Morgunblaðið - 05.01.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Hagfræðital
Ég vil byrja þessa grein á því að
biðja minn fyrrum ágæta efna-
fræðikennara Helga Hálfdanars-
on afsökunar á ... anzi slæmum
prentvillum í textatilvitnun ...
eins og Helgi orðar það í blaðinu í
gær (bls. 12). Svo er mál með vexti
að í þeim texta „Alketis" er ég hefi
undir höndum og ættaður er frá
Leiklistardeild Ríkisútvarpsins er
ansi slæm prentvilla er villti mér
sýn. Þar stendur: Gafðu hraðan á!
í>etta g ruglaði mig svo í ríminu að
ég greip til bílamáls og skrifaði:
Gefðu hraðan á! í stað þess að
segja: Hafðu hraðan á! Ég vil því
deila ábyrgðinni af þessum mis-
tökum mínum með pikkara Leik-
listardeildarinnar. En áminning
Helga var sannarlega þörf lexia,
er sýnir oss dálksentimetraþræl-
um, að aldrei er nógu varlega far-
ið. Kannski erum vér í sömu að-
stöðu og apótekarinn, sem getur
kálað viðskiptavininum, með
aukagrammi af ákveðnu efni?
Nóg um það ...
Nóg um það. I tilefni áramót-
anna var ætlun mín, að vikja hér
ögn að þætti Páls Heiðars Jóns-
sonar á rás 1, er hann nefndi: Drög
að uppgjöri, en þáttur þessi barst á
öldum Ijósvakans seint á fimmtu-
dagskveld, og fjallaði um skulda-
skil nýliðins árs. Ekki fór Páll
Heiðar nú mjög vítt yfir, en gerði
sér þó far um að kíkja bæði á
efnahagsmálin og blessaða menn-
inguna. Að sjálfsögðu voru hag-
fræðingar fengnir til að skýra
stöðu efnahagsmála á ári Orwells,
eins og sú blasir nú við í baksýn-
isspeglinum. Að venju var hag-
fræðingur ASÍ, Björn Björnsson,
mættur til leiks, ásamt leikfélög-
unum úr BSRB og VSÍ, þeim Bimi
Arnórssyni og Vilhjálmi Egils-
syni. Mig rekur satt að segja I
rogastans, er ég lít yfir minnis-
punktana frá umræðum þessara
heimspekinga, þvi það er eins og
maður sé búinn að heyra þetta allt
saman áður. Kannski merki um að
upplýsingastreymi frá launþega-
samtökum og atvinnurekendum
nái greiðlega til hins almenna
borgara. Eða voru stjórnmála-
mennirnir búnir að tyggja svo oft
upp speki hagspekinganna, að hún
var orðin augljósar staðreyndir í
huga meðaljónsins?
Óskastaða
hagfrœðingsins
Það hlýtur annars að vera gam-
an að vera hagfræðingur, og
kunna skil á efnahagsstjórn heilla
samfélaga. Slíkir menn hljóta að
spara vinnulúnum stjórnmála-
mönnum mikil heilabrot og alþýð-
an sér hlutina í stærra samhengi,
eftir að hafa hlýtt á útlistanir
þeirra. En er hægt að læra hag-
fræði, ég meina hvort hægt sé að
læra að umgangast peninga, eins
og við getum til dæmis umgengist
hin ýmsu efni náttúrunnar, og
byggt úr þeim hin furðulegustu
mannvirki? Peningaseðill sem
slíkur hefir ekkert gildi i sjálfu
sér, nema í huga mannsins.
Einhver mesti fjármálasnilling-
ur allra tíma, J.P. Morgan, maður
sem Bandaríkjastjórn sneri sér til
líkt og seðlabanka á hættutíman-
um 1906—1908 svo dæmi sé tekið
— var eitt sinn spurður af þing-
nefnd, hvort lánstraust byggðist
ekki á peningaeign og fasteign:
Nei herra ... svaraði Morgan ...
það byggist á karakter. Athyglis-
vert svar manns, er fór með meiri
fjármálaleg völd en flestir aðrir á
hans tíma. Kannski skipta hag-
fræðikenningarnar ekki svo miklu
máli, þegar upp er staðið, fremur
karakter þeirra, er fara með hin
fjármálalegu völd í samfélaginu?
Ólafur M.
Jóhannesson
George C. Scott í hlutverki Pattons.
PATTON
■H Laugardags-
25 mynd sjón-
““ varpsins að
þessu sinni er bandaríska
bíómyndin „Patton" frá
árinu 1969.
Myndin fjallar um einn
snjallasta og um leið um-
deildasta og einþykkasta
herforingja Banda-
ríkjamanna I síðari
heimsstyrjöldinni. Kjark-
ur hans og ást hans á
stríðinu gerðu hann að
hetju, en varð einnig til
þess að hann var settur af
og einn af undirmönnum
hans tók við stjórn.
Myndin hlaut óskars-
verðlaunin sem besta
mynd ársins og fær hún
fjórar stjörnur í kvik-
myndahandbókum. Einn-
ig fékk George C. Scott
Óskarsverðlaun sem besti
leikari í aðalhlutverki
fyrir túlkun sína á Patton.
Leikstjóri myndarinnar
er Franklin Schaffner, en
með aðalhlutverk auk
George C. Scott fara Karl
Malden, Michael Bates og
Stephen Young. Þýðandi
er Kristmann Eiðsson.
Lesið úr
fyrstu skop-
ádeilusögunni
■■ í kvöld er á
35 dagskrá út-
“ varpsins þáttur
er nefnist „Uglan hennar
Minervu". Þetta er fimmti
þátturinn í þáttaröð um
heimspekileg efni, en þeir
eru á dagskrá annað hvert
laugardagskvöld. Oftast
hafa þættirnir verið í
samræðuformi og hefur
stjórnandinn, Arthúr
Björgvin Bollason, fengið
til sín ýmsa gesti sem
tengjast þessum fræðum.
{ þættinum í kvöld
verður hins vegar brugðið
út af vananum. Þá verður
fjallað um bókina „Lof
heimskunnar" sem kom út
á 16. öld. Bókin er eftir
Erasmus frá Rotterdam,
en hann var samtímamað-
ur Lúthers. Erasmus var
frægastur fyrir að skrifa
alvarlegar bækur um trú-
arleg efni, en þessi bók,
sem hann sendi vini sín-
um Thomas Moore, var
fyrir margra hluta sakir
sérkennileg.
Sagan er eintal heimsk-
unnar þar sem hún er að
hrósa sjálfri sér og er
þetta fyrsta skopádeilan
sem samin var. Bókin er
meinfyndin og hefur hún
haft mjög mikil áhrif á
síðari tíma bókmenntir.
í kvöld verða lesnir
valdir kaflar úr bókinni í
íslenskri þýðingu Arthúrs
og Þrastar Ásmundsson-
ar, sem er lesari með hon-
um.
Léttur
laugardagur
■■■■ I dag verður
Hoo Ásgeir Tómas-
—— son með þátt
sinn „Léttur laugardagur"
á rás 2. Þátturinn er
tveggja tíma langur.
Ásgeir sagðist ætla að
fjalla eitthvað um hljóm-
leikana sem verða í Laug-
ardalshöllinni á morgun.
Á þessum hljómleikum
koma fram hljómsveitirn-
ar Stuðmenn, HLH-flokk-
urinn, Ríó-tríó og Mezzo-
forte, en markmið þeirra
er að safna fyrir kaupum
á matvælabirgðum sem
sendar verða til hörmung-
arsvæðanna í Eþíópíu.
Reynt verður að safna
fyrir heilum flugvélar-
farmi.
„Mig hefur lengi langað
til að fá einhvern úr
hljómsveitinni Grafík til
viötals um fyrirbærið
Grafík og vonast ég til að
það verði í dag. Á milli
Ásgeir Tómasson stjórnar
þættinum „Léttur laugar-
dagur“ á rás 2.
atriða verður síðan leikin
blönduð tónlist, gömul og
ný, og reyni ég með því að
keppa við ryksugurnar,
sem oft eru á fullri ferð á
heimilunum á laugardög-
um,“ sagði Ásgeir Tóm-
asson að síðustu.
ÚTVARP
v
LAUGARDAGUR
5. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. TónleiKar. Þulur velur
og kynnir. 7.25 Leikfimi.
Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg-
unorð — Guðmundur Ingi
Leifsson talar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr ).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
930 Oskalðg sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
tregnir.)
Öskalðg sjúklinga. frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla
Siguröur Helgason stjórnar
þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J» Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.40 íþróttaþáttur
Umsjón: Hermann Gunn-
arsson.
14.00 Hér og nú
Fréttaþáttur I vikulokin.
15.15 Úr blöndukútnum
— Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK)
18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurtregnir.
16.20 Islenskt mál
Jón Aðalsteinn Jónsson flyt-
ur þáttinn.
16.30 Bókaþáttur
Umsjón: Njðrður P. Njarðvlk.
17.10 Slödegistónleikar
a. Trlósónata I h-moll op. 1
eftir Georg Friedrich Hándel.
William Bennett, Harold
Lester og Denis Nesbitt leika
á flautu, sembal og viólu da
gamba.
b. Sónata tyrir tvö planó eft-
ir Johann Gottgried Muthel.
LAUGARDAGUR
5. janúar
14.45 Enska knattspyrnan. Bik-
arkeppni: Fulham — Shef-
field Wed. Bein útsending frá
14.55—16.45.
17.15 Hildur. Tlundi þáttur. —
Endursýning. Dönskunám-
skeiö I tiu þáttum.
17.40 fþróttir. Umsjónarmaöur
Biarni Felixson.
19.25 Kærastan kemur f höfn.
Fimmti þáttur. Danskur
myndaflokkur I sjö þáttum
ætlaöur börnum. Þýöandi
Renée Morriset og Victor
Bouchard leika.
c. Sextett I Es-dúr op. 8 Ib
eftir Ludwig van Beethoven.
Félagar I Vlnaroktettinum
leika.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn-
ingar.
19J5 .Segðu steininum"
Endurtekinn þáttur Önnu
Ólafsdóttur Bjðrnsson frá 15.
des. sl. Lesari: Sigurður G.
Tómasson.
Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ugla sat á kvisti —
Endursýning. Þáttur tilein-
kaður Sigfúsi Halldórssyni.
Þeir sem fram koma: Fjórtán
fóstbræður, Ragnar Bjarna-
son, Björgvin Halldórsson.
Elln Sigurvinsdóttir, Strok-
kvartett, Haukur Morthens,
Guðmundur Guðjónsson og
Sigfús Halldórsson. Umsjón-
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjurn" eftir Jón
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
son les þýöingu Freysteins
Gunnarssonar (14).
2030 Harmonikuþáttur
Umsjón: Sigurður Alfonsson.
20.50 Sögustaöir á Noröurlandi
— Mööruvellir I Hörgárdal.
(Slöari þáttur.) Umsjón:
Hrafnhildur Jónsdóttir.
(RUVAK)
2135 Uglan hennar Mlnervu
Umsjón: Arthúr Björgvin
Bollason.
armaöur Jónas R. Jónsson.
Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson.
2135 Patton. Bandarlsk bfó-
mynd frá 1969. Leikstjóri
Franklin Schaffner. Aðalhlut-
verk: George C. Scott, Karl
Malden, Michael Bates og
Stephen Young. Myndin er
um ein snjallasta og um leiö
einn umdeildasta og ein-
þykkasta herforingja Banda-
manrra I heimsstyrjöldinni
slðari. Þýöandi Kristmann
Eiðsson.
0030 Dagskrárlok.
23.15 Óperettutónlist
24.00 Miðnæturtónleikar
Umsjón: Jón Orn Marinós-
son.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
LAUGARDAGUR
5. janúar
1430—16.00 Léttur laugar-
dagur
Stjórnandi: Asgeir Tómas-
son.
16.00—18.00 Milli mála
Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son.
24.00—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar aö lok-
inni dagskrá rásar 1.
SJÓNVARP