Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
59
Hvernig á að
fást við nú-
tímakonuna?
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Michael Morgenstern: Hvernig
elska á konu.
hýðing: Sigurður Hjartarson.
Útg. Frjálst framtak 1984.
Á þessum síðustu tímum upp-
lýsinga, hópeflis og alþýðuvísinda
er kjörið að benda vegvilltum
karlmönnum, ruglaðir eftir jafn-
réttisárin" hvernig þeir eigi að
nálgast konur. Svo að þeir móðgi
þær ekki andlega, en sinni þeim
eins og vitsmunaverum. En gleymi
ekki heldur að konur eru áfram
kynverur, hvað sem allri jafnrétt-
isbaráttu líður.
Bók Michaels Morgensterns seg-
ir skýrt og greinilega frá því,
hversu karlmenn hafa misst fót-
festuna varðandi það að nálagst
konur, og hvað þeir eru yfirleitt
miklir stirðbusar í samskiptum
sínum við þær, misbjóða þeim í
síbylju. Og sýnir líka hvað mikil
breyting hefur orðið á afstöðu
kynjanna hvors til annars þessi
síðustu 15—20 ár. Mér finnst
Morgenstern gera efninu góð skil
einkum framan af. Það er vand-
meðfarið, svo að ekki verði úr
hreinasta della og í bókum af
þessu tagi er oft svo mikið af
sjálfsögðum hlutum og einfeldn-
islegum, að engu tali tekur. Morg-
enstern hefur augljóslega hugsað
vel sitt ráð áður en hann hófst
handa og unnið athyglisvert und-
irbúningsstarf og sömuleiðis leit-
ar hann ráða hjá spökum og rétt-
sýnum vinkonum sínum. Allt
verður það bókinni til gagns. Fyrri
kaflar hennar fannst mér þó öllu
betur unnir. Síðari hlutanum þar
sem vikið er verulega itarlega að
kynmökum aðilanna fannst mér
karlrembusjónarmiðið skjóta upp
kollinum, þrátt fyrir margendur-
teknar yfirlýsingar höfundar gegn
því sjónarmiði.
En allt í allt vel boðleg bók,
kannski meira að segja gagnleg í
alvöru. Og ágætlega þýdd.
lega litið til plötunnar koma en
síðan vann hún mjög á við hlust-
un, einkum og sér í lagi fyrri
hliðin. Hljómurinn er mjög
„þéttur" og allur hljóðfæraleikur
mjög sannfærandi. Söngur Sig-
riðar Beinteinsdóttur jafnvel
enn betri en ég átti von á.
Kikk skipa á plötunni auk Sig-
ríðar Nikulás Róbertsson/-
hljómborð, Guðmundur Jóns-
son/gítar, Sveinn Kjartans-
son/bassi og Jón Björgvins-
son/trommur. Miklar manna-
breytingar hafa verið í Kikk
undangengna 18 mánuði og nú
eru bæði Jón og Guðmundur
hættir. Sjónarsviptir að þeim
báðum því Jón er stórskemmti-
legur trymbill og Guðmundur
var aðallagahöfundur flokksins
(á 14 lög af 6 hér) auk þess að
vera góður gítarleikari.
Margir hafa gagnrýnt þá
ákvörðun að hafa enska texta á
þessari plötu og tek ég undir
hana. Er á því að góðir íslenskir
textar hefðu skilað sér miklu
betur. Þessi ákvörðun mun hins
vegar hafa verið af hálfu Steina
að því er hljómsveitarmeðlimir
tjáðu mér en tæpast fer Kikk á
erlendan markað, þrátt fyrir
góða tilburði.
Bestu lög plötunnar finnst
mér vera Try for Your Best
Friend, Pictures og Looking for
Someone. Nikulás Róbertsson er
höfundur þess fyrsta, Guðmund-
ur hinna síðari. Is This the Fut-
ure er níðþungt lag á milli þess-
ara tveggja, sem bæði eru á
A-hlið, en skemmtilegt. B-hliðin
er léttvægari en samt mættu
flestar íslenskar sveitir vel við
sambærilegan árangur una.
-
. æ
,
Blomst flettet Blá Blomst/svejfet
, ; ’ffr' 'V-
1 - ’J&íj
■
I -
a í?M
, - >»• íýJ
1 tjs:
TiöHftquebar/blá Musselmalet/halvblonde
- ■ t
i)
Matarstellin
frá Konunglega
Óumdeilanleg
í 250 ár
onunglega
Hverfísgötu 49, sími 13313.
Dönsku barnaskórnir frá
Bindpaid
eru í hæsta gæöaflokki.
Kuldaskór úr
vatnsvöröu
leöri.
Skóverslun Helga,
Völvufelli 19,
sími 74566.
Spyrjid um barnaskóna
með kanínumerkinu.
Póstsendum
r r
1 FYRSTA SINN A ISLANDI
ÍTÖLSKU
ILMVÖTNIN
F— _ .
Sérilmur
fyrir hvert
stjörnu-
h Á merki.
SÖLUSTAÐUR:
BONNÝ
Laugavegi 35
TÍMAHELLIRINN
Þú ert söguhetjan
í þínu eigin ævintýri
Þú ert týndur i ókunnum, dimmum helli. Smám saman tekst
þér aö grilla i tvenn hliöargöng. önnur göngin liggja í bugöum
niöur á viö til hægri. Hin liggja upp á viö til vinstri. Þaö hvarflarað
pér aö göngin niöur á viö liggi til fortíöarinnar, en hin til
framtíðarinnar. Ef þú velur göngin lilvinstri, flettuað bls. 20. Efþú
velur göngin til hægri, flettu aö bls. 61.
Hvaö gerist næst i sögunni? Það veltur allt á því hvaö þú velur.
Hvernig endar sagan? Þú einn ákveöur paö. Og þaö besta við allt
saman: Þú getur lesið bókina aftur og aftur þangaö til þú hefur
ekki aöeins einu sinni, heldur oft, lent í spennandi ævintýrum.
,,Þetta er stórkostleg bók, ég las hana níu sinnum sama
kvöldið—og alltaf nýog ný saga. Frábært!” sagöi Dóra 12ára. Og
kennararnir mæla lika með bókinni: „Hún fær krakkana til aö
hugsa—og hafa gaman af því."
Þú velur um 40 sögulok. Það gerist ekki skemmtilegra.
STJ ÖRNtÍÍbÆKUR
Dreifing:
Innkaupasamband bóksala h.f.
sími 91-685088.