Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984
23
Ólafsfjarðarvatn:
„Nær ótakmarkað-
ir möguleikar
til hafbeitara
— valdabarátta á stofnfundi hlutafé-
lags um fiskeldi í vatninu
í ÓLAFSFIRÐI er í undirbúningi stofnun hlutafélags um laxeldi í Ólafsfjard-
arvatni. Ólafsfjarðarvatn er talið vera kjörið til fiskeldis og hafa þar verið í
gangi laxeldistilraunir í nokkur ár á vegum veiðifélagsins. Á stofnfundi
félagsins, sem á að heita Óslax hf., urðu nokkrar væringar vegna þess að
meiri hlutafjárloforð söfnuðust en upphaflega var gert ráð fyrir.
Gert hafði verið ráð fyrir 5
millj. kr. hlutafé og var stjórn
Veiðifélags ólafsfjarðarár með
hugmyndir um að eiga 20% hluta-
fjár en að SÍS og KEA ættu sam-
tals 40% og aðrir aðilar 40%.
Fyrir stofnfundinn voru stofnaðil-
ar búnir að skrifa sig fyrir 3,6
milljónum og á fundinum skrifuðu
þeir sig fyrir 6,6 milljónum kr. til
viðbótar þannig að hlutaféð var
orðið helmingi meira en upphaf-
lega var gert ráð fyrir. Fyrir utan
veiðifélagið, SÍS og KEA skrifuðu
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar, Hrað-
frystihús Magnúsar Gamalíels-
sonar, Sæberg, Olíufélagið Skelj-
ungur, Eimskip og fleiri aðilar sig
fyrir hlutafé.
Veiðifélagið, SÍS og KEA sam-
þykktu ekki að svo mikið hlutafé
yrði í félaginu og urðu um það
snarpar umræður þannig að ekki
tókst að ljúka stofnfundarstörf-
um. Forsvarsmenn veiðifélagsins
segjast vilja halda oddaaðstöðu
landeigenda í félaginu en einka-
rekstrarmennirnir telja að SÍS sé
með þessu að tryggja yfirráð sín í
félaginu og beiti veiðifélaginu
fyrir sig í því efni. Hefur einkafyr-
irtækjunum nú verið boðið að
kaupa 20% þess hlutafjár sem
þeir skrifuðu sig fyrir og ætla
flestir þeirra að gera það. Þó er
vitað að SH mun ekki taka þátt í
félagsstofnuninni ef staðið verður
að henni með þessum hætti.
Framhaldsstofnfundur verður
haldinn eftir áramót og þar
væntanlega gengið frá stofnun fé-
lagsins.
Sveinbjörn Árnason á Kálfsá,
formaður Veiðifélags ólafsfjarð-
arár, sagði að undanfarin ár hefði
veiðifélagið verið með fiskeldistil-
raunir í vatninu. Skilyrðin 1 vatn-
inu væru slik að þar virtust vera
nær ótakmarkaðir möguleikar til
hafbeitar. Vatnið sagði hann að
væri lagskipt. Ofan á rynni ferska
vatnið og myndaði eins konar
gróðurhús fyrir sjóinn sem undir
er þannig að hann hitnaði. Seiðin
væru sett i 4 metra djúpar nætur
og gætu vanist seltunni smám
saman með því að færa sig neðar.
Sveinbjörn sagði að í haust
hefðu verið tekin um eitt þúsund
seiði og sett í tjörn á landi sem
væri fóðruð með dúk og yfirbyggð.
I hana væri dælt heitum sjó úr
vatninu og hefði þessi tilraun gef-
ið góða raun. Seiðin hefðu verið
265 grömm í október en í byrjun
desember hefðu þau verið orðin
600 grömm að þyngd. Virtust því
vera góðir möguleikar til eldis í
Leidrétting
I frétt, sem birtist í Morgun-
blaðinu 22. desember um menn,
sem eru á förum til útlanda í
kristniboð, var sagt að Ólafur
Ólafsson væri læknismenntaður.
Þetta er rangt. Ólafur Ólafsson er
útskrifaður úr kristniboðsskólan-
um í Osló, sama skóla og faðir
hans, Felix Ólafsson, útskrifaðist
frá, en Felix var fyrsti íslenzki
kristniboðinn, sem fór til Konsó i
Eþíópíu ásamt konu sinni, Krist-
ínu Guðleifsdóttur. Þar er Ólafur
fæddur. Hann hefur einnig stund-
að framhaldsnám við Árósahá-
skóla og mun taka prestsvígslu áð-
ur en hann heldur til Bahrein, þar
sem hann hefur verið ráðinn
sjúkrahússprestur.
tjörnum á landi samhliða hafbeit-
inni sem aðaláherslan yrði þó lögð
á. Sagði Sveinbjörn að ef hafbeit
ætti rétt á sér einhvers staðar á
Norðurlandi væri það í ólafsfirði,
slík væru skilyrðin.
FYRIR
GAMLÁRSKVÖL
Flugeldaskot fyrir haglabyssur 6
stk. pakkar blandaöir litir kr. 41£
^ pakkinn. ~
huflime
s p o
R T B Ú
Ármúla 38, sími 83555.
Ð I
Rafeindaritvélamar ZX 400 og ZX 500
Stafahjól.
Vélarnar eru með 112 stafa leturhjól
(..Daisywheel"), sem er komið fyrir i
hlífðarstykki, og er mjög auðvelt að
setja i vélina og taka úr.
Hægt er að fá 8 mismunandi stafa-
hjól í báðar vélarnar.
ZX 500 vélin er auk þess búin
mörgum þægilegum möguleikum,
sem gera alla vinnu við vélritun
auðveldari,
Sem dæmi má nefna: 26 stafa skjá,
sem gerir kleift að skoða orð og set-
ningar, áður en þær eru settar á
blað
Þetta er einkar hentugt, þegar verið
er að semja bréf, eða þarf að leið-
rétta. Þá er hægt að sjá uppsetningu
bréfsins fyrst, og leiðrétta, eftir því,
sem þurfa þykir, og láta síðan vélina
prenta bréfið út í einu lagi.
Uppsetningarminni.
ZX 500 ritvélin hefur 1Kbyte minni. I
því er hægt að geyma bréfhausa,
form og texta, jafnvel þó að straumur
til vélarinnar sé rofinn.
Hægt er að geyma allt að 26 atriði,
eða 1024 stafi.
Mjög aðgengilegt er aö kalla fram
minnið, blaðstillingu með kóda |
frá 0 til 9, og texta með
stafakóda Minnið er hægt að |
stækka upp (allt
að 16 K.
Rafeindastýrðar stillingar
Rafeindastýrðar stillingar eru á
vélunum, til að stilla stafabil, línu-
færslu, áslátt, spássíðu, og ZX 500
hefur einnig val um, hvort vélin
prentar út staf fyrir staf, orð fyrir orð
eða línu fyrir línu.
Allt þetta er hægt að stilla, með því
að þrýsta á hnapp. Ljósdíóður syna,
hvaða stilling er á vélinni.
Minnl.
SHARP ritvélarnar eru búnar þremur
stillingum á stafabili. auk þess eru
þær búnar PS (propotional spacing).
Þessar stillingar haldast í minni, þótt
slökkt sé á vélinni.
Leiðréttingarminni.
Nú er ekkert vandamál að leiðrétt
stafavillur. Hægt er að leiðrétta allt
að 6 línur eða 400 stafi (ZX 500).
(ZX 400 hefur leiðréttingarminni 200
stafi eða 3 línur).
Sjálfvirk pappírsmötun.
Vélarnar hlaða sjálfar pappir á þann
stað, sem notandi ákveöur. Þetta
sparar tima. og losar fólk viö að stilla
pappirinn af.
Svolítið
tækniundur
Rafeindavélarnar ZX 400 og ZX 500
eru svolítið tækniundur fyrir venjulegt fólk.
Báðar vélarnar eru búnar fjölmörgum
þægilegum möguleikum varðandi
ritvinnslu, s.s. endurstaðsetninu á örk,
sjálfvirkri leiðréttingu, breittu letri,
sjálfvirkri undirstrikun o.fl.
Þær eru auðveldar í notkun, þægilegar
og mjög hljóölátar.
ZX 500 er búin skjá sem auðveldar
uppsetningu bréfa, og útlit bréfanna
er hægt að geyma í minni.
Verö:
ZX400 kr. 41.100,-
ZX500 kr. 55.900,-
:ÉEEEIEEE3:: 11. % .;.: 1 •:
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
SÍMI25999
»»»]