Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 47

Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 47 Birgir ísleifur Gunnarsson: Síðasta ár kvótakerf- is í sjávarútvegi Hér fara á eftir meginatriði úr ræðu Birgis ísleifs Gunnarssonar (S) í umræðu í neðri deild þings sl. miðvikudag um framlengingu kvótastjórnunar fiskveiða til ársins 1985: Frumvarp um stjórn fiskveiða og fiskveiðistefnu var samþykkt fyrir ári síðan á Alþingi. Sam- kvæmt því frumvarpi var heimilað að taka upp svonefnt kvótakerfi, þ.e. heimilað var að ákveða afla- mark á hvert skip. Ég stóð að samþykkt þess frumvarps þá, þrátt fyrir miklar efasemdir. Ljóst er að draga verður stór- lega úr afla landsmanna vegna ágangs fiskistofna við landið. Fleiri en ein aðferð kæmu til greina. Kvótaleiðin var valin, enda réttlætanleg sem neyðarúrræði um tiltölulega stuttan tíma, t.d. eitt til tvö ár. Annmarkar kvótakerfis til lengdar eru hins vegar svo miklir, að slíkt kerfi má alls ekki festast í sessi. Það myndi hafa í för með sér grundvallarbreytingar á allri uppbyggingu sjávarútvegs á ís- landi — og það svo mikla breyt- ingu að erfitt er að sjá hana fyrir. Ég skal nefna þrjú atriði: • í fyrsta lagi mun kvótakerfið hafa í för með sér breytingu á allri eignauppbyggingu í sjávarútvegi. Aðalmerki sjávarútvegs hefur verið einkaeign, sem dreifst hefur á margar hendur. Það hefur reynst vel á íslandi. Með kvóta- kerfi til lengdar myndi þetta breytast og eignir í sjávarútvegi myndu færast á færri hendur og opinberir aðilar verði þar fyrir- ferðarmeiri. • í öðru lagi mun kvótakerfið fyrr en varir hafa í för með sér breyt- ingar á sóknaraðferðum sjómanna og útvegsmanna. Dugnaður og út- sjónarsemi hefur verið einkenn- andi fyrir þessa atvinnugrein. Sá hugsunarháttur mun breytast fyrr en varir ef kvótakerfið festist í sessi. • í þriója lagi mun kvótakerfið hafa í för með sér breytingu í launauppbyggingu í sjávarútvegi. Aflahlutur auk kauptryggingar hefur einkennt launakerfið í sjáv- arútvegi. Það mun einnig breytast fyrr en varir. í samtökum sjó- manna hafa þegar hafist umræður um að kasta hlutaskiptakerfinu og taka upp föst laun eða eitthvað annað kerfi, sem sé óháð fiskverði og aflabrögðum. Öll þessi atriði geta hvolfst yfir okkur fyrr en varir, ef kvótakerfið festist í sessi. Ég hef því mikinn fyrirvara við þessa stjórnunarað- ferð og við þetta frumvarp í heild. Það er mikilla bóta, að efri deild hefur breytt frv. á þann veg, að það gildi aðeins í eitt ár, en ekki í þrjú ár, eins og að var stefnt í upphafi. A það hefur verið bent, að hags- munasamtök í sjávarútvegi hafi Birgir ísleifur Gunnarsso reynst meðmælt kvótaleiðinni. Ég fagna því auðvitað að haft hefur verið samráð við þessi mik- ilvægu samtök, en minni jafn- framt á, að þau hafa reynst mis- vitur eins og aðrir. Mér þótti rétt að setja þessa fyrirvara mína fram hér við þessa umræðu. Ég mun hins vegar styðja frumvarpið að þessu sinni, en tel að þetta eigi að vera í síð- asta sinn sem Alþingi heimili kvótakerfi í sjávarútvegi. K-bygging Landspítala: Fjárveit- ing við þriðju um- ræðu fjárlaga Fjárveitinganefnd Sameinaðs þings lagði í gær fram breyt- ingartillögu við fjárlagafrum- varp, þess efnis, að framlag til mannvirkjagerðar á Landspít- alalóð hækki úr 13,8 m.kr. í 33,8 m.kr. Þar af ganga 1,5 m.kr. til stjórnunar og undirbúnings, 4. m.k. til tækjakaupa, 8,3 m.kr. til W-byggingar, 20 m.kr. til K-byggingar. Að auki er 45,5 m.kr. fjár- veiting til tækjakaupa og 1,5 m.kr. til almennra fram- kvæmda. Formaður fjárveitinganefndar: Ríkisútgjöld 1985 rúmir 26 milljarðar Tekjuáætlunin byggir á viðskiptahalla Gjaldahlirt fjárlaga 1985, sem áætlurt var 22,5 milljarrtar er fjárlagafrum- varp var lagt fram í haust, hækkar í ruma 26 milljarrta, art því er kom fram í máli Pálma Jónssonar (S) við þrirtju umræðu fjárlaga í gær. Hækkunin stafar af breyttum verðlagsforsendum, í kjölfar nýrra kjarasamninga og gengis- lækkunar, og vegna hækkana á í einstökum útgjaldalirtum í mertrórum þingsins. Formaður fjárveitinganefndar sagði að verðlagsspár sýndu að verðlag muni breytast um 26—28% milli áranna 1984 og 1985, en í fjárlagafrumvarpinu, eins og það var lagt fram, var byggt á 13—15% hækkun. Til þess að gera rekstrarfjárveitingar raunhæfar hafi verið nauðsynlegt að færa gjaldahlið fjárlaganna til samræmis við breyttar forsendur. Tekjuhlið fjárlaganna hækkar einnig mikið, m.a. vegna óbeinna skatta, sem hækka í hlutfalli við hærri verðþróun í landinu en fjár- lagaforsendur í haust vóru reistar á. Um þetta efni sagði formaður fjárveitinganefndar: „Helztu hreyfingar á einstökum liðum tekjupósta í frumvarpinu breytast þannig, að beinir skattar hækka úr kr. 2.805.000. 000 í kr. 3.115.000.000 eða um 11,1%. Óbeinir skattar (innskot: eyðslu- skattar, sem koma fram í vöru- verði) og aðrar tekjur, sem eru um 85% allra tekna ríkissjóðs, hækka hins vegar um kr. 3.045.000“ Rétt er að taka það frarn," sagði formaður fjárveitinganefndar, „að það sem er alvarlegt við þessa tekjuáætlun er fyrst og fremst það, að hún byggir á viðskipta- halla, sem nemur 5,6% af þjóðar- framleiðslu eða samtals 4,8 millj- örðum króna. Það er þá jafnframt ljóst, að ef ráða á bót á viðskipta- hallanum að meira eða minna leyti, þá mun það koma fram í minnkandi tekjum ríkissjóðs." Útgjöld vegna almannatrygg- inga aukast um 950 m.kr., vegna breyttra verðlagsforsenda, þ.e. vegna bótahækkana í samræmi við kjarasamninga (850 m.kr) og vegna sérstakrar 14% hækkunar bóta lífeyristrygginga (100 m.kr.). Orðrétt sagði Pálmi Jónsson í tilvitnaðri þingræðu, eftir að hann hafði gert grein fyrir verulegum samdrætti í þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum þrjú ár í röð: „Eftir þriggja ára samdrátt- arskeið er því nú spáð, að á næsta ári taki þjóðarframleiðsla að aukast, þó í litlum mæli sé, eða aðeins um 0,5% frá árinu í ár. Vonandi er að þær batahorfur fá- ist staðizt, að við getum nú farið að fikra okkur upp úr öldudalnum. Sú sigling verður þó vandrötuð. en til þess að við getum fengið vind í seglin, verður okkar að takast hvort tveggja, að auka fram- Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, lýsti því yfir í Sam- einurtu þingi í gær art ríkisstjórnin teldi naurtsynlegt að athuga mjög vandlega líklega þróun efna- hagsmála á næstu mánuðum í þinghléi, en Alþingi kemur vænt- anlega saman til fundar á ný 28. janúar 1985. Haft yrrti samráð virt artila vinnumarkartar, þessi mál Pálmi Jónsson leiðsluverðmæti okkar og um ieið að draga úr þeim mikla halla, sem er á viðskiptunum við útlönd." varðandi, ekki sízt vegna undir- búnings kjarasamninga á næsta ári. Þá yrrti haft samband virt þing- flokka stjórnarandstörtu þegar þessi mál skýrrtust. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ítrekaði það, sem hann hefur áður fram haldið (í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra), að rétt kunni Miðvikudagur: Níu lög FUNDIR stóðu fram á nótt í neðri deild Alþingis sl. mið- vikudag. Efri deild fundaði og fram á kvöld en skemur. Þenn- an eina dag vóru níu lög af- greidd frá Alþingi: Lög um vöruhappdrætti SIBS, lög um eftirlaun aldraðra, lög um málefni aldraðra, lög um tekjuskatt (lækkun tekju- skalta og samræmingu í skött- um heimila með mismunandi tekjuöflun hjóna), lög um sölu Landsmiðju til starfsfólks hennar, lög um 0,5% hækkun söluskatts, lög um tollskrá, lög um atvinnuréttindi skip- stjórnarmanna og lög um at- vinnuréttindi vélfræðinga. að vera að setja niður nefnd með aðild stjórnar, stjórnarandstöðu og aðila vinnumarkaðar til þess m.a. að gera ítarlega úttekt á tekjuskiptingu í þjóðfélaginu, hlutdeild launa í verðmætasköp- un og þjóðartekjum, með það að markmiði að leita þjóðarsáttar — meðan verið væri að vinna þjóðarbúið út úr aðsteðjandi vanda — og til þess að undirbúa sátt og frið á vinnumarkaði næstu misserin. Þróun efnahagsmála næstu mánuði: Málin könnuð í þinghléi — sögðu formenn stjórnarflokkanna smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar • . - . : f ' VEROBRÉ FAMARKAOUR HUSI VERSLUNARINNAR 6 HÆO KAUP OG SALA VEBSKULDABRÉFA SIMI 687770 Dyrasímar — raflagnir Gestur ratvirkjam , s. 19637. Smellurammar (glerrammar). Landsins mesta úrval i Amatör, L.v. 82, s. 12630. Hef mikiö úrval . af minka-, muskrat- og refa- skinnstrefium. Sauma húfur og pelsa eftir móli. Skjnnasa(an Laufásvegi 19, simi 15644. 25% staögreiöslu- afsláttur Teppasalan. Hliöarvegi 153, Kópavogi. Sími 41791. Laus teppi i úrvali. Aramótaferö Útivistar t Þrtra- mðrk 4 dagar. Brottför 29. des. kl. 8. Gist i Uti- vistarskálanum góöa i Básum í Goóalandi. Fararstjórar: Kristján M. Ðaldursson og Bjarki Harö- arson. Uppl. og farmióar á skrifst. Lækjarg. 6a, sími: 14606. Pantanir varóur art arakja f sfrt- asta lagi fðstud. 21. das. Ath. Utivist notar allt gistirými i skál- um sínum um áramótin. Ársrit Útivistar nr. 10 ar art koma út. Utivistarfólagar vinsamlegast greiðið heimsenda giróseóla. Skfrtaganga kl. 11 á sunnudag- inn. Munið símsvarann: 14606. Sjáumstl Utlvist. Nýársfagnaöur Freeportklubbsins verður hald- inn aö vanda í Atthagasal Hótel Sögu, nýársdag. Húsió opnað kl. 18.00. Mióa- og boröapantanir hjá Baldri á Bilaleigu Akureyrar. Kreditkort gilda. Skemmtinefndin FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11796 og 19533. Þorláksmessa 23. desember — Gönguferö á Esju Á Þorláksmessu kl. 10.30 er aó venju gönguferö á Kerhólakamb (856 m). Aríöandi aö þátttakend- ur séu hlylega klæddir (i góöum skóm, meö húfu og vettlinga og vindþéttri úlpu). Verö 200,- Fararstjórar: Guömundur Pét- ursson og Jóhannes I. Jónsson. Brottför frá Umferöarmiöstööinni, austanmegin. Farmiöar viö bfl. Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.