Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
Innilegar þakkir til allra vina og ættingja sem
glöddu mig með kveðjum og heimsóknum á
80 ára afmæli mínu þann h- desember sl.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.
Þorgrímur Maríusson,
sjómaður, Húsavík.
Rúmteppi
— Rúmteppi
Falleg ódýr rúmteppi í úrvali. Baðmottusett — sæng-
urverarsett — handlæöi — dúkar og m.fl.
Nytsöm gjafavara á góöu veröi.
(íuwtiin utit tiatiílf
lönaöarhúsinu
Hallveigarstíg 1,
Sími 22235.
Matseðill
í jólaönninni
á bæjarins besta horni.
SVARTA PANNAN
V\ Pönnukjúklingur kr. 99
Vfe Pönnukjúklingur kr. 180
Pönnufiskur kr. 49
Pönnuborgari kr. 85
Tvöfaldur pönnuborgari kr. 113
Pönnusmáborgari kr. 66
Pönnusteik kr. 255
Pönnusamloka kr. 68
Kínverskar pönnukökur kr. 45
Franskar kartöflur kr. 36
Heit kjúklingasósa kr. 25
Pönnusósa kr. 25
Pönnusalat kr. 28
Benaissósa kr. 35
Gos kr. 27
SOUTHERN FRIED CHICKl
1—11 bitar á kr. 46 pr. stk.
11 bitar o.fl. á kr. 44 pr. stk.
Gos kr. 27
Franskar kartöflur kr. 36
Heit barbequesósa kr. 25
Heit kjúklingasósa kr. 25- -45
Pönnusalat kr. 28- -50
Hraörétta veitingastaður
í hjarta borgarinnar
áhorni
Tryggvagotu og Pösthússtrætis
Stmi 16480
Kjúklíngastaóurinn
SOUTHERN FRIED
CHICKEN
Sími 29117
Plasthnífapör og diskar fylgja
ef óskað er.
Pantið réttina
í vinnuna eða heim.
Nýr sendiherra
Sovétríkjanna
NÝR SOVÉSKUR sendiherra á fs-
landi, Evgeniy Aleksandrovich Kos-
arev, afhenti forseta íslands trúnaö-
arbréf sitt 2. október sl. Eiginkona
hans er Valentina Kosareva söng-
kona. Hún söng m.a. í Bolshoileik-
húsinu og kom hingaö til lands á
sjötta áratugnum og söng á vegum
MÍR.
Fyrrverandi sendiherra,
Streltsov, hélt héðan til Moskvu.
Hann mun ekki hafa tekið við
starfi í Norðurlandadeild ráðu-
neytisins í Moskvu, eins og til
dæmis Farafonov, fyrirrennari
hans, og aðspurður mun hann lítið
hafa viljað gefa út á hvaða verk-
efni tækju við hjá honum, sam-
kvæmt upplýsingum frá utanrík-
isríkisráðuneytinu.
Evgeniy Aleksandrovich er
fæddur árið 1919. Hann útskrifað-
ist frá Flugskóla Moskvuborgar og
síðar diplómataskóla sovéska
utanríkisráðuneytisins og hóf
störf í utanríkisþjónustu Sovét-
ríkjanna árið 1945. Hann var kon-
súll í Karl Marx Stadt í Austur-
Þýzkalandi árin 1957—1961.
1965—1969 var hann sendiráðu-
nautur við sovéska sendiráðið í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi.
Hann var sendiherra Sovétríkj-
anna í Lúxemburg árin 1969—
1979, en fór þaöan til Moskvu og
hefur dvalist þar fram að þessu
við sérstök verkefni í sovéska
utanríkisráðuneytinu.
Ingólfur Halldórsson og Jón Böövarsson. Moruunblaðið/Eyjólfur
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Jón Böðvarsson lætur
af starfi skólameistara
Vojfuro, 10. desember.
VIÐ brautskráningu Fjölbrauta- hans í þágu skólans, voru Gunn-
skólans á Suöurnesjum um helgina ar Sveinsson, formaður skóla-
kvaddi Jón Böövarsson, sem var nefndar, sem afhenti Jóni gjöf,
fyrsti skólameistari skólans, en og Ingólfur Halldórsson, settur
honum hefur nú veriö veitt lausn skólameistari.
aö eigin ósk. Jón Böðvarsson hefur tekið að
Meðal þeirra, sem ávörpuðu sér að skrifa iðnsögu íslands.
Jón og þökkuðu honum störf Eyjólfur
Athugasemd frá starfsmönn
um útvarps og sjónvarps
í leiðara Morgunblaðsins á mið-
vikudag og í viðtali við Davíð
Oddsson, borgarstjóra, sama dag
er fjallað um úrskurð félagsdóms í
máli borgarstarfsmanna á hendur
borginni um ágreining þessara að-
ila varðandi greiðslu launa í
októbermánuði.
í báðum tilvikum er ruglað sam-
an tveimur ólíkum málum, þ.e.
annars vegar deilumáli borgar-
starfsmanna og borgaryfirvalda,
þar sem útborgunarákvæði voru
samningsbundin, og svo hins veg-
ar deilumáli ríkisstarfsmanna við
fjármálaráðuneytið en í því tilviki
eru útborgunarákvæði bundin í
lög. Síðarnefnda málið hefur ekki
verið til lykta leitt fyrir dómstól-
um.
Þegar menn deila ber þeim að
sjálfsöðgu að láta dómstóla skera
úr um ágreiningsefni sín. í því til-
viki sem hér um ræðir var ljóst
frá upphafi að menn væru ekki á
eitt sáttir og leituðu báðir aðilar
eftir lögfræðilegu áliti. Það kom
síðan á daginn að álitsgerðir
lögfræðinga stönguðust á. Það var
okkar sjónarmið að teldi fjár-
málaráðuneytið að vegna yfirvof-
andi verkfalls bæri því ekki að
greiða laun með þeim hætti sem
viðgengist hefur um langt skeið þá
hefði það verið eðlilegur fram-
gangsmáti að leita úrskurðar
dómstóla um Iögmæti þessa áður
en gripið var til einhliða aðgerða.
Morgunblaðið er ákafur mál-
svari einkaútvarps og er ásamt
Reykjavíkurborg hluthafi í stór-
fyrirtæki sem á hagsmuna að
gæta varðandi ný útvarpslög og
afnám einkaréttar Ríkisútvarps-
ins. Það er í hæsta máta ódrengi-
legt af hálfu Morgunblaðsins og
Davíðs Oddssonar borgarstjóra að
nýta sér deilumál um útgöngu út-
varps- og sjónvarpsstarfsmanna
hinn fyrsta október hagsmunum
sínum til framdráttar. Margoft
hefur það verið gefið í skyn í leið-
urum og í öðrum skrifum í Morg-
unblaðinu að útganga útvarps- og
sjónvarpsmanna hafi sýnt fram á
nauðsyn einkastöðva, öryggis-
hagsmunum hafi verið í voða
stefnt, og á allan hátt hefur verið
reynt að sverta starfsmenn Ríkis-
útvarpsins og gera þá tortryggi-
lega.
Sannleikurinn í þessu máli er að
sjálfsögðu sá að útvarps- og sjón-
varpsstarfsmenn og heildarsam-
tök opinberra starfsmanna töldu
og telja enn að brotin hafi verið á
þeim lög og að þeir hafi gripið til
fullkomlega lögmætra aðgerða í
mótmælaskyni.
f öðru lagi er það rangt að ör-
yggishagsmunum hafi verið stefnt
í voða. Allan tímann veitti Ríkis-
útvarpið neyðarþjónustu í full-
komnu samræmi við úrskurð þess
aðila sem stjórnvöld töldu einan
fullbæran til þess að meta slíkt.
Allt fyrirkomulag dagana 1. til 14.
október var með nákvæmlega
sama hætti og fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins höfðu lagt til í út-
varpsráði að yrði meðan á verk-
falli stæði, þ.e.a.s. að eingöngu
yrði um öryggisþjónustu að ræða.
Tvískinnungurinn í þessu máli
er með ólíkindum. Aðilar sem
vildu nota verkfallið til að greiða
götu einkastöðvanna reyndu að
koma í veg fyrir að útvarpað yrði
fréttum þegar starfsmenn Ríkis-
útvarpsins óskuðu eftir því, en
tóku hins vegar undir það sjón-
armið að fréttaflutningur ólög-
legra útvarpsstöðva helgaðist af
þeirri neyð sem skapaðist af
fréttaleysi Ríkisútvarpsins.
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra reyndi síður
en svo að greiða fyrir fréttaút-
sendingum í Ríkisútvarpinu í
verkfalli BSRB og fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í útvarpsráði lögð-
ust beinlínis gegn þeim. Þessir að-
ilar ættu að sjá sóma sinn í því að
gera hreint fyrir sínum dyrum því
það er greinilegt að þetta mál þarf
að upplýsa.
Að lokum þetta: Svo lengi sem
lög eru í heiðri höfð og menn búa
við verkfallsrétt geta þær aðstæð-
ur skapast að menn leggi niður
vinnu. Um heimild manna til þess
að neyta lýðræðislegra réttinda
sinna skiptir engu hvort þeir
starfa hjá einkafyrirtækjum eða
fyrirtækjum í almenningseign.
Stjórnir starfsmannafélaga
útvarps og sjónvarps.
/
IC=31
Allar mfyiA jSlabc&kucnar og þúsomdir
mmra bókad-Ha.
Jdíapappír cj jótaskratft'i mik/a úriali:
/
BOKHLAÐAN
OG
MARKAÐSHUSIÐ
Laugavegi39