Morgunblaðið - 05.01.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANtlAR 1985
15
Minningar
ingameistari, og að auki er hann
fágætlega hagur. Næmt auga hans
nýtur sín í leikhúsinu. Hann
bryddar svið og sal með upplýstu
rósaflúri, frumlegu og hófsam-
legu, sem gefur húsinu blæ þeirrar
sérstæðu sögu, sem áhorfendur
ganga inn í. Og landslagsmyndir
hans, sem f skyggnum falla á
hreyfanlega fleka, sem færðir eru
til eftir því sem við á hverju sinni,
eru í fyllsta samræmi við mynd-
list Sölva Helgasonar, sem mikið
er notuð. Vonandi er þetta athygl-
isverða verk Arnar Inga upphaf
starfs hans í þágu leikhússins á
Akureyri. Og þess hefur hann og
notið, að starfa með David Walt-
ers, sem beitir ljósum af þeirri
kúnst, sem ekki verður að fundið,
heldur lofuð.
Af glöggskyggni hins reynda
leikhússtjóra hefur Sveinn Ein-
arsson valið í hin mörgu hlutverk
þessarar sýningar. Þó ekki sé
hann heimamaður, og ef til vill
einmitt vegna þess, hefur honum
ekki brugðist bogalistin. Einstök
hlutverk rísa hæst og þó umfram
öll persónur Sigurborgar og Sölva.
Theodór Júlíusson leikur þá Mörð
og Sölva af miklum þrótti og inn-
lifun. Framan af þótti mér, sem
þrótturinn og hávaðinn ætluðu að
bera ýmsa aðra þætti persónu-
sköpunarinnar ofurliði. Hann
spennir bogann til hins ýtrasta.
En er á líður verða blæbrigðin
meiri og þegar nær dregur lokum
verður leikur Theodórs snjallast-
ur. Samleikur hans í gervi Sölva
og Júlíönu (Vitlausu Júllu) er með
afbrigðum vel af hendi leystur.
Guðlaug María Bjarnadóttir leik-
ur hina fötluðu og umkomulausu
Júliönu, sem setur allt sitt traust
á Sölva, dáir hann og tilbiður, og
henn skeikar þar hvergi í túlkun. I
lokin færist hátignarlegur svipur
helgileiksins yfir þetta magnaða
leikrit Sveins Einarssonar. Þegar
Theodór hefur lestur bréfsins, sem
Sölvi sendi Briem sýslumanni
Skagfirðinga, og breytist þá undir
lestrinum úr Merði í Sölva gerist
það á áhrifaríkan hátt. Boðsgest-
Theodór Júlíusson sem Sölvi.
irnir hverfa hæðnislegir út af
sviðinu og eftir stendur Sigurborg
hvitklædd á stalli að baki Sölva
eins og ímynd þeirrar hvítu borg-
ar, hallarinnar, sem sýslumaður á
að láta reisa listamanninum uppi
á Fellinu norðanvert við Sléttu-
hliðina. Hún er ímynd þess um-
burðarlyndis og uppörvunar, sem
listamaðurinn þráir og þarfnast í
niðurlæging sinni. Þessa rósömu
konu, sem með dularfullum krafti
heldur um alla þræði, leikur
Sunna Borg. Hlutverkið krefst,
auk reisnar sterks persónuleika,
þvílíkrar nákvæmni og hófstill-
ingar, að hvergi má út af bera.
Sunna er sá burðarás í þessu
verki, sem ekki bregst. Mikill
fjöldi persóna kemur fram í sýn-
ingunni og margir leikarar fara
með a.m.k. tvö hlutverk. Áður var
minnst á Guðlaugu Maríu, sem
einnig leikur Eygló konu Þormóðs
framkvæmdastjóra. Guðlaug leik-
ur það hlutverk eðlilega og átaka-
lítið, en augljóst er, að Júlla á hug
hennar og stenst Guðlaug erfitt
próf. Segja má um leik Gests Jón-
assonar í hlutverki forstjórans, að
hann sé snurðulaus, en hann nýtur
sín betur í litlu hlutverki Þorleifs
ríka, nirfilsins, sem Sölva tekst
um stund að blekkja með gullgerð-
aráformum. Marinó Þorsteinsson
fellur átakalaust inn i hlutverk
hins hægláta grúskara, Guðvarð-
ar, en leikur hans í hlutverki
Þorbjarnar í Keldnakoti við bana-
beð Helga Guðmundssonar er
minnilegur; lítil mynd sannra
svipbrigða og viðbragða, sem ekki
gleymist. Sigurveig Jónsdóttir
bregður sér í tvö gervi. Annars
vegar hinnar lífsþreyttu Elínar og
hins vegar húsfreyjunnar á Skálá.
Meira reynir á hana í hinu fyrra.
Þar nær Sigurveig að leiða skýrt
og eðlilega í ljós þann hálfkæring
vansællar eiginkonu og móður,
sem ekki skortir efni, heldur lífs-
hamingju. Mann hennar, Sigurð
geðlækni, leikur Pétur Eggerz og
bregður upp ágætri mynd af
dæmigerðum „fagidiót", er ekki
sér út fyrir sérsvið sitt. Þórey Að-
alsteinsdóttir leikur Ingiríði eigin-
konu Guttorms lögfræðings. Þau
eru lítt samstiga, en í uppgjöri við
vandamál Ingiríðar er leikur Þór-
eyjar sannfærandi. Björn Karls-
son leikur Guttorm og fleiri hlut-
verk og verður færni leikarans lítt
af þeim ráðin. Ýmsir aðrir koma
til skjalanna og nokkur börn
standa sig með prýði.
Sveinn Einarsson segir í leik-
skrá, að hann hafi lengi verið bú-
inn að velta fyrir sér hlutskipti
listamannsins og samspili listar
og samfélags. Þegar hann var beð-
inn að koma Sölva Helgasyni á
leiksvið á Akureyri, kvaðst hann
hafa lesið Sólon Davíðs aftur og
bætir við: „og þegar ég sá að ég
mundi geta verið Davíð trúr, þó að
ég yrði að fara sjálfstæðar leiðir
við leikritasmiðina, þá var ég
fljótur að gera upp hug minn.“
Það var lán fyrir Leikfélag Akur-
eyrar og mér sýnist einnig, að það
hafi verið happ fyrir þá báða,
Davíð og Svein. Þetta leikrit er
gjört að þeirri íþrótt og þeim
anda, að það mun lifa.
Erlendar
bækur
Sigurlaugur Brynleifsson
Jerome K. Jerome: My Life and
Times. John Murray 1983. Richard
Frere: Beyond the Highland Line.
John Murray 1984.
Jerome K. Jerome er kunnastur
fyrir „Three Men in a Boat“, sem
er meðal fyndnustu samantekta,
sem skrifaðar hafa verið. Höfund-
urinn lifði á dögum Viktoríu
drottningar og Játvarðar VII. kon-
ungs og hefur frá ýmsu að segja
frá þeim árum, þá var allt með
öðrum hætti en síðar varð, hann
lifði fram á daga Georgs VI. í
þessari ævisögu lýsir hann and-
rúmsloftinu sem hann ólst upp í,
fæddur 1859. Hann lýsir fólki og
háttum manna, ýmsum nýjungum
svo sem rafmagni og reiðhjólum
og bifreiðum. Hann var af milli-
stéttum, en bjó við mikla fátækt
framan af ævinni. Fyrstu tilraun-
um hans i bókmenntum var heldur
illa tekið. Hann kynntist ýmsum
kunnum höfundum samtímans,
Conan Doyle, Mark Twain, Shaw,
Wells o.fl. Jerome var mikill
áhugamaður um leiklist. En eins
og áður segir minnast menn hans
nú sem höfundar „Three Men in a
Boat“, og þessi ævisaga er lipurl-
ega rituð og sýnir liðna heima,
hún kom fyrst út 1926, höfundur-
inn lést árið eftir. Þetta er önnur
útgáfa.
Jerome dvaldi í Frakklandi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum, og
lýsir dvöl sinni og kynnum við
landsmenn. Þetta eru skemmtileg-
ar lýsingar og frásagnir hans, sem
eru hversdagslegar, kryddaðar
gamansemi og margvíslegum
íhugunum höfundar um flest milli
himins og jarðar.
Richard Frere varð kunnur höf-
undur eftir að út kom eftir hann
frásögn af kynnum hans og Max-
wells, höfundar Ring of Bright
Water. Sú bók þótti vera góð lýs-
ing á þeim einkennilega samsetta
manni og náttúruskoðara og jafn-
framt lýsing á Frere sjálfum.
{ þessari bók segir Frere frá
sjálfum sér og baxi sínu og puði
við misheppnuð fyrirtæki og til-
raunir við að skapa sjálfum sér
hin og önnur atvinnutækifæri.
Hann segir frá mjög hversdags-
legum atburðum og fyrirtektum,
en gerir það á þann hátt að þetta
verður skemmtileg lýsing, fjörleg
og lifandi frásögn. Persónu-
lýsingarnar verða minnisstæðar.
Höfuðáhugamál Freres eru
fjallgöngur og athugun náttúr-
unnar, dýra- og fuglaskoðun og
ýmsar handiðnir.
Það er ekki aðeins hér á landi,
að fjölmargir taka upp á því að
skrifa niður minningar sínar,
þetta er orðinn siður mjög víða og
afraksturinn harla misjafn. Ef
menn eru pennaliprir geta þeir
sömu sett saman læsilegar ævi-
skýrslur og það verða alltaf ein-
hverjir til að lesa samantektirnar.
DnlhAlfi C e.mar CQ 7A_On nn «Q_7lí.fin C/
Bolholti 6, símar 68-74-80 og 68-75-80.
Okkar dansar eru spes
Jass-leikskóli fyrir 4—9 ára börn.
Guffi — Mikki mús og Jóakim.
Jass-dans, byrjendur og framhald.
Jass-ballet m.a. dansar úr „Fame“.
Step-Tap-dans, 6 ára og eldri.
Þetta er dans fyrir stráka og stelp-
ur, ungar stúlkur og herra og jass
fyrir konur á besta aldri.
Kennsla hefst mánudaginn 7. janúar hjá
þeim nemendum sem voru fyrir jól. Nýir
flokkar taka til starfa í vikunni 14.—19. jan-
úar.
„KAFFIKVÖRNIN"
Eldri borgarar dansa á mánudagseftirmiðdögum í Bol-
holti 6 kl. 15.00—16.30. Byrjar 7. janúar. Kaffi á könn-
unni. Velkomin í hópinn.
Gestir dansskólans frá jolaböllunum þau
Merete Hachman og Jesper Sörensen, í
dansi á Hótel Sögu sunnudaginn 16. des-
ember.
Kennslustaðir
Bolholt 6
Tónabær
Gerðuberg
Þrekmiðstööin, Hafnarfiröi
Innritun nýrra nemenda er í
Bolholti 6, símar 687480 og
687580 daglega frá kl. 14—19.
Endumýjun skírteina þeirra
nemenda sem voru fyrir jól er í
Bolholti 6 í dag, laugardag 5.
janúar, kl. 14—18.
Aftwnding skirtelna nýrra nem-
enda er laugardaginn 12. janúar
frákl. 14—18.
Laugardagana 5. jan. og 12. jan.
veröa Henný, Unnur og Hermann
Ragnar sérstaklega til viötals í
Bolholtl 6, frá kl. 14—17, viö val
á hóp.
BARNADANSAR
Hreyfileikir og dans fyrir börn 4 ára til 11 ára. Nýr flokkur á
laugardögum í Tónabæ og í Gerðubergi á miövikudögum.
★ Gamlir og nýir samkvæmisdansar
★ Suður-amerískir dansar
★ Nýir hjóna- og paraflokkar byrja 15. jan.
_________ * Framhaldsflokkar ffyrir hjón og pör
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
TRYGGING FYRIR RÉTTRI
TILSÖGN í DANSI
tw* •mmmi