Morgunblaðið - 21.12.1984, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984
77
Bjarni kjörinn íþrótta- og
knattspyrnumaður Akraness
Akranesi, 17. desember.
Frá Jóni Gunnlaugssyní.
BJARNI Sigurðsson markvörður
íslands- og bikarmeistara Akra-
ness gerir það ekki endaseleppt
þessa dagana, því í hans hendur
falla flestar viöurkenningar sem
knattspyrnumönnum eru veittar í
lok hvers keppnistímabils. Fyrr í
haust var hann valinn „Leikmað-
ur íslandsmótsins“ af leik-
mönnum hinna 1. deildarliöanna
og einnig völdu DV og Morgun-
blaöiö hann leikmann fslands-
mótsins svo og Þýsk/fslenska
verslunarfélagiö hf.
Heimamenn létu siöan ekki sitt
eftir liggja því þar hefur Bjarni unn-
iö til tveggja viöurkenninga, fyrst
var hann útnefndur knattspyrnu-
maöur Akraness 1984 á uppskeru-
hátíö Knattspyrnuráös Akraness
fyrir skömmu og einnig var hann
kjörinn íþróttamaöur Akraness
1984 og fór kjöriö fram á ársþingi
ÍA 16. desember sl. Bjarna þarf
ekki aö kynna fyrir lesendum
blaösins, því á undanförnum árum
hefur hann veriö einn besti mark-
vöröur landsins og lykilleikmaöur í
hinu sigursæla liöi Skagamanna
og nú einnig landsliösins. Ekki þarf
aö fjölyröa neitt frekar um frammi-
• Bjarni Siguröston, fþróttamaö-
ur Akraness 1984 og knatt-
spyrnumaöur Akraness 1984.
stööu Bjarna á þessu keppnistíma-
bili, allar fyrrnefndar viöurkenn-
ingar tala sínu máli.
I fyrrnefndri uppskeruhátíö var
Sigurður Lárusson fyrirliöi islands-
og bikarmeistara ÍA valinn leik-
maöur Arnarflugs 1984 og sagöi
fulltrúi Arnarflugs af þvi tilefni aö
líta mætti á tilnefninguna sem viö-
urkenningu til leiösheiidarinnar
sem hann taldi vera eina af lykilat-
riöum i velgengni liösins. Siguröur
fær aö launum farmiöa fyrir tvo í
flugi Arnarflugs á einhverja af
flugleiöum þess. Viö sama tæki-
færi voru einnig afhentar viöur-
kenningar fyrir leikjafjölda. Arni
Sveinsson fyrir 300 leiki, Jón Ás-
kelsson fyrir 200 leiki, Bjarni Sig-
urösson og Guöbjörn Tryggvason
fyrir 150 leiki og Júlíus Ingólfsson
fyrir 100 leiki.
Leikmenn Akranessliösins af-
hentu síöan knattspyrnuráös-
mönnunum viöurkenningar fyrir
frábær og óeigingjörn störf aö
uppgangi knattspyrnunnar á Akra-
nesi á undanförnum árum. Vöktu
þesar viöurkenningar sérstaka at-
hygli, því þaö er ekki á hverjum
degi sem leikmenn taka sig til og
afhenda viöurkenningar og mættu
mörg önnur félög taka sér þaö til
fyrirmyndar.
Morgunblaöiö/Jón Gunnlaugsson.
• Stefán Halldórsson markaösetjóri Arnarfluge afhandir Siguröi Lárussyni viöurkenningu fyrir nafnbótina
„Leikmaður Arnarflugs 1984“. Hjá þaim stendur Haraldur Sturfaugsson, formaöur knattspyrnuráös Akra-
ness.
• Gunnar Sigurösson knattspyrnuráösmaöur vaitir viötöku álatruöum silfurdiski frá leikmönnum, an allir
knattspyrnuráösmenn hluti slíkar viðurkenningar fyrir góö störf. Á myndinni er „nefnd“ leikmanna, Höröur
Jóhannesson, Sveinbjörn Hákonarson og Sigurður Lárusson.