Morgunblaðið - 15.01.1985, Síða 47

Morgunblaðið - 15.01.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985 47 Guöbergur Magnússon á um 60 svona möppur fullar af kortum og segist ekki veita af a.m.k. 60 möppum í viðbót. nálægt þessu. Þegar aðrir Ieggja sig t.d. eftir matinn þá notar mað- ur tímann og gluggar i safnið og reynir að vinna eitthvað. Það þarf ekki mikinn tíma í einu. — Þetta hlýtur að vera kostnað- arsamt líka. — Já það er dýrt að kaupa plast undir allt saman. Ég er kominn með 60 fullar möppur og vantar í „v,\»»v»/¥tv ' ..,súó:t'ftaíUiíuat(;ufV' 'SSS"'" viðbót allavega jafn mikið. Þetta er líka plássfrekt og ég þárf a.m.k. eitt herbergi fyrir þessi kort. Það getur orðið afar rúmfrekt þegar mörgu er safnað. — Hverju safnar þú auk kort- anna? — Það er nú ýmislegt. Ég safna gömlum hlutabréfum, gömlum sýnishornum af sparisjóðs- og bankabókum. Ég safna sýnishorn- um af ávísanablöðum, gömlum skömmtunarseðlum, frímerkjum, mynt og fleiru. Það eru síðan aðrir á heimilinu sem eru að safna t.d. spilum og happdrættismiðum. Þannig að þetta er orðið býsna fyrirferðarmikið á heimilinu. Má bjóða í bfltúr??? Einhver snillingur sagði ein- hvern tímann að ekki væri öll vitleysan eins og fá orðatiltæki eru jafn kla.ssi.sk. Á meðfylgjandi mynd sannast þessi orð áþreif- anlega, en stúlkurnar, sem eru 19 talsins, hafa nýlokið við aö setja heimsmet sem verður fært í heimsmetabók Guinnes. Stúlkurnar stuttklæddu gerðu sér lítið fyrir og tróðu sér allar inn í Mini-bifreiðina sem þær sitja á og standa við. Getur hver fyrir sig getið sér til hvernig þær fóru að því. Þær vissu að heims- met yrði ekki sett nema að öllum dyrum bílsins væri lokað eftir að sú síðasta væri komin inn og öll sæti bifreiðarinnar voru á sínum stað. Þetta var gert í auglýs- ingaskyni vegna útimarkaös sem opnaði nýlega í Chelsea-hverfinu í Lundúnum. Vakti uppátækið mikla athygli og kættust auglýs- endur að sjálfsögðu til muna. COSPER Má bjóða yður í glas, frú Jensen? PUNKTAR UM BÓLING = KEILU í ÖSKJUHLÍÐ 6 Keiluíþróttin er einstök aö því leyti, að nánast allir geta iðkað hana óháð aldri eða líkamsburðum. Keila er leikin í 4 eða 5 manna liðum, sem hittast reglulega einu sinni í viku í ca. 2-2Vz klst. Keila er einnig leikin sem oþin keila. Þá geta verið einn eða fleiri á braut, hægt er að hafa fasta tíma í oþinni keilu eða bara líta við og sjá hvort braut er laus. Keila er mjög félagsleg íþrótt, sem eykur samkennd og samvinnu inn- an félagshóþa, fyrirtækja og fjöl- skyldna. Keilusalurinn í Öskjuhlíð mun kappkosta að sinna bæði liðakeilu og opinni keilu, þannig að sem flestir fái notið íþróttarinnar. Fyrst um sinn mun keilusalurinn í öskjuhlíð verða opinn: mánud.-fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 10°° - OO30 10°° - 02°° 09°° - 02°° 09°° - 02°° * Liða- og deildakeila verður aðal- lega á virkum dögum frá kl. 1800 - OO30. Laugardagar og sunnudagar frá kl. 09°° - 1830 verða aðallega helgaðir fjölskyldunni. Opin keila verður á öllum öðrum tímum. Keilusalurinn í Öskjuhlíð er í vest- anverðri Öskjuhlíð og leið 17 stansar rétt fyrir neðan húsið. úVeyjt! Tímapantanir í síma 11630.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.