Morgunblaðið - 21.12.1984, Side 76
76
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
Einar Bollason landsliðsþjálfari:
Körfuboltinn betri
en undanfarin ár
„Mér finnst körfuboltinn miklu
betri en undanfarin ár, sórstak-
lega eru spilaöar miklu betri
varnir en verið hefur,“ sagöi Einar
Boliason landsliösþjaffari í körfu-
knattleik og þjálfari Hauka í sam-
tali viö Morgunblaöiö.
„Það er einna ánægjulegast viö
körfuknattleikinn okkar hversu
mikiö af góöum ungum mönnum
er aö koma fram hjá okkur. Og
mér líst vel á landsliðið okkar og
þá pilta sem valist hafa í þaö. Þeir
viröast allir í góöu formi, þaö er
kannski helzt vafamál meö Jón
Kr., sem hefur ekki getað æft af
fullu vegna náms í íþróttakennara-
skólanum.
Veturinn í vetur veröur tilrauna-
vetur með landsliöiö fyrir alvöruna
næsta vetur. Norömenn veröa erf-
iöir heim aö sækja upp úr áramót-
unum, viö höfum tapaö síöustu
tveimur leikjum viö þá meö yfir 20
stiga mun.
Endurnýjunin í landsliöinu er sú
mesta frá 1973, er ég byrjaöi meö
landsliöiö. Nú koma inn átta nýliö-
ar af 14, eöa jafnmargir og 1973,
en þá komu inn menn eins og Torfi
Magnússon og Gunnar Þorvarö-
arson, sem staöiö hafa sig vel síö-
an. Ég held aö ungu mennirnir í
landsliöinu eigi eftir standa sig vel
og lyfta liöinu og körfuknattleikn-
um á hærra plan,“ sagöi Einar.
Samtal okkar fór fram eftir leik
Hauka og ÍR, þar sem Haukar
unnu öruggan sigur, eins og fram
kemur annars staöar á siöunni.
Einar var ánægöur meö frammi-
stööu sinna manna, þeir þurftu aö
taka sér tak eftir tapleik gegn
Njarövíkingum um síöustu helgi.
Þeim tókst aö rífa sig upp og
geröu margt af því sem fyrir þá var
lagt mjög vel.
„Njarövíkingar hafa veriö áber-
andi sterkastir í fyrri hluta mótsins,
munurinn á þeim og öörum liöum
er aö þeir detta aldrei niöur, eru
svo jafnir. Þeir eiga fullt af góöum
ungum strákum, ekki bara fjóra
góða menn eins og sumir segja. Ég
er aö vona aö þeir séu a toppi
núna og eigi erfitt meö aö ná sér á
strik í marz, en uppbygging mín
byggist á því aö viö veröum á toppi
þá.
En mór kæmi ekki á óvart þótt
Njarövíkingar komist í úrslitin í 1.
sæti, annaö væri kraftaverk, og
held raunhæft aö viö förum inn í
þau í ööru sæti. Viö fórum inn í
úrslitin á 18 stigum i fyrra en erum
komnir meö 16 stig núna. Svo
verður þaö spurning hvort viö eig-
um möguleika gegn UMFN í úrslit-
unum. Ég vil ekki setja of mikla
pressu á mína menn. Þetta er bara
annað áriö okkar í deildinni, en í
úrslitakeppni vegur reynsla þungt
á metunum," sagöi Einar.
— ágás.
„Ég er ánægður meö marga
hluti í þessum leik. Þaö er erfitt
aö ná liði upp eftir tapleik, og
fyrir leikinn var ég hræddur viö
ÍR-líöiö, sem sýndi með sigrinum
á KR að það getur lagt hvaða liö
sem er aö velli. En strákarnir
stóöu sig vel og við sýndum aö
viö eigum fullt af mönnum sem
geta skoraö,“ sagöi Einar Bolla-
son þjálfari Hauka eftir aö menn
hans höfðu lagt ÍR-inga að velli
83—69 í gærkvöldi, en staöan í
hálfleik var 40—35 fyrir Hauka.
Haukarnir sýndu góðan varnar-
og sóknarleik, þótt hittnin hafi
brugöist á köflum. Komust þeir í
10—0 eftir fjórar mínútur, 12—8
eftir 7 mínútur og 31—20 eftir 13,
en ÍR-ingar spiluðu vel síöustu 10
mínúturnar og tókst aö minnka
muninn í 32—31 og 34—33, en
Haukarnir juku á forystuna fyrir
hié. í seinni hálfleik breikkaöi biliö
og sigur Haukanna var aldrei í
hættu, jafnvel þótt aöeins munaöi
5 stigum er 9 mínútur voru eftir.
ÍR 69
Haukar 83
Munaði um tíma 16 stigum, en
Gylfi Þorkelsson, sem var lang-
beztur ÍR-inga átti síöasta oröiö er
sjö sekúndur voru eftir.
Hjá Haukum áttu flestir góöan
dag. Pálmar var potturinn og
pannan í spilinu og lék mjög vel,
sætti sig viö aö vera jafnan í
strangri gæzlu. Minnkaöi og press-
an á hann viö aö Hálfdán, sem átti
stórleik í fyrri hálfleik, Ólafur og
Sveinn skoruöu grimmt og léku
mjög vel. ívar Webster skoraöi
ekki mikið, en hins vegar sýndi
hann hversu mikilvægur góöur
miövöröur er meö þvi aö hiröa 25
fráköst í leiknum, þar af 22 í vörn-
inni.
ÍR-ingar stóöu í Haukunum í
fyrri hálfleik en áttu viö ofurefli aö
etja í þeim seinni. Hittnin brást á
köflum og mundi liöinu vegna
talsvert betur ef ráöin væri bót á
því. Langbeztu menn voru Gylfi og
Kristinn Jörunds, skoruöu sín á
milli 45 af 69 stigum ÍR, en Björn
Steffensen og Hreinn áttu einnig
þokkalegan leik.
Stig ÍR: Gylfi Þorkels 28, Krist-
inn Jör 17, Björn Steffensen 6, Jón
Örn 6, Karl Guölaugs 6, Hreinn
Þorkels 4 og Bragi Reynis 2.
Stig Hauka: Hálfdán 20, Ólafur
18, Pálmar 13, Sveinn Sigurbergs
12, Henning Hennings 8, ívar
Webster 8, Eyþór 2 og ívar Ás-
gríms 2.
— ágás
Daníel varð
í 30. sæti
Nokkrir íslenskir skíðamenn eru um þessar mundir í æfinga- og
keppnisferð í Noregi. Þeir hafa keppt á nokkrum mótum undan-
farna daga og gengið þokkalega. I fyrradag kepptu þeir á móti í
Geilo. Mótiö gengur undir nafninu „Scan Cup“; Daníel Hilmarsson
og Guömundur Jóhannsson kepptu í svigi. Daníel hafnaöi í 30. sæti,
fékk samanlagöan tíma 2.04.27 mín. Guömundur Jóhannsson fékk
tímann 2:04,41 mín. og varö 31. Sigurvegarinn í sviginu varð Johan
Valls frá Svíþjóð. Fékk hann tímann 1:54,34 mín. íslensku skíöa-
mennirnir munu taka þátt í fleiri mótum á næstunni en þess á milli
æfa þeir af kappi.
• Guömundur Jóhannsson skíðamaóur frá ísafiröi er ásamt félög-
um sínum í keppnis- og æfingaferð í Noregi. Guómundur varö í 31.
sæti í svigkeppni í Geilo í fyrradag.
ívar Webster átti góöan leik meö Haukalióinu í gærkvöldi, hirti 25 fráköst í leiknum og mataöi félaga sína
margsinnis á góöum sendingum, auk þess aö skora 13 stig. Morgunbiaöio/Júiius
Haukar náöu sér
vel á strik gegn ÍR