Morgunblaðið - 05.01.1985, Síða 33

Morgunblaðið - 05.01.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985 33 Róbert G. Jóns- son — Minning Fæddur 1. júlí 1949 Dáinn 16. október 1984 Mágur minn, Róbert G. Jónsaon, verður kvaddur í dag hinzta sinni. Fregnin um andlát hans var sem reiðarslag. Það er erfitt að skilja að ungur maður i blóma lífsins sé hrifinn úr faðmi fjölskyldu sinnar án nokkurs fyrirvara. En vegir Guðs eru órannsakanlegir. Það er margs að minnast um svo góðan dreng sem Robbi var. Ég man hve systir mín Eyvör var stolt og hrifin þegar hún kynnti okkur fyrst. Ég var þá á unglinga- aldri og þótti mikið til koma að kærasti systur minnar væri sjó- maður. Robbi hafði verið á sjó meira og minna frá fermingu, en um tvítugt ákvað hann að fara í Vélskólann. Að námi loknu vann hann lengst af sem vélstjóri á loðnuskipinu Grindvíking. Alls staðar var hann vinsæll í vinnu, því bæði var hann forkur duglegur og léttur í lund. Maðurinn minn, Marteinn, og Róbert urðu góðir vinir. Þeir voru samskipa í 2 ár og gerðu út saman um tíma. Marga veiðitúrana fóru þeir saman, bæði á sjó og landi. Eyvör og Róbert eignuðust 3 syni. Halldór f. 13. júní 1969, Guð- laug f. 8. nóvember 1977 og Magna f. 16. apríl 1980. Robbi var sér- staklega barngóður. Ekki bara við sín eigin börn, heldur öll börn. Mér er það minnisstætt þegar þau eignuðust Guðlaug, en hann var tekinn með keisaraskurði fyrir tímann og Eyvör var lengi veik á eftir. Þá annaðist Robbi barnið dag og nótt og það gerði hann af þeirri natni og umhyggju sem honum var svo eiginleg. Fjölskyldu sinni bjó hann fal- legt heimili á Breiðvangi 13, Hafn- arfirði. Þar voru þau hjónin mjög samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Á heimilinu áttu þau sameiginlegt áhugamál ásamt sonum sínum, en það var skraut- fiskarækt. Áttu þau orðið mjög marga fiska, fallega og sjaldséða. Enda hugsað um þá af sömu kostgæfni og allt annað. Alltaf var gaman að koma á Breiðvanginn til þeirra. Robbi hafði einstakt lag á að koma fólki i gott skap, enda varð vinahópurinn stór. Það er erfitt að trúa því að hann sem alltaf var svo lífsglaður og bjartsýnn á framtíðina skuli ekki vera lengur á meðal okkar. öll hans elja og dugnaður sem hann sýndi í sambandi við bátinn sinn var einstök. Þar sýndi hann mest og best hvað í honum bjó. Aldrei datt honum í hug að gefast upp þó á móti blési. Hann trúði alltaf á framtíðina. Nú er hann kominn i höfn á ókunnri strönd, þangað sem leiðir okkar allra liggja að lokum. Við þökkum honum sam- fylgdina og allar góðu minn- ingarnar. Eiginkonu, sonum, for- eldrum, systkinum og ástvinum öllum vottum við okkar innileg- ustu samúð. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem) Ásta og Matti Okkur langar að rita fáein kveðjuorð um vin okkar Robba, en svo var hann kallaður af öllum kunnugum. Róbert G. Jónsson hét hann fullu nafni. Hann var vél- stjóri að mennt. Hann fórst ásamt félaga sínum er bátur hans Sóley SK 8 sökk þann 16. október síð- astliðinn. Róbert var fæddur 1 júlí 1949 og var því aðeins 35 ára er hann var hrifinn á brott frá eig- inkonu og þremur ungum sonum. Við spyrjum í sífellu, hvers vegna? Hvers vegna hann? Maður í blóma lífsins sem hafði svo margar áætl- anir og átti svo margt ógert. En við fáum engin svör. I þetta skipt- ið hefur „sláttumaðurinn" verið óvæginn, en við viljum trúa því að hans bíði meiri og verðugri verk- efni á þeim stað er hann gistir nú. Kynni okkar Robba eru búin að standa í mörg ár og á þá vináttu hefur aldrei borið skugga. Hann var mjög tryggur sínum vinum og einstaklega greiðvikinn. Ef hann mögulegá gat veitt hjálparhönd þá var það gert eins og ekkert væri sjálfsagðara, og fyrir það skal þakkað að leiðarlokum. Robbi hafði ríka kímnigáfu og í kringum hann var alltaf viss létt- leiki og kátína. Hann sá alltaf broslegu hliðarnar á málunum. Við hér á Suðurgötunni munum sakna hans góða félagsskapar mjög mikið. Við vottum þér Eyvör mín okkar dýpstu samúð, missir þinn og drengjanna er mikill og sorgin sár en minning um góðan og hug- rakkan mann mun lifa og ylja ykkur um ókomin ár. Foreldrum, systkinum, tengda- foreldrum og öllum öðrum að- standendum vottum við okkar dýpstu samúð. Dröfn og Steini Okkur langar til að minnast vinar okkar, Róberts G. Jónsson- ar, er lést af slysförum þann 16. október síðastliðinn. Róbert fæddist í Hafnarfirði 1. júlí 1949. Hann var sonur hjón- anna Þórunnar Gottliebs og Jóns Þórðarsonar. Robbi, eins og hann var kallaður, var annar í röðinni af 6 börnum þeirra hjóna. Hann ólst upp í Njarðvík hjá foreldrum sinum. Árið 1972 giftist Robbi eftirlif- andi konu sinni, Maríu Eyvöru Halldórsdóttur, og bjuggu þau fyrstu hjúskaparár sín á heimili foreldra Eyvarar, en þau reyndust honum í alla staði afar vel. Robbi fór ungur til sjós og má segja að sjórinn hafi átt hug hans allan. Árið 1975 lauk hann vél- stjóraprófi frá Vélstjóraskóla ís- lands og síðan var hann vélstjóri á ýmsum skipum eða þar til hann festi kaup á báti ásamt svila sín- um. En frá áramótunum ’83—’84 var Robbi einn í útgerðinni. Ég held að það sé ekki ofsögum sagt að hann hafi lagt nótt við dag, svo mikla vinnu lagði hann á sig til að eignast bátinn. Við, sem þessar línur ritum, kynntumst Robba er við vorum 15 ára unglingar. Má segja að sú vin- átta, sem þá myndaðist með okkur, hafi haldist æ síðan og ver- ið eins og best verður á kosið, enda litum við á Robba sem einn besta vin okkar. Robbi var skemmtileg- ur vinur, ávallt kátur og lundin einstaklega létt. Þá var unun að heyra hann segja frá, því húmor- inn var í hávegum hafður og orða- valið þannig að ekki var annað hægt en að hlægja af frásögninni. Allt var hægt að segja við Robba, því aldrei reiddist hann, sama hvað við sögðum. Er honum fannst við ganga of langt pá hló hann sínum smitandi hlátri. Til marks um hans léttu lund má geta þess að í þau 18 ár sem við þekkt- um hann, sáum við hann aðeins einu sinni reiðast. Já, við hjónin eigum oft eftir að minnast yndislegra stunda, er við áttum í eldhúsinu hjá þeim Ey- vöru og Robba, minningar, sem ekki verða settar á prent, en við munum geyma í hjörtum okkar. Það er okkur óskiljanlegt að hann skuli nú í blóma lífsins vera burtu kallaður. Hann sem skilur svo mikið eftir sig hér á jörðinni, drengina sína þrjá, drengina, sem hann unni svo heitt. En við verð- um að trúa því að þetta hafi ein1 hvern tilgang. Elsku Eyvör, Halli, Gulli og Magni svo og aðrir ástvinir, við vitum að fátækleg orð hafa lítið að segja, en það er huggun harmi gegn að eiga minningar um svo góðan dreng, sem Robbi var. Guð gefi ykkur styrk til að yfir- stíga sorg ykkar. Sólveig og Óli Minning: Þorsteinn Nikulás Halldórsson Fæddur 10. janúar 1927 Dáinn 24. desember 1984 Jólahátíðin er gengin í garð, all- ir svo glaðir og þakklátir. Vin- arkveðjur hafa borist, og vekja hlýhug og sanna jólagleði. En skammt er á milli gleði og sorgar. Að kveldi aðfangadags jóla barst mér sú fregn að Steini Lási bróðir minn væri dáinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sinu á aðfangadag. Hann hafði verið las- inn, en það var hann oft síðustu árin. Sonur hans, Davíð, og systkinin, Valdi og Beta, höfðu kvatt hann með þeim orðum að þau kæmu fljótt aftur. Gísli bróðir var enn hjá honum þegar kallið kom svo óvænt. „Svo örskammt er bil milli blíðu og éls, að brugðist getur lánið frá morgni til kvelds.“ Þessi orð sálmaskáldsins minna okkur á þá staðreynd, að það er svo margt, sem við mennirnir ráð- um ekki við. Þá er sársaukinn mestur, þegar við fáum ekki að breyta því böli, sem örlögin hafa skapað ástvini. Við verðum sem ómálga börn, þegar við stöndum frammi fyrir slíkum vanda og fáum ekki minnsta ráðið við, hvað þá skýrt eða skilið. Þannig er mér innanbrjósts þegar ég sest niður til að minnast bróður míns. Þorsteinn Nikulás hét hann fullu nafni og var næstyngstur þrettán barna foreldra okkar, þeirra Kristjönu P. Kristjánsdótt- ur og Halldórs Þorsteinssonar frá Vörum í Garði. Steini Lási var góður drengur í orðsins fyllstu merkingu. Glæsi- legur ungur maður. Það var gam- an að sjá hann dansa þegar „tjútt- ið“ var allsráðandi og tók hann þá oft þátt i danskeppnum og fékk verðskuldaða viðurkenningu fyrir frábæra leikni í dansi. Hann var fæddur músíkant, lék á harmón- iku og orgel af mikilli innlifun, þó ekki hefði hann lært að spila eftir nótum. Einnig var Steini Lási góð- ur söngmaður og kom það sér oft vel, því mikið var sungið við orgel- ið í Vörum, við öll hátíðleg tæki- færi. Ungur kvæntist Steini Lási Grétu Jósefsdóttur, glæsilegri konu, sem varð okkur öllum sann- ur vinur. Ekki áttu þau hjón börn saman, en eignuðust kjörson, Dav- íð Margeir, yndislegan dreng sem varð þeim sannur sólargeisli. Hann er ókvæntur og býr í Reykjavík. Fyrir hjónaband eignaðist Steini Lási son, Bessa Halldór, elskulegan dreng. Hann býr á Blönduósi og er kvæntur Agnesi Jóhannsdóttur, þau eiga þrjú börn. Það var stoltur afi, sem sýndi okkur myndir af barnabörnunum sínum. Barngóður var Steini Lási, svo að eftir var tekið. Eiga systkina- bömin hans Ijúfar minningar um þennan góða frænda. Steini Lási lauk fiskimanna- prófi í Reykjavík árið 1953. Fljót- lega varð hann skipstjóri á eigin bát og gerðist athafnasamur út- gerðamaður. Hamingjan blasti við. Þá gerðist það að hann veikt- ist af berklum og varð að dvelja á Vífilsstöðum alllangan tíma. Var þetta mikið áfall, sem olli þvf að hann varð að hætta á sjónum. Með Guðs og góðra manna hjálp komst hann yfir þessa erfiðleika og náði góðri heilsu að nýju. Þó var eins og eitthvað hefði brostið innra með honum. Með sameinuðu átaki þeirra hjóna gekk fyrirtækið vel næstu árin, stærri bátur var keyptur og nú átti að veiða síld, en allar von- irnar brugðust. Aflaleysi, vélarbil- un og hvert óhappið elti annað, þar til allt varð að selja, til þess að greiða skuldir. Allt var gert til að hjálpa, en erfiðleikarnir urðu hon- um ofraun og þá helst, þegar hann sá fram á að geta ekki borgað þeim, sem höfðu lánað honum og á hann treystu. Það eru svo margskonar svipti- vindar, sem blása i mannlifinu. Fyrir nokkrum árum slitu þau hjónin samvistir eftir langa sam- búð. Síðastliðið sumar dvaldi Steini Lási á Reykjalundi sér til hress- ingar, enda var hann oft lasinn. Þar voru svo margir sem áttu bág- ara en hann, og lagði hann sig þá allan fram um að hjálpa og gleðja þá sem minna máttu sín. Vil ég fyrir hönd Gunnars Birg- is, fóstursonar dóttur minnar, þakka Steina Lása það sem hann var honum þann tfma er þeir dvöldu þar saman. Á Reykjalundi leið Steina Lása vel. Endurnærður og fullur af framtiðarvonum kom hann heim, en vonirnar fengu ekki að rætast. Ég veit að ef Steini mætti mæla nú, þá væri honum efst í huga þakklæti til ástvinanna, sem allt vildu fyrir hann gera, og þá sér- staklega systkina okkar, þeirra Betu, Valda og Gísla, sem vöktu yfir velferð hans alla daga. Við hjónin og fjölskylda okkar öll kveðjum Steina Lása með söknuði og biðjum honum Guðs- blessunar um alla eilffð. Ástvinum hans öllum vottum við okkar dýpstu samúð. Hvíli elsku bróðir minn i friði. Mmrta G. HalMórsdóttir Steini Lási er dáinn og minn- ingarnar koma upp í huga minn um góðan dreng, sem öllum þótti vænt um, sem kynntust honum. Hann var svo barngóður, að það var unun að sjá hve börn hændust að honum, ekki síst litla dóttir mín Tanía, sem var svo hrifin af frænda sínum. Steini var hreinn og beinn og aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Margar góðar stundir átti ég á heimili þeirra Grétu og Steina, því alltaf var sterkt samband milli fjölskyldna okkar og Davíð sonur þeirra hefur alltaf verið mér sem bróðir. Oft var glatt á hjalla hjá okkur, þegar Steini lék á orgelið eða harmónikuna, eða sýndi okkur myndir úr ferðalögum fjölskyld- unnar. Steini Lási átti við erfiðan sjúkdóm að striða siðustu árin og finnst mér táknrænt að kallið skyldi koma einmitt á aðfanga- dagskvöld, er kirkjuklukkurnar hljómuðu. Veit ég að hans jól hafa verið dýrðleg. Ég þakka Steina Lása allan þann hlýhug og vinsemd, sem hann auðsýndi mér og fjölskyldu minni. Sonum hans, Davíð og Bessa, og öðrum aðstandendum hans sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Kristjana V. Jónatansdóttir Faöir okkar, EIRÍKUR HERMANN88ON, Vaaturbargi 78, andaöist i Landspitalanum 3. janúar. Jaröarförin auglýst 3iöar. Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna. Varnharöur Eirfksson. Fósturmóöir okkar. + VIGDÍS JÓN8DÓTTIR, lést á Hrafnistu i Reykjavik fimmtudaginn 3. janúar. Fyrir hönd ættingja. Viggó Guömundsson, Hjalti Þorstainsson. Eiginkona mfn og móöir min, MARÍA JENSDÓTTIR, andaöist i Landspitalanum fimmtudaginn 3. janúar. Jónatan Ólafsson, Gigja Jónatansdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.