Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984 Pálmi Gestsson semur við hljómsveitina Sómamenn. GULL OG SANDUR Frá jólagleði grunnskólanemenda í Egilsstaðaskóla. Egilsstaðir: Ágúst Guðmundsson og Sigurður Sverrir Pálsson. Einar Bjarnason í baksýn. Eiðsvallar-tréð tendrað og haldin jólaskemmtun Kgikwtöðum, 20. desember. f G/ER AÐ lokinni jólahátíð grunnskólanemenda var kveikt á jólatré, er Egilsstaðabúum barst nú venju samkvæmt frá norska vinabænum Eiðs- völlum. Við það tækifæri söng Kór Egilsstaðakirkju undir stjórn David Knowles; jólasveinar brugðu á leik og formaður Norræna félagsins á Egilsstöðum, Bjarni Björgvinsson, hélt ræðu. Oddviti Egilsstaða- hrepps, Sveinn Þórarinsson, kveikti síðan á trénu. Kalsi var í veðri, en þó fjölmennt við athöfnina, sem verið hefur fastur liður í jólaund- irbúningi hér allt frá árinu 1979. í gærdag efndu nemendur Egilsstaðaskóla til hinnar árlegu jólahá- tíðar sinnar, þar sem dansað var kringum jólatfeð, sungnir jóla- sálmar og hlustað á nýstofnaða skólahljómsveit leika undir stjórn Magnúsar Magnússonar. Veðurfar hefur verið með ágætum hér um slóðir að undanförnu. Þó gekk hvassvirði yfir með slagveðursrigningu á mánudag og styttist Eiðsvallar-tréð okkar þá um hartnær 1 m. Jólasnjórinn sem var kominn er nú horfinn að kalla. — Ólafur. Nýstofnuð skólahljómsveit Egilsstaóaskóla og Tónskóla Fljótsdalshéraðs leikur undir stjórn Magnúsar Magnússonar. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson AUSTURBÆJ ARBÍÓ: GULL- SANDUR Handrit og leikstjórn: Ágúst Guð- mundsson. Kvikmyndataka: Sig- urður Sverrir Pálsson. Fram- kvæmdastjóri: Guðrún Halldórs- dóttir. Hljóð: Sigurður Smári. Leikmynd: Halldór Þorgeirsson. TónlLst: Daryl Runswick. Aðalleik- endur: Pálmi Gestsson, Edda Björgvinsdóttir, Arnar Jónsson, Jón Sigurbjörnsson, Borgar Garð- arsson, Gestur Einar Jónsson, Sig- urður Sigurjónsson. Mannamynd- ir, ísfilm, 1984. Mikið fjaðrafok og uppnám verður í sveit einni á SA-horninu þegar þrír velmannaðir her- flutningabílar ofan af Keflavík- urflugvelli halda innreið sína í friðsældina og dátarnir hreiðra um sig meðal sandhólanna í Meðallandinu. Þó kastar fyrst tólfunum er þeir sjást á vappi með framandi furðutól og eftir „árás“ heima- manna á búðirnar verður þetta sandumstang helsta fréttaefni landsmanna. Bændur skiptast í tvennt; þá sem vilja hagnast á hernum og hina bláeygu föður- landsvini og ungmennafélags- leiðtoga (en sá félagsskapur er einmitt að deyja drottni sínum um þetta leyti þar í sveitinni), sem vilja herinn á brott. Svo þegar það kvisast út að verndarenglarnir séu í rauninni í gullieit þarna niður á eyði- mörkinni, hitnar fyrst fyrir al- vöru í kolunum. Fyrr en varir eru bústólparnir komnir í gullgröft, velflestir. Einhvern veginn á þessa leið er rauði þráðurinn í nýjustu mynd Ágústs Guðmundssonar, við hann ýmsum hliðarþáttum sem oftast lífga upp á myndina. Yfirborð hennar og megin- markmið er vafalaust létt skemmtun en grunnt undir því er skopast að ýmsu í þjóðlífinu, og þá fyrst og fremst hersetunni. Það má sjá Island í hnotskurn í sveitinni fögru og hin misjöfnu áhrif sem koma hermannanna hefur á íbúa hennar. Örfáir skera upp herör en flestir blind- ast af gullljómanum og grafa í dökkan eyðisand. Þetta er einn af mörgum flötum sögunnar. Hliðarsögurnar eru margar og misjafnar. Mest gaman hafði ég af hinum ölkæra sveitapresti sem sveiflast á milli nútíðar og Eldmessu Jóns Steingrímssonar. Þessi þáttur er meinfyndinn og kvikmyndalega snjall. Togstreita bænda og skoðanir þeirra á hermanginu eru líka ágætiskapítuli, þar sem slegið er létt á strengi þjóðarrembingsins. Andatrúarinnvafið er slakast en nauðsynlegt framvindu myndar- innar. Ekki hittir hinn róman- tíski kafli þeirra Pálma og Eddu í mark. Föðurlandsvinirnir eru nokkuð losaralega gerðir og er það miður þar sem þeir eru þungamiðja sögunnar. Kapp- akstur blaðamannanna er út í hött. Handritið er sem sagt mis- jafnt að gæðum. Allir eru kafl- arnir skrifaðir í léttum dúr, hnyttnir og út undan sér og sam- tölin á eðlilegu máli. En frásögn- in er sögð frá of mörgum hliðum sem skapar ekki þétta heild. Gullsandur er annars vönduð að allri gerð. Sigurður Sverrir á bestan þátt myndarinnar, finnur hin skemmtilegustu sjónarhorn og mestri stemmningu nær hann í frábærum kvöld- og næturat- riðum. Takan af vatnsakstrinum á söndunum er stórfalleg. Sigurður Smári á í engum vandræðum við gamlan fjanda í ísl. kvikmyndagerð — hljóðið, og leikmynd Halldórs Þorgeirsson- ar er lýtalítil og nákvæm, ef undan eru skildir Bensarnir hjá bandariska sjóhernum. Tónlist Daryls Runswick er tilgerðar- laus, rennur með filmunni án þess að maður taki eiginlega nokkuð eftir henni. Leikurinn er yfirleitt góður, þeir Arnar og Jón Sigurbjöms- son langbestir. Leikstjórn Ágústs er örugg og fagmannleg og hann hefur nú sem fyrr náð góðu samstarfi og tökum á leikurunum. Flétt- ingarnar eru margar hverjar snjallar og myndin í heild oft forvitnileg. Framvindan er hins vegar ekki nógu samfelld og spennan fellur oft niður. Þeir sem að Gullsandi standa eru flinkir og velþjálfaðir kvikmyndagerðarmenn. Það leynir sér ekki og þó að útkoman sé fjaðrandi örlar á gulli í sand- inum. Líf og f jör á Bíldudal Bítdudal, 20. desember. NÆG ATVINNA hefur verið á Bíldudal í ár, götur steyptar og unnið við byggingu nýrra íbúðarhúsa. íbúar hér eru um 400, ánægt og bjartsýnt fólk. Stærsti atvinnurekandinn, Fiskvinnslan hf., tók í ár á móti 3.700 tonnum. Af því var afli Sölva Bjarnasonar 2.875 tonn, sem var fullur kvóti togarans. Sölvi var gerður út í sjö mánuði og aflaði að meðaltali 13,1 tonn á dag. Hann fer aftur á veiðar strax eftir ára- mót. Framleiðsluverðmæti í frystihúsi Fiskvinnslunnar var um 75 milljónir króna. Mest af framleiðslunni fór á Bandaríkja- markað. Um 100 manns unnu hjá Fiskvinnslunni þegar mest var. í Rækjuveri hf. var tekið á móti 820 tonnum af rækju og 600 tonn- um af hörpudiski, samtals að verðmæti um 70 milljónir. Rækjan var bæði lausfryst og blokkfryst, aðallega fyrir Evrópumarkað, blokkfrystur hörpudiskur fór að- allega á Ameríkumarkað. 30—40 manns vinna hjá fyrirtækinu. í ár hafa fjögur einbýlishús ver- ið í byggingu hér og úthlutað lóð- um fyrir önnur fjögur, þar af tvo verkamannabústaði. Hér hefur lengi verið mikill skortur á íbúð- arhúsnæði, bæði til kaups og leigu en nú er heldur að rætast úr því með þessum byggingafram- kvæmdum. í ár var lokið við frá- gang nýs dagvistarheimilis fyrir börn, lóð er fullfrágengin með leiktækjum og áhöldum. Vinna hófst við nýtt íþróttasvæði sl. sumar. Það verður mikið mann- virki, sem ætlunin er að byrja að nota að hluta á næsta ári, enda er hér brýn þörf á að bæta úr að- stöðuleysi íþróttafólks. í sumar voru steyptir 350 metr- ar af götum í þorpinu og er þá lokið við að steypa 400 metra af rúmlega 3 kílómetrum. Einnig var undirbúinn jarðvegur fyrir eins km lagningu, sem steypt verður á næsta ári. Litlu jólin voru hér í grunnskól- anurn í morgun og eru nemendur þar með komnir I jólaleyfi. Lionsklúbbur Bíldudals heldur jólaskemmtun fyrir yngstu borg- arana á morgun. Leikfélagið Bald- ur hefur sýnt hér tvisvar söngleik- inn „Áslák Gunnarsson" eftir Hafliða Magnússon og Ómar Ósk- arsson. Þriðja og síðasta sýning verður á milli hátíðanna. Hingað hefur verið ráðinn tón- listarkennari, Tone Solbekk frá Noregi. Hún starfrækir hér tón- menntaskóla með rúmlega 30 nemendum, stýrir kirkjukórnum af miklum krafti og og kennir tón- mennt við grunnskólann. Hún var sannkölluð sending af himnum ofan. — Hannes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.