Morgunblaðið - 05.01.1985, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985
Fjórtán A-Þjóð-
verjar snúa heim
, 4. jaanar. AP.
FJÓRTAN Austur-ÞjóAverjar yfir-
gáfu í dag, föstudag, sendiráð
Vestur-Þýskalands í Prag, þar sem
þeir böfðu dvalið í fjóra mánuði, og
béldu heim á leið, að sögn embætt-
ismanna.
Þá eru 14 flóttamenn eftir í
sendiráðinu og hafa þeir allir sótt
um leyfi til að flytjast til Vestur-
landa, að því er embættismenn í
Bonn sögðu.
Næstum fjórir tugir flótta-
manna hafa snúið aftur til Aust-
ur-Þýskalands á undanförnum
dögum eftir misheppnaða tilraun
til að þvinga kommúnistastjórn-
ina i Austur-Berlín til þess að
veita þeim fararleyfi.
Einn af embættismönnunum í
Bonn kvað þá sem enn væru eftir í
sendiráðinu í Prag „harða í horn
að taka“ og kvaðst engu vilja um
það spá, hvort þeir yfirgæfu stað-
Lygamælar gegn
Sovétnjósnurum
AP.
BANDARÍSKA varnarmálaráðu-
neytið hyggst notfæra sér lygamæla í
meira mæli í framtíðinni en til þessa
til þess að koma í veg fyrir njósnir.
Verður lygamælinum beitt gegn
starfsmönnum og verktökum, sem
Nauðgar-
ar dæmd-
ir í Kína
Pekng- *■ juúr. AP.
ÞRJÁTÍU og tveir nauðgarar og
glæpamenn, margir synir virtra
félaga í kínverska kommúnista-
flokknum, voru í dag dæmdir
fyrir glæpi sína. Fjórir voru tekn-
ir af lífi, fjórir fengu líflátsdóm
til viðbótar, sem verður ekki
framfylgt að svo stöddu, einn var
dæmdur í ævilangt fangelsi og
aðrir voru dæmdir til mislangrar
fangelsisveru og ekki tekið nán-
ar fram um þá dóma.
Dagblað alþýðunnar sagði að
á siðasta ári hefði þrjátíu
manna bófahópur þessi látið
mjög að sér kveða og ættu slík-
ir glæpamenn, sem nauðguðu
konum og misþyrmdu, ekki
annað skilið en þunga dóma og
skipti þá engu þótt þeir væru
af traustum flokksfjölskyldum.
Ekki var greint frá þvf hvers
vegna réttarhöld yfir mönnun-
um tóku jafnlangan tíma og
raun bar vitni.
vinna að hernaðarlegum verkefnum,
er leynd á að hvfla yfir.
Gert er ráð fyrir, að lygamæli
verði beitt 3.500 sinnum frá ára-
mótum fram til septemberloka
næsta haust og ákveða þannig,
hvaða starfsmenn og verktakar
eigi að hafa aðgang að hernaðar-
leyndarmálum.
Haft hefur verið eftir Richard
G. Stillwell, fyrrum hershöfð-
ingja, sem skipuleggur þessar
ráðstafanir, að þær væru svar við
vaxandi viðleitni Sovétmanna til
þess að komast yfir bandarísk
tæknileyndarmál. Hefði Banda-
ríkjaþing samþykkt þessar ráð-
stafanir i tilraunaskyni.
Cyðingabarn frá Eþíópíu í sjúkrahúsi f Tel Aviv. Litla barnið er sýnilega ekki hrifið af lyfinu, sem hjúkrunarkonan
ætlar því. Símamynd/AP
Þúsundum Eþíópíugyðinga
bjargað frá hungursneyð
, Tel Arrr, 4. jaaAar. AP.
BELGÍSKT leiguflugfélag hefur á
undanförnum vikum flutt þúsundir
gyðinga til ísraels frá Eþíópíu, þar
sem nú ríkir mikil hungursneyð.
Flutningar þessir hófust í nóvember
og standa enn yfir. Fara þotur af
gerðinni Boeing 707 daglega frá
Khartoum, höfuðborg Súdans, þar
sem gyðingunum frá Eþíópíu hefur
verið safnað saman, og millilenda f
ýmsum borgum f Evrópu áður en
þær halda til Tel Aviv, þar sem ekki
er stjórnmálasamband milli ísraels
og Súdans.
Gyðingarnir í Eþíópíu nefnast
Falashas og er talið að þeir séu
um 25 þúsund að tölu. Ekki er vit-
að hve margir þeirra hafa verið
fluttir til ísrael, en haft er eftir
Leon Dulzin, yfirmanni útlend-
ingaeftirlitsins í ísrael, sem nú er
staddur í London, að mikill meiri-
hluti þeirra sé kominn til lands-
ins. Hann sagði i viðtali við
Breska útvarpið að flutningarnir,
sem væru gífurlega umfangsmikl-
ir, kostuðu hundruð þúsunda
sterlingspunda og hefðu gyðingar
í Bandaríkjunum lagt fram um-
talsverðar fjárhæðir til að standa
straum af þeim.
Ísraelsk yfirvöld hafa haldið
flutningunum leyndum af ótta við
að fréttir af þeim gætu skaðað
Falashas-gyðingana, en i dag stað-
festu þau að þeir færu fram, en
vildu engar frekari upplýsingar
gefa. Er sagt að þau séu mjög
gröm þeim fjölmiðlum er komust
á snoðir um flutningana og
greindu frá þeim í gær.
Flutningar Falashas-gyðing-
anna frá Eþiópíu er umfangs-
mesta björgunaraðgerð fsraela í
þrjátiu ár. Um borð i þotunum,
sem flytja gyðingana til Israels,
eru læknar og hjúkrunarfólk og
þegar fólkið hefur komið til ísra-
els hefur það oft verið flutt í
sjúkrahús til frekari aðhlynn-
ingar.
Að loknu jólaleyfi
Þúsundir starfsmanna verðbréfamarkaðarins í Tókýó taka hér þátt í hefðbundinni klapp-athöfn,
sem fram fór í gær, föstudag, á fyrsta starfsdegi eftir áramót, en fremstar standa konurnar í
starfsliðinu, klæddar kimono-sloppum. Flest japönsk fyrirtæki, opinber og í einkaeign, hófu starf-
semi sína í gær eftir áramótafríið.
Barnamorð sönnuð
á Torontosjúkrahúsi
Torooto, 4. juiar. AP.
AÐ MINNSTTA kosti átta ungbörn
og ef til vill fimmtán í viðbót voru
drepin með of stórum lyfjaskammti
á einu þekktasta sjúkrahúsi í
Sovétríkin:
Æ færri
Gyðingar
fá að fara
Genf, 4. janúar. AP.
GYÐINGUM, sem fengu að fara
frá Sovétríkjunum á síðasta ári
fækkaði um 30% miðað við árið
áður. Voru þeir aðeins 908 á öllu
árinu 1984. Þetta er minnsti fjöldi
allt frá árinu 1971, er alþjóða-
stofnun þeirri sem falið var það
verkefni að skipuleggja þessa
flutninga var komið á fót.
Kanada, að því er talsmaður áfrýj-
unardómstóls, Samuel Grange,
sagði í morgun. Hann sagði, að það
væri fjarri öllum líkum að börnun-
um hefði öllum verið gefið of mikið
af hjartalyfinu digoxen fyrir slysni.
Grange var skipaður til að rann-
saka lát 36 ungbarna á hjartadeild
sjúkrahússins en börnin létust frá
því 30. júní 1980 til 22. marz 1981.
Hjúkrunarkona ein, Susan Nell-
es, sem var á vakt þegar mörg
barnanna létust, var í fyrstu
ákærð fyrir að bera ábyrgð á
dauða fjögurra barna, en síðan var
ákæra á hendur henni felld niður
vegna skorts á sönnunargögnum.
Grange sagði að engum blöðum
væri um það að fletta að átta ung-
barnanna hefðu fengið of stóran
skammt af digoxen og það hefði
valdið dauða þeirra. Hann sagði
að tíu önnur tilfelli bentu til hins
sama og vafi léki á með fimm. Sex
hefðu látist af eðlilegum orsökum.
Mál þetta hefur verið í rann-
sókn i 176 daga og hefur vakið
mikinn ugg í Toronto og víðar í
Kanada.