Morgunblaðið - 15.01.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
MÁLASKÓLINN MÍMIR
auglýsir nýjung
„Wir laden zum
STAMMTISCH
• einu sinni í viku
• sama fólkið
• á sama tíma
• við sama borð
Kanntu þýsku - þokkalega eða jafnvel prýðilega. Þig vantar
etv. tækifæri til að halda henni við. Málaskólinn mímir býður
upp á möguleika til að viðhalda þýskukunnáttu þinni á skemmti-
legan máta.
Innritaðu þig á ,,Stammtisch“ sem er staðsett í veitingahúsinu
Hrafhinum Skipholti 37.
Umræðustjóri ,,Stammtisch 1985“ verður Rainer Santuar.
Innritun í síma 10004 og 21655 kl. 13—17 alla virka daga.
í kynnisferð
til Japan og
Singapore
HÓPUK manna lagði síðastlið-
inn lostudag upp í kynnisferð til
Singapore og Japan á vegum
löntæknistofnunar íslands og er
tilgangurinn að kynnast aðferð-
um þessara Asíuríkja við að
byggja upp háþróaðan iðnað á
skömmum tíma. Þetta er í ann-
að sinn sem stofnunin stendur
fyrir slíkri ferð, hin fyrri var far-
in í janúar 1984 og þá til Singa-
pore, Japan og Hong Kong. Þátt-
takendur í þeirri ferð voru 20
fulltrúar iðnfyrirtækja og stofn-
ana sem tengjast íslenskum iðn-
aði, og var hópurinn mjög
ánægður með þá fróðlegu inn-
sýn, sem hann fékk í skipulag
framleiðslu og stjórnunaraðferð-
ir í þessum löndum.
Gefin var út skýrsla um fyrri
ferðina og er niðurstaða þátttak-
enda, að þar sem bestur árangur
hefur náðst, þ.e. í Singapore og
Japan, byggðust aðferðir við
stjórnun á vel skilgreindum verk-
efnum, settum fram með skýrum,
þjóðfélagslegum markmiðum, sem
kappkostað var að ná samstöðu
um meðal þjóðarinnar. Bent er á,
að í þessum löndum er lögð mikil
áhersla á samvinnu og samráð
stjórnenda og starfsmanna í fyrir-
tækjum og ekki síður á samráð
stjórnenda, launþega og atvinnu-
rekenda um efnahagsstefnu og
stefnu í kjaramálum. Taldi hópur-
inn æskilegt, að fleiri íslendingar
af vettvangi verkalýðsmála, at-
vinnurekstrar, skólamála, fjöl-
miðlunar, stjórnmála og opinberr-
ar sýslu kynntust af eigin raun
þeim hugsunarhætti og vinnu-
brögðum sem ríkja í þessum lönd-
um.
Vegna áskorana efnir Iðntækni-
stofnun nú til aimarrar ferðar í
austurveg og er hún skipulögð í
samvinnu við ræðismann lslands í
Singapore og Japönsku fram-
leiðnistofnunina (Japan Producti-
vity Center). Meðal þátttakenda í
ferðinni verða fulltrúar frá verka-
lýðssamtökum, samtökum at-
vinnurekenda, samvinnufélögum,
stofnunum og skólum, um 15
manns.
(FrétUtilkynning)
BANDALAG JAFNAÐARMANNA
Landsfundur Bandalags jafnaöarmanna veröur haldinn aö Hótel Loftleiöum 1.—3. febrúar nk.
Fundurinn er öllum opinn
Þú átt fjögurra kosta völ
... Þú tilkynnir þátttöku í síma 21833 fyrír 21. janúar og færd send
öll gögn sem fundinn varöa og hefur málfrelsi, kjörgengi, tillögu-
og kosningarétt á fundinum.
... Þú tilkynnir ekki þátttöku en mætir einhvern fundardagana eöa
alla, færö öll fundargögn og hefur málfrelsi á fundinum.
... Þú kemur hvergi en hringir í síma 21833 og færö send öll gögn
fundarins.
... Þú gerir ekkert af þessu og glatar gullnu tækifæri til aö kynnast
og móta stefnu framtíöarafls íslenskra stjórnmála.
Bandalag jafnaöarmanna
Sími
21833