Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
51
Flugkoman, sem haldin var á Selfossflugvelli fyrir skömmu, var fjölsótt Hátt á fimmta hundrað gestir fylgdust með
dagskránni, og á milli 30 og 40 einkaflugvélar voru á staðnum.
Velheppnaðri sumardagskrá
vélflugmanna lokið
Jón Guðmundsson, form. Flugklúbbs Selfoss og ein aðaldriffjöðrin í flug-
málum staðarins, var heiðraður af björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli fyrir störf að flug- og björgunarmálum.
Sumardagskrá Vélflugfélags
íslands lauk fyrir nokkru. Að
dómi flestra, sem tóku þátt í
starfinu tókst vel til, og er óhætt
að fullyrða að starf VFFÍ hafi
ekki verið jafn öflugt í áratugi.
Þá skemmdi það ekki fyrir vel-
heppnaðri dagskrá, að veðurguð-
irnir hafa veriö vélflugmönnum
einstaklega hliðhollir í sumar.
Sigurjón Ásbjörnsson, form.
VFFÍ, sagðist í samtali við blm.
Mbl. vera mjög ánægður með
sumarstarfið í heild. Það hefði að
verulegu leyti byggst á samvinnu
VFFÍ og hinna ýmsu flugklúbba á
landsbyggðinni og hefði þetta
fyrirkomulag tekist mun betur en
bjartsýnustu menn þorðu að vona
í upphafi sumars.
Aðspurður um fyrirhugað vetr-
arstarf VFFÍ, sagði Sigurjón, að
það myndi væntanlega hefjast um
miðjan október nk. Reynt yrði að
vanda til vetrardagskrárinnar
eins og frekast væri kostur og að
hún yrði að stærstum hluta byggð
á fræðslustarfi, t.d. námskeiðum
og fyrirlestrum. Þá yrði i vetur
unnið að endurskipulagningu á
rekstri félagsins, m.a. vegna auk-
inna erlendra samskipta. Sigurjón
sagði einnig, að í vetur yrði undir-
búin og skipulögð herferð sem
myndi miðast að því að gera árið
1984 að slysalausu ári í flugi hér-
lendis.
Flugdagur á Selfossi
Áðurnefndri sumardagskrá
VFFÍ lauk með flugkomu (fly-inn)
á Selfossflugvelli. Eins og jafnan
sl. sumar, þegar vélflugmenn
efndu til mannfagnaðar var blíð-
skaparveður og góð aðsókn. Hátt á
fimmta hundrað manna fylgdust
með dagskráratriðunum og á milli
30 og 40 flugvelar voru á staðnum.
Áhorfendum var margt gert til
skemmtunar, en dagskráin var
annars með frekar hefðbundnu
sniði. Félagar úr flugmódelflugfé-
laginu Þyt sýndu vélar sínar, hinn
góðkunni sjónvarpsmaður ómar
Ragnarsson sýndi fluglistir og
skemmti gestum, sömuleiðis var
sýnt listflug. Nýbakaður Is-
landsmeistari f svifflugi, Sig-
mundur Andrésson, sýndi svifflug,
flokkur úr þyrlubjörgunarsveit
varnarliðsins sýndi, og loks var
áhorfendum gefinn kostur á því að
fara f útsýnisflug í hinu góða
veðri.
Flugkoman á Selfossflugvelli
var haldin í tilefni þess að 10 ár
voru liðin frá því að flugvöllurinn
var vígður og að rúm 10 ár voru
síðan Flugklúbbur Selfoss var
stofnaður.
Að sögn Jóns Guðmundssonar,
formanns Flugklúbbs Selfoss, er
mikill flugáhugi á Selfossi og í
nærsveitum. Hann sagði að að-
staðan á Selfossflugvelli væri orð-
in prýðileg. Þar væru tvær flug-
brautir, 700 og 900 feta langar, og
tvö flugskýli. Starfssvæði
Flugklúbbs Selfoss spannar yfir
allt Suðurlandskjördæmi og eiga
félagar klúbbsins 15 smáflugvélar,
þar af eru 7 vélar að staðaldri á
Selfossi.
Meðfylgjandi ljósmyndir frá
flugkomunni tók Hergeir Krist-
geirsson á Selfossi.
Eins og sést á þessari Ijósmynd voru sumar flugvélarnar, á flugkomunni á Selfossflugvelli, ekki ýkja stórar.
SKÁLDSAGA EFTIR
GÍSLA J. ÁSTÞÓRSSON
Skáldsaga þar sem sögusviðið
er Reykjavík í „Volstrítskrepp-
unni“ fyrir stríð „þegar haft var
eftir grandvörum og sannsögl-
um manni að þeir aumustu
þeirra allslausu væru farnir að
éta hunda.“
Bókaúígáfa
/MENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7« REYKJAVÍK • SlMI 6218 22
SOB teiknistofa