Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
61
röð og reglu á ýmis skjöl varðandi
verkalýðshreyfinguna og var það
hans takmark að skrifuð yrði saga
fulltrúaráðsins frá upphafi, en því
miður entist ekki heilsa hans né
aldur til.
Þegar að leiðarlokum er komið
vil ég f.h. Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna í Reykjavík þakka
Þorsteini Pjeturssyni fyrir allt
það mikla brautryðjendastarf sem
hann innti af hendi fyrir full-
trúaráðið og verkalýðshreyfing-
una. Um leið og ég persónulega
þakka Þorsteini samfylgdina hjá
fulltrúaráðinu, flyt ég eftirlifandi
eiginkonu hans, Guðmundu
Ólafsdóttur, mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Þorsteins
Pjeturssonar.
F.h. Fulltrúaráðs verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík,
Hilmar Guðlaugsson
Einn ágætur æskuvinur minn er
látinn, Þorsteinn Pjetursson.
Hann lést 12. þessa mánaðar eftir
langa vanheilsu. Þorsteinn fædd-
ist hér í borg 6. mái árið 1906,
sonur hjónanna Ágústu Þor-
valdsdóttur og hins merka gáfu-
manns, Pjeturs G. Guðmundsson-
ar bókbindara og fjölritara.
Kynni okkar Steina P., eins og
hann var oft nefndur meðal vina,
hófust upp úr 1930 og af þeim
kynnum tel ég mig hafa mikið
lært. Þó hann væri ekki nema
þrem árum eldri en ég fannst mér
hann búa yfir svo miklum fróðleik
og átti hann gott með að miðla
honum. Við vorum herbergisfélag-
ar í rúm tvö ár. Oft var mann-
margt hjá okkur og margt bar á
góma bæði gaman- og alvörumál. í
fari hans mátti finna fjölbreyti-
lega kosti. Hann var glaðsinna og
með afbrigðum spaugsamur, svör
hans og hnittin orðatiltæki léku
oft á vörum hans. Þó var hann
alvörumaður innst inni og kom
það einna helst fram í fastmótuð-
um lífsskoðunum hans.
Þegar ég var í stjórn Málara-
sveinafélagsins naut ég oft hans
góðu ráða varðandi félagsmál, en
þar var hann manna fróðastur og
ávallt fús að miðla mér af þekk-
ingu sinni og reynslu á því sviði.
Þorsteinn mun ekki hafa verið
gamall þegar hann fór fyrst að
taka þátt í félagsmálum verka-
manna, þá sem félagi í Dagsbrún.
Hann var af heilum hug málsvari
þeirra er minna máttu sín í lífs-
baráttunni, dagiaunamannsins, og
var óvæginn í dómum um þá er
hann taldi að gengju á rétt þeirra.
Hann var fyrst og fremst félags-
hyggjumaður, harðduglegur mála-
fylgjumaður, rökfimi var honum í
blóð borin. Hann hafði mjög gott
vald á íslensku máli, enda kom
það ljóst fram bæði í ræðuformi
sem og í rituðu máli. Hann bar
ótakmarkaða virðingu fyrir dag-
launamanninum, hinum láglaun-
aða þjóðfélagsþegn, og féiagsmál
þeirra voru mestu áhugamál hans
alla ævi.
Þorsteinn starfaði lengst hjá
Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í
Reykjavík. Þar mun hann hafa
notið sín vegna þekkingar og
reynslu í félagsmálum. Eg held
hann hafi verið einn fróðasti mað-
ur um sögu verkalýðsstéttarinnar
á ísiandi.
Nú þegar þessi gamii góði vinur
er allur minnist ég hinna mörgu
samverustunda sem við áttum alía
tíð. Ég færi honum þakkir fyrir
samfylgdina, öll hans góðu ráð og
langa og trausta vináttu.
Eiginkonu hans og börnum
sendum við hjónin samúðarkveðj-
ur.
Sæmundur Sigurðsson
GOTT TÆKIFÆRI
GOTT VERÐ
GOÐ VARA
Nú gefst tækifæri til hagstæðra innkaupa á
ýmsum hlutum viðkomandi tölvum.
Eftirfarandi verðlisti sýnir einingaverð á
nokkrum þeirra.
Disketta 1 kr. 239.-
Disketta 2D kr. 279,-
Disketta 2D í PC kr. 212.-
Litaband í PC kr. 336,-
500 bls. A4 pappír kr. 207,-
Að sjálfsögðu býðst enn betra verð með magn-
kaupum eða t.d. PC pökkum.
PC-pakki I PC-pakki II
20 stk. diskettur 2D 30 stk. diskettur 2D
500 bls. A4 pappír 500 bls. A4 pappír
2 stk. litabönd á kr. 4.560.- 3 stk. litabönd á kr. 6.950,-
Gríptu þetta tækifæri, hafðu samband í síma
91-68 73 73, það borgar sig.
= ~m., =. £= IBM á íslandi, Skaftahlíð 24,
= ==F ==== Reykjavík, sími (91) 68 73 73.
Það kostar sitt
að framleiða eingöngu
vandaðar og góðar
matvörur
iV
ss
SS hefur alltaf leitast við að svara kröfum neytenda um
nýjungar í framleiðslu, úrvinnslu og frágangi
SS lærir af dómi neytenda, og breytir eftir honum
SS ber virðingu fyrir neytendum . SS lækkar ekki
verðlag á framleiðslu sinni, með því að gera minni
gæðakröfur: Neytandinn á aðeins skilið það besta, jafnvel
þótt það kosti meira
Sérþjálfað starfsfólk SS tryggir vönduð vinnubrögð
SS treystir gæðaeftirlitið með góðu skipulagi og stjórnun
á öllum stigum vinnslunnar
SS kappkostar að eiga gott samstarf við bændur og
stjórnendur framleiðslubúa
SS vill kosta miklu til
svo neytendum standi ávallt til boða
matvörur í hæsta gæðaflokki
á sanngjörnu verði
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
—
-