Morgunblaðið - 15.02.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
5
Krafla:
Ekkert
ákveðið
um gufu-
aflsöflun
„MJOG hafa menn verið margátta
hvað varðar framtíð gufuöflunar við
Kröflu — en það hefur auðvitað ver-
ið vegna þess að menn hafa viljað
sjá fyrir endann á jarðumbrotum við
Kröflu, áður en ákvarðanir um fram-
haldið væru teknar,“ sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra í
samtali við blm. Mbl. í gær, er hann
var spurður hvort ákvörðun hefði
verið tekin hvað varðar áframhald
gufuöflunar við Kröflu, en í skýrslu
Orkustofnunar um gufuöflun við
Kröflu undanfarin 10 ár segir að
Kröfluvirkjun standi nú á tímamót-
um, þar sem aflað hafi verið nægrar
gufu fyrir fyrri vélasamstæðuna, og
mikilverðasta ákvörðunaratriði varð-
andi gufuöflun í Kröflu sé nú hvort
stefna beri að uppsetningu síðari
vélasamstæðunnar.
Sverrir sagði að grannt væri
fylgst með gasstreymi í jarðhita-
kerfum á Kröflusvæðinu, og þau
færu minnkandi. „En það er alveg
ljóst," sagði iðnaðarráðherra, „að
það verður engin ákvörðun tekin
um frekari öflun gufuafls fyrir
Kröfluvirkjun, meðan að svo
standa sakir sem nú er. Það má
athuga það, þegar þar að kemur,
hvort hagkvæmt þykir að fara út í
einhverjar viðbótarboranir til
þess að afla þeirri samstæðu, sem
nú er í gangi, meira gufuafls til
þess að hún geti haldið fullum af-
köstum. En eins og ég sagði áðan,
þá kemur ekki til neinna greina að
huga að seinni samstæðunni, hvað
þá meir.“
Aðspurður um hvort ekki kæmi
til greina að flytja þá 30 MW túrb-
ínu, sem stendur ónotuð við
Kröflu, til Reykjaness og nýta þar,
sagði iðnaðarráðherra: „Ég hvorki
vil né get um það dæmt hvort það
væri hagkvæmt. Þetta verður allt
tekið til athugunar í samningum
okkar við Landsvirkjun um kaup á
Kröflu, en þeir fara í gang nú á
næstunni."
Bflaeign miðaö
við íbuafjölda:
ísland
í 5. til 6.
sæti
ÍSLAND er nú í 5. til 6. sæti yfir
þær þjóðir, sem hafa fæsta íbúa
að meóaltali á hvern bíl sam-
kvæmt upplýsingum bflablaðsins
Automobile International. Hér
eru 2,4 íbúar á hvern bfl. Fæstir
íbúar á hvern bfl eru í Guam, 1,6.
Á lista bílablaðsins eru nær
öll lönd heims, aðeins einstök
kommúnistaríki eru ekki á list-
anum svo sem Albanía og
Kúba, sem ekki gefa upp hag-
tölur sínar. Að meðaltali eru
3,2 íbúar í Vestur-Evrópu um
hvern bíl, 1,9 í Bandaríkjunum,
17,4 í Austur-Evrópu, 33,1 i
Mið-Austurlöndum og 66,7 í
Afríku.
Miðað við íbúafjölda eru
flestir bílar í eftirtöldum lönd-
um: Guam, 1,6 íbúar á hvern
bíl, Bandaríkin 1,9, Nýja Sjá-
land 2,3, Kanada 2,3, ísland 2,4,
Ástralía 2,4, Lúxemborg 2,5,
Vestur-Þýzkaland 2,6, Sviss
2,6, Frakkland 2,7, Svíþjóð 2,8,
Færeyjar 3,0, Belgía 3,1, Hol-
land 3,1 og Noregur 3,1 íbúi á
hvern bíl.
Fjöldí fvTÍrtækja
svo sem Vogue hf. — Karnabær — Hummel sf.
— Steinar hf. — Belgjagerðin hf. — Axel Ó. —
Blómasel — Gjafavörudeildin sf. — Barnafata-
versl. Fell — o.m.fl. o.m.fl.
Gífurlegt vöruúrval
Dömufatnaður — Herrafatnaður — Unglingafatnaður — Barnafatnaður — Ungbarnafatnaður
— Sportfatnaður — Vinnufatnaður — Gífurlegt úrval af alls konar efnum og bútum — Sængur-
fatnaður — Handklæði — Gardínuefni — Hljómplötur og kassettur í stórglæsilegu úrvali — Skór
á alla fjölskylduna — Sportvörur í miklu úrvali — Úr — Klukkur — Sjónvarpsleikir — Gjafavör-
ur í sérflokki — Blóm o.m.fl. o.m.fl.
OPIÐ
laugardaga frá kl. 10—16 e.h.
daglega frá kl. 13—18 e.h.
föstudaga kl. 13—19 e.h.
Hinn eini
og sanni
/
hefst í dag kl. 13.00 aö
FOSSHÁLSI
(fyrir neöan Osta- og smjörsöluna, Árbæ, viö hliðina á nýju Mjólkurstöðinni).
tórutsölu
arkaour