Morgunblaðið - 15.01.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
53
Grimmd og krist-
ið hugarfar
Getur þetta tvennt, sem nefnt
er í fyrirsögn þessari átt samleið?
Daglega er þess getið í fréttum
og frásögnum, að fjölbreytileg
grimmdarverk eigi sér stað í lönd-
um kristinna þjóða, ekkert síður
en þar sem kristni er ekki viður-
kennd. Og saga þjóða- og mann-
kyns í margar aldar sýnir og sann-
ar hið sama.
Samt vilja flestir prestar og
boðendur kristindómsins telja yf-
irlýsingu í Jóhannesarbréf 4. kap.,
16. versi kjarna hins kristilega
hugarfars í fáum orðum:
„Guð er kærleikurinn og sá, sem
er stöðugur í kærleikanum, er
stöðugur í Guði og Guð er stöðug-
ur í honum."
Og nú við upphaf árs, sem hlotið
hefur nafnið „ár æskunnar" ætti
þetta að vera heitt í huga uppal-
enda ekki síst kennara og presta
um víða veröld, hátt hafið yfir all-
ar kirkjudeildir og kenninga-
fjötra, hindurvitni, játningar og
helgisiði.
Og um leið mætti fullyrða, að
þar sé grimmdin algjör andstæða,
sem einmitt þarf að útrýma sem
fyrst í hinum „kristna" hluta ver-
aldar og síðar hverri sál.
Grimmd stafar yfirleitt af •
hatri, hefndarhug, öfund og ill-
girni. En eru þær kenndir ekki
óhugnanlegustu þættir í mann-
legri skapgerð og langt frá kenn-
ingum meistarans mikla, sem
kenndi sínum lærisveinum:
„Sælir eru miskunnsamir, því að
þeim mun miskunnað verða."
Hann afneitaði einnig alveg
erfikenningum sinna trúfræðinga
og sagði:
„Þér hafið heyrt að sagt var:
„Auga fyrir auga og tönn fyrir
tönn.“
„En ég segi yður allt annað:
Elskið óvini yðar og biðjið fyrir
þeim, sem ofsækja yður, til þess
að verða börn föður yðar, sem er á
himinum.
Verið fullkomnir eins og yðar
himneski faðir er fullkominn.”
Svona er afstaða Jesú til þess-
ara mála. Hátt hafinn yfir allar
deilur, trúarbragðaþras og kirkju-
deildir.
Þennan kristindóm þurfa börn
allra þjóða að læra. Það er boð-
skapurinn um hinn sanna frið,
sem heimurinn þráir, þrátt fyrir
allt, ofar öllum játningum, sem
geta meira að segja og hafa oft
aukið deilur og grimmd á öllum
sviðum. Þennan boðskap elskunn-
ar verða allir prestar, kennarar og
boðendur kristninnar að kunna
sem best, kenna og æfa í öllum
öðrum námsgreinum og störfum,
helst líkt og ósjálfrátt og innlifað
menntun sinni. Nauðsyn slíkrar
menntunar og frjálsrar aðstöðu
kennir mannkynssagan öllu betur,
en þar vekja spor grimmdar og
fyrirlitningar mestan ótta og heit-
astan hrylling. Fáar bækur segja
frá meiri grimmd en sjálf biblían.
Og ferðir um hið dásamlega land
hennar, landið helga, má heita
ganga frá einum stað til annars,
þar sem grimmdin hafði völd og
nær enn daglega sterkum tökum.
Samt er hún líka sagan um sig-
urgöngu kærleikans, þegar sól-
geislar hinna göfugu guðsbarna,
með Jesúm í broddi fylkingar gátu
vakið vor Hfsins við sínar brautir,
jafnvel þótt þær lægju upp á sjálft
krosstré kvalanna, sem grimmdin
hafði smíðað hinum bestu.
í Gamlatestamentinu er viða
beinlínis fyrirskipað í nafni Jahve,
en svo nefndi ísrael Guð sinn, að
láta ekkert kvikt llfi halda í her-
tekinni borg, slá börnum niður við
stein og láta þau sprikla á sverðs-
oddum.
Okkar ágætu íslendingasögur,
ekki síst frá öld Sturlunga, eru
þarna hliðstæða á ýmsan hátt.
Með slíkt efni verður að fara var-
lega í barnafræðslu, fjarlægt allri
bókstarfstrú og trúarhroka fyrr
og síðar. Þar skín ásjóna hins
sanna föður kærleikans oft bjart
til hliðsjónar og minnir á boðskap
Jesú um fyrirgefningu, frið og ást
til allra.
Þar mætti minna á orð ólafs pá
í Hjarðarholti, sem telja má játn-
ingu hins sannkristna manns ofan
alira ritninga og helgisiða, þrátt
fyrir allt þeirra ágæti.
í sárum harmi við missi síns
glæsilega sonar á hátindi heilla og
frægðar, segir hann:
„Ekki er mér sonur minn bætt-
ari, þótt Bolli sé veginn."
Kannski var þessi höfðingi í
Dölunum ekki talinn formlega
kristinn. En vissulega gæti Jesús
hafa sagt eitthvað svipað um hann
og Samverjann og kanversku kon-
una: „Mikil er trú þín.“ Lærið af
Samverjanum, sem rétttrúaða
fólkið fyrirleit af öllu hjarta.
í upphaf „æskuársins" vildi ég
vekja áhuga og hugsun þeirra er
stunda handleiðslu ungmenna, að
kenna þeim þá leið, sem mannkyn-
ið verður að halda til sólarhæða
sannleikans og kærleikans, ofar
öllu fornu orðaskaki.
„Sýn trú þína í verkum þínum"
mætti standa yfir stofndyrum há-
skólanna mörgu við upphaf ársins
1985 — „Árs æskunnar".
Meira seinna.
Rejrkjarík, 7. jan. 1985.
Arelíus Níelsson.
Borgames:
Tíu sækja um
sveitarstjórastarf
Borcunesi, 13. janúar.
TÍU sóttu um starf sveitarstjóra
Borgarneshrepps, sem nýlega var
auglýst laust til umsóknar. Fráfar-
andi sveitarstjóri, Húnbogi Þor-
steinsson, sem verið hefur sveitar-
stjóri í Borgarnesi í tæp 17 ár, hefur
sagt starfinu lausu frá vordögum og
ráðið sig sem deildarstjóra í félags-
málaráðuneytinu.
Fjórir umsækjendanna óskuðu
nafnleyndar, aðrir eru: Gísli
Karlsson, búfræðikennari, Hvann-
eyri; Grímkell Arnljótsson,
skrifstofumaður, Reykjavík; Jó-
hannes Finnur Halldórsson, bæj-
arritari, Akranesi; Halldór Sigur-
jónsson, sveitarstjóri, Hólmavík;
Sigurgeir Þórðarson, bygginga-
fræðingur, búsettur í Danmörku
og Brynjólfur Tryggvi Árnason,
sveitarstjóri, Nesjahreppi.
Ráðið verður í starfið á næstu
dögum frá komandi vori til næstu
sveitarsíjórnarkosninga, eða í
rúmt ár.
Útsala
Allt að 85% afsláttur.
Plaköt á 14—20 kr. Út-
sala á smellurömmum,
álrömmum, myndum,
kortum og fleiru.
Atvinnurekendur, húsráðendur, trá-
bært úrval mynda á vinnustaði,
stigaganga og til hvers konar hús-
prýði. Notið þetta einstaka tækifæri.
Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga
kl. 9-18.
Föstudaga kl. 9—19.
laugardaga kl. 10—17.
Sunnudaga kl. 13—17.
Myndin
Dalshrauni 13, Hafnarfiröi.
Sími 54171.
SHARP
Lítil og nett
en leynir á sér
Hún er fallega nett og fer vel
í skrifstofu.
Hún prentar í 4 litum - svörtu,
rauðu, bláu og brúnu.
Hún prentar 5lt
frá B4 (A4 yfirstærð),
og niður í nafnspjöld.
Hún prentar á flestar þykktir
af pappír - kartong.
Z-60 Ijósritunarvél
aðeins kr. 54.000 stg.
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999-17244
— HBj.