Morgunblaðið - 15.01.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
47
Guöbergur Magnússon á um 60 svona möppur fullar af kortum og segist ekki
veita af a.m.k. 60 möppum í viðbót.
nálægt þessu. Þegar aðrir Ieggja
sig t.d. eftir matinn þá notar mað-
ur tímann og gluggar i safnið og
reynir að vinna eitthvað. Það þarf
ekki mikinn tíma í einu.
— Þetta hlýtur að vera kostnað-
arsamt líka.
— Já það er dýrt að kaupa plast
undir allt saman. Ég er kominn
með 60 fullar möppur og vantar í
„v,\»»v»/¥tv '
..,súó:t'ftaíUiíuat(;ufV'
'SSS"'"
viðbót allavega jafn mikið. Þetta
er líka plássfrekt og ég þárf a.m.k.
eitt herbergi fyrir þessi kort. Það
getur orðið afar rúmfrekt þegar
mörgu er safnað.
— Hverju safnar þú auk kort-
anna?
— Það er nú ýmislegt. Ég safna
gömlum hlutabréfum, gömlum
sýnishornum af sparisjóðs- og
bankabókum. Ég safna sýnishorn-
um af ávísanablöðum, gömlum
skömmtunarseðlum, frímerkjum,
mynt og fleiru. Það eru síðan aðrir
á heimilinu sem eru að safna t.d.
spilum og happdrættismiðum.
Þannig að þetta er orðið býsna
fyrirferðarmikið á heimilinu.
Má bjóða í
bfltúr???
Einhver snillingur sagði ein-
hvern tímann að ekki væri öll
vitleysan eins og fá orðatiltæki
eru jafn kla.ssi.sk. Á meðfylgjandi
mynd sannast þessi orð áþreif-
anlega, en stúlkurnar, sem eru
19 talsins, hafa nýlokið við aö
setja heimsmet sem verður fært í
heimsmetabók Guinnes.
Stúlkurnar stuttklæddu gerðu
sér lítið fyrir og tróðu sér allar
inn í Mini-bifreiðina sem þær
sitja á og standa við. Getur hver
fyrir sig getið sér til hvernig þær
fóru að því. Þær vissu að heims-
met yrði ekki sett nema að öllum
dyrum bílsins væri lokað eftir að
sú síðasta væri komin inn og öll
sæti bifreiðarinnar voru á sínum
stað. Þetta var gert í auglýs-
ingaskyni vegna útimarkaös sem
opnaði nýlega í Chelsea-hverfinu
í Lundúnum. Vakti uppátækið
mikla athygli og kættust auglýs-
endur að sjálfsögðu til muna.
COSPER
Má bjóða yður í glas, frú Jensen?
PUNKTAR UM
BÓLING = KEILU
í ÖSKJUHLÍÐ
6
Keiluíþróttin er einstök aö því leyti,
að nánast allir geta iðkað hana
óháð aldri eða líkamsburðum.
Keila er leikin í 4 eða 5 manna
liðum, sem hittast reglulega einu
sinni í viku í ca. 2-2Vz klst.
Keila er einnig leikin sem oþin
keila. Þá geta verið einn eða fleiri
á braut, hægt er að hafa fasta tíma
í oþinni keilu eða bara líta við og
sjá hvort braut er laus.
Keila er mjög félagsleg íþrótt, sem
eykur samkennd og samvinnu inn-
an félagshóþa, fyrirtækja og fjöl-
skyldna.
Keilusalurinn í Öskjuhlíð mun
kappkosta að sinna bæði liðakeilu
og opinni keilu, þannig að sem
flestir fái notið íþróttarinnar.
Fyrst um sinn mun keilusalurinn í
öskjuhlíð verða opinn:
mánud.-fimmtud.
Föstud.
Laugard.
Sunnud.
10°° - OO30
10°° - 02°°
09°° - 02°°
09°° - 02°°
*
Liða- og deildakeila verður aðal-
lega á virkum dögum frá kl. 1800 -
OO30.
Laugardagar og sunnudagar frá
kl. 09°° - 1830 verða aðallega
helgaðir fjölskyldunni.
Opin keila verður á öllum öðrum
tímum.
Keilusalurinn í Öskjuhlíð er í vest-
anverðri Öskjuhlíð og leið 17
stansar rétt fyrir neðan húsið.
úVeyjt!
Tímapantanir í síma 11630.