Morgunblaðið - 28.12.1984, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984
53
Pressuleikur í
körfubolta
- Einar velur landsliðshópinn
sem leikur tvo leiki í Noregi
í KVÖLD fer fram pressuleikur í
körfuknattleik í íþróttahúsinu i
Keflavík. Leikurinn hefst kl.
20.00. Einar Bollason hefur val-
1
M
• Pétur Guömundsson leikur
meó pressuliðinu gegn landsliö-
inu í kvöld. Pétur er sagður vera í
góöri aafingu um þessar mundir.
ið 10 manna landslió, sama lið
og heldur til Noregs 3. janúar
og leikur þar tvo landsleiki.
Landslíöiö er þanníg skipað:
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Pálmar Sigurösson Haukum
Henning Henningsson Haukum
Ólafur Rafnsson Haukum
ívar Webster Haukum
Hreinn Þorkelsson ÍR
Torfi Magnússon Val
Birgir Mikaelsson KR
Guöni Guönason KR
Valur Ingimundarson UMFN
Pressuliöið er skipaö eftirtöld-
um leikmönnum:
Pétur Guömundsson Sunderland
Jónas Jóhannesson Njarövík
Páll Kolbeinsson KR
Jón Steingrímsson Val
Árni Lárusson Njarövík
Þorsteinn Gunnarsson KR
Björn Steffensen (R
Sturla Örlygsson Reyni
Gylfi Þorkelsson ÍR
Kristján Ágústsson Val
Búast má viö hörkuleik á milli
þessara liöa.
Körfuknattlelkur
Á - ............. ■■. v
Fyrsta mót Vésteins á
Selfossi voriö 1986
SdfoMÍ 20. döwmbtr.
í HÓFI sem haldió var til heið-
urs ólympíuförum sagöi Vé-
steinn Hafsteinsson aó það
mótlætí sem hann hefði orðið
fyrir við lyfjaprófun á Ólympíu-
leikunum myndi engin áhrif
hafa á framhald æfinga hans.
Hann kvaöst halda ótrauður
áfram og nýta þá reynslu sem
mótlætið færði honum.
Vósteinn er nú heima í jólaleyfi
en fer aftur til USA eftir áramót-
in. Aðspurður kvaöst hann
stefna aö því aö hefja keppni
strax og hann fengi leyfi til þess.
Hann var dæmdur i ævilangt
keppnisbann eftir úrskurö lyfja-
prófsins en verður náöaöur inn-
an tiöar og aö náöun fenginni
getur hann hafiö keppni aftur i
mars 1986.
Vésteinn kvaöst ákveðinn í því
aö fyrsta mótið sem hann keppti
í yröi á Selfossi vorið 1986. Þá
myndi hann koma fram af fullum
krafti þvi hann setti markiö hátt.
Þaö væri ekki langt í næstu
Ólympíuleika.
Sig. Jóns.
KR-ingar
sigruðu
KR-INGAR stgruöu á Stórmóti
íþróttafréttamanna í innan-
hússknattspyrnu á Selfossi
og varöveita því Adid-
as-bikarinn næsta áriö. Þeir sigr-
uöu Framara 7:5 í úrslitaleik, en
Framarar sigruóu á mótinu í fyrra
er þaó fór fram í fyrsta skipti.
Þrátt fyrir óveöur komust öll liö,
sem boöiö haföi veriö til mótsins á
Selfoss, nema eitt. Akurnesingar
komust ekki þar sem Akraborgin
gat ekki lagst aö bryggju á Akra-
nesi vegna óveöursins.
í fyrsta leik mótsins sigruöu
KR-ingar liö íþróttafréttamanna.
Síðan unnu Keflvíkingar liö „ööl-
inga“ frá Selfossi, sem skipaö var
gömlum köppum. Þeir tóku sæti ÍA
í keppninni. Þá unnu Þróttarar
Valsmenn eftir vítaspyrnukeppni
og Framarar unnu Selfyssinga.
I undanúrslitum sigruðu Framar-
ar Þrótt 10:9 eftir vítaspyrnu-
keppni og KR vann síöan Keflavík í
hinum undanúrslitaleiknum, 7:2.
Til úrslita lóku því KR og Fram
og í hnífjöfnum leik lengst af tókst
KR-ingum aö sigra 7:5 eins og áö-
ur sagöi. Sæbjörn Guðmundsson
var besti maöur vallaríns í úrslita-
leiknum — fór hreinlega á kostum
og skoraöi öll mörk KR nema eitt.
Sigur KR-inga veröur aö teljast
sanngjarn. Þeir voru meö besta liö
mótsins. Liö þeirra skipuöu Sæ-
björn Guömundsson, Elías Guö-
mundsson, fyrirliöi, Ágúst Már
Jónsson, Aöalsteinn Aöalsteins-
son, Sævar Leifsson, Guðmundur
Magnússon og Björn Rafnsson.
Liösstjóri var Steinþór Guöbjarts-
son, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildarinnar.
I naaitsDrma I
ÞAKKIR TIL
VIÐSKIPTAVINA
OKKAR
Um leið og við þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða og
tryggð yðar við framleiðsluvörur okkar, viljum við tilkynna
eftirfarandi:
FREYJA/FREIA
Á árinu 1980, þegar innflutningur á sælgæti hófst fyrir alvöru,
færðist mikið líf í það samstarf, sem staðið hafði milli Freyju hf.
og A/S Freia í Noregi frá því 1965, um innflutning á
sælgætisvörum. Síðan þá hafa vörur eins og Freia Firklöver,
Freia-Twist og Freia-Kvikk Lunsj jafnan verið fáanlegar í
verslunum og söluturnum víðast hvar á landinu.
FREIA HÆTTIR
Fyrr á þessu ári ákváðu stjórnendur A/S Freia, vegna meintra
hagsmunaárekstra, að hætta að nýta sér hið víðfeðma
dreifingarkerfi Freyju hf. hér á landi. Mun því dreifingu á
vörum, sem bera Freia-nafnið, verða hætt hér á landi í byrjun
næsta árs, enda væri slíkt óheimilt án samráðs við Freyju hf.,
samkvæmt dómi er gekk í Reykjavík hinn 9. maí 1969.
FREYJA ÁFRAM
Okkur er fullljóst að hinar norsku vörur hafa hlotið mjög góðar
viðtökur hér á landi. Njóta þær i því efni meðal annars góðs af
tilvist Freyju-sælgætis hér á landi um árabil. En þótt Freia-
vörurnar hverfi brátt, mun Freyja hf. halda áfram að þjóna
yður í framtíðinni og bjóða mikið og vaxandi úrval af
sælgætisvörum.
VIÐ ÓSKUM YÐUR ÖLLUM
GLEÐILEGS ÁRS
Freyja hí.. sælgætisgerð, Kársnesbraut 104, Kópavogi.