálfti og doði, ósamræmi í hreyfingum og kvíði eða spenna. Fleiri fyrir- bæri og einkenni mætti og telja. Eiginleg víma byrjar um það bil 30 mín. eftir töku lýsergíðs eða ef til vill aðeins fyrr. Víman byrjar gjarnan með því, að hlutaðeiganda finnst sem margs konar kenndir og hugsanir bærist með honum saman eða hverjar á fætur annarri. Oftast er vellíðan þó ríkjandi. Hugsanir fara úr böndum og virðast koma og fara stjórnlítið eða stjórnlaust. Atriði, sem áður skiptu litlu máli, fá nú ef til vill miklu dýpra og meira gildi. Maðurinn kann að vera spenntur og í viðbragðsstöðu gagnvart því ástandi, sem hann er í. Óft dregur hann sig í hlé og situr eða liggur með augun aftur til þess að reyna að hemja hugsan- ir sínar og kenndir. Þegar lengra líður á (eftir ca. 1—2 klst. eða fyrr), fara skynbrenglanir að verða ríkjandi. Skynbrenglanir eru margs kon- ar. Tímaskyn brenglast (tíminn líður seinna en ella) og fjarlægð- arskyn. Heyrnin verður skarpari og ef til vill bragð. Langmest áber- andi eru þó brenglaðar sýnir, svo sem á litum, formi hluta og útliti eigin líkama. Svokallaðar „eftir- myndir" eru mjög viðloðandi (þ.e. a.s. hlutir skilja eftir sig mynd eftir að hætt er að horfa á þá) og víxlskynjanir eru algengar. Venj- an er, að rangskynjanir þessar eru ekki „ekta“ rangskynjanir þannig, að hlutaðeigandi veit, að þær eru af völdum lýsergíðs. Á þessu stigi kunna þó skynbrenglanir, oftast eftir töku stærri skammta, en þó einnig eftir töku venjulegra skammta, að breytast í „ekta“ rangskynjanir. Ef það gerist, glat- ar hlutaðeigandi skilningi á því, hvers vegna hann er í þessu sér- kennilega ástandi. Hann kann þá að fyllast ótta, hræðslu, jafnvel ofsahræðslu og ofsóknarkennd. Þetta má skoða sem geðveikikennt ástand, sem venjulega nær há- marki um leið og hlutaðeigandi á síðari stigum vímunnar verður var við rof eigin persónumörkunar. Segja má, að lýsergíðvíman sé í hámarki 3—5 klst. eftir töku efn- isins. Hlutaðeiganda finnst þá sem mörk milli hans og umhverf- isins séu rofin og hann geti sam- lagast náttúrunni eða alheimin- um. Ef „trippið" er velheppnað, finnst mönnum sem þeir verði fyrir dulmagnaðri eða goðmagn- aðri reynslu eða einhvers konar almættisreynslu þannig, að þeir komist, líkt og í draumi, helgisögu eða fallegri þjóðsögu, í snertingu við „álfheima" og tilverusvið utan seilingar venjulegs manns í hold- legum líkama. Að því er virðist er þessi kennd eftirsóknarverðust alls, er menn verða fyrir eða skynja í lýsergíðvímu. Ef „trippið" heppnast hins vegar ekki vel, kann maðurinn að verða skelfingu lost- inn yfir þvi, að hann sé í pörtum og brotum og komist aldrei aftur til sjálfs sín. Honum finnst þá sem festa hans í fyrra veruleika sé brotin og hann verður aldrei sam- ur aftur. í þessu ástandi kann og að koma fyrir, að manninum finn- ist sem honum mæti andúð, illvilji eða hatur frá öflum eða verum utan eigin persónumarka. Hann bregst þá oftar en ekki við þessum rangskynjunum og ranghugmynd- um með ofsa og árásum, er leitt geta til slysa eða dauða annarra eða hans sjálfs. Venjulega rennur hið geðveikikennda ástand af manninum á stuttum tíma. Hins vegar eru þekkt dæmi þess, að lýs- ergíð, bæði eftir einn skammt og langvarandi töku, hafi valdið langvarandi geðveikikenndu ástandi, er að sumu leyti likist geðklofa. Ef „trippið" heppnast vel, minnka áhrifin smám saman og eru oftast með öllu horfin að 10—12 klst. liðnum. Yfirleitt er talið, að stórir skammtar af lýsergíði auki hættu á „ekta“ rangskynjunum og slæm- um „trippum". Þetta er þó að því er virðist engri reglu háð. Sömu sögu er að segja um langvarandi töku lýsergíðs. Það er með öðrum orðum sagt engin örugg leið að segja fyrir um, hvenær víma eftir lýsergíð verður „góð“ eða ekki. Af þessum sökum eru lýsergíðneyt- endur venjulega nokkrir saman þannig, að hinir eldri og reyndari reyna að líta eftir hinum sem óvanir eru, og hjálpa þeim og styrkja, ef „trippið" heppnast ekki vel. Velheppnuð víma eftir lýsergíð eða lýsergíðlík efni einkennist þannig samkvæmt framansögðu umfram allt af hugvíkkandi eða psýkedelískri verkun eins og áður er lýst. Psýkedelísk verkun er þó, svo sem áður getur, þekkt eftir töku stórra skammta af tetra- hýdrókannabínóli og getur komið fyrir eftir stóra skammta eða langvarandi töku ýmissa lyfja eða efna (t.d. amfetamíns eða kóka- íns). Sérkennandi fyrir lýsergíð og lýsergíðlík efni er hins vegar, að psýkedelísk verkun er, þegar veí gengur, meginverkun þeirra eftir töku venjulegra eða lítilla skammta. Slíkt er nánast óþekkt eftir töku annarra efna í litlum skömmtum. Svo sem við er að búast er manni í lýsergíðvímu öll hugvinna erfið. Hann á þannig erfitt með að nema, hugsa rökrétt, tjá sig í orð- um o.s.frv. Nýminni bilar talsvert. Vafasamt er þó, hvort það er með sama hætti og eftir tetrahýdró- kannabínól. Menn hallast að því að flug hugmynda og hugsana og eldri minninga trufli svo mann- inn, að hann geti af þeim sökum illa fest sér í minni það, er fyrir hann ber í vímunni. Full ástæða er og til þess að ætla, að lýsergíð verki með öðrum hætti en tetra- hýdrókannabínól, enda þótt segja megi að stórir eða jafnvel miðl- ungsstórir skammtar af tetra- hýdrókannabinóli hafi lýsergíð- líka verkun. Þol myndast mjög fljótt gegn verkunum lýsergíðs. Eftir töku lýsergíðs í litlum skömmtum í 3—4 daga myndast mjög mikið þol gegn vímugefandi verkunum þess. Þol þetta er svo mikið, að jafnvel mjög stórir skammtar megna ekki að framkalla vímu. Fyrst eftir nokkurra daga hlé, má búast við að lýsergíð sé virkt á ný. Slíkt þol er óalgengt, en þó ekki með öllu óþekkt. Mjög mikið krossþol er milli lýsergíðs og flestra efna með lýs- ergíðlíka verkun (psílócín, meskal- ín o.fl.). Krossþol er hins vegar ekki milli t.d. lýsergíðs og tetra- hýdrókannabínóls eða lýsergíðs og amfetamíns. Með krossþoli er átt við, að þol gegn einu lyfi eða efni leiði til þols gegn verkunum ann- ars lyfs og gagnkvæmt („þol í kross“). Mikið krossþol er yfirleitt milli lyfja í sama verkunarflokki án tillits til þess, hvort lyfin kunni að vera efnafræðilega skyld eða ekki. Mikið krossþol milli lyfja eða efna þykir bera vott um, að verk- unarháttur þeirra sé líkur eða hinn sami. Óvíst er, hvort fráhvarfsein- kenni koma fyrir eftir töku lýserg- íðs. Á eftir „lýsergíðstrippi" er svefnleysi þó þekkt. Hjá þeim, sem gengið hafa gegnum velheppnaða lýsergíð- vímu, er ekki sjaldan hvöt til þess að endurtaka „trippið". Sumir þessara manna sækjast því bein- línis eftir að nota lýsergíð. Þeir nefnast „acid heads" eða „acid freaks" (sbr. að framan) og teljast hafa fengið ávana í lýsergíð. Miklu algengara er þó, að menn hafi not- að lýsergíð tilviljunarkennt fyrir forvitni sakir, í tilraunaskyni eða inn á milli annarra ávana- og fíknilyfja og efna (t.d. kannabis). Vafasamt er, hvort fíkn myndist í lýsergíð. Raunar mælir hin hraða og mikla þolmyndun, er fyrr ræð- ir, gegn því, að svo geti verið. Til- raunadýr virðast heldur ekki sækjast eftir því að sprauta sig með lýsergíði, enda þótt þau eigi greiðan aðgang að því. Lýsergíð virðist nú hvarvetna vera lítið notað. Kemur bæði til óvissa um rás vímunnar („slæm tripp"), hætta á endurhvarfi (sjá á eftir) og minni áhugi á psýkedel- ískum áhrifum efna en áður var. Flestir þeirra, er áður tóku lýserg- íð, hafa annað hvort hætt því með öllu eða færst yfir á aðra vímu- gjafa, ekki síst kannabis. Endurhvarf („flashback") er furðulegt fyrirbæri, sem þekkist eftir töku lýsergíðs og a.m.k. sumra annarra efna með lýsergíð- líka verkun. Fyrirbæri þetta er í því fólgið, að verkun fýsergíðs hverfur til mannsins aftur löngu eftir að það hefur skilist út og án þess að það sé tekið á ný. Endur- hvarf er algengara hjá þeim, sem oft hafa tekið lýsergíð, en þeim, sem sjaldan hafa komist í lýserg- íðvímu. Endurhvarfið stendur oftast stutt (fáeinar mínútur). Brenglaðar sýnir eru algengustu einkenni, er fyrir koma í endur- hvarfi. Ekki hefur sannast, að tetrahýdrókannabínól valdi endurhvarfi. Ef kannabis er notað ásamt lýsergíði, virðist það þó auka hættu á endurhvarfi. Ef mólgerð (mólikúlgerð) lýs- ergíðs er skoðuð, má sjá viss lík- indi með lýsergíði og boðefninu serótóníni. Sum önnur efni með lýsergíðlíka verkun eru þó enn lík- ari serótóníni að gerð (t.d. psílóc- ín). Það þykir þess vegna ærið at- hyglisvert, að lýsergíð og lýsergíð- lík efni hafa í tilraunum marg- háttuð áhrif á verkum serótóníns

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.