Morgunblaðið - 21.12.1984, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
69
TÓK HESTANA MEÐ SÉR ER HANN ÁRITAÐI BÓK SÍNA
„Hrossin frá
Nú, þessa síðustu daga fyrir
jólin, eru höfundar hinna
ýmsu bóka út um allan bæ að
árita bækur sínar. Það er þó
ekki á hverjum degi sem hross
eru í fylgd með höfundum. Það
gerðist sl. laugardag að Hjalti
Jón Sveinsson, sem var að árita
í bókabúðinni Ástund bók sína
„Hrossin frá Kirkjubæ", mætti
Kirkjubæ“
með tvö hross á staðinn, þau
Hrana og Þráð. Að sjálfsögðu
eru þau ættuð frá Sigurði Har-
aldssyni bónda á Kirkjubæ, sem
var með í förinni, og eigandi
þeirra var einnig með, Sigríður
Sigþórsdóttir. Auk bókarinnar
sem Hjalti skrifar kom út
myndsnælda um sama efni.
Stúlkan sem
Stevie Wonder
söng um
r
Ameðfylgjandi mynd sjáum við
stúlkuna sem Stevie Wonder
söng um í laginu „I just called to say I
love you“ í myndini „Woman in Red“.
Nafn konunnar er Kelly Le Brock og
hún byrjaði sinn frægðarferil er hún
birtist á 20 síðum amriska tímaritsins
Vogue. Hún vann fyrir Eileen Ford
um skeið.! viðtali við Kelly um mynd-
ina „Woman in Red“ sagði hún. „Hvað
snertir myndina má segja að ég hafi
verið á réttum stað á réttum tíma.
Gene Wilder sem gerði myndina kom
oft í heimsókn til okkar hjóna og hauð
mér þetta hlutverk.“
Hún var spurð hvort það hjálpaði
henni mikið mikið að vera gift Victor
Drai, en hann er franskur kvik-
myndaframleiðandi en kannski þekkt-
ur betur sem fyrrverandi elskhugi
Jacqueline Bisset. „Victor er dálitið
sérstakur og hefur ótæmandi orku.
Hann hafði alltaf þá hugmynd að
hægt væri að gera franska grínmynd
um Hollywood, mynd sem „Woman in
Red“ er. Hann hafði ekkert á móti því
að ég léki aðalhlutverkið í þessari
mynd og lét Gene Wilder algerlega
um það.“
Hvað er það sem þú leitar eftir í
fari karlmanns?
„Hendurnar eru það sem taka þarf
best eftir og tennurnar þurfa að vera
fínar. En þó er það oft þannig að
heimsins fallegustu og fínustu karl-
menn eru hrútleiðinlegir."
Hún sagðist ætla að halda áfram á
þessari braut i kvikmyndum og helst i
grínmyndum, allavega myndu áhorf-
endur ekki sjá hana leika í hrollvekju
á næstunni. Svoleiðis er það nú.
Gjöfin sem gleður
er falleg grávara
Feldskerinn
Skólavörðustíg 18,
simi 10840.
Im LAPPONIA
L J skartgripir frá Finnlandi
GULL OG DEMANTAR
Kjartan Asmundsson, gullsmiöur.
Aðalstræti 7 — Sími 11290.