Morgunblaðið - 05.01.1985, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1986
Blaðað í fjárlögum
eftir Gunnar
Sigurðsson
„En aldraðir, þeir máttu
sitja eftir eins og svo oft
áður.“
Sem starfsmanni Borgarspítal-
ans þótti mér forvitnilegt að líta í
nýsamþykkt fjárlög fyrir árið
1985. Einkanlega lék mér hugur á
að vita um fjárframlög til bygg-
ingar B-álmu Borgarspítalans,
sem verið hefur í byggingu síðan
1977 og er ætlað að þjóna öldruð-
um sjúklingum. Tvær hæðir af sjö
eru nú fullgerðar og þar hafa vist-
ast sjúklingar á aldrinum 68—101
árs. Framkvæmdir við bygging-
una hafa iegið niðri síðan á sl. vori
vegna fjárskorts.
Mér var kunnugt um að í apríl
1984 var samningur undirritaður
af borgarstjóranum í Reykjavík,
Davíð Oddssyni, Matthíasi
Bjarnasyni heilbrigðismálaráð-
herra og Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra um byggingu
B-álmunnar. I samningi þessum
var gert ráð fyrir að byggingu
B-álmu Borgarspítalans verði lok-
ið á árinu 1986. Heildarkostnaður
við að ljúka verkinu var áætlaður
136 milljónir króna (miðað við þá-
verandi byggingarvísitölu). Hluti
ríkissjóðs og Framkvæmdasjóðs
aldraðra skyldi vera 85% eða 115,6
millj. króna, en hlutur Reykja-
víkurborgar 15%. Samkvæmt
samningnum var því væntanlega
gert ráð fyrir að þessi fjárframlög
dreifðust á árin 1985 og 1986.
Samkvæmt þessu bjóst ég við
myndarlegu framlagi i fjárlögum
til að sinna þessu brýna verkefni í
þágu aldraðra sjúklinga og fór að
fletta. Jú, þarna sá ég framlag til
Sjúkrahússins á ísafirði 15,5 millj.
króna og til Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri 21 millj. króna
(hafði verið hækkað úr 5,5 millj. í
frumgerð fjárlaga). Loksins fann
ég framlagið til B-álmu Borgar-
spítalans, 8 milljónir króna. Ég átti
erfitt með að trúa þessari tölu í
ljósi áðurnefnds samnings ráðun-
eytanna og Reykjavíkurborgar.
Var það satt sem einhver ólyginn
laumaði að mér, að í fjárveitinga-
nefnd Alþingis ætti enginn þing-
maður Reykjavíkur sæti?
Þar sem Framkvæmdasjóður
aldraðra hefur fjármagnað bygg-
ingu B-álmunnar að talsverðu
Dr. Gunnar Sigurðsson
leyti til þessa, taldi ég líklegt að
þessu verkefni hefði verið velt yfir
á þann sjóð. Tekjur sjóðsins í
gegnum nefskatt eru áætlaðar um
55 millj. króna á árinu 1985. En
rétt fyrir jólin voru samþykktar
breytingar á lögum sjóðsins þar
sem tekið er fram að einungis 30%
af tekjum sjóðsins megi nú verja
til byggingar hjúkrunardeilda á
vegum sveitarfélaga, sem B-álman
gæti fallið undir, en í fyrri lögum
var ekkert slíkt takmarkandi ákv-
æði. Þannig gæti í það mesta 16,5
millj. króna verið veitt til þessa
liðar á árinu 1985 og að sjálfsögðu
eru þar margar framkvæmdir um
hituna aðrar en B-álman.
Það er því ljóst að framkvæmd-
ir við B-álmu Borgarspítalans
dragast mjög á langinn og með
slíku áframhaldi verður fram-
kvæmdum ekki lokið á árinu 1986
eins og borgarstjóri og heilbrigð-
ismálaráðherra höfðu gefið vonir
um, heldur einhvern tímann á
næsta áratug. Aðrar knýjandi
framkvæmdir við Borgarspítalann
verða því væntanlega að bíða enn
lengur, má þar nefna til dæmis, að
Þetta gengur ekki
lengur, Eyjólfur
eftir Hallgrím
Sveinsson
Eyjólfur Konráð ávarpaður
þriðja sinni.
Þess eru dæmin í veraldarsög-
unni að ýmsar þjóðir hafa misst
tökin á fjárhagsmálefnum sínum
og þar með verið settar undir ok
ósjálfstæðis og orðið öðrum þjóð-
um undirgefnar. Dæmi um þetta
sem stundum hefur verið nefnt
hér uppi á íslandi, er Nýfundna-
land sem missti sjálfstæði sitt og
var innlimað í Kanada árið 1949,
meðal annars vegnar misheppn-
aðrar stjórnunar á peningamál-
um. Þegar við höfum verið að
komast í þrot á umliðnum áratug-
um þá hefur þetta gjarnan verið
nefnt sem víti til varnaðar fyrir
okkur einmitt vegna þess að bæði
þessi þjóðfélög hafa verið veiði-
mannanýlendur sem hafa lifað á
fiskveiðum.
Eitt sinn átti íslenska þjóöin
stórar fjárfúlgur í erlendum bönk-
„Og nú spyr ég þig, Eyj-
ólfur Konrád Jónsson,
formaður fjárhags- og
viðskiptanefndar efri
deildar Alþingis. Ætlið
þið þingmenn að skrifa
upp á þennan víxil eða
ætlið þið að vera þeir
menn að neita því og
snúa vörn í sókn úr hinu
erlenda skuldafeni?“
um, 600 milljónir eða svo í stríðs-
lok. Þetta var hinn svokallaði
stríðsgróði og væri auðvitað dá-
lagleg upphæð i dag ef reiknuð
væri til núgildandi peningaverðs.
Síðan hefur mikið vatn til sjávar
runnið og á ýmsu gengið i fjár-
hagsmálum okkar. Erum við nú
rétt einu sinni komnir á Ný-
fundnalandsstigið, sem kalla má
svo, og við blasir hengiflug skulda-
fensins og fjárhagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar í stórhættu.
Nú er það svo, Eyjólfur Konráð,
að okkar þjóðskipulag er þannig
upp byggt að það veitir hinum al-
menna borgara rétt til að tala til
ykkar stjórnenda þjóðarinnar
bæði í ræðu og riti, ef honum ligg-
ur eitthvað á hjarta. Þessi réttur
er ómetanlegur hverri þjóð og
kannski hefur þú tekið eftir því
þessa dagana, að borgararnir hafa
gefið merki, bæði til sjávar og
sveita: Hingað og ekki lengra.
Stöðvið erlenda skuldasöfnun ís-
lensku þjóðarinnar. Þetta hættu-
merki bergmálar nú um allt land.
Fjárfestingar og lánsfjáráætlun
var lögð fram á Alþingi rétt fyrir
jólin, til athugunar fyrir ykkur
þingmenn. í áætlun þessari kemur
fram, að um áramótin munu lang-
tímaskuldir þjóðarinnar i erlend-
um gjaldeyri nmea 42,600 milljón-
um króna — fjörutíu og tvö þús-
Hallgrímur Sveinsson
und og sex hundruð milljónum
króna.
Það sem er þegar búið og gert
verður víst ekki aftur tekið. Við
sitjum uppi með þessa skuldasúpu
hvort sem okkur líkar betur eða
verr. Sem betur fer erum við þó
ekki svo heillum horfnir ennþá að
við höfum ekki ýmis ráð á hendi
til að vinna okkur út úr þessu feni.
Eitt af frumskilyrðum þess að
þetta megi takast er að hætta að
lemja sífellt í þennan erlenda
betliknérunn og stöðva þetta lán-
tökubrjálæði.
Nú eru það ekki einungis leik-
menn sem sjá í hvert óefni stefnir.
Hagfræðingar okkar, bæði ungir
og gamlir, sjá að við erum á glöt-
unarvegi og hamra á því í fjöl-
miðlum dag eftir dag. Haft er eftir
Jónasi Haralz, hinum reynda fjár-
málamanni, í Tímanum um dag-
inn, að allir sjái vandann í pen-
ingamálum þjóðarinnar og nauð-
syn þess að bregðast við honum.
Hins vegar sé afar ólíklegt að þær
nauðsynlegu ákvarðanir sem þurfi
að taka, verði teknar af þeim
stofnunum og því skipulagi sem
við búum við.
Þessi orð Jónasar Haralz eru
umhugsunarverð fyrir alla og þó
einkanlega fyrir ykkur hina 60 al-
þingismenn þjóðarinnar. Það eru
umhugsunarvert fyrir ykkur þing-
menn fyrst og fremst vegna þess
að þið eruð til þess kjörnir í lög-
legum kosningum að gæta fjör-
eggs þjóðarinnar. Þið eigið að
gæta þess að þetta fjöregg brotni
ekki í meðförum hinna ýmsu
stofnana þjóðfélagsins, þar á með-
al ríkisstjórnarinnar. Það hlýtur
að vera fyrst og fremst ykkar
verkefni að veita ríkisstjórninni
aðhald.
Nú hefur þessi okkar ágæta rík-
isstjórn rétt ykkur víxil að upp-
hæð kr. 7,300 milljónir í erlendum
gjaldeyri sem hún ætlast til að þið
skrifið upp á fyrir hönd þjóðarinn-
ar. f lánsfjáráætlun fyrir árið
1985 sem áður var nefnd, er ein-
mitt reiknað með að slá erlend lán
sem þessari upphæð nemur. Og nú
spyr ég þig, Eyjólfur Konráð
Jónsson, formaður fjárhags- og
viðskiptanefndar efri deildar Al-
þingis. Ætlið þið þingmenn að
DVERGRÍKI í DEIGLUNNI/Jón Óttar Ragnarsson
1984 - In memoriam
Tileinkað Hannesi Hólmsteini
Ef síðustu 200 irin eru undan-
skilin hefur alþýðan ætíð itt sér
„Stóra bróður" sem skattpíndi
hana og kvaldi i alla lund (allt í
„göfugum tilgangi" að sjilfsögðu).
„Að gjalda keisaranum það sem
keisarans var og Guði það sem
Guðs var“ merkti einfaldlega að
fátæklingarnir deildu aleigunni
samviskusamlega á milli höfð-
ingjanna og klerkanna.
I kjölfar byltinganna í Evrópu
og nýju ríkjanna í Ameríku i 18.
og 19. öld kom „hlýviðrisskeið"
með auknu frelsi um sinn. En á
þessari öld hafa áhrif Stóra bróður
aukist i nýjan leik svo um munar.
Hámarksríkið
Rótin að þessum örlagaríku
öfugsporum voru hinar ómann-
úðlegu kenningar Karls heitins
Marx um himarksríkið sem
skipuleggur „þarfir" okkar og
„uppfyllir" þær síðan að eigin
geðþótta.
Marx einfaldlega hataði mark-
aðskerfið sem hann hélt að gerði
þi fitæku aðeins fátækari og
ófrjilsari. 1 rauninni er þetta ein-
ungis allgóð lýsing á hans eigin
hagkerfi.
Svo vinsælar urðu kenningar
Marx að u.þ.b. tuttugu þjóðir
ánetjuðust, þar af nær öll ríki
A-Evrópu, og eru nú meðhöndl-
aðar eins og pelabörn á vöggu-
stofum Stóra bróður.
„Velferðarríkið“
Aðrar u.þ.b. tuttugu þjóðir i
V-Evrópu og Ameriku sluppu
með skrekkinn, en naumlega þó.
í Svíaríki hirðir Stóri bróðir nú
um 60% af vinnulaunum alþýð-
unnar (allt í „göfugum tilgangi"
að sjálfsögðu).
Ef finna ætti hliðstæðu mætti
líkja hinum Stóra bróður
„velferðarríkisins“ við troðfullan
strætisvagn sem er hættur að taka
nýja farþega þótt biðstöðvarnar
morí af þurfandi fólki.
Skýringin er sú að í vagninum
eru fjölmargir sem ættu að vera
farnir út fyrir löngu. En jafnframt
yrði þorrí þeirra sem ennþi bíða
fljótari í förum fótgangandi.
Hvers vegna í veröldinni ætti
t.d. Stóri bróðir að hafa eigin
húsameistara, tugi opinberra
mötuneyta og bæjarútgerðir
þegar hliðstæð fyrirtæki í einka-
eign eru á hverju strái?
Lágmarksríkið
Andsvörin við þessari fárán-
legu öfugþróun hafa eðlilega
verið kenningar um lágmarksrík-
ið. Samkvæmt Friedman má ríkið
t.d. einungis reka herinn, lög-
regluna, löggjafar- og dómsvald-
ið.
Þessar kenningar eru frumstæð-
ar öfgar hinna bláeygu bleyju-
barna velferðarríkisins, ekki hót-
inu hættuminni en marxisminn, og
mundu í raun drepa lífvænlegustu
neista íslensks þjóðfélags.
Ríkið yrði þá aldrei framar ör-
yggisnet fyrir lítilmagnann né
uppeldisstöð fyrir hugmyndir.
Þar með væru tvær helstu kveikjur
að velferð okkar og verðmæta-
sköpun úr sögunni.
Hið frjálslynda ríki
Framfarir á Islandi — ef þær
eiga að sjá dagsins Ijós — munu
Orwell: Spimaður tuttugustu aldar?
byggjast á allt öðrum lögmálum:
Okkar eigin kjarki til að temja
óskapnaðinn in þess að fórna því
jákvæða sem þó iunnist hefur.
Þessi frjilslynda stefna verður
að byggjast á þeim mannréttind-
um að stjórnvöld hafi þor til að
tryggja að enginn fii framar að
einoka svið sem aðrir geta sinnt
eins vel eða betur.
Þetta sanngirnislögmil krefst
þess að einkaréttur ríkisins i flest-
um sviðum sé afnuminn, t.d.
einkaleyfið til að framleiða sem-
ent, reka sfma, dreifa útvarps-
og sjónvarpsefni.
Á hinn bóginn mun ríkið að
sjilfsögðu liðsinna ifram i sviðum
sem einstaklingar riða ekki við,
Ld. rekstur spítala og þróun hug-
mynda (uppfyndingar, rannsóknir,
listsköpun).
Lokaorð
Það er ví fyrir dyrum f vel-
ferðarríkinu. Það birtist m.a. f
þeirri dapurlegu staðreynd að
hvert mannsbarn í íslenska lýð-
veldinu skuldar nú kr. 200.000 f
erlendum bönkum.
Vegna hins stjórnlausa ofvaxtar
ríkisins erum við nú riðvillt þjóð
kúguð af kerfi sem er ein enda-
leysa fri upphafi, sem sóar fé
okkar i biða bóga in þess að
gegna einu sinni þeim frumskyld-
um sem framtíð okkar veltur á.
íslendingar hafa öllu að tapa ef
þeim tekst ekki að losa um
kverkatak ríkisvaldsins og stofn-
ana þess. Þi munu þeir, eins og
aðrar þjóðir Vestur-Evrópu, glata
síðustu leifunum af frelsi sínu og
lýðræði. Fari svo mun irsins sem
nú var að líða verða minnst sem
tikns um nýtt jökulskeið í menn-
ingarsögunni og George Orwells
sem mesta spimanns þessarar ald-
ar.
Gleðilegt ir.