Morgunblaðið - 15.01.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
25
Jayawardene
segir herinn hafa
„farið of geystu
gegn Tamilum
New York, 14. janúar. AP.
FORSETI Sri Lanka, Junius Jayawardene, viðurkenndi í blaðaviðtali við
Newsweek sem kom út um helgina, að her landsins hefði farið „of geyst í
sakirnar" í viðureign sinni við uppreisnarmenn Tamila á eynni.
Jayawardene sagðist ekki neita
því en hins vegar kæmi ekki til
nokkurra mála að taka upp neins
konar viðræður við Tamila nema
því aðeins þeir létu af þeirri kröfu
sinni að koma upp sjálfstæðu
Tamilaríki á norðurhluta Sri
Lanka. Hann sagðist hafa skýrt
frá því í desember og vildi ítreka
það í viðtalinu, að hann hefði lagt
fram tillögu um fund deiluaðila,
sem hann hefði siðan dregið til
baka, þar sem Tamilar hefðu ein-
hliða neitað öllu og vísað öllu á
bug.
Jayawardene sagði að í stað
þess að viðræður færu fram myndi
hann efna til kosninga og fram-
bjóðendur yrðu aðeins þeir sem
myndu vera frambjóðendur eins
og sameinaðs ríkis. Hann sagðist
gera sér grein fyrir að lítil þátt-
taka kynni að verða í þeim kosn-
ingum en hann vildi reyna þetta
til þrautar. Svo virtist sem um-
heimur væri þeirrar skoðunar að
hann væri að berja niður lýðræð-
isleg samtök, en hann væri þvert á
móti að reyna að brjóta á bak aft-
ur samtök sem væru skaðleg frelsi
og lýðræði.
Neyðarlög sett í
Nýju Kaledoníu
Noumea, 14. janúar. AP.
YFIRVÖLD í Nýju Kaledoníu hafa sett lög um neyðarástand, sem fela m.a. í
sér útgöngubann hluta sólarhringsins og bann við mannfundum. Þá hafa um
eitt þúsund hermenn og menn úr sérsveitum óeirðalögreglu verið sendir til
eyjarinnar frá Frakklandi til að aðsto
Ákvörðun um þetta var tekin í
framhaldi af því að Eloi Machoro,
einn helsti leiðtogi sjálfstæðis-
hreyfingar Melanesíubúa á eynni,
féll i skotbardaga við lögreglu á
afskekktum sveitabæ á laugardag.
Lögreglan segir að á bænum hafi
fundist vopn, sprengiefni og skjöl,
sem sýni að Machoro og 40 sam-
herjar hans ætluðu að reyna að ná
völdum í borginni Foa, sem er
skammt þar frá.
Félagar Machoro í sjálfstæð-
ishreyfingunni hafa dregið skýr-
ingar yfirvalda á átökunum, sem
leiddu til dauða hans, í efa, og
kröfðust um helgina nýrrar krufn-
i við að halda þar uppi lögum og reglu.
ingar á líki hans. Sú líkskoðun
hefur þegar verið framkvæmd og
styður hún skýringar yfirvalda.
Frakkar hafa farið með stjórn
Nýju Kaledoníu, sem er í Suður-
Kyrrahafi, frá 1853. Þeir hafa lagt
fram tillögur, sem fela í sér að
eyjan fái fullt sjálfstæði, að öðru
leyti en því að öryggismál hennar,
innan ríkis og utan, verði áfram
undir þeirra stjórn. Um þá tillögu
er deilt af miklum hita á eynni og
eru það einkum hvítir menn af
evrópskum uppruna, sem andvígir
eru hugmyndinni, en hinum inn-
fæddu þykir hún ekki ganga nógu
langt.
Kdward Kennedy öldungadeildarþingmaður með Winnie, eiginkonu blökku-
mannaleiðtogans Nelsons Mandela, sem situr f fangelsi í Suður-Afríku fyrir
andóf sitt gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda.
Kennedy ánægð-
ur með Suður-
Afríku förina
London, 14. janúar. AP.
BANDARÍSKI öldungadeildarþing-
maðurinn Kdward Kennedy, sem í
dag kom til London á heimleið frá
Suður-Afríku, sagði við fréttamenn
þar, að kynnisferö sín hefði heppn-
ast mjög vel þrátt fyrir mótmælaað-
gerðir svertingja, sem sökuðu hann
um nota andófið gegn aðskilnaðar-
stefnunni til að bæta stöðu sína í
stjórnmálabaráttunni í Bandaríkjun-
um.
Kennedy kvað ferð sína til
Suður-Afríku hafa skilað tvenns
konar árangri. í fyrsta lagi hefði
hann sjálfur orðið margs nýs vís-
ari um afleiðingar aðskilnaðar-
stefnunnar og í öðru lagi hefði
hann gert mörgum Suður-Afríku-
búum Ijóst, að allur þorri Banda-
ríkjamanna væri henni andvígur.
Þórskabarett! —
Við bióduro aó
gðeins uPP a Þa m/I
lál
<0
★ Júlíus Brjánsson
★ Kjartan Bjartmannsson
Stjúpsystur ,j
Gudrún Alfredsdóttir
Saga Jónsdóttir
Guðrún Þórdardóttir
í
p|XjXft
USUIÖJ
jKMÖ'd
f GOmí^;ffe^einumS,aó
( pnreUaOO^ |andsins a
^lustudansh'io
*oavnwáówns
■m!:
Hver býður betur?
Pantið borð
tímanlega.
— Sími23333
Staður hinna vandlátu °9 23335
★