Morgunblaðið - 05.01.1985, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985
30
Afmæliskveðja:
Haukur Óskars
Það er erfitt að hugsa sér, að
sutnir menn eldist — einkum og
sér í lagi ef þeir eru hvatir og
frískir eins og hann Haukur
Óskars, sem er fjandakornið ekk-
ert eldri nú en fyrir tíu árum eða
jafnvel tuttugu.
Sumir menn eru fæddir með
slíka tíðni og slíka sveiflu, að það
er lífsins ómögulegt að horfast í
augu við þá staðreynd, að þeir taki
allt í einu upp á þvi að eiga sjö-
tugsafmæli eins og hann Haukur
— öllum að óvörum. Það er glæsi-
legt að sjá menn halda sér vel. Það
er eins og sumir geti aldrei fengið
á sig gamalmennis-blæ eða litið út
eins og gamlingjar þrátt fyrir
langa og jafnvel á stundum harða
lifssiglingu að baki.
Að muna eftir leikaranum og
músíkantinum og knattspyrnu-
kappanum honum Hauki hár-
skurðarmeistara við Kirkjutorg
frá því fyrir tæpum fimmtíu árum
norður á Akureyri í gamla MA —
jafn-þrælmögnuðum eins og hann
var — vaðandi uppi með knöttinn
í hörðum knattspyrnuleik ásamt
með öðrum kappa úr Reykjavík
honum Brandi Brynjólfs — það
var sko ekkert lítið að sjá fyrir
*strákling, sem hafði gaman af
hasar og keppni. Haukur og
Brandur (báðir úr Víkingi) voru
sarnan í norðlenzka skólanum og
hefðu orðið samstúdentar 1937, ef
Haukur hefði ekki verið nauð-
beygður til að hætta námi eftir
fimmta bekk og koma til liðs við
föður sinn, óskar Árnason, í rak-
araiöninni. Hárskurðar- og rakar-
alistin hefur verið hefð í fjöl-
skyldu Hauks allt frá afanum,
Árna Nikulássyni, frumherja
þessarar atvinnugreinar hérlend-
is, sem var ættaður úr Rangár-
vallahlíðinni — af Víkingslækjar-
ætt — en til þeirrar ættar teljast
ýmsir dugnaðarforkar og víkingar
bæði konur og karlar (nægir að
benda á valkyrjuna Árnýju sálugu
Filip^usdóttur, skólastýru i
Hveragerði; Minnu Breiðfjörð (al-
ias Thorberg) leikkonu og hár-
greiðsludömu, sem hefur jafnan
farið gegnum lífsins ólgusjó með
sigurbros á vör þrátt fyrir við-
kvæmnina; Böðvar sáluga léns-
herra á Laugarvatni og Bjarna
heitinn skólastjóra Bjarnason á
sama stað — allt saman mann-
eskjur með hörkulegan lífsstíl).
Vel á minnzt — þessir tveir
sunnanmenn — þeir Haukur
Óskars og Brandur Brynjólfs (sem
er starfandi hæstaréttarlögmaður
í Reykjavík) — komu eins og gæð-
Afmæliskveðja:
Afmæli og fagnaður í tilefni
þess er í raun og veru undirstrik-
un á gleði og þakklæti fyrir alla
dagana sem gefist hafa til lífs og
starfs.
í dag er heiöurskonan Hulda
Jensdóttir forstöðukona Fæð-
ingarheimilis Reykjavíkur 60 ára.
í tilefni þess sendi ég henni hug-
heilar hamingjuóskir — með gleð-
ina og þakklætið efst i huga.
»Ég veit ekki hvað bíður þín
litla barn en ég vona að þú sért
velkomið og hendurnar sem
'snertu þig fyrst hafi verið kær-
leikans hendur." Þessi orð Huldu
sjálfrar er hún sagði á ári barns-
ins 1979 hljóma í eyrum mér nú.
Ég trúi því að ljósmóðurhend-
urnar sem tóku á móti litiu stúlk-
unni Huldu í Jökulfjörðum 5.
janúar 1925 hafi verið hlýjar — en
hitt veit ég að móðirin tók á móti
“henni með kærleika.
Hulda er fædd aö Kollsá f
ingar af framandlegu hestakyni
inn í sveitina og andrúmsloftið
þar nyrðra — og furðulegt nokk
féllu piltarnir, þessir „æði reyk-
vísku“ strákar, alveg gjörsamlega
inn í skrýtilegheitin og hefðirnar
og strangleikann í þessum arftaka
Hólaskóla ins forna, þ.e. MA. Sú
var tíðin og árin liðu ...
Haukur stundaði brauðstritið —
hárskurðariðnina, en hugur hans
hneigðist til tónmennta og söng-
listar og leiklistar. Hann hafði
dvalizt í Þýzkalandi rétt fyrir
stríð og fengið ýmislegt bæði
sterkt og jákvætt út úr því.
Og alltaf beið hans vinna heima
á Fróni. Hann var fjögur ár í leik-
listarnámi í skóla Lárusar Páls-
sonar leikara, náfrænda síns. Þeir
Guðjón, móðurafi Hauks, sjómað-
ur í Reykjavík og suður með sjó,
og afi Lárusar leikara, sem hét
Lárus og var Pálsson og kallaður
hómópati — þeir voru hálfbræður.
Kynsæld er í ættinni og einn
frændinn í ættir fram gat tuttugu
og fjögur börn.
Guðjón Sigurðsson, afi Hauks
og faðir Stefaníu, ekkju Lárusar
Jóhannessonar, þess blöndælska
afreksmanns, og Guðnýjar móður
Hauks, var fæddur á Borgarfelli í
Skaftártungum og var fimmti
maður frá Guðnýju, elztu dóttur
Jóns Steingrímssonar eldprests;
Guðný er sjötta manneskja frá
síra Jóni og Haukur, afmælisbarn-
ið, er sjöundi maður frá eld-
klerkinum — og er það út af fyrir
sig nóg meðmæli með manni dags-
ins.
Haukur lék nokkur ár bæði hjá
Þjóðleikhúsinu og einnig hjá Leik-
félagi Reykjavíkur i gamla Iðnó.
Hann söng og lék m.a. í Vermlend-
ingunum og í Meyjaskemmunni.
1950 er hann eitt ár við söng- og
leiklistarnám í Salzburg i Austur-
ríki — í fæðingarstað Mozarts —
nam þar við Mozarteum — tón-
mennta- og leiklistarakademíu,
sem er kennd við tónskáldið. í lok
skólaársins þarna í Salzburg fór
hann með hlutverk í frönskum
einþáttungi á móti Fraulein Use-
bill Todt (sem er þekkt leikkona)
en hún er dóttir þess hins fræga
verkfræðings og ráðherra í þriðja
ríkinu, Todt, sem byggði autoban-
ana og varnargarðana við Atl-
antshafið.
Faðir leikkonunnar, Todt, fórst í
flugslysi og tók þá Albert Speer,
eins og kunnugt er, við embætti
hans — það voru nú meiri karl-
arnir!
{ Mozarteum í Salzburg gætti
Grunnvíkurhreppi í Norður-
Isafjarðarsýslu. Foreldrar hennar
voru Jens Jónsson og Jóhanna
Jónsdóttir sem er enn á lífi.
Fjölskyldan fluttist síðar til Ak-
ureyrar og þar átti Hulda sín
bernsku- og unglingsár.
Árið 1949 lauk Hulda námi í
Ljósmæðraskóla íslands og eftir
eins árs starf sem ljósmóðir á
Fæðingardeild Landspítalans fór
hún til náms erlendis í þrjú ár til
þess að kynna sér nýjungar og
fullnuma sig i fæðingarhjálp.
Eftir heimkomuna 1953 verður
Hulda umdæmisljósmóðir í
Garða- og Bessastaðahreppi. Þá
þegar markaði unga ljósmóðirin
ný spor varðandi fæðingarhjálp og
hóf skipulega fræðslu í slökun og
líkamsrækt barnshafandi kvenna.
Þessi starfsemi var nýmæli hér á
landi og sýndist sitt hverjum. Þar
kom að landlækni barst kæra
vegna þessa framtaks Huldu og
sterkra áhrifa frá hinum heims-
fræga leiklistarstjóra Max Rein-
hardt, en við hann var kenndur
leikskóli í Vínarborg, áður en
hann flúði til Bandaríkjanna
(hann var gyðingur).
Minna vinkona Breiðfjörð, sem
lék mikið á Vestmannaeyjaárum
sínum, kvaðst hafa haft unun af
því að leika á móti Hauki í leikriti,
sem hann setti upp þarna í Eyjum.
Það hefur alla tíð verið líf og
hreyfing í kringum afmælisbarnið
hann Hauk — allt frá því að hann
óx úr grasi í hjarta gömlu Reykja-
víkur öndvert við Dómkirkjuna —
steinsnar frá Hótel Borg á aðra
hönd og Tjörninni á hina hönd.
Hans verður minnzt frá upp-
gangsárum Víkings. Hann hefur
meira að segja heyrzt segja við
einkavininn og sparifélaga og
bróður í leik, Álbert Guðmunds-
son ráðherra: „Ég var alltaf að
reyna að kenna þér knattspyrnu,
lagsi, en það tókst ekki ... “
Svona tala þeir hver við annan
gamlir prakkarar og stríðsfélagar
úr miðborg Reykjavíkur eins og
ekkert sé — og senda hver öðrum
skeyti jafnt og þétt aðeins til að
skerpa vinskapinn. Haukur þótti
vígur vel og fjölhæfur á vellinum í
góðum skilningi, þ.e.a.s. hann var
oft örsnöggur að ná boltanum frá
andstæðingnum og kunni manna
best að leika á mótherjann. Hann
þótti skapmikill í eldlínu —r þessi
dæmalausi heiðursmaður eins og
hann er. Uppgangsár Víkinganna
byrjuðu þrjátíu og sjö og entust
fram á stríð. Síðar var Haukur
knattspyrnudómari og gegndi þvi
starfi yfir tuttugu ár og ennfrem-
ur var hann milliríkjadómari í
knattspyrnu í fjöldamörg ár.
Haukur saknar og mun ávallt
sakna vinar í stað, þar sem Þor-
steinn Ólafsson tannlæknir, ná-
granni hans, var. Þeir léku saman
í Víkingi og þóttu yfirmáta snjall-
ir og hafa sérstakan stíl. Það lék
var henni gert skylt að standa
fyrir máli sínu, sem hún og gerði.
Lauk fundum hennar og land-
læknis á þann veg að hann hvatti
hana eindregið til þess að halda
ótraúð áfram sínu brautryðjenda-
starfi — enda var Vilmundur
Jónsson vitur og framsýnn maður.
Hulda var bæði þá og síðar vak-
andi fyrir öllum nýjungum og hef-
ir sótt þekkingu sina til hinna
ýmsu landa, en þarna sem og oftar
beindist athyglin og þekkingar-
leitin að því sem til góðs mætti
verða íslenskum mæðrum og börn-
um og raunar báðum foreldrum,
því strax á árinu 1954 gefur hún
einnig verðandi feðrum kost á
liómi um þessi nöfn; Hauk, Steina
Olafs og Brand Brynjólfs og ýmsa
fleiri í gamla Víkingi. Þetta voru
líka vinir að fornum sið og með
gömlum siðalögmálum, sem eru að
hverfa.
Það er ævintýri út af fyrir sig
að koma á stofuna hans Hauks —
þessa „barberstue" familíunnar
frá 1901 — allar götur frá því
nemendur í lærða skólanum sam-
þykktu einum rómi að skipta ein-
vörðungu við landann, þ.e. Árna
Nikulásson, en ekki danska bart-
skerann V. Balschmidt, sem hafði
auglýst stofu sína í ísafold þrem
dögum eftir að Árni, afi Hauks,
hafi auglýst atvinnugrein sína í
sama blaði. Svo að vitnað sé í
gamla frétt um þetta segir á þessa
leið: „... þannig dróst fyrsta ís-
lenzka rakarastofa í höfuðborg-
inni inn í sjálfstæðisbaráttuna
meðal ungra skólapilta ... “
Það var svolítið sérstakt til
skamms tíma að vera staddur á
rakarastofunni, þá er Þorsteinn
heitinn Ólafsson (hann er nýlát-
inn) birtist allt í einu með harð-
kúluhattinn sinn og lífsstíl sinn,
dragandi litlu silfurtóbaksdósirn-
ar með enska Gladstonesnöffinu
úr pússi sínu og réttandi þær Mr.
Hawk vini sínum jafnframt því
sem elskulegar hnútur voru á
látnar falla. Það var eins og á
Vellinum í gamla daga fyrir og
eftir leik eða í hléinu — það var líf
í því og gáski, sem ekki má hverfa
úr mannlegu félagi þrátt fyrir öll
þessi illa aðfengnu félagslegu
áhrif í íslenzku samfélagi nú til
dags, sem má rekja til illra og
slæmra gervihugsjóna — það vita
flestir, hvað við er átt ..
Það er visst ritúal að koma inn í
þetta gamla hús við Kirkjutorg 6,
sem afinn Árni byggði við hliðina
á húsi Jóns Sveinssonar.
Þar í þessu fornemma húsi er
andrúmsloft jafnvel frá hinni öld-
inni. Ellegar þá er ýmsir garpar
setjast í „stólinn" eins og sjálfur
Albert.
Og ekki er síður forvitnilegt að
sjá Steingrím ráðherra birtast —
hann er líka hörkugóð auglýsing
fyrir hárskurðarstofuna frá 1901
— hárið fer yfirleitt vel á lands-
föðurnum á sjónvarpsskerminum.
Og ekki má gleyma karakter eins
hnefaleikaþjálfaranum honum
Steina Gísla, sem þjálfaði meðal
annars í „gentleman’s defence" þá
Hrafn Jónsson (Krumma í Braut-
arholti), Jón Múla, Bjarna beuty
(Atlas og Jowett) og sjálfan Hauk
(„en það var stutt“, segir Haukur).
Það er sálræn næring í því að
láta Hauk klippa hár sitt og skegg
— maður hefur alltaf á tilfinning-
unni, að hvorttveggja grói betur
en áður eftir hanteringuna i stóln-
um þarna í gamla húsinu.
Ekki má gleyma borðinu þekkta
á Hótel Borg gegnum árin —
fræðslu um fæðingu barna sinna á
námskeiðum um foreldrafræðslu.
Oft tekur það nokkurn tíma hjá
fólki að tileinka sér nýjungar svo
sem þessa fræðslu. „Én tímarnir
breytast og mennirnir með,“ því
nú er þessi fræðsla og nærvera
föður við fæðingu barna sinna tal-
in eðlileg og sjálfsögð — og í ljós
hefir komið að mörgum hefur það
verið góð og farsæl reynsla.
Á árunum 1950—1960 og raunar
löngu fyrr ríkti mikið neyðar-
ástand í Reykjavík hvað snerti
rými fyrir fæðandi konur. En fyrir
samtök og baráttu kvenna var úr
því bætt með stofnun og rekstri
Fæðingarheimilis Reykjavíkur
sem opnað var 18. ágúst 1960.
Réðst Hulda Jensdóttir þar til
forystu, undirbjó og mótaði alla
gerð þess. Hún innleiddi þar kenn-
ingar dr. G.D. Read um foreldra-
fræðslu ásamt ýmsum nýjungum
sem síðar áttu eftir að verða sjálf-
sagður þáttur í starfsemi fæð-
ingarstofnana og heilsugæslu-
stöðva hér á landi.
Síðar ruddi hún kenningum
franska læknisins dr. Fredric Le-
uboyer braut en hann lagði mikla
áherslu á barnið og umhverfi þess
við fæðinguna. í þessum efnum
sem og um margar nýjungar hefur
það lögmál gilt að einhver hefur
þurft að vera í fararbroddi og til-
búinn að takast á við hvert það
Hulda Jensdótt-
ir forstöðukona
þessu einvalaliði — hádegisverð-
arborði plús morgunkaffi og að
viðbættu síðdegiskaffinu. Raun-
verulega á tveim stöðum — ann-
ars vegar úti við gluggann sunn-
anvert í salnum (morgunkaffi og
síðdegis) og hins vegar hringborð-
ið stóra á hægri hönd, þegar inn i
salinn er komið. Þar getur að líta
liðið: Hauk Jacobsen, Henrik Bier-
ing, Pétur Einars, Álbert Guðm.,
sjálfan Hauk Óskars, Þórð Stur-
laugsson, Hörð peysuframleið-
anda, Sverri Bernhöft („le grand
gent“) (og á laugardögum mætir
stundum Stefán nokkur Hilmars-
son bankastjóri) og ekki má
gleyma júrista Boga Ingimars,
P&ó-urunum — þeim Pétri og óla
af Eyrarbakka og svo sjálfum
Clausensbræðrum. Þetta er af-
rennt lið.
Það er oft kátt á kjalla og hnút-
ur falla yfir borð og „í góðsemi
vegur hver annan“, en það er eins
og í Valhöll forðum meðal einherj-
anna, að allir rísa fljótt úr valn-
um, glaðir og sáttir hver við ann-
an.
Haukur — vinur minn og fóstri
kærir sig ekki um neina lofgerð-
arvellu með glassúr í tilefni af
þessum drottinsdegi, en allra síst
fer ég að skamma hann, því hann
á allt gott skilið, betra, langtum
betra en ýmsir aðrir á lífsleiðinni.
En svo stórlyndur er hann og
stórhuga eins og ái hans sira Jón
Steingrímsson, að hann veit, að
allt gott, sem að manni er rétt
kemur frá guði eða með öðrum
orðum þeim, sem öllu ræður.
Haukur er gæddur slikri reisn í
gleði og mótlæti lífsins — eins og
hefur sýnt sig og sannazt, að sá,
sem öllu ræður, hlýtur að vera
alltaf með honum, þegar á reynir,
eins og með eldprestinum, sem
hann er sjöundi maður frá.
Að Hæðardragi, Rvík,
Steingrímur St. Th. Sigurðsson
Afmæli vinar míns, Hauks
Óskarssonar, ber að fagna með
hreinum fagnaðarópum. Að eiga
slíkan mann að góðum vini má
jafna við guðsgjöf. Mér hefur
fundist, sem vinur minn hafi ætíð
haft í fullu tré við elli kellingu og
vel það. Nær væri jafnvel að tala
um að þótt árunum hafi fjölgað að
baki Hauks, hafi hann yngst með
hverju árinu. í gamla daga var
hann leiðarljós margra drengja
sem léku sér í fótbolta hér í Kvos-
inni. Þessum drengjum og vafa-
laust fleirum verður hann ætið
minnisstæður frá þvi hann lék í
knattspyrnulandsliðinu 1946 hér á
íþróttavellinum.
Vini mínum Hauki óska ég gæfu
og gengis á ókomnum tímum og til
hamingju með þennan merkisdag í
lífi sínu.
Þorkell Valdimarsson
ljón sem á veginum kann að verða,
og á þann veg unnist sigur i fjölda
góðra mála.
Árið 1962 gaf Hulda út bókina
„Slökun og eðlileg fæðing“ til þess
að koma þeim kenningum til sem
flestra.
Á Fæðingarheimili Reykjavíkur
hefur alltaf verið að því stefnt að
skapa hlýlegt og rólegt umhverfi
og hagnýt fræðsla fyrir nýorðnar
mæður og foreldra verið þar til
staðar. Mikil gifta og blessun hef-
ur fylgt heimilinu frá byrjun og til
þessa dags undir stjórn Huldu
Jensdóttur.
Hulda hefur verið í stjórn Sam-
bands norrænna ljósmæðra og
verið fulltrúi íslenskra ljósmæðra
á Norðurlanda- og alþjóðamótum
Ijósmæðra og flutt þar erindi.
Hulda er þjóðkunn fyrir skoðan-
ir sinar, málflutning og framgang
allan og baráttu fyrir hugðarefn-
um sínum og fyrir að veita lið-
styrk hverju því máli er hún telur
að til góðs megi verða.
Trúarvissa Huldu og virðing
hennar fyrir lífinu og sköpunar-
verki þess gerir hana sterka og
farsæla konu, sem nýtur virðingar
og trausts.
Kæra Hulda! Heill þér sextugri,
síunga kona og sómi íslenskra
ljósmæðra.
Steinunn Finnbogadóttir