Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
49
Kirkjukvöld í Þor
lákshafnarkirkju
HIÐ ÁKLEGA kirkjukvöld verður
haldið í l>orlák.skirkju, l>orlákshöfn,
líkt og undanfarin ár þann 28. des. nk.
og hefst það kl. 20.30.
Dagskráin er fjölbreytt og mikið
hefur verið til hennar vandað.
Dagskrá kirkjukvöldsins er sem hér
segir: Kór Öldutúnsskóla Hafnar-
firði syngur. Stjórnandi er Egill
Friðleifsson. Bel Canto-kórinn úr
Garðabæ. Stjórnandi: Guðfinna
Dóra Halldórsdóttir. Jónas Ingi-
mundarson, píanóleikari. Söngfélag
borlákshafnar. Stjórnandi: Hilmar
Örn Agnarsson.
Tónlistarlífið í Þorlákshöfn hefur
verið mjög blómlegt það sem af er
þessum vetri. Af því helsta skal
nefna:
Þann 13. des. var haldið aðventu-
kvöld í Þorlákskirkju. Þar komu
fram Barnakór Þorlákshafnar og
Barnakór Seltjarnarness. Kórarnir
sungu hvor um sig en einnig saman.
Sópransöngkonan Margrét
Pálmadóttir söng og einnig Söngfé-
lag Þorlákshafnar.
Þá voru leikin nokkur einleiks-
verk á saxófón og þverflautu. Hús-
fyllir var í Þorlákskirkju á aðventu-
kvöldinu og þótti samkoman takast
hið besta.
í Þorlákshöfn er starfræktur
Tónlistarskóli og hefur hann gengið
mjög vel. I skólanum eru 80 nem-
endur og komust færri að en vildu.
Þar er kennt á orgel, píanó, gítar
og söng. Þá er einnig kennt á öll
blásturshljóðfæri. Forskóladeildir
eru tvær. Lúðrasveit er starfandi í
Þorlákshöfn og hefur gert það í
rúmlega eitt ár. Lúðrasveitin hefur
leikið á fjölda tónleika og náð mjög
góðum árangri. Stjórnandi Lúðrasv-
eitarinnar er Englendingurinn Rob-
ert Darling.
(FrétUtilkynninK)
Kólonía í hálfa öld
í FIMMTÍU ára afmælisriti íslend-
ingafélagsins í Stokkhólmi er ritgerð
eftir meistara l*órberg, skrifuð með
hans eigin hendi og Ijósprentuð. Af-
mælisritið heitir „Kólonía í hálfa
öld“, fallegt rit, 112 bls., í stærðinni
A-4. Ritgerð Þórbergs er 20 síður og
hefir ekki verið prentuð áður, en
hún er til í eiginhandarriti hans í
Landsbókasafninu.
Þarna eru nýjar og gamlar rit-
gerðir eftir dr. Sigurð Þórarins-
son, Janna (Sven Janson), Áslaugu
Skúladóttur í Stokkhólmssendi-
ráðinu, samtal við Halldóru
Briem, endurminningar Jónasar
Haralz, sem hann kallar „Norðan
við stríð", ritgerð eftir Gunnar
Hoppe, sem hann kallar „Om is-
lánninger i Sverige, och framför-
allt om en“, grein eftir Svein Ás-
geirsson „Student í Stokkhólmi
1945—50“. Grein er eftir Halldór
Laxness „Mínúta í Stokkhólmi",
önnur eftir Svein Einarsson, ljóð
eftir Þórarin Eldjárn, grein eftir
Árna Gunnarsson „Miðöld í
Stokkhólmi", grein eftir Kjartan
Jóhannsson „Nokkur Stokkhólms-
ár“. Guðfinna Ragnarsdóttir
skrifar og segir „og við vorum glöð
og kát“. Margt fleira er í afmæl-
isritinu þar sem höfundar segja
frá stúdentsárum. Nokkur eintök
verða seld næstu daga í bókaversl-
un Sigfúsar Eymundssonar.
(FrctUtilkynninK)
Íi-A
V * ■ J í
Karlakórinn Heim-
ir með hljómplötu
KOMIN ER út ný hljómplata með
söng karlakórsins Heimis í Skaga-
firði. Á þessari hljómplötu eru 15
lög eftir innlenda og erlenda höf-
unda, lagaval er mjög fjölbrcytt,
auk íslenskra laga eftir Sigurð
Helgason, Inga T. Lárusson og
Björgvin Guðmundsson eru kórar
úr þekktum óperum og tónverkum
eftir W.A. Mozart, G. Verdi, R.
Wagner, B. Smetana, ('.M.v. Web-
er og J. Sibelius, einnig eru á plöt-
unni þjóðlög, létt lög og Vínarvals-
ar eftir Joh. Strauss.
Einsöng og tvísöng syngja
Pétur Pétursson og Gísli Pét-
ursson, þrísöng syngja Guðmann
Tobíasson, Ingimar Ingimarsson
og Jón St. Gíslason.
Söngstjóri er Jiri Hlavacek,
sem verið hefur kennari við tón-
listarskóla Skagafjarðarsýslu sl.
3 ár, þann var áður hljómsveit-
arstjóri og söngstjóri við þjóðar-
óperuna í Prag. Undirleikari
með kórnum er kona söngstjór-
ans, Stanislava Hlavackova, en
hún var áður píanókennari við
tónlistarskólann í Prag auk þess
að vera konsertpíanisti.
Plötuumslag er hannað af fé-
lögum í stjórn Heimis. Á fram-
hlið plötuumslagsins er mynd af
Varmahlíð í Skagafirði, en þar
er starfsvettvangur kórsins,
myndin er tekin af Snorra
Snorrasyni. Á bakhlið er laga-
skrá, myndir af kórnum, upplýs-
ingar um kórinn í stuttu máli á
íslensku og ensku og nafnaskrá
kórfélaga.
Platan er tekin upp 1983—
1984 af Sigurði Rúnari Jónssyni,
prentsmiðjan Grafík litgreindi
og prentaði plötuumslag. Platan
er pressuð í Alfa. Plötunni hefur
verið dreift í hljómplötuverslan-
ir. Auk þess fæst hún hjá Skag-
firsku söngsveitinni í Reykjavík.
Björn í Bæ.
Jólaljós Og
jólaundir-
búningur
í Hólminum
ÞAÐ SÉR á að ekki eru margir
dagar til jóla. Við hverja götu og
í hverju húsi eru skrautljós úti í
glugga. En sá munur eða þegar
við sem nú erum fullorðnir vor-
um ungir. Þetta allt gefur bæn-
um okkar svo skemmtilegan og
hátíðlegan blæ.
Jafnvel við höfnina má sjá
að jólin eru í nánd. Traffíkin er
mikil. Bílar í röðum fyrir
framan verslanir og rúturnar
koma fullar bæði af pósti og
Iausum pökkum. Þetta er mikil
tilbreyting. Skammdegið er nú
í algleymi og senn fer að birta
á ný. Litlu jólin í skólunum eru
á næstu grösum og um leið
byrjar jólaleyfið sem stendur
fram yfir áramót.
Bátar eru nú senn að ljúka
skelveiðum á þessu ári. Ég held
að skelvinnslumar taki við afla
fram í þessa viku. En hvenær
hafist verður handa eftir ára-
mót er ekki gott að segja. Ekki
er enn búið að ákveða fisk-
kvóta þann sem verður til
grundvallar fiskveiðum 1985.
Er þetta ekki gott, þar sem
sumir þora ekki að ráða á ver-
tíð eða afla neta, sbr. báturinn
hér sem mátti aðeins veiða 6
tonn í ár og sat uppi með
mannskap og net.
Nú vonast menn bara eftir
að fiskinum fjölgi í sjónum og
ekki líði á löngu áður en afla-
magnið sem veiða má verði
aukið.
Árni
Magnús 8c Jöhaim
LJOSASKIPTI
Eftirspurnin eftir nýju plötunni meö
Magnúsi & Jóhanni hefur veriö meö
mesta móti, enda var vitaö aö hér yröi
um gæöaskífu aö ræöa. Þessi plata
inniheldur bæöi jólalög og venjulegar
„heils-árs lagasmíöar" sem tryggir
aukiö gildi hennar í plötusafninu.
'^Os
JÖH
Magnús og Jóhann mæta í
verzlanir Skífunnar í dag til
að árita plötu sfna Ljósaskipti.
Þeir verða á Laugavegi 33
milli kl. 3—4 og Borgartúni
24 milli kl. 4—6.
Vandað efni
byggir upp.
Útgáfan
SKÁLHOLT
DREIFING: