Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984 t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, VALOÍS JÓNSDÓTTIR, Langholtsvegi 8, lést i Landspitalanum 24. desember. Jenný Jónsdóttir, Anton Q. Axelsson, Kristln J. Jónsdóttir, Jens Hinriksson, Esther Jónsdóttír, Hlööver Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabórn. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, RAGNHEIÐUR EINARSDÓTTIR, Sunnutlöt 2, Garöabæ andaöist á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi þann 26. desember. Sigurveig Sveínsdóttir, Pálmar Ólason, Ólafla Sveinsdóttir, Jón Jóhannsson og barnabörn. t Móöir min, GUDMUNDÍNA SIGURBORG EGGERTSDÓTTIR, Sólvangi, Hafnarfiröi, lést að Sólvangi 24. desember. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna. Róbert Bjarnason. t Systir min og vinkona okkar, SIGRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund á borláksmessu 23. desember. Bryndfs Olafsdóttir, Anna Norland, Helga Norland. Systir okkar. t STEINUNN GUÐMUNDSDÓTTIR, andaðist 24. desember sl. Ráöhildur Guómundsdótlir, Tómas Guömundsson, Ingimundur Guðmundsson. t Konan mín, MATTHILDUR JÓHANNESDÓTTIR frá Patreksfiröi, lést i Landakotsspitala 24. desember. Þóröur Loftsson frá Bakka Moðir okkar. t INGA KARLSSON, andaðist á heimili sinu i Stokkhólmi 25. desember. Sonja Helgason, Ingrid Hansen. t Sonur okkar og dóttursonur, ÞÓR JULÍUS SANDHOLT, Laugarásvegi 33, lést i sjúkrahúsi i London 26. desember. Elín Kristjáns- dóttir - Minning Fædd 8. ágúst 1915 Dáin 15. desember 1984 Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt, hún býr þar hlýtt. um brjósti móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þ.Erl.) Ekki er hægt að segja að andiát frænku minnar Elínar Kristjáns- dóttur hafi komið á óvart. í júní- mánuði sl. var hún lögð inná Landspítaiann, bá orðin fársjúk. Elín Kristjánsdóttir fæddist að Garðsauka í Vestmannaeyjum, dóttir hjónanna Guðnýjar Guð- mundsdóttur og Kristjáns Jóns- sonar. Elín var næstelst í systk- inahópnum. Sjö ára gömul missti hún föður sinn, sem drukknaði með mb. Sigríði. Ólst hún upp í Vestmannaeyjum, aðaliega að Minna-Núpi, en flyst til Reykja- víkur um tvítugsaldur, og bjó þar síðan. Elín giftist eftirlifandi manni sínum, öðlingsmanninum Jóhann- esi Hannessyni bifreiðarstjóra, árið 1938. Lengst af bjuggu þau í Blönduhlíð 22. Þau eignuðust þrjú börn: Guð- laugu, Hannes og Svavar. Guðlaug lést 1982, langt um aldur fram, frá manni og þremur dætrum úr sama miskunnarlausa sjúkdómnum og móðir hennar nú. Er ég nú minnist Ellu frænku er mér efst í huga opnu armarnir hennar. Hvernig hún tók á móti. Alltaf sama hlýjan og elskuleg- heitin. Allir ávallt hjartanlega velkomnir. Það er nú mjög til siðs að tala um að þetta og hitt þurfi að gera fyrir þá sem lökust hafi kjörin. Þvi miður er þetta orða- gjálfur eitt sagt í tíma og ótíma. Ella frænka lét ekki sitja við orðin tóm i þessum efnum, því svo lengi sem ég man áttu ótaldir aðil- ar, sem lífið hafði ekki leikið við, hauk í horni, þar sem opnu arm- arnir hennar Ellu voru. Ella var barngóð kona með afbrigðum. Það man ég vel. Börnin sóttu til henn- ar. Líklega voru það glaðværðin og góðvildin, svo og athyglin sem börnin fengu, sem drógu þau svo mjög að Ellu. Þá var umhyggjan fyrir tengdamóður svo og móður alveg einstök. Tengdamóðir henn- ar bjó á heimili þeirra hjóna síð- ustu æviár sín, og var rúmliggj- andi síðustu árin. Þegar hún lést tóku þau svo móður Elinar að sér. Fyrst bjó hún út af fyrir sig. En smátt og smátt hrakaði heilsu móðurinnar og síðustu árin sem hún dvaldi hjá þeim svaf hún í svefnherbergi þeirra hjóna. Slík var umhyggjan. Nú dvelur hún í hárri elli á Sólvangi í Hafnarfirði. Og til marks um umhyggjusemina sem dóttirin veitti þá kallar móð- irin á Sólvangi, ef hana finnst sig vanhaga um eitthvað: Ella, Ella. Sumarið 1982 varð loksins úr því að farið yrði til Eyja, eins og Ellu hafði lengi langað. Var farið á þjóðhátíðina. Sjálfkjörinn for- ingi ferðarinnar var að sjálfsögðu Ella, en stór hluti fjölskyldunnar fór í ferð þessa, þar á meðal dætur mínar. Er skemmst frá því að segja, að ferð þessi reyndist dætr- um mínum í einu orði sagt — ógleymanleg. Er enn verið að minnast þessarar ferðar og stóð foringinn, sem þarna var á heima- slóðum, sig alveg frábærlega. Svona ferð er raunar útilokað að endurtaka. Verður heldur ekki gerð tilraun til þess, heldur ferð- arinnar minnst með þakklæti. Nú þegar leiðir skilur um sinn vil ég og fjölskylda mín votta fjöl- skyldunum í Blönduhliðinni svo og í Meðalholtinu og Hraunbænum innilegustu samúð. Þau hafa misst mikið. En minningin er skýr og björt. Ellu er minnst með þakklæti og virðingu. Helgi Með fátæklegum orðum langar okkur að kveðja mjög svo kær- komna frænku, Elínu Kristjáns- dóttur, föðursystur okkar. Hún lést í Landspítalanum þann 15. desember. Það hefði ekki verið henni að skapi að um hana væri ritað, en okkur langar til að þakka henni fyrir einstæða elsku hennar og hlýju sem hún alla tíð sýndi okkur. Ella frænka var sérstök kona, félagslynd, úrræðagóð og raunsæ. Margir nutu ómældrar gestrisni Systir mín. EMILÍA BORG, andaöist í Borgarspitalanum 24. desember. Utförin fer fram frá Dómkirkjunni þriöjudaginn Geir Borg. 8. janúar kl. 13.30. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir, TRYGGVI HARALDSSON, Skarðshliö 9F, Akureyri, er látinn. Fjóla Jónsdóttír, Georg H. Tryggvason, Astrlöur Hauksdóttir, Hersteinn H. T rygg vason, Birna Jónasdóttir, Bjarki S. Tryggvason, Mólfriöur Baldursdóttir. Þórhildur Sandholt, Gislí Sigurbjörnsson, Guóbjörg Sandholt. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÓLAFUR JÓNSSON húsasmióameistari, Hagamel 6, Reykjavik, lést aö morgni 27. desember sl. Sólveig Magnúsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Guörún Ólafsdóttir. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÓLAFURGUNNARSSON bóndi, Baugstööum, Stokkseyrarhreppi, lést aöfaranótt 25. desember i Landakotsspitala. Hinrik Olafsson, Erlendur Óli Ólafsson, Sígurjón H. Ólafsson, Svala Steingrimsdóttir, Vilborg Kristinsdóttir, Hólmfrlöur Jónsdóttir og barnabörn. hennar heima í Blönduhlíðinni, þar var oft margt um manninn og veitingarnar óendanlegar. Ekki voru allir á svipuðum aldri sem inn til hennar litu, hún hafði sitt sérstæða lag á að komast í sam- band við börn, sem öll hændust að henni. Hún var ærslafull og kát. Með henni urðu ævintýrin að veruleika og veruleikinn varð að ævintýri. Mikið áfall varð það fyrir þau hjónin að þau misstu einkadóttur sina Kiddý árið 1982. Þá nutu dótturdætur þeirra í sinni miklu sorg styrks og umhyggju, ástúðar og kærleika ömmu sinnar og afa. Hjá þeim er missirinn nú mikill og nú syrgir Jói góða eiginkonu og traustan lífsförunaut og synir þeirra ástkæra móður. Megi góður Guð gefa ykkur öll- um styrk í ykkar miklu sorg. Guðný og Kolla Nú er elsku Ella amma i Hlíð- unum horfin frá okkur eftir löng og erfið veikindi. Það er erfitt að sætta sig við að fá ekki að njóta hennar lengur. Hún var öllum góð og vildi allt fyrir aðra gera enda voru margir sem leituðu til henn- ar. Öllum tók hún með opnum örmum og hlýju, ekki síst börnum sem kölluðu hana Ellu ömmu. Svo barnelsk var hún að öll börn sóttu til hennar, bæði stór sem smá. Oft var margt um manninn í Hlíðun- um og enginn fór þaðan svangur því alltaf var nóg af pönnukökum, kleinum og öðru góðgæti. Þær voru ófáar næturnar sem við systurnar sváfum hjá ömmu og afa enda var stjanað við okkur eins og prinsessur væru í heim- sókn. Nú er elsku amma farin frá okkur og barnabörn hennar fá ekki að njóta hennar eins og við gerðum. Elsku afi, minning hennar og gæska er svo mikii að við skulum horfa björt á framtíðina eins og hún gerði ætíð. Elín Jóhanna Hitt eigi duldist háum né lágum. Hógvaerð hennar og hjartagæði. (Matthías Jochumsson) í dag er ég kveð Elínu Krist- jánsdóttur eða Ellu eins og hún var alltaf kölluð vil ég þakka henni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Við munum ætíð minnast hennar sem hressrar og dugmikillar konu sem hlífði aldrei sjálfri sér, konu sem vildi allt fyrir alla gera og frekar gaf en þáði. Við eigum öll eftir að sakna hennar mikið en þó sér- staklega dóttir mín því eins og hún komst að orði þegar hún frétti að amma Ella væri dáin, af hverju tók Guð hana frá mér? Þetta var besta amman sem ég átti. Öllum aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þokk fyrir allt og allt. J.J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.