Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 75

Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 75 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS MUimrvtia'u n J ! r fmr* » - ' w*! Hákon Jónas Hákonarson hvetur landsmenn til aó styðja sjómenn í baráttunni fyrir bættum kjörum. Sjómenn þurfa að fá kjör sín bætt strax Hákon Jónas Hákonarson, sjó- maður skrifar: Góðir landsmenn! Nú eru sjó- menn að fara að setjast að samn- ingaborðinu og allir vita að sú barátta verður hörð vegna slæmr- ar heildarafkomu útgerðar. En sjómenn verða að fá umtalsverða launahækkun þar sem þeir hafa dregist verulega aftur úr öðrum landsmönnum á undanförnum 2 árum. Aflasamsetning hefur farið versnandi, kauptrygging hefur ekki haldið í við almennar kaup- hækkanir í landi. Nú er svo komið að 40% af heildarfiskverði eru greidd til útgerða utan skipta. Því ættu allir landsmenn að skilja, að sjómenn þurfa að fá kjör sín bætt og það strax, annars vöknum við upp einn daginn og sjáum að allur okkar fiskiskipafloti er í höfn, því það eru engir til að fara á sjó. Sjómenn telja þá sér og sfnum betur borgið með að vinna í landi. Landsmenn mega búast við miklum áróðri útgerðarmanna og stjórnvalda, en ég vona að allir beri gæfu til að hlusta ekki á þann áróður. Margur landinn hefur lát- ið heillast af svimandi tölum um tekjur sjómanna á árunum 1980—1982 en nú er sá tími liðinn. Nú fá sjómenn ekki lengur að veiða óheft, eins og var á „góðu árunum". Nú er kvóti á öllum veið- um og þær stórheftar. Það má lengi telja upp hvað hef- ur dunið á sjómönnum undanfarin ár og það mætti koma með ýmsar tölur um að margur útgerðarmað- urinn hefur það gott og gæti borg- að mikið meira kaup en hann gerir í dag. Ég vona að þið standið með okkur í þeirri baráttu, er við eig- um fyrir höndum. Ég vil sérstak- lega brýna fyrir sjómönnum að styðja dyggilega við bakið á Sjó- mannasambandi íslands og samn- inganefnd sambandsins, er þeir hefja samningaviðræður við út- gerðarmenn á næstunni. Enn fremur vona ég að ASÍ veiti sjó- mönnum félagslegan styrk í bar- áttunni. Með fyrirfram þökk fyrir veittan stuðning, góðir launþegar. Byggjum náttúrugripasafn Axel Kaaber skrifar: Þetta er mynd af skólesit, Zeoliti, — eða svokallaður geislasteinn. Nafnið Zeolit kem- ur úr grísku, og þýðir suðu- steinn, þar sem hann bólgnar og belgist út, sýður við upphitun. Hér á landi hafa fundist um 21 af 29 þekktum geislasteinum, en skólesit er algengur geislasteinn í basaltlögum landsins. Nú vantar alveg að efna loforð ríkisstjórnar og Háskóla fslands um byggingu náttúrugripasafns, sem gefið var, þegar gamla nátt- úrugripasafnið var afhent rík- inu, árið 1947, ásamt bygg- ingarsjóði, að upphæð liðlega kr. 82.000, sem safnið átti. Hvað skyldi þetta vera mikil upphæð framreiknað til dagsins í dag? Tökum höndum saman, ríkis- stjórn, Háskóli íslands og allir velviljaðir áhugamenn, fáum náttúrufræðisafn sem sæmir menntaþjóð, sem gefur vísinda- mönnum góða aðstöðu til rann- sókna og þar sem áhugamenn geta fengið tækifæri til þess að fræðast um náttúru landsins. ÞAÐ VEUA ALLIR UÓSALAMPA ipÞÝZK-ÍSLENZKA MOSS 0/~íc m m Malið er leyst Þetta er stóllinn sem þú gefur sjálfum þér í jólagjöf. Hann er sterkur, þægilegur, hreyfanleg- ur, Ijós eöa dökkur og svo fæst hann líka á snúningsfæti og meö skammel. EFNI: grind formbeygt beyki í viöarlit og dökkbæsaö. Mjúkt og sterkt 1. flokks leður á setu, baki og örmum. Gervileöur á grind. Stóllinn á myndinni verð kr. 7.9 0.- Stóll á snúningsfæti verð kr. 9.650.- Skammel verð kr. 2.720.- im öföSs Þú þarft ekkí að leita lengur Þú finnur hvergi betri stól á lægra verði. BÚSGA6N&HÖLLIN BfLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVfK « 91-61199 OQ 81410

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.